Morgunblaðið - 22.11.1983, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1983
3
í haust hefur verid unnið að byggingu grjótgarðs sunnan við hafnarbryggjuna
á Húsavík eins og meðfylgjandi mynd sýnir.
Innan garðsins á að fylla upp lónið með uppgreftri sem fæst við dýpkun
hafnarinnar norðan bryggjunnar. Við þessa framkvæmd eykst athafnasvæðið
við höfnina nokkuð. Ljósm. Mbi. Spb.
Rannsókn þyrluslyssins:
Bandaríkjamennirnir
fara af landi brott
RANNSÖKN þyrlsuslyssinns í Jökulfjörðum hefur verið haldið áfram af
fullum krafti um helgina. Bandaríkjamennirnir fímm sem hér hafa verið til
aðstoðar Flugmálastjórn við rannsóknina hafa lokið störfum og halda af
landi brott í dag.
Talsvert mikið af vélarhlutum
úr þyrlunni verða sendir erlendis
til rannsóknar og heldur maður
frá Flugmálastjórn með þá til
Bandaríkjanna næstkomanddi
þriðjudag, þar sem þeir verða
rannsakaðir á rannsóknastofum.
Tveir Bandaríkjamannanna,
sem aðstoðað hafa við rannsókn-
ina, eru frá Sikorsky verksmiðjun-
um, tveir frá Allisonverksmiðjun-
um, framleiðendum hreyflanna í
þyrlunni og einn frá NTSB (Nat-
ional Transportation Safety
Board), Oryggismlastofnum
bandaríska samgöngumálaráðu-
neytisins.
Að sögn Karls Eiríkssonar
formanns Flugslysanefndar, er
ekkert hægt að segja að svo
stöddu um orsakir slyssins, ekkert
óyggjandi hafi komið fram ennþá.
Einn seldi ytra
Fiskiskipið Arinbjörn seldi afla
sinn í Cuxhaven í gær.
Var hann með 111,2 tonn og
fékk 2.973.500 krónur fyrir aflann,
en samkvæmt því er meðalverð
26,74 krónur fyrir kílóið.
Elite-fyrirsætukeppnin í Mexíkó:
Kristina Haralds-
dóttir komst í úrslit
KRISTINA Haraldsdóttir
komst í úrslit í Elite-fyrirsætu-
keppninni, sem haldin var í Aca-
pulco í Mexíkó um helgina.
Kristina sigraði sem kunnugt er
í keppninni hér á landi ásamt
Heiðdísi Steinsdóttur, en tíma-
ritið Líf, nú Nýtt Líf, gekkst
fyrir keppninni hér.
60 stúlkur kepptu til úrslita
og komust 12 stúlkur i lok-
aúrslitin. Ekki komst Krist-
ina í þrjú efstu sætin en ár-
angurinn tryggir henni mik-
inn frama í fyrirsætustörfum,
að sögn kunnugra.
Átta af stúlkunum 12, sem í
úrslit komust, voru frá
Bandaríkjunum, ein frá ís-
landi, ein frá Svíþjóð, ein frá
Mexíkó og ein frá Ítalíu.
Hlutskörpust varð bandarísk
sfulka, Lisa Hellenbeck, núm-
er tvö varð Susanna Larsen
frá Svíþjóð og þriðja varð
Hunter Rono frá Banda-
ríkjunum. Allar þessar stúlk-
ur eru 15 ára gamlar.
Brynja Nordqvist var full-
trúi Frjáls framtaks,
útgáfufyrirtækis Lífs, við
keppnina. Að hennar sögn
hlutu þær Kristina og Heiðdís
mikið lof fyrir góða frammist-
öðu og framkomu í keppninni.
Kristina Haraldsdóttir
FIA T UNO '84 Á Kfí.
219.000
FIA T ER MEST SELDI BÍLL í EVRÓPU
OPIÐ ALLA VIRKA DAGA TIL KL. SJÖ
FRÁBÆR F/A T-UNO-KJÖR
1. Þú semur um útborgun, al/t niður í 50.000 kr.
á þessari einu sendingu.
2. Við tökum gamla bí/inn sem greiðslu uppí
þann nýja. Það er sjálfsögð þjónusta,
því bílasala er okkar fag.
3. Við lánum þér eftirstöð-
varnar og reynum að
sveigja greiðslu-
tímann að
&
þinni
getu.
FIAT
GÆÐI í
FYRIRRÚMI
Styrktarfélagið
ENDURSÖL UBÍLL NÚMER EITT Á ÍSLANDI
valdi FIAT UNO í síma-
númerahappdrætti sitt á
þessu ári. Sex UNO ’841 vinning.
STYRKTARFÉLAG
LAMAÐRA
OG FATLAÐRA
EGILL
VILHJÁLMSSON HF.
F // A T
Smiðjuvegi 4, Kópavogi. Símar 77200 - 77202