Morgunblaðið - 01.10.1983, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 1983
31
Hefur lífs-
stíllinn áhrif?
eftir Jón Óttar
Ragnarsson
Hvaða áhrif hefur lífsstíllinn
á heilsufarið? Þetta er spurning
sem æ fleiri spyrja um þessar
mundir?
Þegar við tölum um lifsstíl er-
um við í rauninni að spyrja um
umhverfi. Skiptir það umhverfi
sem við búum i máli og þá
hversu afgerandi þáttur er það?
Þessi spurning er því brýnni
sem það verður nú ljósara að
þeir lifshættir sem við höfum
tamið okkur eru i litlu samræmi
við lífsstíl foreldra, hvað þá for-
feðra.
Kannske mætti helst lýsa
þessu sem einhvers konar alls-
herjar æðibunugangi þar sem
hver einstaklingur reynir að láta
enda ná saman á verðbólgu- og
krepputímum.
Astandinu þarf ekki að lýsa.
Það er óþarfi að rekja víxlasúp-
urnar, húsnæðisvandræðin að
ekki sé talað um félagslega upp-
lausn, hvernig þetta allt leikur
mannfólkið.
Það er streitan sem drottnar i
þessu þjóðfélagi. Streita er að
vísu ekkert nýtt í þessum heimi.
Hún ríður yfir eins og holskefla
á breytingaskeiðum eins og nú
eru.
En umhverfið er fleira en það.
Umhverfið er líka fæðið sem við
lifum á, hvernig við sofum,
hreyfum okkur. Umhverfið er
ekkert annað en heildarmynd af
því lífi sem við lifum.
Hér koma líka hvatir okkar og
markmið til sögunnar. Hver er
undirrótin að öllum þessum æði-
bunugangi? Er þetta sjálfsvörn?
Eða óhjákvæmilegur fylgifiskur
nútímans?
Streita
Streita er eitt þeirra fyrir-
bæra sem vísindamönnum hefur
gengið hvað erfiðlegast að festa
hendur á. Er ekki séð fyrir end-
ann á þeirri raunasögu.
En samt er streitan fyrir
hendi. Hún er áþreifanleg. Eða
verður það að minnsta kosti þeg-
ar fólk fær beinlínis hjartaslag
af streitu. Eða var orsökin önn-
ur?
Streita er afleiðingin af því að
álagið ofbýður burðarþoli ein-
staklingsins. En er þá burðarþol-
ið minna nú en áður? Eða er það
álagið sem er meira?
Mig grunar að það sé hvort
tveggja í senn. Mig grunar að
burðarþol okkar sem yngri erum
hafi skerst vegna þeirrar
ofverndunar sem velferðarríkið
veitti.
En álagið er einnig tvímæla-
laust meira en áður vegna þeirra
félagslegu breytinga, þess mikla
umróts sem hefur gengið yfir
þetta þjóðfélag síðastliðna hálfa
öld.
Fæðið
Fæðið er auðvitað eins og það
er. Við lifum að miklu leyti á
mat sem er miðaður við þarfir
fólks sem var uppi á öldinni sem
leið: Orkuríkum, bætiefnasnauð-
um, trefjasnauðum.
Sumpart er ástæðan sú að
matvælaiðnaður nútímans
spratt upp á þeim tima þegar
næringarfræðin var enn í vöggu,
Fæða
°9
heilsufar
sumir mundu segja enn í móð-
urkviði.
Þess vegna þurfum við
brauðbyltingu. Þess vegna þurft-
um við Náttúrulækningamenn.
Við verðum að laga okkar eigin
lífsstíl að þeim raunveruleika
sem er í dag.
Hreyfing
Og á sama tíma ökum við í
bílum. Við erum bundin við vél-
ina með rammgerðu belti. Og við
krefjumst þess að stóri bróðir
leggi vegi á alla staði sem við
þykjumst eiga erindi á.
