Morgunblaðið - 18.09.1983, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. SEPTEMBER 1983
39
Afkoman ekkert
orðið betri með
nýja kerfinu
— segir Björgvin Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri BÚR, um væntanlegar skipu-
lagsbreytingar á stjórn fyrirtækisins
„ÞAÐ þarf enginn að segja mér að afkoma Bæjarútgerðar Reykjavíkur
hefði orðið betri þótt hér hefði að undanförnu verið einn forstjóri og fjórir
forstöðumenn í stað tveggja framkvæmdastjóra. Einn forstjóri getur ekkert
frekar haft áhrif á gengisskráningu og gengissig en tveir framkvæmda-
stjórar, en einmitt þeir þættir ráða hvað mestu um afkomu fískvinnslu og
útgerðar í landinu,“ sagði Björgvin Guðmundsson, annar tveggja fram-
kvæmdastjóra BÚR, sem borgarstjórn hefur nú ákveðið að segja upp
störfum vegna væntanlegra skipulagsbreytinga á stjórn fyrirtækisins.
A fundi borgarstjórnar um
þetta mál í fyrrakvöld kom m.a.
fram hjá Davíð Oddsyni borgar-
stjóra, að núverandi stjórnkerfi
BUR hefði reynst þungt í vöfum,
verkaskipting framkvæmdastjór-
anna tveggja væri óljós og að
rekstrarkostnaður fyrirtækisins
hefði reynst óeðlilega hár. Skipu-
lagsbreytingarnar eru gerðar í
kjölfar úttektar, sem ráðgjafa-
fyrirtækið Hagvangur gerði og
skilaði tillögum í framhaldi af.
Björgvin Guðmundsson sagði í
samtali við blm. Morgunblaðsins
í gær, að hann teldi stjórnkerfi
fyrirtækisins eiga eftir að verða
þyngra eftir væntanlegar breyt-
ingar en áður var. „Framvegis
þarf forstjóri að bera hverja
ákvörðun undir fleiri manns. Það
hefur ekki þurft hingað til þvi að
núverandi stjórnkerfi fyrirtækis-
ins hefur reynst mjög vel og verið
lipurt, enda afar gott samstarf á
milli okkar Einars Sveinssonar,
sem gegnum framkvæmdastjóra-
stöðunum hér,“ sagði Björgvin.
„Við höfum skipt með okkur
verkum þannig, að annar stjórn-
ar veiðunum og togaraflotanum,
hinn stjórnar vinnslunni. Við
höfum hvor um sig getað tekið
ákvarðanir umsvifalaust, sem oft
er óhjákvæmilegt án þess að
þurfa að vera að halda fundi
margra manna, eins og framvegis
verður nauðsynlegt. Núverandi
kerfi er fljótvirkt og árangurs-
ríkt, eins og það hefur líka reynst
hjá bæði Útgerðarfélagi Akur-
eyringa og Isbirninum."
Um þá „óljósu verkaskiptingu",
sem borgarstjóri gat um, sagði
Björgvin að þegar hann hefði
komið að fyrirtækinu í ársbyrjun
1982 hefðu þeir Einar Sveinsson
gengið frá nákvæmri verkaskipt-
ingu sín á milli. Eftir það hefði
verið mjög ljóst hvor hefði haft
með hvaða mál að gera — þeir
hefðu skipt á milli sín veiðum og
vinnslu en síðan átt mjög gott
samstarf um fjármál, markaðs-
og sölumál.
— En hvað með óeðlilega háan
rekstrarkostnað?
„Það er vitaskuld hægt að deila
endalaust um það,“ sagði Björg-
vin Guðmundsson. „Ég skal hins
vegar nefna tölur, sem skýra
þetta mál nokkuð og benda til
hins gagnstæða. Samkvæmt at-
hugun Þjóðhagsstofnunar á af-
komu frystihúsanna í landinu
1982 var meðaltalshagnaður
þeirra 1%. Hagnaður af frysti-
húsi BÚR var 16,3%, eða fimm-
tán af hundraði yfir landsmeðal-
tali. Hvað varðar togarana 1981
og 1982 — og það hefur væntan-
lega ekki farið fram hjá neinum,
að erfiðleikar togaraútgerðarinn-
ar 1982 voru verulegir — þá var
afkoma BÚR betri á síðasta ári
en ’81, fyrir fjármagnskostnað og
afskriftir. Hlutfall af tekjum var
þannig, að ’81 var 3,5% halli, eða
2.8 milljónir króna, en ’82 varð
0,8% hagnaður eða 0,9 milljónir
króna. Afkoman batnaði sem
sagt um 3.7 milljónir á milli ára.
Stjórnendur Bæjarútgerðarinn-
ar, hvort sem það eru tveir fram-
kvæmdastjórar eða einn forstjóri
og fjórir forstöðumenn, geta ekki
ráðið gengisskráningu í landinu.
