Morgunblaðið - 01.10.1983, Page 44

Morgunblaðið - 01.10.1983, Page 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 1983 fiec/iAfífí H. 5kowx nci- þá vars-t nbgu spenntar 09 uppriClnn. þegaS þu sóst þa%> *- 5/Of'i4ðí,p<i^U • „Ýmsar ástæður liggja til verðmyndunar hér, en ein orsök háa verðsins er sú að við höfum lengi búið við fallandi gengi. Óraunhæfir kjarasamningar sem kalla á gengisfall, hafa oft verið gerðir og þeir hefna sín grimmilega.“ að leyfa henni að velja af- mælisgjöfina tsína. Ást er ... I>áttu eins og þú sért ekki systir mín, því mig langar að gera hana þarna afbrýðisama. láttu ekki skotið geiga! HÖGNI HREKKVÍSI Þeir eru okkur dýrir verðbólgusamningarnir H. Kr. skrifar: „Velvakandi sæll. Nokkrir dagar eru nú liðnir síð- an spurt var í dálkum þínum hverju sætti að verðlag væri svo hátt hér á landi og nauðsynjar dýrar. Ég vonaði að einhver svar- aði, enda er þetta efni sem varðar okkur öll. Ýmsar ástæður liggja til verð- myndunar hér, en ein orsök háa verðsins er sú að við höfum lengi búið við fallandi gengi. óraunhæf- ir kaupsamningar, sem kalla á gengisfall, hafa oft verið gerðir og þeir hefna sín grimmilega. Ég hef verið að bíða eftir svari Egils endurskoðanda um endur- lánið á dönsku krónunum. Ég vona að hann sé við sæmilega heilsu og svarið fari nú að koma. Flestir skilja að gengislækkun hækkar verð innlendrar vöru. Hitt virðist mönnum óljóst — þó furðulegt sé — að gengislækkanir valda jafn- framt miklum fjármagnskostnaði sem hækkar allt vöruverð, allan rekstrarkostnað og skerðir þar með möguleika atvinnuveganna um launagreiðslur. Þannig gerir verðbólgan tvennt í senn: Magnar dýrtíð og gerir ís- land láglaunaland. Þeir eru okkur dýrir Verðbólgu- samningarnir. Því ætla ég ekki að biðja um meira af þeim, a.m.k. ekki fyrr en Égill endurskoðandi hefur svarað mér.“ í mun að draga fram hið jákvæða og skemmti- lega úr bernsku sinni Kagnar Þorstcinsson skrifar: „Kæri Velvakandi. Nýlega barst mér í hendur bók, sem heitir því sérkennilega nafni: „Ég læt það bara flakka", og er eftir Filippíu Kristjánsdóttur, Hugrúnu. Þetta eru nítján smá- sögur, bernskuminningar úr Svarfaðardal. Mér fannst bókin þess virði að hennar væri getið með nokkrum orðum. Hér er ekki um neinar æsisög- ur að ræða heldur raunsanna at- burði og atvik úr lífi barns sem skynjar lífið með saklausum barnsaugum sínum en þó gagn- rýnum á sérstæðan hátt. Barnssálin er afar viðkvæm fyrir rangsleitni og mótgerðum, að ég ekki tali um óþokkaskap og hættir til að taka slíkt alvarlega. Hugrún tekur létt á slíku og er ekki bitur, en í æsku sinni kynn- ist hún misjöfnum manngerðum. Henni er í mun að draga fram hið jákvæða og skemmtilega úr bernsku sinni. Fróðleg er frá- sögnin um heimilishætti á Braut- arholti í Svarfaðardal, bernsku- heimilinu. Þessi þáttur lýsir einkar vel lífi og bjástri sveita- fólks um og eftir aldamótin síð- 9 Filippía Kristjánsdóttir. ustu. Þá voru miklu meiri kröfur gerðar til barna og unglinga en nú tíðkast og kannski stundum um of en þó fylgdi ýmislegt já- kvætt í kjölfarið. Börn vöndust á að sýna ábyrgðartilfinningu og trúmennsku í starfi og þungt var tekið á því ef unglingar vöndu sig á ósannsögli. Þegar börn sátu yfir ánum í bernsku Hugrúnar, gafst nægur tími til að velta fyrir sér ýmsum furðum og vandamálum mannlífsins. Einveran og kyrrðin seiddi fram í huga unglingsins hin furðulegustu ævintýr sem frjóvguðu ímyndunaraflið og ekki er ólíklegt að þar hafi spírað hin fyrstu frjókorn að verðandi skáldsögum ýmissa rithöfunda, sem slitu barnsskónum um svip- að leyti og Hugrún. í þessum þætti sem skáldkonan nefnir heimilishætti, hefir henni tekist að draga upp skýra mynd af þjóð- lífsháttum þessa tímabils. Hug- rún er jákvæð og hreinskilin og hikar ekki við að draga fram raunsanna mynd af trúarlífi sínu en það mun sjaldgæft nú á tímum að rithöfundar fjalli um þau mál af einlægni. Yfir sögum Hugrúnar hvílir tær ferskleikablær, blandaður léttri kímni og góðlátlegu gríni. Sjálf sleppur hún síður en svo við glettnina og grínið. Myndi ekki margur nútíma unglingurinn geta fundið eitthvað af sjálfum sér í þessum sögum Hugrúnar? Innri kjarni þjóðlífsins breytist hægt þótt allar ytri aðstæður umturnist. Ég spái því, að á meðan kjark- ur, þor og hreinskilni eru ein- hvers metin af þessari þjóð, þá muni hið jákvæða og sanna í þessari bók flakka á milli margra Islendinga, þeim til sálubótar." GÆTUM TUNGUNNAR Sagt var: Þar búa menn af ýmsum þjóðernum. Rétt væri:... menn af ýmsu þjóðerni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.