Morgunblaðið - 01.10.1983, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 01.10.1983, Qupperneq 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 1983 Af Evrópumótinu í Roderath Frjálsleg reiðmennska íslend- inga viðurkennd af dómurum Hestar Valdimar Kristinsson Þegar á mótsstaðinn kom fór ekki á milli mála að aðstaðan var fyrsta flokks. MóLsvæði var ekki stórt að flatarmáli en hinsvegar var öllu hag- anlega fyrir komið. Keppendum var úthlutað hjólhýsum spölkorn frá sjálfum vellinum þannig að ekki tók nema tvær til þrjár mínútur að ganga þangað. Aðstaða fyrir hesta var prýðileg. Flestir erlendu kepp- endurnir höfðu hesta sina í girðing- um við hjólhýsin og voru sumir með litlar rafmagnsgirðingar fast við hjólhýsin og báru þeir þá vatn og fóður í hestana. íslendingarnir fengu aðstöðu í gömlu fjósi og litla girðingu meðfylgjandi og voru menn hæstánægðir með það. En eins og flestum mun kunnugt þá eru hestar sem nýkomnir eru frá íslandi mjög næmir fyrir allskonar smiti og því mikið atriði að þeir séu sem mest afsíðis frá öðrum hestum. Á þetta hefur ávallt verið lögð mikil áhersla af hálfu íslendinga síðan martröðin í Hollandi 79 átti sér stað. Roderath er lítið sveitaþorp í Eifel-héraði, íbúar um 150, þannig að lítið var um gistingu á staðnum fyrir áhorfendur. Voru þeir þá ýmist í tjöldum og hjólhýsum eða á hótelum í næsta nágrenni. Var ekki annað að sjá en vel færi um alla í þessari fögru sveit. Eitt var það þó sem ekki var í góðu lagi, en það var salernisað- staðan á staðnum. Var hún engan veginn fullnægjandi, en það má einnig benda á að þetta er þáttur í stórmótahaldi hérlendis sem illa hefur gengið að höndla svo vel fari. Þannig að þetta er svo sem ekki neitt nýtt fyrir okkur íslend- ingana sem þarna vorum. „Hagstætt“ veöur mótsdagana Um fjórum dögum áður en mót- ið átti að hefjast var mjög gott veður, allt upp í þrjátíu stiga hiti með glampandi sól, og miðað við óbreytt veður bjuggust forráða- menn mótsins við að allt að tíu þúsund manns myndu sækja mót- ið. En veðrið breyttist heldur bet- ur og eftir á var talið að það hafi verið lán, því í ljós kom að ekki hefði verið hægt að taka á móti slíkum fjölda með góðu móti. En það voru fleiri sem högnuðust á versnandi veðri, því talið var að mikill hiti væri hestum íslensku sveitarinnar óhagstæður. Og á sama hátt væri rok og lágt hita- stig óheppilegt fyrir hesta útlend- inganna. Er því ekki ósennilegt að veðrið hafi komið okkar mönnum til góða þegar á hólminn var kom- ið. Sérstaklega á þetta við um góð- an árangur í skeiðinu, en þá var sterkur meðvindur og hitastig ekki fjarri því sem verið hefur á Eftir B-úrslit í fjórgangi var riðinn einn heiðurshringur. Þrír íslendingar eru í hópnum. Lengst til hægri er Olil á Blika, þá Eve Barmettler, Sviss, á Menglóð, Lúter Guðmundsson á Gylfa, Lárus á Bjarma og Peter Peterse, Hollandi, á Sörla. hestamótum hérlendis í sumar. Ekki má þó taka þetta sem svo að verið sé að segja að veðrið hafi skapað þann góða árangur sem okkar menn náðu, síður en svo. Vellir voru nokkuð góðir, mátu- lega harðir, en þó spændist skeið- brautin örlítið upp en það virtist ekki koma að