Maðurinn og vélin. Hið full-
komna samspil. Kannske var það
þetta sem maðurinn var alla tíð
að leita að: Vél sem tekur hug
hans allan. Þræl sem fram-
kvæmir allar hans skipanir.
Og við erum hætt að geta
gengið. Eina leiðin til að „fá
hreyfingu" er að keyra á fullri
ferð á einhverja „stöðina" og
trimma frá okkur vitið í annarri
vél.
Hægjum á
Nú hlær einhver. Hver er að
tala um að hægja á ferðinni?
Kannske hljómar það ekki sér-
lega sannfærandi. En það er
engu að síður tímabært að hugsa
málið.
Stóra spurningin er þessi: Til
hvers er þetta allt? Erum við
kannske undir niðri aðeins að
reyna að komast einni skör
hærra? Er það óánægjan sem í
rauninni ræður ferðum?
ísland er samkeppnisland. Is-
lendingar eru þjóð sem ekki tal-
ar um eigin tilfinningar. Þeir
bara „skulu". En hvað þeir
„skulu“: Það liggur ekki alltaf
ljóst fyrir.
Guðsþjónusta í ný-
byggingu Ásprestakalls
Sunnudaginn 2. október klukkan
2 verður guðsþjónusta í nýbygg-
ingu Ásprestakalls við Vestur-
brún. Kirkjukór Áskirkju mun
leiða söng undir stjórn Kristjáns
Sigtryggssonar organista og sr.
Árni Bergur Sigurbjörnsson flyt-
ur hugvekju.
Þetta verður í þriðja sinn sem
söfnuður Áskirkju kemur saman
til helgihalds í kirkjubyggingunni,
en fyrir tveimur árum var messað
í húsinu ófokheldu og aftur í
fyrrahaust um það bil er múrhúð-
un kirkjuskipsins að innan var að
hefjast. Nú er innrétting hússins
langt á veg komin enda standa
vonir til að kirkjan verði vígð fyrir
næstu jól og ekki útilokað að þær
vonir rætist. Vissulega er fjár
vant, eins og raunar löngum í sögu
byggingarinnar. En bjartsýni hef-
ur ekki skort, enn síður fórnar-
lund og velvild sóknarbarna kirkj-
unnar. Hennar sér ríkulega stað í
því hve byggingu og búnaði húss-
ins hefur fleygt fram mörg síðustu
árin. Svo mikið er víst, að fáa
þeirra sem komu til guðsþjónustu
í Áskirkju svalan haustdag fyrir
tveimur árum hefur þá grunað að
fjórum misserum síðar yrði
Vetrarstarfid
í Bústaðakirkju
Á SUNNUDAGINN hefst barna-
starfið í Bústaðasókn. Fylgir það
gamalli hefð að öðru leyti en því,
að þar sem fermingar fara fram i
kirkjunni tvo fyrstu sunnudaga
október, verða barna- og
fjölskyldusamkomurnar í Bústöð-
um, og hefjast kl. 11 árdegis á
sunnudagsmorgnum og verður
þannig í vetur.
Á miðvikudaginn hefst einnig
félagsstarf aldraðra og verður á
miðvikudögum í vetur og með
svipuðu sniði og fyrr. 1 sumar hafa
verið farnar ferðir, sem notið hafa
mikilla vinsælda og fótsnyrting
fyrir aldraða er þegar hafin i
safnaðarheimilinu. Um fótsnyrt-
ingu sem annað starf fyrir aldraða
gefur frú Áslaug Gisladóttir frek-
ari upplýsingar i síma 32855. Og
sérstaklega eru þeir, sem þurfa á
aðstoð að halda við að komast til
samverustundanna, beðnir um að
láta vita af sér, og verður þá reynt
að koma til móts við þá. Einnig
eru þeir, sem vildu fá heimsókn á
vegum safnaðarins, beðnir um að
láta vita af sér í sima kirkjunnar,
37801.
