Morgunblaðið - 18.10.1983, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 1983
23
Geir Hallsteinsson:
Víkingar eyðilögðu
leikinn með hnoði
- vill nýtt keppnisfyrirkomulag
„ÉG VIL meina þaö að Víkingarnir
hali eyöiiagt þennan leik, þeir
spiluöu alltof hægt og voru sffellt
aö hnoöa meö boltann. Viö kom-
ust því aldrei í gang og nóöum
ekki aö sýna okkar bestu hliöar,
en þaö er öruggt aö við getum
gert miklu betur en þetta. Liðið er
mjög gott, breiddin mikil og það
eru alltaf einhverjir sem eiga
góöan leik,“ sagöi Geir Hall-
steinsson, þjálfari FH.
Geir er mótfallinn nýja fyrir-
komulaginu sem tekiö var upp í
fyrra þar sem hin eiginlega keppni
um titilinn fer fram í febrúar. Hann
var spuröur hvort hann væri ekki
hræddur viö aö fara of geyst af
staö í byrjun meö tilliti til þess aö
þreyta veröi komin í liöið í úrslita-
keppninni sjálfri. „Nei, alls ekki,“
svaraöi Geir „þó aö viö spilum á
miklum hraöa núna förum viö ekki
geyst af staö. Þaö á eftir aö koma
miklu meira út úr strákunum þegar
fram í sækir. Hins vegar er þaö
furöulegt aö stigin sem liöin fá í
undankeppni skuli ekki fylgja þeim
upp. Fyrir vikiö er ekki aö eins
miklu aö keppa.“______— BJ.
FH með topplið
— segir þjálfari Víkinga
„FH-INGARNIR eru með toppliö, i
því leikur enginn vafi, þeir eru
mun betri en Kolbotn, sem við
lékum á móti um daginn. Liöiö á
eftir aö ná langt hvort heldur er
hér heima eöa í Evrópukeppn-
inni. Þrátt fyrir aö hafa tapað á
móti þeim er ég ekki óánægöur
meö leikinn en þau vítaköst sem
viö mísnotuöum voru örlagarík
og settu strik í reikninginn,"
sagöi Rudolf Havlék þjálfari Vfk-
ings eftir leikinn gegn FH.
Fyrirkomulagiö á keppninni
leggst vel í Rudolf, hann sagöi aö
leikmenn ööluöust mikla reynslu á
þennan hátt sem kæmi sér vel fyrir
landsliöiö. „Víkingsliöiö er gott og
viö erum ákveönir í aö standa
okkur í vetur — en þetta veröur
erfitt.“
— BJ.
KR-ingar mjög
seinir í gang
— en unnu Þrótt samt örugglega
KR-INGAR sigruöu Þrótt í 1.
deildinni í handbolta í gærkvöldi,
20:14, eftir aö staðan hafði veriö
jöfn í hálfleik, 8:8. í byrjun virtust
KR-ingar ekki líklegir til stórræða
— Þróttur komst í 3:0 og fyrsta
KR-markió kom ekki fyrr en á 12.
mínútu.
3. deild
FJÓRIR leikir fóru fram í 3.
deildinni í handbolta um helg-
ina, úrslit uróu þessi:
ÍA — Þór Akureyri 18—19
Týr — Ármann 28—17
ÍBK — Afturelding 21—24
Skallagr. — Þór, Ak. 18—37
Staóan í deildinni er þannig
eftir þessa leiki:
Týr
Þór Ak.
Ármann
ÍBK
Afturelding
ÍA
Selfoss
43 10 112—69 7
3 3 0 0 81—49 6
4 3 0 1 103—86 6
4 3 0 1 103—72 6
3 2 0 1 69—60 4
4 1 12 87—72 3
3 0 0 3 40—71 0
Skallagrímur 4 00 4 62—113 0
Ögri 3 0 0 3 41—105 0
Hvar verður
þing KSÍ?
ÁKVEÐIÐ hefur verið aö ársþing
Knattspyrnusambands íslands
fari fram á Húsavik í desember.
En nú virðist ekki öruggt um aö
svo geti oröió, skv. heimildum
Mbl.
