Morgunblaðið - 01.10.1983, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 01.10.1983, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 1983 Hagþróunin - Er jafti- vægi á næsta leiti? Hér fer á eftir í heild erindi sem Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Almenna bókafélagsins, flutti á fundi Verslunarráös íslands sl. miöviku- dag. — eftir Brynjólf Bjarnason Er tekist er á við umræðuefnið „Hvað er framundan í íslenskum efnahags- og atvinnumálum?" verður að hafa ofarlega í huga að mjög margir ákvörðunarþættir stjórnvalda liggja enn ekki fyrir. Má þar nefna fjárlög, lánsfjár- áætlun og þjóðhagsáætlun. í þessu stutta erindi verður fjallað um hagþróunina og leitast við að svara spurningunni hvort jafnvægi sé á næsta leiti. Við- fangsefni þau er kynnt hafa verið undir þessum lið mun ég reyna að fjalla nokkuð um. Vcislunni er lokið Ekki þarf að fara mörgum orð- um um ástand efnahagsmála okkar íslendinga á fyrri hluta þessa árs, öllum hérstöddum eru kunnar þær ráðstafanir er ný rík- isstjórn greip til þegar hún var mynduð 26. maí sl. Meginþættir þeirra eru: lækkun gengis, auk bráðabirgðalaga um launamál, ráðstafanir í sjávarútvegsmálum, ráðstafanir til verndar lífskjörum, frestun á greiðslum vegna verð- tryggðra íbúðarlána og verð- lagsmál. Síðan þessar ráðstafanir voru gerðar, hefur ríkisstjórnin unnið að ýmsum málum, mikil- vægast er þó stefnumörkun í efna- hagsmálum, þ.e. gengisstefnan, vaxtastefnan og stefna í pen- ingamálum. Hér verður gengið út frá að meginlínur liggi fyrir um að gengi verði haldið stöðugu, raun- vextir gildi og jöfnuði verði náð í ríkisfjármálum á næsta ári. Þetta er sagt í trausti þess, að þessi rík- isstjórn hafi markað sér stefnu aðhalds i stað undanláts, eins og gilt hefur hér á landi mörg undan- farin ár. Á undanláti höfum við einfaldlega ekki efni lengur, veisl- unni er lokið. I þeirri umfjöllun um verðbólg- una sem nú fer fram, er mikiivægt að gera sér grein fyrir nokkrum atriðum- Hraði verðbólgunnar var kominn á það stig að erfitt var að gera sér ljósa grein fyrir afleið- ingunum. Mæling verðbólgu hefur einnig verið mikið til umfjöllunar, ekki síst nú, þegar hæð hennar hefur verið svo stjarnfræðileg sem raun ber vitni. Oftast hefur sam- anburður farið fram með þeim hætti að mæla hækkun verðlags miðað við sama tíma árið áður, þ.e. tólf mánaða breyting. Þannig mælt hefur verðbólgan náð 100% í júlí, ágúst sl. Með sömu aðferð má ætla að verðlag um áramót verði um 75% hærra en tólf mánuðum fyrr. Á sama hátt, ef allar ráða- gerðir fara eftir, verður verðlag þegar kemur fram yfir mitt ár 1984 rúmlega 20% hærra en ári áður. Þessar tölur er rétt að nefna hér, því ætla má, að fundarmenn séu að mæla sínar rekstrartölur í samanburði við árið áður. n, Þessi mæling segir hins vegar ekkert um hraða verðbólgu á ákveðnum tímapunkti, verðbólgu- stig. Nú er farið að mæla verðlag mánaðarlega, en algengt er að mæla þriggja mánaða breytingu verðlags og reikna til árshraða. Þannig mælt var verðbólguhrað- inn um 130% í maí-júní sl. og má gera ráð fyrir að verði kominn niður í 30% í árslok. Háð fjöl- mörgum óvissuþáttum má ætla að um mitt ár 1984 verði hraði verð- bólgunnar milli 15—20%. Þennan mælikvarða ber að hafa i huga við ýmsa ákvörðunartöku, en þó sér- staklega í þeirri vaxtaumræðu er nú fer fram. Afar mikilvægt er að gera sér grein fyrir að raunvexti ber að mæla m.v. væntingar (ex- pectations), þ.e. á