Morgunblaðið - 22.11.1983, Side 30
38
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1983
Er hann í forsvari fyr-
ir hænsnin eða hvað?
— eftir Agnar
Guðnason
í Morgunblaðinu 15. nóvember
sl. birtist grein eftir Jón Steinar
Gunnlaugsson, hæstaréttarlög-
mann, um eggjadreifingarstöð.
Hann er á móti því að bændur
skipuleggi sín sölu- og markaðs-
mál. Það er ekki alveg á hreinu
hvað hann vill, það skyldi þó ekki
vera að hann sé að berjast fyrir
innflutningi á dönskum eggjum?
Hjá hverjum er Jón
Steinar málaliði?
Hæstaréttarlögmaðurinn telur
að þeir starfsmenn bændasamtak-
anna, sem látið hafa í sér heyra í
fjölmiðlum og verið hlynntir
stofnun eggjadreifingarstöðvar
séu „eins konar málaliðar, til að
vera varðhundar fyrir ímyndaða
hagsmuni bændastéttarinnar".
Jón Steinar hefði átt að koma
beinna fram og segja: „Þeir sem
TÖLVU
IBORÐI
TEAM DATA MOBIL
Létta og lipra tölvuboröiö sem rennur
á hjölum milli manna. Stillanleg haeð
á skermi eða innsknttarborði
Verð aðeins: 7.809 kr.
TERMI
Tölvuborð sem býður upp á nánast
óendanlega mðguleika á mismun-
andi stillingum, hliðarborðum og
aukahlutum.
Verð trá kr: 8.092
KRISTJÓn
SIGGEIRSSOn HF.
Laugavegi 13, simi 25870
skrifstofuhúsgagnadeild 27760
m
„Jón Steinar gefur í
skyn í grein sinni að
hann sé allvel lesinn í
rómverskri sagnfræði,
en hún virðist duga hon-
um skammt í hænsna-
ræktinni.“
hafa ekki sömu skoðun og ég á
þessu eggjadreifingarmáli eru
annað hvort vitlausir, eða þeim
hefur verið borgað fyrir að þykj-
ast vera málinu meðmæltir."
Nú dettur mér ekki í hug annað
en þær skoðanir sem Jón Steinar
setur fram séu frá honum sjálfum
komnar, þótt mér hafi verið sagt
að hann sé á „mála“ hjá einum
stórframleiðanda.
Rétt er að geta þess enn einu
sinni að dreifingarkostnaður á
eggjum mun lækka hér á höfuð-
borgarsvæðinu ef dreifingarstöð
verður starfrækt og ef flestir
framleiðendur gætu staðið saman
um þá starfsemi.
Þetta atriði er deilt um enda-
laust en þessi niðurstaða varð í
könnun Hagvangs á hagkvæmni í
stofnun og rekstri eggjadreif-
ingarstöðvar.
Hænsnin og framleiöslu-
kostnaður
Jón Steinar gefur í skyn í grein
sinni að hann sé allvel lesinn í
rómverskri sagnfræði, en hún
virðist duga honum skammt í
hænsnaræktinni. Því hann heldur
að framleiðslukostnaður á eggjum
sé eingöngu háður stærð hænsna-
búa. Það er öðru nær. Farsælustu
hænsnabúin með minnstan fram-
leiðslukostnað eru oft þau bú, sem
henta einni fjölskyldu. Þau geta
verið af stærðargráðunni 7—9
þúsund varphænur. Aftur á móti á
stærri búunum þarf aðkeypt
vinnuafl, þar getur verið meiri
kostnaður vegna tæknibúnaðar og
fjármagnskostnaður á hænu
oftast meiri en í minni búunum.
Þar sem ekki er sameiginlegt
skipulag á sölu eggjaframleiðanda
er stórframleiðandinn í betri að-
stöðu til að selja sína framleiðslu.
Þar er munurinn stórframleiðand-
anum í hag.
Nýting fóðurs og varpprósenta
er meðal þýðingarmestu þátta í
afkomu hænsnabúa. Hæna sem er
í 50% varpi og vigtar 2 kg þarf
3,75 kg af fóðri til að framleiða 1
kg af eggjum. Þar sem varpið er
70% þarf ekki nema 3 kg af fóður-
blöndu fyrir hvert kg af eggjum og
fari varpið upp í 80% þá er fóður-
þörfin aðeins 2,74 kg af fóðri móti
1 kg af eggjum (samkvæmt norsk-
um fóðurtöflum).
Þá má geta þess að í nokkrum
löndum er haft mjög þröngt á
Agnar Kuðnason
hænum í varpbúrum og það held-
ur niðri framleiðslukostnaði.
Lögfræðin, mannréttindi
og einokun
Jón Steinar skrifaði: „Dómstól-
arnir hafa alltaf í slíkum málum
einhver ráð með að þynna út
stjórnarskrárvernd mannréttind-
anna og gera hana einskis virði."
Þetta er harður dómur. Það hlýtur
að taka á taugar lögfræðinga, að
þurfa að búa við slíkt og þvílíkt.