„Hótelið á Húsavík er orðið full-
bókaö, en engu aö síöur er nokkur
fjöldi manna sem enn hefur ekki
boöaö komu sína á þingið,“ sagöi
forráöamaöur eins knattspyrnufó-
lags í samtali viö blaöiö í gær.
„Það er því ekki öruggt aö þingiö
geti oröið á Húsavík, ef ekki veröur
hægt aö hýsa þinggesti. Mér virö-
ist því einungis tveir raunhæfir
möguleikar koma til greina, Akur-
eyri eöa Reykjavík,“ sagöi hann.
Neofljko Vujingviz, þjálfari KR,
kom inn á er staöan var 3:0, og
virtust Þróttarar, sem byrjaö höföu
mjög vel, missa móöinn viö þaö,
því fljótlega fór KR aö saxa á for-
skot þeirra. Ekki virtist þó nein
ástæöa til aö hræöast Júgóslav-
ann, hann skoraöi ekki mark og
virtist heldur ragur viö aö skjóta.
Þremur mínútum fyrir hlé voru
Þróttarar þremur mörkum yfir, 8:5,
en KR tókst að iafna.
Þróttarar voru síöan algerlega
heillum horfnir í síöari hálfleik —
skoruöu aöeins tvö mörk þær 16
mínútur meðan KR-ingar geröu
fimm mörk. Staöan þá oröin 13:10
og KR komst síöan í 17:10. Þrótt-
arar hreint ótrúlega slakir meöan
KR-ingar meö Guðmund Alberts-
son í broddi fylkingar léku mun
betur en i fyrri hálfieiknum. Aö vísu
var vart annaö hægt.
Undir lok leiksins tóku Þróttarar
þaö til bragös aö spila vörnlna
mjög framarlega og taka Jakob og
Júgóslavann úr umferö en þaö
gagnaöi lítiö.
Leikurinn í heild var slakur og
þeir fáu áhorfendur sem lögöu leiö
sína í Höllina misstu þar meö af
Tomma og Jenna í sjónvarpinu.
Slæm skipti þaö ef dæma má af
reynslunni af þeim félögum. Ég
missti því miður af þeim í gær eins
og nærri má geta.
Páll Ólafsson var ágætur í fyrri
hálfleiknum en náöi sér ekki veru-
lega á strik í þeim seinni. Ásgeir
varði nokkuö vel í markinu hjá
Þrótti, og þaö geröi Gísli Felix
einnig hinum megin. Annars var
Guömundur Albertsson bestur
KR-inga. Eldfljótur leikmaöur.
Mörkin. KR: Guömundur Al-
bertsson 6, Jakob Jónsson 4,
Björn Pétursson 4/4, Jóhannes
Stefánsson 4, Haukur Geirmunds-
son 2. Þróttur: Páll Ólafsson 7,
Gísli Óskarsson 3, Konráö Jóns-
son 2, Magnús Margeirsson 1 og
Páll Björgvinsson 1. __ SH.
• Kristján Arason ar í gífurloga góöri æfingu um þessar mundir og skorar grimmt. Kristján skoraöi 11 mörk
gogn Víkingi á laugardaginn.
FH er með sterkasta
liðið um þessar mundir
— sigruðu Víkinga örugglega, 28—21
FH-ingar sýndu þaö og sönn-
uðu á laugardaginn þegar þeir
unnu Víkinga meö sjö marka mun
í íþróttahúsinu í Hafnarfirói aö
þeir eru meö sterkasta og heil-
steyptasta félagsliöiö í íslenskum
handbolta um þessar mundir.
Lokatölurnar uröu 28—21 en (
hálfleik höföu FH-ingar fjögurra
marka forystu, 15—11. Víkingam-
ir áttu fá svör við góöum leik
Hafnfiröinganna, vörnin var þétt,
sóknarleikurinn beittur og
markvarslan góö. Áhorfendur
voru nokkuö margir, eóa um 750
og uróu þeir góörar skemmtunar
aðnjótandi.
