Morgunblaðið - 26.11.1983, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 26.11.1983, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 1983 IPSWICH STOFNAÐ 1887 — Framkvæmdastjóri Bobby Ferguson. Leikvöllur — Portman Road. Tekur 37 þúsund áhorfendur. (Gælunöfn „Blues“ og „Town“.) Stærsti sigur, 10—0, í bikarkeppni Evrópu er leikió var gegn Florian frá Möltu, í 1. umferó árió 1962. Stærsta tap, 1—10, gegn Fulham 26. sept. 1963 í 1. deild. Dýrasti leikmaöur sem hefur verið keyptur til liösins er Kevin O’Callaghan, fyrir 250.000 pund frá Millwall, í janúar 1980. Metsala þegar Alan Brazil var seldur til Tottenham 1983 fyrir 500 þúsund pund. Flestir deildarleikir: Mick Mills, 591, á árunum 1966—82. Markahæsti leikmaður á síóasta keppnistímabili var John Wark meó 20 mörk. Fyrirliði liósins er Paul Mariner. Heimilisfang er Portman Road, Ipswich, Suffolk IP, 1 2DA. • Lykilleikmenn Ipswich þeir Paul Copper (t.v.) markvöröur og sóknarleikmaóurinn Paul Mariner. Leikmenn Fd. Keyptur frá Verö Landslíð Leikir Paul Cooper 21.12.53 Birmingham 27.000E 303 Laurie Sivell 08.02.51 135 Gary Westwood 03.04.63 0 George Burley 03.06.56 Skotland 323 Terry Butcher 28.12.58 England 167 lan Cranson 02.07.64 0 Russell Osman 14.02.59 England 228 Kevin Steggles 19.03.61 33 Irvin Grenon 30.12.62. 30 Frank Yallop 04.04.64 0 David Barnes 16.11.61 Coventry 10.000E 6 John Wark 04.08.57 Skotland 264 Tommy Parkin 01.02.56 21 Bryan Klug 06.10.60 0 Steve McCall 15.10.60 125 Tony Kinsella 30.10.61 Tampa Bay 60.000E 4 Trevor Putney 11.02.61. Brentwood 20 Eric Gates 28.06.55 England 218 Robin Turner 10.09.55 28 Paul Mariner 22.05.53 Plymouth Arg. 200.000C England 237 Mich D'Avray 19.02.62 írland 37 Kevin O Callaghan 29.10.61 Milwall 250.000E 67 Cor Lems Dordrecht 0 Þeir voru vígalegir á svipinn karate-mennirnir þegar þeir böröust á mótinu sem fram fór í Garöabæ, eins og sjá má á þessari mynd. Vel heppnaö karate-mót: B-lið Stjörnunnar sigraði UMSK-MÓTIÐ í karate var haldiö um síöustu helgi og tókst meó miklum ágætum. Áhorfendur voru um 100, sem teljast veröur gott, og viröist áhugi á íþróttinni vera aö aukast hér á landi. Sigurvegarar í Kumite — sem er sveitakeppni meö frjálsum bar- daga — sigraöi B-liö Stjörnunnar. I sigursveitinni voru Þorfinnur Gunnlaugsson, Hannes Hilmars- son og Hjalti Kristjánsson. A-liö Stjörnunnar varö í ööru sæti: Stef- án Alfreösson, Einar Þór Einars- son og Ólafur Skúlason voru í sveitinni, og Ævar Þorsteinsson, Kjell Tveit og Einar Karlsson skip- uöu sveit Gerplu sem var í þriöja sæti. í Kata karla sigraöi Stefán Al- freösson, Stjörnunni, Hannes Hilmarsson, Stjörnunni, varö ann- ar og þriöji varö Guöni Aðalsteins- son, Gerplu. Kristín Einarsdóttir, Gerplu, sigraöi í Kata kvenna, Anna Marie Stefánsdóttir, Gerplu, varö önnur og Guömunda Jó- hannsdóttir, Stjörnunni, varö þriöja. Haukur Baldvinsson sigraöi í Kata drengja, Narfi Stefánsson varö annar og Jón Haukuar Steingrímsson þriöji. Þeir eru allir í Gerplu. Svíar unnu í Mexíkó SÆNSKA landsliöiö vann mexík- anska liöið Guadalajara 1:0 í knattspyrnuleik í Guadalajara í Mexíkó í fyrrakvöld. Mats Jingblad, sem kom inn á sem varamaöur fyrir Stefan Pett- erson á 55. mín., skoraöi sigur- markiö á 71. mín. Svíar, sem eru á keppnisferö um Suður-Ameríku, mættu mexíkanska landsliöinu á miövikudaginn og sigruöu mexík- anar 2:0. Þaö er fyrsti landsliös- sigur þeirra á Svíum í 25 ár. B-liö Stjörnunnar í Garöabæ sem sigraói ( mótinu. Jesper Olsen um ákvörðun sína: „Ég varð að færa mig um set — færa mig ofar“ JESPER Olsen, danski framherj- inn frábæri, upplýsti í viðtali við enska blaðið Daily Star á fimmtu- daginn, hvers vegna hann ákvaö aó ganga til líös viö Manchester United fyrir næsta keppnistima- bil í staö þess að leika áfram meó Ajax. „Ég hef veriö þrjú ár hjá Ajax og mór fannst aö ef ég vildi vaxa sem fótboltamaöur þá yröi ég aö færa mig um set... færa mig ofar,“ sagöi Olsen. Hann sagöi aö þetta heföi veriö mjög erfiö ákvöröun, hann heföi veriö ákaflega ham- ingjusamur í Amsterdam. Hollendingurinn Arnold Muhren hjá United haföi mikil áhrif á Olsen. „Ég hef talaö við hann á hverjum degi undanfarnar vikur og hann sagöi mér aö ég gæti ekki fariö til betra félags en United." Fiorentina á Italíu haföi áhuga á Olsen og einnig var vitaö um spánsk lið sem vildu fá hann. En hann sagöi: „Ég hef ekki áhuga á aö leika á Ítalíu eöa Spáni. Ég vil ekki láta sparka mig niöur í hverri viku.“ Hann sagöist hafa hafnaö tilboöi Tottenham — þrátt fyrir aö liðið heföi boöiö honum meiri peninga en United — vegna þess hvernig fór fyrir Garth Crooks. Spurs lán- aöi hann til annars félags, reyndar til Man. Utd., og Olsen sagöist ekki líka þetta. „Ef þaö er þetta sem gerist er leikmanni Spurs gengur illa, hugsaöi ég meö mér: Jesper, þetta getur alveg eins komiö fyrir þig,“ sagöi hann. Forráöamenn Ajax vildu aö sjálfsögöu allt gera til aö halda í hann, og fólagar hans hjá Ajax einnig. Þeir reyndu aö telja honum trú um aö liðiö gæti tryggt sér Hollandsmeistaratitilinn „en þar sem rúmlega helmingur leikmanna liösins er enn innan viö tvítugt, gæti þaö allt eins tekiö fjögur til fimm ár aö bíöa eftir því“. • Jesper Olsen (t.v.) ásamt Allan Simonsen fyrir landsleik. Simonsen er sá leikmaöur danskur sem náö hefur hvaó lengst í atvinnumennsk- unni, en því er spáö aó Jesper eigi eftir aö ná álíka langt ef ekki lengra en hann.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.