Morgunblaðið - 18.10.1983, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. OKT0BER 1983
7
T^itamaíka^uiinn
<~ý.rattitýötu 12-18
FORD TAUNUS 1600 QL 1982
GnMin (Matalic). Eklnn atelni 1» þ0». km.
Útwp, 2 dikklagingar. Varé kr. 299 þða.
BMW 318 1982
Qréaanaaraéur. aklnn 29 þúa., Iltaé glar.
kr. 199 þúa (Sklptl ath. é édýrari.)
SUBARU 1800 1981
Rauéur, hétt og légt drtl. „U8A-typa“. Ek-
Inn M þúa. km. Ýmalr original aukahlutlr.
Varð kr. 300 þúa. (Skipti ath. é ódýrari.)
MITSUBISHI L 300 1981
Hvftur, akinn 40 þúa. • manna, gott éatand.
Varú kr. 230 þúa. (Sklptl é édýrari).
COLT GL 1200 1981
Oréaanaaraúur. 9 dyra, akinn 37 þúa km. 2
dakklaoanoar. Varð kr. 199 þúa.
TOYOTA CARINA GL 1.8 1982 OréMnMraður, •léltakiplur. Ekinn 27 þú». km. V*m»týri o.fl. aukaM. Varð kr. 320 þú». (Sipti ath. é ódýrari.)
w ' 7
LADA SPORT 1981
Hvitur. aklnn 46 þúa., útvarp O.II. Varð kr.
199 þúa.
HONDA CIVIC WAGOON 1982
Brúnaanaaraður, tramdrtflnn, akinn aðaina
21 þúa. km. Varð kr. 2(9 þúa.
SAAB 99 GL11981
Bléaanaaraður, aklnn aðaina 19 þúa. 2
dakkiagangar. Varð 300 þúa.
Samningar
Svavars
Gestssonar
Ólafur G. Kinarsson,
furmaAur þingflokks Sjálf-
stæðisflokksins, sagði m.a.:
„En þá kem ég að meg-
inástæðu þess að ég kvaddi
mér hljóðs, ræðu Svavars
Gestssonar, sem mér þótti
satt að segja með eindæm-
um og endemum, svo ekki
sé meira sagt Hann gerði
að umtalsefni yfirlýsingar
þingmanna, þar á meðal
þingmanna Sjálfstaeðis-
flokksins, frá sl. vori — áð-
ur en þingi var slitið —
þess efnis, að nýkjörið þing
skyldi koma saman eigi
síðar en 18 dögum eftir
kosningar. Um það vóru þá
þingmenn þriggja flokka
sammála. I>ar var Fram-
sóknarflokkurinn einn
fyrir utan. En munurinn á
Sjálfstæðisflokknum og Al-
þýðubandalaginu er sá að
við vildum standa við
þessa yfirlýsingu og fylgja
þingsályktunartillögunni
eftir, sem flutt hafði verið.
En hverjir vóru það sem
komu í veg fyrir að sú til-
laga yrði afgreidd með
þinglegum hætti áður en
þinginu var slitið? Það var
Alþýðubandalagið með
Svavar Gestsson í broddi
fylkingar. Hann kom í veg
fyrír að þessi tillaga fengi
þinglega meðferð. Hann
samdi um það við Fram-
sóknarfiokkinn að koma I
veg fyrir það að tillagan
yrði samþykkt, til þess að
vantrauststillaga, hið raun-
verulega vantraust á koll-
ega hans, Hjörleif Gutt-
ormsson, yrði samþykkt
Þetta var ástin á lýðræð-
inu hjá Svavarí Gestssyni
þá, sem hann blaðrar nú
um. Já, honum ferst, ég
segi ekki annað."
Bráðabirgða-
lögin í ágúst
1982
Steingrímur Hermanns-
son forsætisráðherra sagði
Steingrímur Hermannsson
m.a. í þessari sömu um-
ræðu:
„Mig skal ekki undra
það að norskir þingmenn
hafi orðið orðlausir, ef þeir
hafa orðið að hlusta á ræðu
eins og Svavar Gestsson
fiutti hér áðan. Ég skal svo
ekki út af fyrir sig fara
fleiri orðum um það, þó að
það mætti gera, og kannski
rifja upp ýmislegt úr okkar
samstarfi í ríkisstjórn, sem
værí líklega fróðlegt fyrir
alþjóð að heyra. Mér þykir
satt að segja svolítið furðu-
legt þegar menn skipta svo
skjótt um lit eins og Svavar
Gestsson gerir. Og við
fáum eflaust tækifærí til að
rekja það nánar síðar.
Já, þingmaðurinn telur
I að nú hafi þverlega verið
Ólafur G. Einarsson
brotið gegn lýðræðinu. Ég
verð nú að segja það að ég
held að við höfum nú kom-
izt einna næst því þegar við
létum kyrrt liggja; það vóru
gefin út bráðabirgðalög og
samþykkt þann 26. ágúst í
fyrra, og það lá fyrir að
ekki var meiríhluti á þingi.
Ég verð að viðurkenna það
að maður velti dálítið vöng-
um yfir því. En ekki þegar
gefin eru út bráðabirgðalög
í fullu samræmi við stjórn-
arskrá og fyrir liggur að 37
þingmenn fylgja þeim.“
Hér er því slegið (ostu af
forsætisráðherra landsins
að fyrri ríkisstjórn hafi gef-
ið út bráðabirgðalög í ágúst
í fyrra þvert á vitneskju um
að þingmeiríhluti var ekki
Svavar Gestsson
til staðar til að styðja þau.
Alþýðubandalagið stóð að
þessum bráöabirgðalögum,
rétt eins og það stóð að
samningum um að svæfa
þingsályktunartillögu um
sumarþing. „Gott er að
hafa tungur tvær og tala
sitt með hvorri“, segir
máltækið.
En hræsni Alþýðubanda-
lagsins er einstök. Alþýðu-
bandalagið sýnist vera
mesti tækifærisfiokkur ís-
lenzkra stjórnmála fyrr og
síðar, sem skiptir um lit og
afstöðu til mála eftir því
sem hentar í refskák for-
ystumanna hans um völd
og vegtylhir. Er hægt að
bera traust til slíkra stjórn-
málamanna?
Helztu fréttapunktar
fyrstu þingvikunnar
Tveir fréttapunktar úr umræöum fyrstu þingvikunnar vöktu
þjóðarathygli. Annarsvegar aö Svavar Gestsson, formaður Al-
þýðubandalagsins, samdi um það við Framsóknarflokkinn á sl.
vori, aö svæfa tillögu til þingsályktunar sem kvaö á um vor- eöa
sumarþing, til aö koma í veg fyrir vantraust á þáverandi orku-
ráðherra. Hinsvegar sú fullyröing Steingríms Hermannssonar for-
sætisráðherra aö gefin hafi veriö út bráöabirgðalög í ágústmán-
uöi 1982 án þess aö tryggja fyrirfram stuðning meirihluta þing-
manna viö efnisatriði þeirra. Staksteinar birta í dag, orðrétta, þá
ræðukafla, sem þessi efni varða.
MinKapeisar i úrvali
Góö greiöslukjör.
PELSINN
Kirkjuhvoli — sími 20160.
1 plötu eða 2 plötur
2 eða 3 stoðir.
Hvort sem þig vantar
mikið efni eða bara ósköp
lítið þá gengur þú að því
vísu hjá okkur.
M4Tf
VERKSMIÐJULAGER
Armúla 7
SÍMAR 31600-31700
PLANTERS j”
Heildsölubirgðir:
Agnar Ludvigsson hf.
Nýlendugötu 21,
sími 12134.