Á miðvikudagskvöldum verður
einnig fundur i Æskulýðsfélagi
Bústaðakirkju. Standa vonir til að
æskulýðsstarfið geti staðið með
góðum blóma, þar sem söfnuður-
inn hefur kallað aðstoðarprest til
þess að sinna þeim málum sem og
öðru sem honum er falið. Er það
séra Sólveig Lára Guðmundsdótt-
ir, sem þegar hefur kynnst mörg-
um i söfnuðinum og er þegar virt
vel fyrir áhuga sinn, dugnað og
hæfileika.
Þá verður einnig tekin upp að
nýju barnagæsla við messurnar kl.
14 siðdegis. Heildverslun Ingvars
Helgasonar hefur á liðnum árum
gefið kirkjunni gott safn leik-
fanga, sem verða til afnota fyrir
bðrnin á meðan eldri meðlimir
fjölskyldunnar taka þátt í mess-
unni í kirkjunni. Ungmenni úr
æskulýðsfélaginu munu annast
börnin og segja þeim sögur.
Messurnar færast til kl. 14 sið-
degis frá og með sunnudeginum 9.
október, en þá mun séra Auður Eir
Vilhjálmsdóttir prédika og síðan
verður haldið inn í safnaðarheim-
ilið og spjallað við hana um þau
efni, sem ræða hennar kann að
hafa vakið áhuga á að fara nánar
út í, eða þá þau mál önnur, sem
kunna að liggja kirkjugestum á
hjarta. Hafa slíkar stundir eftir
messu verið vinsælar og komið
mörgum að góðu gagni.
Olafur Skúlason.
kirkjuskipið nær fullgert. Að svo
er komið er ótölulegum fjölda vina
kirkjunnar að þakka og stuðningi
þeirra í orði og á borði og óskandi
að sem flestir þeirra leggi leið sína
í Áskirkju næsta sunnudag til að
gleðjast yfir því, sem unnist hefur
og þakka Guði sem húsið er reist
til dýrðar.
Eftir guðsþjónustuna verður
Safnaðarfélag Ásprestakalls með
kaffisölu 1 Norðurbrún 1, þar sem
söfnuðurinn hefur nú aðstöðu
fyrir starfsemi sína. Þar verður
reitt fram veislukaffi og Hafliði
Jónsson, garðyrkjustjóri
Reykjavíkurborgar, mun lýsa
fyrirhuguðu umhverfi kirkjunnar.
Árni Bergur Sigurbjörnsson.
Norræna húsið:
Finlandia-
tríóið með
tónleika
FINLANDIA verður með tón-
leika í Norræna húsinu þriðju-
daginn 4. okt. og miðvikudaginn
5. okt. Tríóið skipa Ulf Hiist-
backa, fiðla, Veikko Höylii, selló,
og Izumi Tateno sem leikur á
píanó.
Segir í frétt frá Norræna
húsinu að þeir séu allir þekktir
tónlistarmenn í Finnlandi og
Finlandiatríóið sé ein fremsta
kammersveit Finnlands. Hafi
þeir leikið á tónlistarhátíðinni
í Helsinki og haldið tónleika
víða um Finnland og hvarvetna
hlotið mikið lof.
Auk hefðbundinna verka
fyrir tríó leika þeir einnig mik-
ið nútímatónlist.
Á efnisskránni á þriðjudag
verða verk samin fyrir tríó eft-
ir finnsk tónskáld, en á mið-
vikudaginn verða einleiksverk
á dagskránni.
Tónleikarnir í Norræna hús-
inu hefjast kl. 20.30 báða dag-
ana. Finlandiatríóið leikur
einnig á tónleikum Tónlistarfé-
lags Ákraness fimmtudaginn 6.
okt. og á tónleikum Tónlistar-
félags Reykjavíkur laugardag-
inn 8. okt.
LAUGARDAGUR
omim io-4
E/Ð/STORG111
VörumarkaOurínn hf.