Morgunblaðið - 22.11.1983, Side 1
80 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
STOFNAÐ 1913
268. tbl. 70. árg. ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1983 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Mousa veitir Arafat frest
til að hverfa frá Tripólí
Tripólí, 21. nóvember. AP. "
UPPREISNARMENN innan PLO sóttu enn fram gegn sveitum Yassers
Arafat, mert stuðningi Sýrlendinga í gær og gengu þeir afar nærri mótherjum
sínum. Tókst þeim að einangra flesta hermenn Arafats í miðjum Baddawi-
búðunum í útjaðri Tripólí.frá höfuðstöðvum leiðtogans. Voru geysiharðir
bardagar, en um skeið dró síðan úr þeim.
Uppreisnarmennirnir lýstu yfir
vopnahléi upp úr miðjum degi, en
Arafat sagði það fyrirslátt, upp-
reisnarmennirnir væru einungis
að hvíla sig fyrir lokasóknina og
hún myndi koma fyrr en varði.
Helmut Kohl, kanslari Vestur-
Þýskalands, byrjaði viðræðurnar
með 50 mínútna langri ræðu þar
sem hann varði stefnu NATO og
ítrekaði nauðsyn þess að hætta
ekki við áformin eins og málum
væri nú komið, slíkt myndi veita
Var vopnahlésyfirlýsingin sögð
koma frá Abu Mousa, leiðtoga
uppreisnarmannanna. í sömu orð-
sendingu var stjórnmálamönnum
og ráðamönnum í Tripólí gert að
koma Arafat og hans liði út úr
Rússum yfirburðastöðu í meðal-
drægum kjarnorkuvopnum. Sagði
hann, að ef árangur yrði enginn í
afvopnunarviðræðunum í Genf,
yrðu fyrstu meðaldrægu flaugarn-
ar til reiðu á vestur-þýskri grund
fyrir áramótin. Strax og vestur-
borginni til að koma í veg fyrir
frekara óþarfa blóðbað.
Arafat sagði á hinn bóginn að
uppreisnarmennirnir og Sýrlend-
ingar ætluðu sér að ná borginni á
sitt vald, það sannaði atlaga
þeirra á nokkur hverfi í Tripólí
þar sem engir Palestínumenn
hefðust við. Því myndi hann ekki
hverfa frá Tripólí, heldur hjálpa
borgarbúum að verja borgina
þýska þingið hefur samþykkt end-
anlega niðursetningu eldflaug-
anna, í kvöld ef að líkum lætur,
mun 9 flaugum verða skipað um
borð í flutningavélar í Bandaríkj-
unum og þær fluttar til Vestur-
Þýskalands.
Á flokksþingi sósíaldemókrata
um helgina, var kosið um kjarn-
orkumálið, og fyrir sitt leyti höfn-
uðu flokksmenn vopnunum. Hins
vegar hvatti Helmut Schmidt,
fyrrum kanslari, landsmenn til
þess að ganga ekki á bak orða
sinna, slíkt gæti dregið úr einingu
Vesturlanda og Sovétmenn myndu
hagnast stórlega. Hans Dietrich
Genscher, leiðtogi frjálsra demó-
krata, varði ákvörðunina og sagði
fyrir innrásarliðinu.
Ástandið í Tripólí er hörmulegt
um þessar mundir, birgðageymsl-
ur, skip og byggingar standa i
ljósum logum og ókunnur fjöldi
óbreyttra borgara hefur fallið eða
særst, svo ekki sé minnst á mann-
fallið í hinum stríðandi fylking-
um. Sjúkrahús og skýli eru yfir-
full, skortur er á lyfjum og flest-
um nauðsynjum.
kjarnorkuandstæðinga ekki hafa
leyfi til að kalla sig friðarsinna á
sama tíma og þeir gripu til ofbeld-
is til að ná fram vilja sinum.