Víkingar brugöu á þaö ráö strax
í upphafi aö taka Kristján Arason
úr umferö, en það virtist ekki hafa
nokkur áhrif á spil FH þar sem
maður kemur í manns staö. Vík-
ingar komust þó fljótlega í tveggja
marka forystu, 4—2 og síöan 5—3
en þá geröu FH-ingar fjögur mörk
í röö og staöan 7—5 eftir 12 mín-
útur. Tveggja marka munur hélst
út mest allan fyrri hálfleikinn, eöa
þar til um 3 mínútur voru eftir að
FH-ingar náöu 5 marka forskoti,
15—10. Þeir Kristján og Pálmi
voru þar fremstir í flokki, skoruöu
7 síöustu mörkin í hálfleiknum en
til samans geröu jjeir 11 af 15
mörkum FH í þeim fyrri. Viggó Sig-
urösson náöi aö skora ellefta mark
Víkings rétt áöur en klukkan gall
viö og staöan í hálfleik því 15—11.
Steinar og Einar minnkuöu
muninn strax niöur í tvö mörk í
byrjun fyrri hálfleiks og hélst sá
munur næstu tuttugu mínúturnar.
Víkingarnir fengu gullin tækifæri
til aö rétta stööu sína viö á þessum
kafla en Sverrir í marki FH kom í
veg fyrir þaö meö glæsilegri
markvörslu. Þegar staöan var
17—15 varöi hann víti frá Herði
Haröarsyni, boltinn barst til Karls
en Sverrir varöi skot hans, Guö-
mundur B. fókk boltann og aftur
varöi Sverrir. Vítakast var dæmt,
og þaö var ekki aö sökum aö
spyrja, Sverrir varöi þaö frá Sig-
uröi Gunnarssyni. Nokkrum mínút-
um síöar fengu Vtkingar enn eitt
vítiö sem Viggó tók, en enn varöi
Sverrir. Þar meö er ekki öll sagan
sögö því strax aftur var dæmt víti
og þaö varöi Sverrir líka — fékk
reyndar boltann í höfuöiö en lét
þaö ekkert hafa áhrif á sig.
Þegar hér var komiö sögu virtist
allur vindur úr Víkingum, þeir
fundu hvergi glufu í sterkri vörn
FH-inga sem skoruöu fimm mörk í
röö og staðan 26—19. Hvoru liöi
tókst aö gera tvö mörk áöur en yfir
lauk og glæsilegur sigur FH í höfn.
Allir í liöi FH áttu góöan dag, en
enginn þó jafn góöan og Kristján
Arason sem lék viö hvern sinn
fingur, hvort heldur var i sókn eöa
vörn. Nýtni hans var mjög góö í
leiknum, skaut 13 sinnum og skor-
aöi 11 mörk. Pálmi og Sverrir voru
einnig mjög góöir svo og Þorgils í
vörninni.
Ekki er hægt aö segja að Vík-
ingsliöiö hafi verið slakt þrátt fyrir
ósigurinn, í liðið vantaöi tvo menn,
þá Hilmar og Guömund Þ. og mun-
ar um minna. Sigurður Gunnars-
son átti bestan leik.
Mörk FH: Kristján Arason 11 (3v), Pálmi
Jónsson 7, Hans Guömundsson 3 (1v), Þorgils
Óttar 3. Guómundur Magnússon 2, Atli Hilm-
arsson og Sveinn Bragason eitt mark hvor.
Mörk Víkíngs: Siguröur Gunnarsson 7,
Viggó Sigurösson 5 (3v), Guömundur B. Guö-
mundsson, Steinar Birgisson, Karl Þráinsson
og Einar Jóhannesson tvö mörk hver og Hörö-
ur eitt (v).
Misheppnuó vitaköst: Sverrir varöi tvö vítl
frá Herói, tvö frá Viggó og eitt frá Siguröi
Gunnarssyni.
Brottvisanir af leikvelli: Hjá FH var Þorgils,
Hans, Kristjáni og Sveini visaö útaf í 2 min.
hverjum og hjá Víkingi Steinari, Siguröi og
Einari Magnússyni i tvær mín. og Einari Jó-
hannessyni i tvisvar sinnum tvær mín.
— BJ.
• Pélmi Jónsson spilaöi vel og sendi boltann sjö sinnum í mark Víkinga. Hér skorar Pálmi eitt af mörkum
sínum.