Morgunblaðið - 22.11.1983, Page 18

Morgunblaðið - 22.11.1983, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1983 Portúgal: Flóðin í rénun Liæabon, 21. nóvember, frá Hirti Gíslasyni, bladamanni Mbl. ALVARLEGT ástand ríkir nú hér í Lissabon og úthverfum borgarinnar eftir mikla rigningu og flóð í kjölfar Tyrkland: Sakaðir um vopnaða uppreisn gegn ríkinu Istanbul, 21. nóvember. AP. f ÁKÆRU, sem kunngerð var í dag, var því haldið fram, að meintir félag- ar í hryðjuverkasamtökum nokkrum hafi reynt að komast til metorða í her Tyrklands í því skyni að spilla þannig fyrir aðgerðum stjórnvaida til að hindra starfsemi öfgasamtaka í landinu, en þessar aðgerðir hófust fyrir 3 árum. Var útdráttur úr ák*r- unni birtur í dag og kom þar fram, að hinir grunuðu eru sakaðir um „vopnaða uppreisn gegn ríkinu í því að koma þar á stjórn kommúnista“. Það er saksóknari hersins, sem samið hefur ákæruna og heldur hann því fram, að mennirnir beri ábyrgð á sprengjuárásum, sem gerðar voru í júní 1979 á samtök hægri sinnaðs stjórnmálaflokks, sem nú er ekki lengur starfandi og einnig á stöðvar verkalýðssam- taka í Ankara. Jafnframt er hópn- um gefið að sök, að hafa staðið að ránum og rupli í því skyni að afla þannig fjár til starfsemi neðan- jarðarsamtaka, sem fengið hafa nafnið „Þriðja leiðin". Á meðal hinna ákærðu eru for- ingjar innan hersins og eru það menn, sem ætlað var að komast þar til metorða. Ákæruatriðin eru í mörgum liðum og geta hinir ákærðu átt von á fangelsisdómum allt frá 3 árum upp í 15 ár. Mikil leit að mæðginum t'ampo di (’arne, Ítalíu, 21. nóvember. AF. ÁKÖF leit fór fram í dag að konu og syni hennar, sem rænt var á Ítalíu um helgina, en leitin bar engan árangur. Ræningjarnir voru greini- lega atvinnumenn og töluðu með sardinískum hreim að sögn ítölsku lögreglunnar, sem telur, að e.t.v. hafi þeir gert sér málhreiminn upp til að villa um fyrir henni. Konan, sem var rænt, er Anna Bulgari Calissoni, 56 ára gömul, og erfingi að miklu skartgripafyrirtæki. Sonur hennar, 16 ára gamall, er einnig í haldi hjá mannræn- ingjunum, sem ekkert hafa enn látið til sín heyra. hennar. Ár, sem renna um borgina, hafa flætt yfir bakka sína, og hafa níu manns týnt lífi og um 1000 fjöl- skyldur orðið að yfirgefa heimili sín. Að sögn blaðafulltrúa stjórn- arráös Portúgals hefur fólkið ver- ið flutt í ýmsar opinberar bygg- ingar og aðalstöðvar Rauða kross- ins en reiknað er með að fólkið geti aftur flutt heim til sín er flóð- in sjatna. Það eru fyrst og fremst hús, er standa nálægt ánum, sem skemmst hafa. Eru sum þeirra gjörónýt. Rigningin hófst aðfara- nótt laugardagsins og rigndi nær látlaust þar til í gærkvöldi. Ekki hefur rignt jafn mikið hér í Lissa- bon í sextán ár eða síðan 1967 og síðastliðin fjögur ár hefur lítið sem ekkert rignt. Þá hafa flóðin truflað símasamband i borginni og hafa stórir hlutar Lissabon verið símasambandslausir síðan á laugardag. Flóðin eru þegar í rénum og standa vonir til að ástandið verði eðlilegt innan skamms. Kommúnistar tapa í Napólí Kóm, 21. nóvember. AP. KOMMÚNISTAR, sem eru næst stærsti stjórnmálaflokkur Ítalíu, bióu mikinn hnekki í bæjar- og sveitarstjórnarkosningum, sem fram fóru í Napólí og nokkrum héruðum Ítalíu í dag. Kristilegir demókratar virtust hins vegar ætla að halda sínu í Napólí en tapa fylgi annars staðar í kosningunum nú. Nýfasistar höfðu unnið á miðað við fyrstu töl- ur og sömuleiðis Lýðveldisflokkur- inn, sem er smáflokkur fyrir miðju. Fyrstu tölur virtust einnig sýna, að jafnaðarmannaflokkur Bettino Craxis forsætisráðherra kynni að vinna eithvað á. Aldrei of gömul Mynd þessi er af Jane Murphy, 99 ára og elstu núlifandi brúði Bret- lands, er hún gekk að eiga George Brearlcy, sem er 89 ára gamall, í síðustu viku. Hjónavígslan fór fram í einu af úthverfum Manchester og var borgaraleg. Hin hamingjusömu hjón hittust fyrst fyrir 10 vikum á elliheirailinu, þar sem þau búa. Irland: Marxistar í IRA að baki morðunum Darkley, 21. nóvember. AP. ÞRÍR menn voru skotnir til bana við messu í mótmælendakirkju f bænum Darkley á Norður-írlandi sl. sunnudag og telur lögreglan, að þar hafi verið að verki hópur manna undir stjórn einhvers al- ræmdasta glæpamanns á írlandi. Tveir grímuklæddir menn réð- ust inn í kirkju hvítasunnusafn- aðarins í bænum Darkley sl. sunnudag og létu þeir kúlunum rigna yfir fólkið, sem þar var statt. Þrír menn létust í skot- hríðinni en sjö slösuðust. Þriðji maðurinn var utandyra og skaut að kirkjunni sjálfri. 