sök. Náðust mjög góðir tímar á henni, þeir bestu sem náðst hafa á erlendri grund, og er það af sem áður var þegar brautir á Evrópumótum voru laus- ar í sér og gáfu lélega tíma. Und- antekningarnar eru orðnar tvær, það er nú í Roderath og svo í Lar- vik í Noregi, en þar var brautin frábær. Ættu mótshaldarar á komandi mótum að vera búnir að gera sér grein fyrir því að ekki þýðir framar að bjóða upp á léleg- ar skeiðbrautir. Áhorfendapallar kringum hringvöllinn voru þeir bestu sem boðið hefur verið uppá, en þeir rúmuðu hátt í fimm þús- und manns. Voru þeir staðsettir hæfilega nálægt vellinum þannig að áhorfendur höfðu góða yfirsýn yfir það sem þar var að gerast. Einnig veittu pallarnir hestunum góðan stuðning að utanverðu. Venja hefur verið á Evrópumót- um að halda að minnsta kosti tvo dansleiki, svokölluð „Reiterball". í Roderat eru engin húsakynni sem hýst geta fimm þúsund manns svo brugðið var á það ráð að reisa 1650 fermetra áigrindartjald og var að- dáunarvert að sjá Þjóðverjana reisa þetta tjald á einum degi. í gólf voru notaðir sérstaklega hannaðir timburflekar og fagur- lega skreytt var tjaldið að innan þannig að það reyndist hinn besti samkomustaður. Einnig var til staðar dæmigerð þýsk bjórkrá, en þær virðast jafn nauðsynlegar og salerni þar sem á annað borð rís byggð í Þýskalandi. Voru Islend- ingar þar í essinu sínu er þeir héldu uppi söng og gleði og var þar fremstur í flokki Herbert ólason með gítarinn, betur þekktur undir nafninu Kóki. Stemmning var mjög góð á mótssvæðinu þá viku sem menn dvöldu þarna. Höfðu menn gott tækifæri á að ræða við hestamenn af meginlandinu, skiptast á skoðunum og kynnast viðhorfum þeirra til íslenska hestsins sem nýtur stöðugt auk- inna vinsælda á erlendri grund. Hvar stöndum við nú? Þetta er sú spurning sem sjálf- sagt margir velta fyrir sér þessa dagana, en Evrópumótin hafa oft verið töluvert stefnumarkandi hvað viðkemur reiðmennsku og þjálfun hesta. Yfirleitt höfum við alltaf getað lært ýmislegt bæði gott og slæmt og ekki er að efa það að útlendingarnir hafa lært og munu læra af okkur. Telja má víst að Þjóðverjar hafi forystu í þjálfun grunngangteg- undanna, þ.e. fet, brokk og stökk, og einnig í töltinu, en hætt er við að að minnsta kosti sumir íslend- ingar eigi erfitt með að viður- kenna þá staðreynd. í skeiðinu höfum við óumdeilanlega yfir- burði og þá um leið í fimmgangi. í grófum dráttum má segja um reiðmennskuna á Evrópumótinu að þar voru tveir pólar, annars- vegar hin frjálsa og hraða reið- mennska okkar manna og hins- vegar hin yfirvegaða og nákvæma reiðmennska annarra þjóða sem þarna kepptu, og byggist hún fyrst og fremst á tímafrekri langtíma- þjálfun. Það var forvitnilegt að fá svar við því nú hvort dómarar myndu viðurkenna okkar reiðstíl í fimmgangi sem þeir og gerðu. Var varla hægt að fá skýrara svar en einmitt eftir sýningu Tómasar Ragnarssonar í fimmgangi, en hann reið það mjög hratt en þó hnökralaust. Niðurstaðan var svo 60 stig, sem er 1. flokks einkunn og næsthæsta einkunn sem gefin var í forkeppni fimmgangs. í fjór- gangi var annað uppi á teningn- um, þar blómstruðu þeir sem riðu mjög hægt en þó svífandi