Morgunblaðið - 04.11.1983, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 1983 33
Skýringarm>nd til leiðbeiningar við hlúðgun:
Þorskur, skorinn á kviðinn og (rameftir lífoddanum. 1 tálkn, 2 hjartakeila, 3
hjartahólf, 4 lifur, B1 sá hluti tálknaslageðarinnar, sem skera skal á, þegar
blóðgað er.
Blóðgun.
Það er talinn sjálfsagður hlutur að blóðga alla þorskfiska
eins fljótt og unnt er, þegar þeir hafa verið veiddir. Skal
blóðgunin fara fram strax og fiskurinn hefur verið innbyrtur.
Skorið er þvert yfir lífoddann, svo framarlega, að slagæðin,
sem er innan við lífoddann og liggur frá hjartanu fram í
tálknin, skerist í sundur. Til þess að geta skorið nógu fram-
arlega verður að bregða hnífsoddinum undir annað tálkn-
barðið. Ekki skal skera svo djúpt, að vélindið opnist, og
gæta verður þess, að kviðarholið opnist ekki, svo að lifrin
ekki renni fram úr því. Áríðandi er, að hjartað skaddist
ekki, því að sláttur þess heldur þá áfram og hjálpar til að
tæma blóðið úr fiskbolnum.
Við blóðgun á fiski fer ekki hjá því, að fiskurinn sjálfur og
allt umhverfi hans atist í blóði. Er nauðsynlegt að skola þetta
blóð burtu jafnóðum með sjó. Sé fiskurinn settur niður í
lest óslægður, Verður honum að vera alveg blætt út áður og
af honum skolað. Blóðið er að vísu gerilsnautt sjálft, en það
er ágætis næring fyrir gerla og örvar því vöxt þeirra og við-
gang.
Eru útgerðarmenn
að verða brjálaðir?
Hnípin þjóð
í vanda
— eftir dr. Sigurð
Pétursson
Þaö hefur komið í ljós, nú á síð-
ustu og verstu dögum, að útgerð-
armenn eru hættir að blóðga fisk.
Til viðbótar því, að útgerðarmenn
hafa fjárfest miklu meira í fiski-
skipum en nokkurt vit er í, og auk-
ið svo sóknina í helztu tegundir
nytjafiska hér við land, að liggur
við eyðingu stofnanna. þá ætla
þeir nú að eyðileggja allan þann
þorskfisk, sem þeir veiða, með því
að hætta að blóðga hann, svo að
hann verði algerlega óhæfur til
framleiðslu á 1. flokks vöru.
Rétt blóðgun þorskfiska á rétt-
um tíma og á réttan hátt er eitt
mikilvægasta atriðið við fyrstu
meðferð á fiskinum. Er blóðgunin
til þess ætluð, að blóðið sé að
mestu leyti farið úr fiskholdinu,
þegar hjartað hættir að slá. Þetta
er alveg hliðstæð aðgerð og við
slátrun lamba að sið gyðinga. Þeir
hálsskera lambið á vissan hátt,
þannig að því blæði hægara og
betur út en ella, þ.e. að hjarta
lambsins haldi lengur áfram að
slá, svo að i kjötinu verði ekki
neitt blóð. Öðru vísi kjöt mega
gyðingar „ekki eta“ samkvæmt
iögmálinu.
í þessum sama tilgangi er fisk-
urinn blóðgaður nokkru áður en
hann er slægður og hjartað tekið
burt, svo að blóðið náist sem best
úr fiskbolnum, og fiskholdið verði
hvítara.
Lýsing á blóðgun þorskfiska
ásamt skýringarmynd er að finna
á bls. 79—80 í „Bókinni um
fiskinn" eftir undirritaðan, en
Fiskifélag íslands gaf bókina út
árið 1969. Tilgreindar blaðsíður
fylgja hér með í ljósriti.
Með kveðju til Rannsóknastofn-
unar fiskiðnaðarins, Skúlagötu 4.
Reykjavík, 1. nóvember 1983,
Sigurður Pétursson, gerlafræð-
ingur
— eftir Hörð
Bjarnason
Það er verðugt umhugsunarefni
fyrir landsfundarfulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins þegar kosinn verð-
ur formaður stærsta og mikilvæg-
asta stjórnmálaflokks landsins á
landsfundi Sjálfstæðisflokksins.
Enginn vafi leikur á því, að
Sjálfstæðisflokkurinn er og verður
öflugasti stjórnmálaflokkur þjóð-
arinnar, því er það mikilvægt að
landsfundarfulltrúar kjósi réttan
mann. Þrír menn eru í kjöri að
þessu sinni, allt miklir sómamenn
og erfitt að gera upp á milli þeirra.
Friðrik Sophusson myndi ég kjósa,
hefði ég atkvæðisrétt á landsfund-
inum. Það er mín bjargfasta trú að
þar sé hann réttur maður á réttum
stað. Friðrik er maður sem lætur
lítið yfir sér, hann er traustur, dug-
legur og fram úr hófi góður mála-
miðlunarmaður. Hann er tákn hins
trausta og trygga sjálfstæð-
ismanns eins og hann á að vera.
Friðrik hefur verið varaformaður
flokksins undanfarin ár og skyldi
engan undra, að hann er orðinn vel
kunnugur málefnum hans. Honum
hefur farist vel úr hendi þau verk-
efni sem hann hefur tekið að sér,
bæði sem stjórnmálamaður og
einnig sem varaformaður flokks-
ins.
Við sjálfstæðismenn skulum
gera okkur grein fyrir því, að senn
líður að næstu borgarstjórnar- og
alþingiskosningum, þá þurfum við
sjálfstæðismenn að standa vörð um
okkar nýja formann og sjá til þess
að Sjálfstæðisflokkurinn fari með
Priðrik Sophusson
yfirburðasigur og sjá til þess að
vinstri öflin í landinu komist ekki
aftur í sömu aðstöðu og þau hafa
verið í undanfarin ár. Hver svo sem
verður formaður flokksins, þá skul-
um við sjálfstæðismenn minnast
liðinna ára og láta slíkt ekki henda
aftur. Styðjum hann og styrkjum í
starfi með því að vinna vel með
væntanlegum formanni að málefn-
um flokksins.
Stuðlum að því að gera Sjálf-
stæðisflokkinn sterkari en hann
hefur nokkru sinni verið áður, það
verður þjóðinni til heilla..
Hörður Bjarnason er íasteignasali
í Reykjavík.
Opnum i dag
Gjafavöruverslun aö Dalshrauni 13, Hafnarfirði
Mikiö úrval af trévörum, glervörum
og keramiki.
Opiö frá kl. 9—18, laugardaga kl. 10—17.
og sunnudaga frá 13—17.
Gjafavöruverslunin
HNOSS
Dalshrauni 13, sími 79030.