Morgunblaðið - 28.10.1983, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 1983
Hann helgaði Sölumiðstöð hrað-
frystihúsanna alla sína krafta og
ég veit að frystihúsaeigendur um
allt land, eriendir og innlendir
viðskiptavinir og samstarfsmenn
minnast nú með þakklæti þessa
mæta manns.
En sárastur er söknuður ágætr-
ar eiginkonu, Mörtu Pétursdóttur,
og barna þeirra. Marta stóð við
hlið eiginmanns síns í erilsömu
starfi og erfiðum veikindum og
bjó manni sínum friðsælt og gott
heimili. Við Arnþrúður sendum
henni, börnum og öðrum aðstand-
endum innilegustu samúðarkveðj-
ur.
Óttarr Möller
Kynni okkar Björns Halldórs-
sonar hófust í Boston fyrir tæpum
fjörutíu árum, er við vorum þar
við nám. Hann stundaði þar fram-
haldsnám í hagfræði við Harvard
University og útskrifaðist þaðan
með mikilli prýði.
Ekki vissum við þá, að leiðir
okkar ættu eftir að liggja svo
mjög saman, að öll starfsævi hans
og verulegur hluti minnar yrðu í
þjónustu sama fyrirtækisins,
Sölumiðstöðvar hraðfrystihús-
anna.
Hann réðist þangað að afloknu
námi og tók við framkvæmda-
stjórn ungur maður. Það var alltaf
unun að vinna með Birni. Snyrti-
mennska hans og glæsibragur
voru bæði að ytri sýn og einnig
einkennandi fyrir skapgerð hans.
í fjöldamörg ár vorum við í
beinu og næstum daglegu sam-
starfi, með Atlantshafið á milli
okkar. Ég hef aldrei kynnst
manni, sem bar hag fyrirtækisins
eins vel fyrir brjósti, eins og hann
gerði ævinlega. Hann fann bók-
staflega ekki frið í sjálfum sér
fyrr en hann taldi sig hafa fundið
beztu lausn hvers vandamáls.
Störfin fyrir Sölumiðstöð hrað-
frystihúsanna áttu hug hans all-
an.
Björn Halldórsson átti lengi við
vanheilsu að stríða og fyrir nokkr-
um árum varð hann að láta af
störfum vegna þess. Langvarandi
vonir um heilsubót brugðust allar.
Núna, þegar hann er fallinn frá,
lifa eftir minningar um glæsi-
mennsku hans.
Ég votta eftirlifandi konu hans,
Mörtu, og börnum þeirra, innileg-
ustu samúð mína.
Þorsteinn Gíslason
„Harða, blíða, heita, sterka sál,
hjarta þit var eldur, gull og stál,
ólíkt mér, en allt eins fyrir það
ertu gróin við minn hjartastað."
(M.J.)
Nú er Björn frændi allur og að
okkur sækir sár tregi. Sorgin er
djúp vegna þeirrar elsku er við
fengum að njóta frá frænda okkar
sem vildi gera svo mikið fyrir
okkur öll sem honum þótti vænt
um og vildi að við fengjum að lifa
við betri heilsu en hann sjálfur.
Hann var hinn gjöfuli í tengslum
við sín systkinabörn, vildi vefja
hópinn af sinni gæsku og lofa
okkur að njóta með sér þeirrar
lífsvisku sem hann hafði til að
bera og líka lífsins þæginda. Aldr-
ei stóð á þeim hjónum Birni og
Mörtu að lána okkur þeirra ynd-
islega sumarbústað til lengri eða
skemmri dvalar, til skemmtunar
eða hvíldar, sem við mörg systk-
inabörnin höfum þannig notið og
gleymist aldrei. Ósérhlífni frænda
var engu lík og voru þau hjónin
afar samheldin í því að fylgjast
með og hjálpa systkinabörnunum
og síðan okkar börnum sem fengu
að kynnast honum og elska hann
og hans óbilandi kjark við lang-
varandi veikindi. Við öðluðumst
þroska við að sjá hve mikinn styrk
hann sýndi í baráttunni við veik-
indin og hve lítið hann kvartaði
við okkur miðað við líðan. Það var
frekar að hann gæfi orku en að
hann tæki frá öðrum. Óbilandi
kjarkur hans og dugur við að rísa
upp aitur eftir erfið áföll er von
var á bata og alltaf var hans
fyrsta verk að sýna okkur ást sína
og umhyggju.
Þau hjón voru afar samtaka í að
gefa okkur þeim yngri meira af
sér. Börn okkar munu minnast
Bubba frænda sem hins gjöfula
manns og eru þakklát fyrir að
hafa kynnst slíkum persónuleika.
Við erum trúuð í sorg okkar. Við
treystum því að friður Krists og
umönnum eigi eftir að annast
Bubba og umvefja þá sem syrgja.
Guð gefi ykkur styrk elsku Maddý
okkar, Svava, Pétur, makar ykkar
og börn.
Bænin ein gefur
þökkum við allt.
frið. Bubba
„Nú legg ég augun aftur,
Ó, Guð, þinn náðarkraftur.
Mín verði vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka,
þinn engil, svo ég sofi rótt.“
Þórunn og Þórhallur
Hiö íslenzka Lúthersfélag:
Aðalfundur á
mánudaginn
HIÐ ÍSLENSKA Lúthersfélag held-
ur aðalfund sinn í safnaðarheimili
Bústaðakirkju, mánudaginn 31.
október og hefst hann kl. 20.30. Auk
venjulegra aðalfundarstarfa verður
efni fundarins helgað Lúthersárinu,
en sem kunnugt er eru liðin 500 ár
frá fæðingu siðbótarmannsins,
Marteins Lúthers, hann fæddist 10.
nóvember 1483.
Umræðuefnið verður helgað
samskiptum rómversk-kaþólsku
kirkjunnar og lúthersku kirkjunn-
ar og hefur Hið íslenska Lúthers-
félag boðið kaþólska biskupnum á
íslandi, dr. Hinrik Frehen að
flytja inngangsorð ásamt sr.
Hreini Hákonarsyni, sóknarpresti
í Söðulsholti. Að ioknum inn-
gangserindum verða almennar
umræður um efni þeirra. Loks
verður svo afmæliskaffi í minn-
ingu siðbótarmannsins. Allir þeir
sem áhuga hafa eru velkomnir.
FrétUtilkynning.
RENAULT Sigurvegari
I Bridgestone Rallinu 14.-15. okt. sl.
sigruðu bræðurnir Ómar og Jón Ragnarssynir
á Renault 5 Alpine glæsilega.
Frá 1979 hefur Renault 5 Alpine
unnið til 23. verðlaunasæta í bifreiðaíþróttum
og hefur enginn bifreið á íslandi sigrað jafn oft.
Renault — fær í flestan sjó
Ath. Bílasalan opin laugardaga kl. 1-5.
KRISTINN GUÐNASON HF.
SUÐURLANDSBRAUT 20, SÍMI 86633
RENAULT
Edmborq
HELGARFERÐIR - VIKUFERÐIR
Verð frá krónum 8.208.- _
FLUGLEIDIR
Gott fólk hjá traustu félagi
Rekum SMIDSHOGGIÐ á byggingu
sjúkrastöðvar SÁÁ