Morgunblaðið - 01.10.1983, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 1983
45
S' & f/ i 7 éf
n 6 ( m 5
miu
VELVAKANDI ^
SVARAR f SÍMA
m 10100 KL. 11—12
$ FRÁ MÁNUDEGI
r* TIL FÖSTUDAGS
Að leyfa hundahald
eykur á vandann
en leysir hann ekki
Þessir hrlngdu . . .
Ekki orði minnst
á að gefa gjafir
Guömundur Hagalín, Akur-
eyri, hringdi og hafði eftirfar-
andi að segja: — Vegna
athugasemdar um Lionsmenn
og „gjafir" í Velvakanda-
dálkum 28. september, vilja
þeir hinir sömu Lionsfélagar
gera smáathugasemd: í
fréttatilkynningum, sem birt-
ar voru í Degi 19. september
og fslendingi 22. september,
er ekki orði minnst á að gefa
gjafir, utan þess að blöðin
sjálf hafa ákveðið fyrirsagn-
irnar, sem hljóða að vísu í þá
átt. í greinunum er talað um
afhendingu tækja og að áður
hafi verið komið upp öðrum
tækjum. Og í grein Dags, sem
er mun ítarlegri, eru niður-
lagsorðin, að félagar í
Lionsklúbbnum Hæng færa
bæjarbúum, einstaklingum og
fyrirtækjum miklar þakkir
fyrir að gera þeim kleift að
hjálpa öðrum. Og skal það
ítrekað. Okkur þykir leitt, ef
einstaka lesendur ná ekki ein-
hverra hluta vegna að lesa
nema fyrirsagnirnar.
Fyrirspurn til ríkis-
skattstjóra vegna
bflafríðinda ráðherra
Haraldur Blöndal hringdi og
hafði eftirfarandi að segja: —
Mig langar til að koma á
framfæri fyrirspurn til ríkis-
skattstjóra vegna bílafríðinda
ráðherra: 1) Teljast hlunnindi
eins og réttur til að fá afslátt
af aðflutningsgjöldum til
launakjara og 2) eru þau
skattskyld, þegar viðkomandi
launþegi hagnýtir sér þau?
Guöný Óskarsdóttir skrifar:
„Hvað er borgarstjórinn að tala
um? Það sem hann segir í viðtali
við Mbl. í dag (miðvikudag) er út I
hött. Auðvitað dugir bann við
hundahaldi ekki, ef því er ekki
fylgt eftir. Sekt í eitt skipti er
sama og skattur á þá óheppnu.
Vítahringurinn er heimatilbúinn.
Ef hundahald er bannað, þá hlýt-
ur það einfaldlega að vera bannað
að hafa hund.
Ég get ekki betur séð en yfir-
völdum gangi bærilega að fylgja
eftir öðrum lögum og reglum í
landinu. Eða getum við átt von á
því, að lögum um skoðun bifreiða
verði bara aflétt, ef við hummum
fram af okkur að gera gamla bíl-
inn okkar skoðunarhæfan. Þegar
við værum svo búin að valda slysi
væri e.t.v. farið að athuga málið.
Að leyfa hundahald eykur
vandann, en leysir hann ekki. Auk
þess er það aum ævi hunds að vera
lokaður inni meðan eigendurnir
vinna og njóta því ekki félags-
skapar nema stutta kvöldstund, ef
það vinnst þá nokkur tími til að
sinna honum."
Svar til Henriks Jóhann-
essonar í Sandgerði vegna
fyrirspurnar um tollgæslu
Kristinn Ólafsson tollgæslustjóri
skrifar 27. september:
„í Morgunblaðinu, Velvakanda,
þann 6. ágúst sl. birtust tvær fyrir-
spurnir frá Henrik Jóhannessyni,
Sandgerði, til ótiltekins tollstjóra. Á
landinu eru 24 tollstjórar. Af efni
fyrirspurnanna mátti helst ráða, að
þeim væri beint til tollstjóra Suð-
ur-Múlasýslu, þar sem þær vörðuðu
tollafgreiðslu farþega á Egilsstaða-
flugvelli en þó vörðuðu þær einnig
og kannski frekar óstaðbundin mál-
efni, sem tollstjórinn þar hefur
væntanlega ekki talið í sfnum
verkahring að svara.