og hreyfingarmikið brokk og stökkið var svo hægt að hætt er við að hesturinn hefði dregist aftur úr rösklega gangandi manni. Rétt er þó að taka það fram að hestarnir voru ekki á valhoppi, þar sem hesturinn gengur að aftan en stekkur að framan. Hæga töitið var riðið á mismunandi hraða en þó alltaf eins hægt og hesturinn réð við. Yfirferðin var síðan eins hröð og hesturinn komst án þess að það kæmi niður á takti töltsins. Þarna voru Þjóðverjarnir fremstir í flokki eins og fram hefur komið og jafnvægi hesta þeirra frábært og greinilegt að að baki lá að minnsta kosti tveggja ára mark- viss og ströng þjálfun. Á undan- förnum árum hefur oft verið talað um að hestar útlendinganna væru ofþjálfuð viljalaus verkfæri, en fullyrða má að annað hafi verið uppi á teningnum nú, lítið um taglslátt og önnur mótþróamerki sem oft hefur verið áberandi. Sennilegasta skýringin á þessu er sú að menn séu að ná betri tökum á uppbyggingu hesta með það fyrir augum að fara langt upp þjálfunarstigann, lengra en tíðk- ast hérlendis. Það er fátitt að menn hér á landi taki hesta í tveggja ára þjálfunarprógramm með þátttöku í íþróttakeppni og Evrópumótum að markmiði og kom það hvað gleggst í ljós á úr- tökunni á Hellu fyrir þetta mót. Dæmi voru til um það að menn væru að kaupa eða útvega sér á annan hátt nýja hesta allt fram á síðustu stundu. Og var þar um að rtfeða hesta sem jafnvel aldrei höfðu glímt við þau verkefni sem þeir síðan áttu að spreyta sig á í úrtökunni. Vantar betri fjórgangshesta Eins og fram kemur er það skoðun undirritaðs að tveir pólar, ef þannig má að orði komast, hafi ríkt í reiðmennskunni á nýafstöðu Evrópumóti og má segja að svipað sé hér heima þótt á annan hátt sé. Er þá átt við tvennskonar keppn- isfyrirkomulag, gæðingakeppni og íþróttakeppni. Kemur þetta vafa- laust niður á þjálfun hesta sem við sendum á Evrópumót þar sem menn notast yfirleitt við sama hestinn hvort sem um er að ræða gæðinga- eða íþróttakeppni. Nú vegnaði okkur vel með fimm- gangshestana en ekki er hægt að horfa framhjá því að við stöndum höllum fæti í forgangi og tölti og höfum gert alltof lengi. Nú er það spurning sem vafalaust brennur á vörum manna sem eru djúpt þenkjandi í þessum málum, hvað sé hægt að gera til að ná lengra í þessum tveimur greinum. Um fimmganginn getum við sagt líkt og gert er í fótboltanum, „við breytum aldrei sigurliði". Sem sagt við erum á réttri braut þeim megin og þurfum aðeins að halda í horfinu. En hvað fjórganginum viðvíkur þá er það spurning hvort ekki þurfi að taka upp breyttar aðferðir við þjálfun þeirra þannig að þeir sem hug hafa á þátttöku í íþróttakeppni miði alla þjálfun hestsins við það. Og meira en það, því viðkomandi þyrfti að tileinka sér vinnubrögð Þjóðverja sem lengst hafa náð. Eftir mótið í Nor- egi ’81 var mikið talað um að eitthvað þyrfti að gera til að ná betri árangri í tölti og fjórgangi á motinu ’83. I dag stöndum við svo að segja í sömu sporum og eftir mótið í Noregi. KR-hátíð 83 Hótel sögu 8. og 9. októ- ber. Miðasala og borðap- antanir byrja í dag. allbjörn á heimavelli KR-STUÐ Sími 27181.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.