Einnig í Noregi
Kjarnorkumálin voru einnig til
umræðu á norska Stórþinginu í
gær og verður svo einnig í dag.
Skiptast menn þar í fylkingar sem
annars staðar, en í kvöld verður
gengið til atkvæða um það hvort
Norðmenn fylgi ekki sem fyrr
kjarnorkustefnu NATO. Búist er
við spennandi kjöri og sérfræð-
ingar búast við því að stefnan
verði samþykkt með minnsta
mögulega mun, eða eins atkvæðis.
20 ár liðin
frá morði
Johns F.
Kennedy
NÝLEG skoðanakönnun sem
gengist var fyrir í Banda-
ríkjunum gaf þá niðurstööu, að
John F. Kennedy hefði verið
ástsælasti forseti Bandaríkj-
anna fyrr og síðar. í dag eru
liðin nákvæmlega 20 ár frá því
að hann féll fyrir tilræöismanni
í Dallas í Texas.
Kennedy er minnst um
heim allan í dag og á blaðsíð-
um 49—54 er sagt frá honum,
manninum, morðinu, eftir-
köstunum, auk þess sem rætt
er við kunna Islendinga um
hver viðbrögð urðu hér á
landi.
Sú gamla
brást ekki
Phoenix, Arizona, 21. nóvember. AP.
TÆPLEGA áttræð kona, Edith
Merril, vann í gær það afrek, að
lenda lítilli tveggja hreyfla flugvél á
flugvelli í Phoenix, án þess að kunna
nokkurn skapaðan hlut í flug-
mennsku. Flugmaðurinn hafði misst
meðvitund.
Frú Merril hugðist læra flug og
var í fyrstu reynsluferðinni, er
hinn 57 ára gamli flugmaður
missti skyndilega meðvitund. í
fyrstu flaug hún algerlega ein, en
lokasprettinn greip eiginkona
flugmannsins til stjórntækja
hreyflanna. „Ég var allan tímann í
mikilli geðshræringu og bað
stanslaust til guðs," sagði frú
Merril, en einn flugmannanna,
sem fylgdu henni inn til lendingar,
sagði gömlu konuna hafa gengið í
berhögg við allar líkur. „Það voru
svona 20.000 á móti 1 að lending
sem þessi gæti tekist, en við urð-
um vitni að kraftaverki. Frú
Merril stóð sig eins og hetja."
Korchnoi
sigraði
Lundúnum, 21. nóverober. AP.
VIKTOR Korchnoi, hinn land-
flótta sovéski stórmeistari í skák,
vann Garry Kasparov, landa sinn,
í fyrstu skák þeirra í áskorenda-
einvíginu í Lundúnum í gær. Gaf
Kasparov skákina eftir 52 leiki.
Sjá nánar frásögn í miðopnu.
Vigdís í Portúgal s
Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, kom til Lissabon, höfuöborgar Portúgals í gær, í fjögurra daga opinbera heimsókn. Forseti Portúgals, Antonio
Ramalho Eanes, tók á móti Vigdísi á flugvellinum. Sjá nánar frásögn á blaðsíðum 20 og 29.
Deilt um eldflaugar
á v-þýska þinginu
— götubardagar við þinghúsið í Bonn
Bonn, 21. nóvember. AP.
UMRÆÐUR hófust á vestur-þýska þinginu í gær um meðaldrægu kjarnork-
uflaugarnar sem NATO hyggst setja niður í Vestur-Evrópu, meðal annars í
Vestur-Þýskalandi. Ræddi þingheimur málið fram á kvöld og í dag halda
umræðurnar áfram. Voru skoðanir afar skiptar, en meðan skeggrætt var í
þingsölum, máttu hundruð lögreglumanna hafa sig alla við í kring um
þinghúsið og í næsta nágrenni, við að stugga reiðum kjarnorkuvopna-
andstæðingum frá. Þeir skiptu þúsundum, en 163 manns voru handteknir og
lögreglan úðaði vatni yfir skarann.