Morgunblaðið - 01.10.1983, Qupperneq 24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 1983
24
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guómundsson,
Björn Jóhannsson.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 250 kr. á mánuói innanlands. í lausasölu 20 kr. eintakiö.
Ráðherrabílar
Hvers konar fríðindi
opinberra starfsmanna
mælast illa fyrir hjá skatt-
greiðendum sem borga brús-
ann. Eitt af eilífðarmálunum
í fríðindaflokknum eru ráð-
herrabílarnir. Um það er
ekki deilt að eðlilegt sé að
ríkið útvegi ráðherrum bíla
og bílstjóra. Hitt er ágrein-
ingsmál, hvort ráðherrar
eigi að geta keypt bifreiðir
til einkanota á vildarkjörum.
Eins og kunnugt er gilda þær
reglur nú að ráðherrar njóta
slíkra vildarkjara og fyrr-
verandi ráðherrar í eitt ár
eftir að þeir hætta störfum.
Þegar um þessi mál er
rætt af stjórnmálamönnum
eða flokksblöðum er út í hött
að setja sig í stellingar þess
sem syndlaus er, hræsnis-
gríman fellur fyrr en seinna.
A meðan þær reglur eru í
gildi að ráðherrar og fyrr-
verandi ráðherrar geti notið
vildarkjara við kaup á einka-
bílum er eðlilegt að þeir færi
þær sér í nyt. Þessar reglur
hafa af eðlilegum ástæðum
aldrei notið neinnar lýðhylli.
Sömu sögu er að segja um
bílafríðindi bankastjóra
ríkisbankanna og starfs-
manna utanríkisþjónustunn-
ar. Þessar reglur stangast á
við almennar hugmyndir um
það jafnræði sem menn telja
að eigi að ríkja gagnvart
tolla- og skattalögum.
Reglurnar um ráðherrabíl-
ana eru frá árinu 1970. Þær
eiga sér stoð í lögum og voru
upphaflega settar í því skyni
að ráðherrabílar yrðu alfarið
í eigu ráðherranna sjálfra en
ekki ríkiseign eins og áður
var. Þróunin síðan hefur ver-
ið í þá átt að bæði þessi fríð-
indaregla sé nýtt og eins hitt
að ríkið leggi ráðherrunum
til bíla. Jafnframt eiga menn
erfitt með að átta sig á
réttmæti þess að ráðherrar
njóti vildarkjara við bíla-
kaup eftir að þeir hafa látið
af störfum, þótt þeir hafi ek-
ið í ríkisbíl á meðan þeir
sátu í ráðherraembætti.
Hvort sem menn gagnrýna
þá skipan sem nú ríkir í bíla-
málum ráðherra af hræsni,
eins og Þjóðviljinn gerir
þessa daga eða ekki er ein-
kennilegt að engin ríkis-
stjórn skuli bregðast þannig
við vegna ítrekaðra um-
ræðna um þessi mál og vax-
andi óþols meðal almennings
vegna þeirra að draga skýrar
4-ínur. Það yrði best gert með
því að afnema þessi fríðindi
hjá öllum opinberum emb-
ættismönnum, reikna út
hvað þau þýða í launatekjum
og hækka launin sem því
nemur. Auðvitað mega ráð-
herrar eiga eins marga
einkabíla og þá lystir og hafa
ríkisbíl með bílstjóra að auki
til þeirra nota sem ráðherr-
arnir sjálfir ákveða. Aðal-
atriðið er að einkabílinn
kaupi embættismenn á sömu
kjörum og aðrir.
Opinberar
utanferðir
Qamkvæmt ákvörðun
OGeirs Hallgrímssonar,
utanríkisráðherra, hefur
verið ákveðið að færri full-
trúar þingflokka sæki alls-
herjarþing Sameinuðu þjóð-
anna á þessu hausti en verið
hefði að óbreyttum reglum.
