Morgunblaðið - 18.09.1983, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. SEPTEMBER 1983
37
Árið 1849 var Dostoevsky dæmdur til dauða, fyrir að gagnrýna keisarann, en dauðadómnum var breytt í fjögurra ára
þrælkunarvinnu á síðasta augnabliki.
Þetta er ein af blaðsíðunum sem Dostoevsky krassaði út. Hann var einnig
ágætur teiknari.
sóttin ákváðu skötuhjúin að fara
utan. í Evrópu myndu þau geta
losnað úr viðjum niðurlægingar-
innar af leynilegu ástarævintýri
og lifað saman án pukurs.
í París hljóp snurða á þráðinn.
Dostoevsky eyddi tíma og aleig-
unni í spilavítum, en Appollin-
aría kynntist Spánverja er Salva-
dor hét. Hún var ekki fyrr orðin
hrifin af Salvador en hún hætti
að gera sér rellu út af skáldinu.
Dostoevsky komst að þessu og
hann dofnaði af reiði. En ekki leið
á löngu þar til Spánverjinn gufaði
upp og hjúin fundu hamingjuna á
ný í Baden-Baden.
Dagleg umgengni við Appollin-
aríu æsti Dostoevsky líkamlega,
og hann eyddist í rauninni yfir
hægum eldi ófullnægðrar ástríðu
sinnar. Hann skammaðist sín
gagnvart henni, taldi fýsn sína
siðferðilegan veikleika, ávítaði
sjálfan sig, en hegðun Appollin-
aríu ruglaði hann í ríminu, því
hún reyndi ekki einu sinni að vera
honum hjálpleg við að sigrast á
illum hvötum. Þvert á móti
stríddi hún honum, prófaði vald
sitt yfir honum og neitaði með
ánægju um líkamlega fullnæg-
ingu. Hún leit á barnalegar til-
raunir hans með háði, sem smám
saman snerist í fyrirlitningu. En í
þessum skollaleik var fólgin sér-
stök nautn, sem Dostoevsky skildi
mætavel; sjálfspyntingarhvötin
var honum nokkurs konar blíðu-
sprettur.
Heima lá María og var að tær-
ast upp. Dostoevsky skildi við
Appollinaríu um stund og fór
heim. Hjónin fluttu til Moskvu í
nóvember 1863. Dauðastríð Maríu
hófst í apríl 1864, hún fékk blóð-
spýting og hægt andlát. Á meðan
dvaldi Appollinaría í París og
tældi alla menn sem á vegi henn-
ar urðu. Mikail bróðir Dostoevsk-
ys dó í júlí og skáldinu fannst
heimurinn vera að hrynja yfir
sig. Honum tæmdist arfur, en
gekk illa að skrifa. Fjöldi lausa-
kaupakvenna var nú hans eina
yndi, eða kvöl.
Dostoevsky og Appollinaría
hittust í París sumarið 1865, eftir
tveggja ára aðskilnað. Þau áttu
ekki lengur samleið. Hún var feg-
urri en nokkru sinni fyrr, en at-
lotakuldi magnaðri sem því nam.
Aðdáun hennar hafði snúist upp í
hatur og hefnigirni. Hann bað
hennar, hún hló að honum. Ham-
ingjuhjólið hans hafði aldrei snú-
ist hratt, en nú snerist hjól spila-
vítisins hraðar en áður. Hann var
að vinna að miklu verki sem síðar
varð, Glæpur og refsing. Hann átti
ekki fyrir máltíð, dró fram lífið á
tei og brauði og sat í myrkri.
Hann komst til Pétursborgar með
aðstoð góðra vina. Appollinaría
rauf sambandið við Dostoevsky,
nú var hún frjáls og gat byrjað
nýtt líf. Hún giftist gyðingi en
skildi við hann nokkrum árum
síðar. Hún hrökk upp af 1918, 78
ára, og grunaði hana þá varla að
hún ætti fyrir granna konu
nokkra, sem 50 árum áður hafði
komið í stað hennar í huga fyrsta
elskhuga hennar, gerst eiginkona
og átti eftir að ljúka ævi sinni á
þessari sömu Krímströnd sama
ár. Þetta var Anna Grigorievna
Dostoevskaja.
