Morgunblaðið - 26.11.1983, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 26.11.1983, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 1983 Kista Kristmanns borin úr kirkju af stjórnar- og útgáfuráösmönnum Almenna bókafélagsins: Indriða G. Þorsteinssyni, rithöfundi, Bimi Bjarnasyni, blaðamanni, Sturlu Friðrikssyni, líffræðingi, Matthíasi Johannes- sen, ritstjóra, Eiríki Hreini Finnbogasyni, bókmenntafræðingi, Eyjólfi Konráð Jónssyni, alþingismanni, Baldvin Tryggvasyni, sparisjóðsstjóra og formanni Almenna bókafélagsins og Jóhannesi Nordal, Seðlabankastjóra og formanni útgáfuráös Almenna bókafélagsins. í kirkjudyrum eru ættingjar rithöfundarins, meðal annarra dætur hans, Ninja og Vildís. Útför Kristmanns Guömundssonar FJÖLMENNI var við útför Kristmanns Guömundssonar, rit- höfundar, sem gerð var frá Þjóð- kirkjunni í Hafnarfirði í gær. Séra Sigurður H. Guðmundsson jarð- söng, orgelleikari var Jón Stef- ánsson, Ljóðakórinn söng og Svala Nielsen söng einsöng. Margt kunnra manna var við útförina, þar á meðal Ragnhild- ur Helgadóttir menntamálaráð- herra og maður hennar, Þór Vilhjálmsson forseti Hæstarétt- ar, margir rithöfundar og fleiri, auk ættingja. Kristmann Guðmundsson var jarðsettur í Fossvogskirkjugarði í Reykjavík. Frá athöfninni í Þjóðkirkj- unni í Hafnarfirði, þar sem séra Sigurður H. Guð- mundsson jarðsöng. Ljósm.: Ólafur K. Magnússon. Þormóður rammi á Siglufirði: Þrír Reykvíkingar í stjórn í stað sjö manna stjórnar heimamanna SiglufirAi, 25. nóvember, frá hlaAamanni MorgunblaAsin.s, Omari \ aldimarssyni. NÝ STJÓRN Þormóðs ramma í Siglufirði var kosin á hluthafafundi sem lauk hér um áttaleytið í kvöld. Tillagan um stjórnina kom frá Hös- kuldi Jónssyni ráðuneytisstjóra í fjármálaráðuneytinu, en ríkissjóður á 70% hlutafjár í Þormóði ramma hf. Þrír menn skipa nýju stjórnina í stað sjö heimamanna áður: Héðinn Eyjólfsson deildarstjóri í fjárlaga- og hagsýslustofnun, Einar Sveins- son forstjóri BÚR og Svavar Ár- mannsson aðstoðarframkvæmda- stjóri Fiskveiðasjóðs. Töluverðar umræður urðu á fundinum um málefni fyrirtækis- ins, og einkum þá ákvörðun ríkis- sjóðs að Þormóði ramma skuli „fjarstýrt" frá Reykjavík. Fram kom í máli ráðuneytisstjórans að þeirri tilhögun er ætlað að gilda til næsta aðalfundar. Höskuldur sagði það mat ráðuneytisins, að vandi Þormóðs ramma yrði ekki leystur, nema stjórn fyrirtækis- ins væri í sem nánustum tengsl- um við fjármála- og bankavaldið í landinu. Hann gat þess að af 250 milljón króna skuld Þormóðs ramma í september sl. hefðu 57 milljónir verði gjaldfallnar. Það hefði þ.ví verið nauðsynlegt að grípa til þessara ráðstafana til að forða fyrirtækinu frá greiðslu- þroti. Ragnar Amalds fyrrverandi fjármálaráðherra: Undirritaði samning um kaup ríkissjóðs á eignum ríkisins EITT af síðustu embættisverkum Ragnars Arnalds fyrrverandi fjármálaráð- herra í síðustu ríkisstjórn var að undirrita samning 24. maí sl. þess efnis að ríkissjóður kaupi húseignir Landsmiðjunnar við Sölvhólsgötu í Reykjavík, en Landsmiðjan er eign ríkissjóðs, eins og kunnugt er. Þá útvegaöi Ragnar Arnalds Landsmiðjunni á árinu 1980 ríkisábyrgð fyrir erlendu láni að upp- hæð 120 gamlar millj. kr. til greiðslu á gjöldum nýrrar lóðar Landsmiðjunnar í Reykjavík. Samningur um kaup ríkisins á eignum ríkisins, þ.e. húseignum Landsmiðjunnar við Sölvhólsgötu í Reykjavík, var undirritaður af Ragnari Arnalds 24. maí sl. eða aðeins tveimur dögum fyrir stjórnarskipti. Albert Guð- mundsson fjármálaráðherra skýrði frá þessu á fundi, sem Framsóknarflokkurinn gekkst fyrir í fyrrakvöld, en fundarefnið var sala ríkisfyrirtækja. Fjár- málaráðherra las á fundinum upp bréf Ragnars Arnalds fyrrverandi fjármálaráðherra til Seðlabanka Islands varðandi ríkisábyrgðina á erlenda láninu frá árinu 1980 og sagði hann þar um fáheyrðan gjörning að ræða. Kasparov — Korchnoi: Stutt jafntefli KORCHNOI heldur enn forystunni í einvígi sínu við Kasparov því þriðju einvígisskák þeirra lauk með jafn- tefli eftir aðeins átján leiki í London í gær. Þrátt fyrir þennan stutta leikjafjölda var skákin skemmtileg og spennandi, Kasparov fórnaði skiptamun í 14. leik, og staöan var mjög óljós þegar jafnteflið var sam- ið. Hvítt: Gary Kasparov Svart: Viktor Korchnoi Drottningarindversk vörn 1. d4 — Rf6, 2. c4 - e6, 3. Rf3 — b6, 4. Rc3 — Bb7, 5. a3 — d5, 6. cxd5 — Rxd5, 7. Da4 — !? Nýr leikur. Venjulega er hér leikið 7. Dc2 eða 7. e3 eins og í 1. skákinni. 