Má rekja þessa ákvörðun til
þeirrar viðleitni ríkisstjórn-
arinnar að halda aftur af
opinberum útgjöldum. Nú
vita allir að afkomu íslensku
þjóðarinnar verður ekki
bjargað með því að fækka
opinberum utanferðum, en
sálrænt gildi þess að settar
séu einhverjar skorður á
þessu sviði er ótvírætt.
Morgunblaðið skýrði frá
því á dögunum að ráðuneyt-
isstjóranefnd um opinberar
utanferðir hefði hætt störf-
um vegna þess að henni var
ekki hlýtt. Nú hefur Albert
Guðmundsson, fjármálaráð-
herra, sagt að þær reglur
verði settar um utanferðir að
ráðherrar gefi sjálfir út leyfi
fyrir þeim. í reynd er málum
þannig háttað um þessar
mundir að ráðherrar hafa
úrslitavald um allar utan-
ferðir opinberra starfs-
manna. Fjármálaráðherra
vill að utanferðum verði
fækkað til muna. Það ætti að
vera unnt að ná því mark-
miði án nýrra reglna, þótt
þær geti auðvitað ekki valdið
neinu tjóni.
Með stuðningi ríkissjóðs
þarf að rækta eðlileg tengsl
við erlendar þjóðir og alls
ekki er raunhæft að leggja
fjárhagslega mælistiku á all-
ar opinberar utanferðir.
Besta aðhaldið í þessu efni
felst í því að efla ábyrgðar-
kennd hvers og eins og að
árlega sé gefin út skýrsla um
opinberar utanferðir, þar
sem birtar séu eins sundur-
liðaðar upplýsingar og frek-
ast er kostur og nái skýrslan
til allra sem ferðast fyrir
opinbert fé jafnt á vegum
ráðuneyta, banka og alþing-
is.
Vinir og samherjar dr. Gunnars bera kistuna úr kirkju.
Fjölmenni við útför dr.
Gunnars Thoroddsen
ÚTFÖR dr. Gunnars Thor-
oddsen, fyrrum forsætisráðherra
og varaformanns Sjálfstæðis-
flokksins, var gerð í gær frá
Dómkirkjunni að viðstöddu
miklu fjölmenni. Útförin fór
fram á vegum ríkisins og var út-
varpað frá henni.
Séra Þórir Stephensen dóm-
kirkjuprestur jarðsöng. Dóm-
kórinn annaðist allan söng og
voru sungin tvö lög eftir dr.
Gunnar, „Gefðu að móðurmálið
mitt“ og „Nú til hvíldar halla ég
mér“. Marteinn H. Friðriksson,
dómorganisti, og Gunnar Kvar-
an léku á orgel og selló „Mel-
ancholie" eftir dr. Gunnar. Þor-
valdur Steingrímsson og Mar-
teinn H. Friðriksson léku
kveðjulag frímúrara á fiðlu og
orgel.
Athöfnin í kirkjunni var lát-
laus og virðuleg. Auk ættingja
og vina dr. Gunnars voru við-
staddir alþingismenn, forseti ís-
lands, hæstaréttardómarar og
fulltrúar erlendra ríkja. Sam-
herjar og félagar dr. Gunnars
báru kistu hans úr kirkju að at-
höfninni lokinni. Þeir sem báru
kistuna voru Steingrímur Her-
mannsson, dr. Gylfi Þ. Gíslason,
Davíð Oddsson, Svavar Gests-
son, Pálmi Jónsson, dr. Gunnar
G. Schram, Friðjón Þórðarson
og Friðrik Sophusson, varafor-
maður Sjálfstæðisflokksins.
Börn og tengdabörn dr. Gunnars
báru kistuna að gröf í Gufunes-
kirkjugarði.
Frá athöfninni í Dómkirkjunni.
Sr. Þórir Stephensen jarðsöng.
Hinsta kveðjan — líkfylgdin fer framhjá æskuheimili dr. Gunnars við Lækjargötu. MorKunblaðið/ÓI.K.M.