Það eru þeir liðir, sem mestu
valda um afkomu fyrirtækja á
þessu sviði og ég get nefnt sem
dæmi, að gengistapið á siðasta
ári var hvorki meira né minna en
131 milljón króna. Tapið stafar
að mestu af kaupum á togaranum
Ottó N. Þorlákssyni — en þau
kaup voru á sínum tíma ákveðin
með fjórtán samhljóða atkvæðum
í borgarstjórn Reykjavíkur."
Björgvin bætti því við um
væntanlegar breytingar á stjórn-
kerfinu, að þetta væri fyrsta út-
tekt Hagvangs á rekstri útgerð-
ar- og fiskvinnslufyrirtækis.
„Þeir hafa því ekkert meira vit á
því en aðrir, nema síður sé, hvað
hentar í þessum rekstri," sagði
hann.
Hann sagðist ganga út frá því
sem vísu, að annar hvor þeirra
Einars yrði ráðinn forstjóri Bæj-
arútgerðarinnar, þegar þar að
kæmi. „Ætli hinum verði þá ekki
boðið upp á eitt forstöðumanns-
starfið, eins og tíðkast þegar
breytingar af þessu tagi eru gerð-
ar í opinberum rekstri. Sjálfur er
ég ekkert farinn að hugleiða hvað
ég sæki um af þessu enda hef ég
ekkert uppsagnarbréf fengið enn.
Þetta er sagt vera skipulags-
breyting einvörðungu, það á svo
eftir að koma í ljós hvað verður,"
sagði Björgvin.
Áframhaldandi
hækkun álverðs
ÁLVERÐ á heimsmarkaði hefur far-
ið stöðugt hækkandi undanfarna
mánuði og misseri, eftir að það hafði
verið í mikilli lægð, sem skapað hef-
ur mikla erfíðleika í rekstri ál-
verksmiðja.
í liðinni viku fór verð á hverju
tonni af áli í fyrsta sinn yfir 1.700
dollara í tæplega tvö ár, en sl.
þriðjudag var verðið skráð 1.704
dollarar, en til samanburðar var
verð á hverju tonni um 867 dollar-
ar fyrir ári. Hækkunin í dollurum
milli ára er því liðlega 96,5%.
Verð á áli virðist því vera að
komast í það horf sem álframleið-
endur telja vera viðunandi, en það
er á bilinu 1.700—1.800 dollarar. í
umfjöllun sérfræðitímarita eins
og Metal Bulletin að undanförnu
hefur sú skoðun komið fram, að
gera megi ráð fyrir, að eðlilegt
ástand verði komið á í verðlagn-
ingu á heimsmarkaði á miðju
næsta ári.
Olympia
Omega 001
Ljósritunarvélin
sem beðið
hefur verið eftir
Engir stenslar, enginn vökvi, aðeins myndtromla og eitt
framköllunarefni (duft).
Verð og greiðsluskilmálar sem vert er að athuga
Kr. 69.750.-
AÐEINS EITT
FRAMKÖLLUNAR-
EFNI (DUFT).
KJARAIM
ARMULI 22 - REYKJAVIK - SlMI 83022
KLÚBBAR FÉLAGASAMTÖK___________________FYRIRTÆKI
Amarhóll býður ykkur aðstöðu til fastra hádegisverðafunda jafnt sem
einstakra og einnig einkasamkvæma.
ARNARHÓLL BÝÐUR AÐSTÖÐU FYRIR
Smærri hópa (frá 10 'manns) hádegi og kvöld alla virka daga(í koníakssal).
EINKASAMKVÆMI
Stórar veislur jafnt sem smáar. Sama hvert tilefníð er, brúðkaup, afmaeli,
fermingar, próflok, Amarhóll annar öllu._
ARNARHÓLL BÝÐUR AÐSTÖÐU FYRIR:
Stærri samkvæmi (allt að 100 manna matarveislur og 200 manna hanastél
tíl kl. 18.00) hádegi laugardaga og sunnudaga.
Gestir utan af landi - Ópera Leikhús
Amarhóll tekur á móti hóppöntunum óperu- og leikhúsgesta utan af landi.
Auk hinnar margrómuðu þjónustu, sem ásamt hlýlegu umhverfi og
fjölbreyttum matseðli hafa aflað veitingahúsinu svo mikilla vinsælda, eykur
Amarhóll enn við umsvif sín. Við hinn almenna veitingarekstur hefur
berlega komið í ljós að margir afviðskiptavinum Amarhóls hafa brýna þörf
fyrir aðstöðu til lokaðra funda og samkvæma. Til þess að koma til móts
við þessar þarfir gesta sinna hafa aðstandendur Amarhóls ákveðið að veita
þessa þjónustu og eins og alltaf þegar Amarhóll er annars vegar situr
fjölbreytnin t fVrirrúmi. Að aflokinni hagræðingu á salarkynnum
veitingastaðarins getur Amarhóll nú boðið fjölbreYttum hópi viðskiptavina
sinna margvíslega þjónustu.
Aukín