hverju viðkom- andi á von. Hætt er við að í um- fjöllun stjórnmálamanna nú um nafnvexti, leiðist þeir út í að und- irbjóða hver annan og missi sjón- ar af markmiði um raunvexti. Þeir eru hins vegar mikilvægir í efna- hagsstefnu og þá sérstaklega með tilliti til hæðar þeirra í viðskipta- löndum okkar. Fjárútvegur innanlands Vaxtastefna hefur að sjálfsögðu mikilvæga þýðingu nú, þegar tak- ast á á við erlendar skuldir og fjármagnsmöguleika á innlendum vettvangi. Erlendar skuldir munu nú í árslok verða um 60% af þjóð- arframleiðslu, en voru um síðustu áramót um 48%. Til samanburðar má geta þess, að áfallaárin 1967/68 voru erlendar skuldir af þjóðarframleiðslu um 10% og árin 1974/75 um 20%. Nú, þegar þriðja áfallið verður, höfum við ekkert svigrúm, því verður aðhald að koma í stað undanláts. Ekki er það svo að áfall áranna 1982/83 sé það mesta, því gert er ráð fyrir tekju- samdrætti upp á tæp 8%, eða heldur meira en var 1975, en áfall- ið var mun meira 1967/68, eða tæpra 12% tekjusamdráttur og ef lengra aftur er leitað um 14% 1949/52. Varðandi möguleika á lántökum erlendis, má búast við mun meiri varkárni af lánveitendum en verið hefur undanfarin ár, sérstaklega með tilliti til ótta margra um hrun fjármálakerfis heimsins og er nærtækast að vísa til erfiðleika landa í rómönsku Ameríku, Austur-Evrópu og Afríku við að greiða skuldir sinar. Ekki er ástæða til að búast við að við verð- um flokkuð með þessum þjóðum, hitt er ljóst, að sá vaxtamunur, sem bankar áskilja sér í slíkum viðskiptum, mun verða hærri en áður. Miðað við þá stefnu að erlendar skuldir verði ekki auknar sem hlutfall af þjóðarframleiðslu, ger- ir vitaskuld mjög erfitt fyrir um fjármögnun fjárfestinga, afborg- anir o.fl. Markmiðið eitt um óbreytt hlutfall gefur möguleika á erlendum lántökum að upphæð 4000 m.kr. á næsta ári, eða í það minnsta um 2000 m.kr. minna en lánsfjárþörf ríkissjóðs og atvinnu- vega er. Því þarf fyrirsjáanlega að útvega mikið fjármagn innan- lands, en i þvi sambandi verða ráðamenn að vera raunhæfir og þá ekki missa sjónar af mikilvægi raunvaxta ef auka á innlendan sparnað. „Timburmennirnir“ standa yfir Þegar fjallað er um horfur á er- lendum mörkuðum og viðskipta- kjör, er óhjákvæmilegt að fyllast nokkurri von um aukna heims- verslun og að iðnríkin hafi flest öll Rafmaqnsbilun! NeyÖar - þjónusta ncíft sem nýtan dag Neytendaþjónusta Rafafls sem undanfarin ár hefur sinnt viögeröum, víkkar nú út þjónustuna og býöur þér viögeröarmann strax hvenær sólarhringsins sem er. Ef rafmagnsbílun veröur, þá hringir þú í síma 85955, og símsvarinn okkar gefur þér upp símanúmer þess sem er á vakt. 'RAFAFL SlMI: 85955 NEYTENDAPJONUSTA Námskeið um sam- skipti og fjöl- skyldulíf NÚ UM mánaðamótin hefjast námskeið í Reykjavík undir heit- inu Samskipti og fjölskyldulíf. Markmið þeirra er að miðla þekkingu til fólks sem eykur á sjálfsvitund og sjálfsöryggi. í því sambandi eru teknir fyrir ákveðnir þættir er varða ein- staklinginn sjálfan, bakgrunn hans og fjölskyldu. Liður í þess- ari fræðslu er umfjöllun um samskipti í sambúð. Námskeiðin eru ætluð þeim sem vilja átta sig á tengslum við aðra og auka þekkingu sína um mannleg sam- skipti. Leiðbeinendur eru sálfræð- ingarnir Álfheiður Steinþórs- dóttir og Guðfinna Eydal. Fyrra námskeiðið hefst 3. október og það siðara þann 25. október. Úr rrétutilkynningii.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.