Anja
Sumarið 1865 átti Dostoevsky
stutt ástarævintýri með tvítugri
konu, Önnu Korvin-Krukovskaju.
Hún hafði sent honum smásögu,
sem skáldinu og ritstjóranum
leist á. Faðir Önnu, hershöfðing-
inn Vassili, hneykslaðist í fyrstu
en fyrirgaf dótturinni síðar. Eftir
allt það, sem Dostoevsky hafði
orðið að þola af hendi Appollin-
aríu, bauð vinfengi við Önnu
Krukovskaju upp á stundir ein-
falds og kyrrláts unaðar. En sam-
band þeirra náði ekki út fyrir
takmörk gagnkvæmrar samúðar
og loks skarst í odda milli hjóna-
leysanna og leiðir skildu.
Dostoevsky vann að Glæp og
refsingu, en til að flýta verkinu
réð hann til sín hraðritara, sem
var nýjung um þær mundir.
Dostoevsky fékk mjög færa konu,
Önnu Grigorievnu Snitkínu, sem
dáði verk skáldsins.
Anna Snitkína var tvítug, há og
horuð, en augun falleg og grá.
Hún hitti Dostoevsky fyrst 4.
október 1866, þar sem hann bjó
við Stolovajagötu. Þau ræddu um
starfið og skáldið bað hana að
koma aftur um kvöldið. Dosto-
evsky var skrafhreifinn við hana,
og Ánna furðaði sig á, hvernig
maður er virtist svo hlédrægur og
þunglyndur, gæti talað svo hrein-
skilnislega við unga konu, sem
hann hafði hitt í fyrsta skipti þá
um morguninn. Henni skildist
hversu óskaplega einmana hann
var, fékk miklar mætur á at-
vinnurekanda sínum. Upp frá
þessu unnu þau saman nokkrar
stundir á hverjum degi. Hann
krassaði á blöð en hún hreinskrif-
aði. Hún kunni því ekki illa að
hann kallaði hana „elskan mín,
ástin mín“ sí og æ.
Hún harmaði óreglusamt líf-
erni hans og fátækt. Hún tók eftir
því að húsmunir hurfu, en hann
eyddi öllu fátæktargrufli. Dosto-
evsky varð skelkaður þegar nálg-
aðist lok skáldverksins, þvi hann
vildi ekki slíta vinfengi sínu við
Önnu. í fyrsta skipti í mörg herr-
ans ár hitti hann manneskju, sem
auðsýndi honum fölskvalausa
samúð, hafði áhyggjur af matar-
æði hans og svefni og bar um-
hyggju fyrir heilsu hans og rit-
störfum. Slík umhyggja var hon-
um framandi.
Nokkru áður en Dostoevsky
lauk við Glæp og refsingu, heim-
sótti Anna hann til að ræða um
verkið. Skáldið var feginn komu
hennar, en í stað þess að ræða um
störfin, fór hann að trúa henni
fyrir áætlunum sínum í bók-
menntum: Hann langaði til að
skrifa skáldsögu um roskinn og
sjúkan listamann, og fund hans
og ungrar stúlku, sem hét Anja.
Þegar hann nefndi nafn stúlk-
unnar, varð Önnu samstundis
hugsað til gamallar vinkonu
Dostoevskys sem Anna hét og
gleymdi að sjálf hét hún Anna.
Þegar Dostoevsky hafði trúað
henni fyrir því hvernig hann ætl-
aði að haga sögunni, spurði hann
hvort hún teldi sálfræðilega unnt
fyrir unga stúlku að finna til ást-
ar á þvílíkum manni, gömlum,
ljótum og heilsutæpum. Anna var
með hugann við skáldverkið fyr-
irhugaða og sagði að það væri
mögulegt, ef stúlkan væri góð-
hjörtuð. Ef hún væri það, væri
ekki um neina fórn að ræða af
hennar hálfu og hvað veikindi og
fátækt snerti, þau atriði væru
ekki svo skelfileg. Á það væri að
líta, að unnt væri að elska mann
af öðrum ástæðum en líkamlegu
útliti og auðæfum. Dostoevsky
setti hljóðan og bað Önnu að setja
sig í spor stúlkunnar í skáldsög-
unni og að Dostoevsky væri lista-
maðurinn. Hvaða svar gæfi hún?
