Morgunblaðið - 01.10.1983, Page 16

Morgunblaðið - 01.10.1983, Page 16
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 1983 (Iji«ll7«l Friíþjófur.) þessum árum. „Nei, ég hafði ekki verið i listnámi af neinu tagi hér heima,“ svarar hún spurningu þar að lútandi, „ég tjáði mig þó alltaf í dansi, var í sýningarhópi í jassballett hjá Báru. En svo kynntist ég íslenskri stúlku sem hafði verið við nám við Listaháskólann í Karlsruhe, hún var mikið til hætt að starfa að sínu og hún spurði mig hvort ég væri ekki til í að prófa að búa til ýmsa hluti úr leir og gipsi. Ég sló til og síðan hef ég ekki hætt!“ Vorið 1979 fékk Sigrún vinnu hjá íslenska ræðismanninum Stuttgart. Hún segist hafa mál- að talsvert af vatnslitamyndum þá um sumarið og veturinn á undan, sent inn möppu með 20 myndum um haustið á Listaaka- demíuna, og var ein í hópi 200 nemenda sem fengu inngöngu í skólann af rúmlega 1.000 sem sóttu um inngöngu. „Þetta kom mér mjög mikið á óvart. En ég held jafnvel að það hafi komið mér vel að hafa ekk- ert setið á skólabekk, ég málaði og hef alltaf málað myndirnar mínar með hjartanu, maganum, eða öllum líkamanum." Og hún segist hafa myndirnar ýmist á gólfinu eða á trönum þegar hún er að mála.„Eg mála með öllum skrokknum, stend ofan á myndunum og halla þeim til og frá . Maður gefur svo miklu meira af sjálfum sér með þessu móti.“ Það eru sterkir litir sem ein- kenna málverkin hennar, hvítt, svart, rautt, blátt, á veggnum andspænis okkur eru þó nokkur verk máluð í dökkum litum, brúnu, svörtu, rauðbrúnu og fleirum í þeim dúr. „Þessar myndir málaði ég á ít- alíu í sumar í um 40 stiga hita. Ég held að listafólk sé alltaf að reyna að túlka sjálft sig að ein- hverju leyti, ég hafði átt við veikindi að stríða í langan tíma og það kann að vera að myndirn- ar séu ólíkar hinum þess vegna. Þeir segja prófessorarnir mín- ir að það megi auðveldlega greina íslensk áhrif í myndunum mínum,“ heldur Sigrún áfram. „Það er mikið rými í þeim, og litirnir hreinir og tærir." í flestum myndunum eru hringlaga form, manneskjuleg tákn, en Sigrún segist oftast nota manneskjuna á einhvern hátt sem fyrirmynd. „Það eru Ein af grafíkmyndum Sigrúnar, en hún notar aðra aðferð en þekkst hefur hérlendis, þar sem hún málar hverja koparplötu áður en þrykkt er, þannig að engar tvær myndir verða eins. (Ljósmynd Frióþjófur.) nokkrar grafíkmyndir hérna, þar sem fyrirmyndir eru úr nátt- úrunni," segir hún og flettir sundur nokkrum grafíkmyndum sem engar eru eins. Sigrún á eftir um eitt og hálft ár í skólanum. „Þetta er mjög frjáls skóli, við fáum að velja okkur þá prófessora sem við vilj- um vera hjá. Annað árið mitt í skólanum var ég hjá Grikkjan- um Sotos Michou, en hann hefur sýnt verk sín tvisvar hér á landi, í fyrra skiptið í Gallerí Lang- brók fyrir tveim árum og í Ás- mundarsal nú i sumar. Sl. tvö ár hef ég verið í málun hjá prófess- or Mansen." Stóru málverkin í salnum eru máluð með aðferð sem nefnist „eggjatempera“. „Aðferðin er byggð á því að blandað er saman terpentínu, olíu og trjákvoðu í ákveðnum hlutföllum. Síðan eru þeytt eitt egg eða tvö og sama magn af blöndunni sett saman við, og þurrlitir hrærðir út í eggjablöndunni. Ég mála ýmist á pappír eða striga, en þessi blanda er mjög endingargóð, og hefur verið notuð í aldaraðir, m.a. voru gamlar kirkjumyndir málaðar með þessari aðferð. Ég get líka ráðið blæbrigðum lits- ins, og þykkt hans, get látið hann renna ef mér sýnist svo, eða haft hann þykkan. Það má ef til vill líkja þessari aðferð við aðferð vefkonunnar sem litar sjálf það garn sem hún vefur úr. Þetta er nokkuð tímafrekt og kostar ákveðna forvinnu, ég er oft um 20 mínútur að blanda hvern lit.“ Hvernig tilfinning er það að sýna verk sin í fyrsta sinn hér á landi? „Ég hefði aldrei trúað því að ég fengi jafn jákvæðar móttök- ur, en ég var ósköp kvíðin fyrir opnunina!" Hvað er svo framundan? „Sýningunni hérna lýkur á sunnudaginn, ég fer út aftur 14. október. Svo langar mig til að fara til Berlínar og sjá hvað er að gerast þar.“ V J. „Nota manneskjuna yflrleitt sem fyrirmynd“ segir Sigrún O. Ólsen sem nú sýnir í fyrsta sinn hér á landi „Viltu ekki frekar sterkt kaffi en veikt?“, kallar hún innan úr hliðar- herberginu, þar sem vatnið sýður í katlinum og þýska Hochlands-kafTið býður uppáhellingar. Svo kemur hún með stóran kaffibrúsa, leggur hann á borðið sem hún er nýbúin að færa úr hliðarherberginu fram í sýningar- salinn og segir: „Þetta borð er bara nokkuð heimilislegt hérna, ég held ég láti það bara vera hér meðan á sýningunni stcndur." Við setjumst niður í miðjum sýningarsalnum þar sem litrík málverkin horfa á okkur úr öllum áttum, þau eru reyndar tvö skólasystkinin við Listaakademíuna í Stutt- gart sem eiga verk hér í Gallerí Lækjartorgi, en Georg Frey, arkitekt og ILstamaður, er vant við látinn. Við tökum okkur kaffikrúsir í hönd og dreypum óspart á kaffinu meðan tíminn flýgur áfram og Sigrún stiklar á helstu æviatriðunum. „Ég var í gamla kerfinu í Versló, var þar í heil 6 ár. Eftir stúdentprófið fór ég út til Karls- ruhe í Þýskalandi og þar kynnti ég mér möguleikana á að læra vefnað við Listaakademíuna, en mér leist þó ekkert á það sem þar var að gerast. Fyrstu tvö ár- in mín í Karlsruhe var ég með annan fótinn hér heima, en eig- inmaðurinn minn var og er við nám í arkitektúr í Karlsruhe." Hún heldur áfram og segist ekki hafa haft fastmótaðar hugmyndir um framtíðina á ; s Sigrún með eitt verka sinna, en af þessari mynd var gert veggspjald og notað í sambandi við samsýn- ingu ungra kvenna við Listaaka- demíuna. Á Lækjartorgi fyrir utan sýningarstaðinn, Gallerí Lækjartorg.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.