Morgunblaðið - 26.11.1983, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. NOVEMBER 1983
'Zá
Penthouse-keppnin:
Dönsk stúlka bar
sigur úr býtum
Sænska stúlkan
segir sínar far-
ir ekki sléttar
Atlantic City, 25. nóvember. AP.
JEANETTE Starion, tuttugu ára
gömul dönsk stúlka, bar sigur úr
býtura í Penthouse-keppninni, sem
fram fór fyrir nokkrum dögum, en
fyrstu verðlaunin voru ein milljón
dollara, rúmlega 28 milljónir ísl. kr.
íslensk stúlka, Margrét Örlygsdótt-
ir, var meðal þátttakenda í keppn-
inni.
í öðru sæti í keppninni var ung
leikkona frá Kólombíu, Amparo
Grisales að nafni, og í þriðja Brig-
itta Cimarolli frá Austurríki,
fyrirsæta og kunn skákkona.
Þátttakendur voru alls 27.
Jeanette Starion hefur það að
atvinnu að selja auglýsingar en
hefur einnig nokkuð komið fram
sem staðgengill í kvikmyndum.
Myndir af henni munu birtast í
Penthouse næsta árið en eins og
kunnugt er birtir timaritið mest
myndir af nöktu kvenfólki.
Sænsk stúlka, Carina Liedholm,
var meðal þátttakenda en í viðtali,
sem birtist við hana í sænska
blaðinu Expressen 17. þ.m. kvaðst
hún hafa hlaupið af hótelinu þar
sem keppnin fór fram þegar hún
hleraði, að til stæði að taka
kvikmynd af stúlkunum í heldur
óviðurkvæmilegum stellingum.
Sagði hún, að mörgum hinna
stúlknanna hefði líka orðið mikið
um. Fleira miður fallegt hafði
Carina að segja um keppnina og
aðstandendur hennar.
Carina Liedholm, sænska stúlkan, sem hljópst á brott úr Penthouse-
keppninni.
þetta er nýja AEG Lavamat
sjálfvirka þvottavélin okkar
ætii þú fáír betrí
bvottavél?
Svona rétt til þes aö
undirstriká gæðin
• Tekurheittog kaltvatn
• T ekur allt aö 5 kg af þvotti
• 4 snúningshraöará vindun
650-850-950-1100
• Sparnaðarkerfi fyrir bæði
60°C og 95°C og annað fyrir
helmingsþyngd af taui
• Hæg kæling á vatninu varnar
því að þvotturinn krumpist
• Tromlan og belgurinn eru nú
semfyrr úr ryðfríu stáli
AEG
þúþekkirmerkið
BRÆÐURNIR ORMSSON %
LÁGMÚLA 9 SÍMI 38820
Öðruvísi
Á morgun, sunnudag er fyrsti sunnudagur í aðventu og þá kynnum viö jólalitina okkar
0KKAR
SKREYTINGAR
ERU
ÖÐRUVÍSI
NÆG BÍLASTÆÐI UM HELGAR
OPIÐ ALLA DAGA OG UM
HELGAR FRÁ KL. 9—9
Við bjóöum aðventukransa ótal teg
undir. Allt efni í aöventukransana
fáanlegt hjá okkur.
Á morgun, sunnudag er fyrsti
sunnudagur í aöventu og höldum
við upp á hann eins og venja hef-
ur verið undanfarin ár og bjóðum
súkkulaði og heima-
bakaðar smákökur
Ath. 10% afsláttur
i dag veitum viö 10% afslátt af plottaplöntum t.d. jólastjörnum og jólakaktusum.
Full búð af nýjum sérkennilegum gjafavörum.
ALLAR SKREYTINGAR UNNAR AF FAGMÖNNUM
Blóm og Avextir
Hafnarstræti 3, sími 12717 — 23317