I Morgunblaðinu þann 22. sept-
ember sl. endurtekur Henrik spurn-
ingar sínar og bætir reyndar fleir-
um við og enn á ný beinir hann þeim
til ótiltekins tollstjora. Þar sem það
má teljast í mínum verkahring að
reyna að svara spurningum Henr-
iks, þá skal þess freistað, þótt þeim
hafi ekki verið til mín beint.
1. spurning: Er leyfilegt að koma
með soðna matvöru með sér inn í
landið?
Svar: Já, fyrir kr. 800 að smásölu-
verði á innkaupsstað. Hér þykir rétt
að bæta því við til skýringar að það
getur verið vandkvæðum bundið að
vita hvort matvara er soðin eða
ekki, ef umbúðir bera það ekki með
sér. í vafatilvikum hefur tollgæslan
orðið að leggja hald á matvöru,
þangað til ferðamanni hefur tekist
að sanna að hún sé soðin.
2. spurning: Flokkast sjávarafurð-
ir undir bannvöru? Ef svo er ekki:
Hvers vegna er þá t.d. hvalkjöt eða
spik tekið af fólki sem kemur með
þetta með sér til landins?
Svar: Samkvæmt lögum frá 1928
er bannaður innflutningur á öllu
hráu kjötmeti, og er enginn grein-
armunur gerður á dýrategundum í
því sambandi.
3. spurning: Eiga tollþjónar ekki
að vera vel heima í reglum, sem lúta
að þessum atriðum?
Svar: Ég tel að toilþjónar séu vel
að sér í þeim lögum og reglum, sem
lúta að starfi þeirra, enda þurfa þeir
að gangast undir nám og starfs-
þjálfun til undirbúnings starfinu.
4. spurning: Er ekki ólöglega að
farið hjá tollgæslu þegar tekið er úr
farangri fólks, án þess að það sé
látið vita?
Svar: Tollskoðun á farangri far-
þega fer venjulega fram strax við
komu farþegans til landsins þannig
að farþeginn er þá viðstaddur skoð-
unina. Tollskoðun án hans vitundar,
t.d. ef hún þarf að fara fram síðar,
er heimil nema farþeginn hafi sett
fram ósk eða kröfu um að vera
viðstaddur en þá á hann einnig rétt
á að fá farangurinn innsiglaðan
þangað til skoðun fer fram.
5. spurning: Er ekki skylt að skila
aftur hlutum sem teknir hafa verið
af þeim sem koma inn í landið, ef í
ljós kemur að innflutningurinn var
heimill samkvæmt reglum?
Svar: Jú.“
Welt
elkomin í
Kvosina
OPIÐ í KVÖLD FRÁ KL. 18.00
og SUNNUDAGSKVÖLD frá
KL. 18.00
Ragtimesnillingurinn
Bob Darch
leikur á píanó fyrir matargesti rigtime-
tónlist eins og tíökaöist á árunum um og
eftir síöustu aldamót.
Boröapantanir í síma 11340 eöa 11633.
Veitingahúsid
LKuöóltmL
Jé CAFÉ ROSENBERG 1920
vantar
þi3 3Óóan bíl?
notaóur - en í algjörum sérf bkki
Oatsun 160, 1600 SSS, árg. '78. Mjög góöur bfll, aöeins
ekinh 67.000 km af sama eiganda. Útvarp fylgir.
Opið í dag 1—5.
JÖFUR
HF
Nýbýfavegi2 - Kópavogi
- Simi 42600