Anna áttaði sig á stöðunni og hún
svaraði af sjaldgæfri hreinskilni.
En aldursmunur var hættu-
merki og vakti efasemdir hans,
jafnframt því sem vandamenn
hans reyndu að nota hann sem
rök jafnskjótt og þeir fréttu um
trúlofunina. Móðir Önnu lagði
ekki stein í götu dóttur sinnar, en
auðsýndi heldur enga ánægju.
Ættingjar og vinir reyndu hins-
vegar að fá Onnu ofan af að gift-
ast fátækum manni flogaveikum,
og í ofanálag geðstirðum og upp-
stökkum.
Dostoevsky kríaði út nokkrar
rúblur til giftingarinnar. Hér er
gott dæmi um hugsanir Dosto-
evskys, sem hann reit í Moskvu til
sinnar tilvonandi: „Þú ert framtíð
mín — von mín, trú, hamingja og
unaður — allt sem ég á ... Ég
kyssi litlu höndina þína þúsund
sinnum og litlu varirnar (sem ég
man svo vel) ... Brátt mun ég
faðma þig og kyssa litlu hend-
urnar þínar og fætur. Og þá mun
þriðji þáttur ævi okkar hefjast
• • - Þú kemur til mín í draumi á
hverri nóttu."
Þau voru gefin saman 15.
febrúar 1867 í Troitsko-Isma-
ilovski-kirkjunni í viðurvist vina
og ættingja.
Þrátt fyrir tilraunir ættingja
Dostoevskys til að spilla fyrir,
blessaðist samband þeirra. En
þar sem ekki bólaði á hjúskap-
arsælunni afréðu þau að fara í
þriggja mánaða ferðalag erlend-
is, en komu raunar ekki aftur
fyrr en að fjórum árum liðnum.
„Ég fór til útlanda með dauð-
ann í sálinni," sagði Dostoevsky,
en það var ekki fyrr en þau fóru
utan að þau gátu verið ein. Anna
var feimin og kættist aðeins þeg-
ar hún var ein með manni sínum
og var óhrædd við að sýna það
sem hann kallaði „eldfimi" henn-
ar. Mjög fáir vissu hversu mikla
þörf hann hafði á slíkum stund-
um fyrir hlýlegt orð. Návist kon-
unnar sem hann unni stökkti á
brott öllum martröðum.
Á ýmsu gekk þau 15 ár sem
þau lifðu saman, en Dostoevsky
hafði fundið konuna sem hann
þarfnaðist til að lifa eðlilega. Svo
að hann gæti skrifað þau skáld-
verk sem gerðu hann ódauðlegan
í heimi bókmenntanna.
Samantekt: HJÓ:
Byggt á bók Marc Slonim.
Friðarbréf
til Rússa
Wichita, Kansas, 15. september. AP.
KVÍÐI út af hugsanlegri styrjöld
vid Sovétríkin hefur orðið for-
j'stumönnum kirkjusafnaðar í
Kansas í Bandaríkjunum hvatn-
ing til þess að skrifa 50 sovézk-
um þegnum „friðarbrér*. Bréfin
eru skrifuð á rússnesku og eru
stíluð til manna, sem eru búsettir
í Moskvu og Kiev, og hafa að
geyma áskorun um, að Bandarík-
in og Sovétríkin vinni saman að
því að koma í veg fyrir kjarn-
orkustríð.
„Þetta er boðskapur frá
manni til manns,“ er haft eftir
séra Bill Reece, sem er sókn-
arprestur í 225 manna söfnuði í
Pine Valley. „Við gerum ekki
ráð fyrir að hafa nein áhrif
strax á afstöðu Sovétmanna.
En þegar fram líða stundir, þá
held ég, að við getum hjálpað
til við að skapa rétta and-
rúmsloftið."
Purina
„.Cat
Cnow
Chow - Chow - Chow!
Fái kisa Purina Cat Chow
1 kostar fóörunin
I kr^ á dag
O#' "lFiskurkostar
WV^kr.á'dag
Hagsýn húsmóðir
gefur Purina...
og kisa blómstrar.
Næring
við hæfi
rannsóknir
tryggja gæði
Purina umboöiö
V^terkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiöill!
JHor0tmI>Iat»ií>