60 manns, karlmenn, konur og börn, voru í kirkjunni þegar árásin var gerð en hún hefur vakið mikinn við- bjóð með mönnum á öllum Bret- landseyjum. Tomas O. Fiaich, kardináli, yfirmaður kaþólsku kirkjunnar á öllu írlandi, sagði um morðin, að þau væru „bein árás á sjálfan guð“. frski lýðveldisherinn, sem berst gegn Bretum á Norður-ír- landi, hefur þvegið hendur sínar af ódæðisverkinu og þykir það nokkrum tíðindum sæta því að liðsmenn hans hafa hingað til ekki þótt mjög vandir að meðul- um. Samtök, sem kalla sig Kaþ- ólsku hefndarsamtökin, hafa hins vegar lýst sökinni á hendur sér en lögreglan telur, að í raun sé hér um að ræða frska frelsis- herinn, marxískan klofningshóp úr IRÁ. Skothylki, sem fundust við kirkjuna, sýna, að þrjár byss- ur voru notaðar í árásinni og þar af ein, sem áður hefur verið not- uð í árásum INLA, marxíska klofningshópsins. Leiðtogi INLA er Dominic McGlinchey, 29 ára gamall, en hann er eftirlýstur fyrir 20—30 morð beggja vegna landamær- anna. Skotgötin á kirkjuveggnum hafa verið mörkuð með ferhyrningi og á gólfinu eru biblíur og sálmabækur, sem fólkið hafði f höndunum þegar mennirnir ruddust inn í kirkjuna og tóku að skjóta á söfnuðinn, karlmenn, konur og börn. AP. Skilnaðir flestir í Englandi og Wales London. 21. nóvember. AP. í ENGLANDI og Wales skilja ár lega fleiri hjón en annars staðar í Evrópu eða 12 af hverju 1.000, sem fyrir eru, segir í niðurstöðum könnunar, sem skýrt var frá í dag, mánudag. Ef þetta hlutfall breytist ekk- ert má búast við, að þriðjungi allra hjónabanda í Englandi og Wales ljúki með skilnaði fyrr eða síðar og að eitt barn af hverjum fimm muni hafa upplif- að skilnað foreldra sinna fyrir 16 ára aldur. í könnuninni kemur fram, að hjónaskilnuðum í Eng- landi og Wales hefur fjölgað mjög á síðustu árum. 1961 voru þeir 25.000, árið 1976 127.000 og 146.000 árið 1981. Aðeins Danir komast nálægt Englendingum hvað fjölda hjónaskilnaða varð- ar. Það fólk í Englandi og Wales, sem gengur í hjónaband undir tvítugu, er helmingi líklegra til að skilja en það, sem er á aldrin- um 20—24 ára, og þrisvar sinn- um líklegra en það fólk, sem giftir sig á aldrinum 25—29 ára. Ef miðað er við árið 1981 var helmingur kvenna, sem hafði gifst undir tvítugu, skilinn fyrir þrítugt. Sjö af hverjum 10 hjón- um, sem skilja, eiga börn og árið 1981 voru 159.000 börn undir 16 ára aldri frá uppflosnuðum hjónaböndum. Fram til ársins 1988 munu 750.000 hjón segja skilið hvort við annað ef heldur sem horfir og 800.000 börn sjá á bak öðru hvoru foreldranna. Óska eftir fram- sali á stríðs- glæpamönnum WjLshington, 21. nóvember. AP. FYRSTA tilraun ísraelsmanna til þess að fá Bandaríkjamenn til þess að framselja mann, sem liggur undir ákæru um að hafa verið stríðsglæpa- maður nazista, kann að ryðja brautina fyrir hraðari brottrekstri annarra meintra nazista frá Bandaríkjunum. Er áformað hinn 23. janúar nk. að beiðni ísraelsmanna að láta fara fram réttarhöld í máli 63 ára gamals bílasmiðs, John Benjamin að nafni, sem ísraelsmenn hafa óskað eftir að vísað verði frá Bandaríkjunum, en maður þessi er talinn bera ábyrgð á dauða tugþúsunda Gyðinga í dauðabúðum nazista í Treblinka í Póllandi. ísraelsstjórn er ennfremur samþykkti að fara úr landi. sögð íhuga, hvort óska eigi eftir framsali Valerian Trifa biskups, sem er rúmenskur að uppruna en er nú búsettur í Detroit. Hann var á sínum tíma foringi í Járnsveitunum" í Rúmeniu, sem störfuðu með nazistum í síðari heimsstyrjöldinni. Trifa afsalaði sér bandarísku ríkisfangi 1983 og Óskaði hann eftir því að verða sendur til Sviss, en svissnesk stjórnvöld neituðu að taka við honum. Bandarisk stjórnvöld fóru þess þá á leit við Vestur- Þýzkaland, að þar yrði tekið við honum, en því var neitað á þeim forsendum, að hann væri ekki þýzkur að þjóðerni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.