7. — Rd7, 8. Rxd5 — exd5, 9. Bf4 — Rd7, 10. g3 — Be7, 11. Bh3 — 0-0, 12. Hcl — Bf6, 13. 0-0 — He8 14. Hxc6!? Dæmigerð Kasparovfórn, en eftir á skoðað var hið rólega fram- hald 14. Hfel - Rf8, 15. Be5 - Bxe5, 16. Rxe5 - c5, 17. Rd3 lík- lega vænlegra. 14. — Bxc6, 15. Dxc6 — Rf8, 16. e3 — Re6, 17. Bd6 - Be7, 18. Bxe7 Hér varð mikið spennufall hjá áhorfendum því nú þáði Korchnoi jafnteflisboð Kasparovs. 18. Bxe6 var lakara vegna 18. — fxe6, 19. Bc7 - Dc8, 20. Hcl - Bf6, 21. Rd7 — He7! og svartur bjargar sér úr klemmunni. Eftir 18. Bxe7 stendur svartur sízt lakar þó hvítur hafi bætur fyrir skiptamuninn. Fram- haldið gæti orðið 18. — Hxe7, 19. Re5 - Hc7, 20. Db5 - Dd6, 21. Bg2 - Hd8, 22. Rd3. Onnur útgáfa Gerska ævintýrsins HELGAFELL hefur gefið út Gerska ævintýrið eftir Halldór Laxness öðru sinni, en bókin kom fyrst út hjá Heimskringlu 1938. í formála segir Halldór Laxness m.a. um þessa nýju útgáfu: „Því má ekki gleyma að tíminn stendur aldrei kyr og ég hef sem betur fer ekki heldur komist und- an því lögmáli; og hér er bókin með ummerkjum, nema þrætu- bókarstíll kynni að vera meira tempraður á þessari en hinni fyrri, og mærð dregin út einsog kostur var í vitund þess að við lif- um í heimi sem hefur aðrar ljóð- rænar viðmiðanir en þá; og aðra heiðursmenn einsog nú er farið að segja." Gerska ævintýrið er 218 blaðsíð- ur. Víkingsprent hf. prentaði. Halldór Laxness Vetrarvertíðin: Netaveiðum seinkað Sjávarútvegsráðuneytið hefur nú ákveðið að veiðar í þorskanet hefjist ekki fyrr en 15. febrúar. Er það mán- uði seinna en á síðustu vetrarvertíð. Þá hefur það verið ákveðið, að þeir bátar, sem heimild hafa til loðnu- veiða á yfirstandandi vertíð fái ekki leyfi til netaveiða á næstu vetrar- vertíð. Að sögn Jóns B. Jónassonar, skrifstofustjóra í sjávarútvegs- ráðuneytinu, verður nánari ákvörðun um upphaf netavertíðar kynnt, þegar mörkuð hefur verið fiskveiðistefna næsta árs, en það verður væntanlega um miðjan næsta mánuð. 51 bátur hefur nú leyfi til loðnuveiða og á síðasta ári höfðu þeir allir leyfi til netaveiða, en um 35 þeirra nýttu sér þau leyfi. Eru þessar ákvarðanir tekn- ar í samráði við hagsmunaaðila í ljósi versnandi ástands þorsk- stofnsins og takmörkunar ásóknar í hann. Geir ræddi við Genscher í gæn Stokkhólmsráðstefnan vettvangur frekari viðræðna við Sovétmenn GEIR Hallgrímsson, utanríkisráð- herra, átti í gærmorgun morgun- verðarfund með Hans Dietrich Genscher, utanríkisráðherra V-Þýskalands, og voru viðhorf í al- þjóðamálum og væntanlegur fund- ur utanríkisráðherra Atlants- hafsbandalagsríkjanna, svo og Stokkhólmsráðstefnan, sem hefst í janúarmánuði nk., aðallega til um- ræðu. Geir Hallgrímsson sagði í samtali við Morgunblaðið, þar sem hann var staddur í Bonn í gær, að áhersla væri lögð á að halda samkomulagsleiðum við Sovétríkin um gagnkvæma af- vopnum og öruggt eftirlit opnum og yrði það væntanlega aðal um- ræðuefni á fundi utanríkisráð- herra Atlantshafsbandalagsríkj- anna í desember. Það væri skoð- un manna, að slit Sovétríkjanna á samningaviðræðum í Genf, þýddi ekki, að þeir vildu ekki á öðrum vettvangi ræða við Vest- urveldin um þau mál. Þess vegna yrði lögð áhersla á Stokkhólms- ráðstefnuna um traustvekjandi ráðstafanir og afvopnun sem vettvang slíkra umræðna, en sú ráðstefna hefst hinn 17. janúar nk. og er haldin í framhaldi af Madrid-ráðstefnunni. Áhersla er lögð á, að utanríkisráðherrar Atlantshafsbandalagsríkjanna taki þátt í Stokkhólmsráðstefn- unni fyrstu dagana a.m.k.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.