Fróðlegt væri að fá upplýst hver
er munur á starfsemi stéttarfé-
laga eins og t.d. lögfræðinga og
bænda sem vilja koma skipulagi á
sín sölumál? Ef það heitir einokun
þegar bændur vilja stofna eggja-
dreifingarstöð, þá er jafn rétt-
mætt að kalla sameiginlega
gjaldskrá lögfræðinga einokun
lögfræðingafélagsins. -
Þeir félagar Jón Magnússon og
Jón Steinar Gunnlaugsson eru
miklir baráttumenn fyrir frjálsu
framtaki einstaklingsins og
óheftri samkeppni. Þeir eiga að
sýna þann manndóm að vera sjálf-
um sér samkvæmir og afneita
gjaldskrá hagsmunasamtaka
sinna. Þannig eiga þeir að starfa í
anda frjálsrar samkeppni, láta
framboð og eftirspurn ráða verð-
lagningu vinnu sinnar við dóm-
stólana og við sölu fasteigna.
Agnar Guðnason er blaðafulltrúi
bændasamtakanna.
Réttur til starfis
— eftir Guðjón B.
Baldvinsson
„í sveita andlitis þíns skalt þú
neyta brauðs þíns...“
Gera verður ráð fyrir að lesend-
ur kannist við þessa setningu.
Hinsvegar mun hún vekja mis-
jafnar hugrenningar og niðurstöð-
ur. Sennilega munu þó allir fallast
á að í henni felst sannleikur um
daglegt líf okkar, mannanna sem
ekki hafa aðstöðu til — án erfiðis
— að lesa ávexti af trjám til dag-
legrar neyslu.
Samkvæmt því forna riti, sem
kristnir menn nefna heilaga ritn-
ingu, þá var líf forfeðra okkar
áhyggjulaust um fæðuöflun eins
og annað á meðan dvalið var í
Eden.
Allar götur síðan búsetu lauk í
þeim aldingarði og mannkyn tók
að strita við sína fæðuöflun, hefur
Vesturþýskar alvöru-hrærivélar
á br®sandi verði! 2 stærðir
Lokuð skál -
engar slettur
Hræra - þeyta - hnoða - mixa - sjeika -
mauka - mylja - hakka - móta - mala - rífa -
sneiða - skilja - pressa - og fara létt með það!
Qóð kjör!
iFOnix
Hátúni 6a - Sími 24420
Raftækjaúrval
Hæg bílastæði!
Guðjón B. Baldvinsson
hugsun og viðleitni þess beinst að
því hvernig megi létta störfin.
M.a. allt frá upphafi, hvernig unnt
sé að láta aðra menn vinna fyrir
sig, inna af hendi erfiðustu verkin.
Þessi makindalöngun hefur mörg
ósvinnan fylgt, eins og hver maður
getur sannreynt, ef hann beinir
huganum að framvindu mannlegs
samlffs.
Krafa lífsins
Aldintínslunni i aldingarðinum
Eden lauk, en við tók „að yrkja
jörðina, sem hann var tekinn af
...“ Þannig hófst menningarsaga
mannkynsins. óhjákvæmileg
nauðsyn þess að afla sér fæðu
knúði manninn til starfa. Forvitni
mannkyns var ekki svalað með því
að bragða á eplinu í Eden. Leitað
var sifellt nýrra viðfangsefna,
nýrra vinnubragða, nýrra heim-
kynna. Um leið og frumstæðustu
þörfum var fullnægt, var hugað að
bættum, þ.e. betri aðbúnaði. Enn í
dag er hugað að betra fæðuvali,
bættum hýbýlakosti, hagnýtari
og/eða fegurri klæðnaði o.s.frv.
Þetta er sjálfkvæm framþróun að
okkar áliti, og gefur vinnunni
gildi. Viðfangsefni okkar verða
fjölþættari vegna löngunar eftir
bættum lifnaðarháttum, kröfunn-
ar um betra líf.
„Hönd hinna iðnu mun drottna,
en hangandi höndin verður vinnu-
skyld.“ En við erum öll vinnu-
skyld, ekki aðeins vegna þess að
daglegt brauð er greitt með vinnu,
heldur og vegna þess að starfs-
gleðin er lífsnautn. Erfiðleikarnir
eru til að sigrast á þeim, stritið er
undanfari arðs, árangurs sem
vaxtarþrá mannsins krefst. Hver
heilbrigður maður ann gróanda og
trúir á framþróun. Vinnan er hon-
um tæki tl að öðlast lífsfyllingu,
þess vegna á hver maður rétt til
starfa við sitt hæfi. Sama ástæða
liggur til þess að honum ber
skylda til að nota starfskrafta
sina eins og hann hefur hæfileika
til.
Hver hefur þá dómsvald um það
hvenær skuli víkja manni úr starfi
vegna aldurs? Sé framleiðslan
meiri en góðu hófi gegnir eða
þjónustan of mikil í þjóðfélaginu,
þá getur ekki verið um aðra lausn
að ræða en fækka daglegum eða
vikulegum vinnustundum.
En jafnhliða verður að bæta
hæfni manna og aðstöðu til að lifa
tómstundir.
somi m
Sómi 600 og Sómi 700 eru
traustir, liprirog hraðskreiðir
skemmti- og fiskibátar.
Nú er kominn glænýr bátur,
Sómi 800, sérstaklega ætlaður
fyrir færaveióar.
Unnt er að fá bátana á öllum
framleiðslustigum. Aflið upp-
lýsinga hjá Bátasmiðju
Guðmundar í síma 50818.
hÁTA-
SMIDJA
Hagstæðir
greiðsluskilmálar.
GUÐMUNDAR
HELLUHRAUNI6
220 HA FNA RFIRDI
SÍMI50818
ÞÓ*A DAL AUGL YSINGASTOfA Sf