Morgunblaðið - 26.11.1983, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 26.11.1983, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 1983 ffJtirpmMWíí!* Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Baldvin Jónsson. Rits.jórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 250 kr. á mánuöi innanlands. f lausasölu 20 kr. eintakiö. Samkeppni í þágu neytenda Stórmarkaðir, sem starfað hafa um árabil í Reykja- vík, hertu mjög á verðsam- keppni í sölu allra tegunda al- mennra neyzluvara. Þessi verðsamkeppni hefur síðan fært út kvíar, náð til fleiri viðskiptaþátta og fleiri byggð- arlaga. Það er staðreynd, sem allir þekkja, að þessi sam- keppni hefur lækkað vöruverð, og í raun hamlað betur gegn rýrnandi kaupmætti en „hefðbundin kjarabarátta", sem á stundum hefur gengið á skjön við efnahagslegar stað- reyndir — með verðbólgua- fleiðingum. Þessi verðsamkeppni, sem fyrst og fremst hefur komið neytendum til góða, hefur og kveðið niður gamaldags og úr- eltar hugmyndir um lögbund- in verðlagsákvæði, sem lengi stóðu eðlilegri samkeppni í verzlun fyrir þrifum, og gengu því gegn hagsmunum almenn- ings. Glöggt dæmi um gildi þess- arar verðsamkeppni er land- nám Hagkaupa á Akureyri, þar sem sterkt kaupfélag réði verzlunarháttum fyrir í ríkara mæli en gott þótti. Sú verðs- amkepnni varð til þess að KEA-samsteypan sá sig til- neydda að færa niður neyzlu- vöruverð. í fjölda ríkja, eins og Bandaríkjunum, sem leggja áherzlu á gildi samkeppninn- ar, hefur verið sett löggjöf til að útiioka það að stórar fyrirtækjasamstæður eða auð- hringir, eins og þær eru stund- um kallaðar, geti í krafti stærðar sinnar komið öðrum samkeppnisaðilum fyrir katt- arnef, og síðan hækkað vöru- verð í skjóli einokunar. Það er fyllilega tímabært að skoða nauðsyn slíkrar löggjafar hér, ekki sízt vegna fyrirferðar SÍS-hringsins. Mikligarður, dótturfyrir- tæki SÍS, verður hinsvegar prófsteinn á einkaverzlunina í Reykjavík. Þeir, sem eru í for- svari einkaverzlunar, hafa við fátt annað að styðjast en eigin dugnað, hugvit, áræði og framtak. Það var engu að síð- ur þetta einkaframtak, sem byggði upp verzlunarþjónustu í Reykjavík, bæði hverfaverzl- anir og þá stórmarkaði, sem færðu neytendum nýja verzl- unarhætti, þjónustu og lægra vöruverð. Einkaverzlunin í Reykjavík hefur bæði háð innbyrðis sam- | keppni og samkeppni við KRON-búðir um langt árabil og haldið stærstum hluta við- skiptanna. Ástæðan var einfaldlega sú að einkaverzl- unin bauð hagstæðara vöru- verð og betri þjónustu. Svo mun áfram verða þó að SÍS- hringurinn hafi haslað sér völl á Reykjavíkurmarkaði. Það er þó meginmálið, að samkeppnin hefur tryggt neytendum betra verð og betri þjónustu en ella. Forsendur þeirrar samkeppni verður að tryggja til frambúðar, m.a. með íöggjöf um auðhringi hér, eins og í öðrum samkeppnis- lögnum. Gæzluskip með loðnu- flotanum Fjörutíu fiskiskip með milli 500 og 600 manns að störf- um eru nú á loðnumiðum langt norður í íshafi. Pétur Sigurðsson, alþingis- maður, setti fram þá kröfu á Alþingi í fyrradag, að gæzlu- skip fylgi flotanum á þessum slóðum á þessum árstíma; og að læknir sé til taks í gæzlu- skipinu. Þessi háttur var á hafður, að kröfu sjómannasamtaka, er íslenzki síldveiðiflotinn var að veiðum við Jan Mayen fyrr á tíð. Það er sanngirniskrafa að varðskip „fylgi þessum mikla flota, sem er að störfum á hættulegum hafsvæðum, og sé til taks ef eitthvað ber út af, annaðhvort meðal áhafna eða skipanna sjálfra," sagði þing- maðurinn. Halldór Ásgrímsson, sjávar- útvegsráðherra, tók vel í þessi tilmæli, og kvað málið þegar komið á nokkurn rekspöl. Morgunblaðið tekur undir þau sjónarmið, sem Pétur Sig- urðsson setti fram á Alþingi. Það er lágmarkskrafa að reyna að auka á öryggi þeirra, sem eru að störfum við þær aðstæður, sem þessu hafsvæði á þessum árstíma heyra til, með viðveru gæzluskips. Það þarf að gera Landhelg- isgæzlunni kleift að sinna sínu tvíþætta og mikilvæga hlut- verki, gæzlu fiskimiðanna og öryggisþjónustu í þágu sjó- manna og strjálbýlisfólks. r Fjórir af lislamönnunum sautján sem eiga verk á sýningunni. F.v. Jóhannes Jóhannesson, Valtýr Pétursson, Guðni Þórðarson og Hafsteinn Austmann. Listmálarafélagið: Verk eftir sautján lista- menn á sömu sýningunni SAMSÝNING sautján félaga í Listmálarafélaginu veröur opnuð í dag kl. 15.00 í listsýningarsalnum íslensk list á Vesturgötu 17. A sýn- ingunni eru um 70 myndir sem spanna vítt svið í tíma og stefnum. Flestar eru myndirnar unnar á síð- ustu árum, en elstu verkin eru frá árinu 1952. Klassískar myndir, abstrakt og nýja málverkið eru á sýningunni og eru verkin unnin í olíu, vatnsliti og með krít. Listamennirnir sem eiga verk á sýningunni, sem öll eru til sölu, eru þeir Ágúst F. Petersen, Bragi Ásgeirsson, Elías B. Hall- dórsson, Einar G. Baldvinsson, Einar Þorláksson, Guðmunda Andrésdóttir, Gunnar Örn, Haf- steinn Austmann, Hrólfur Sig- urðsson, Jóhannes Geir, Jóhann- es Jóhannesson, Kjartan Guð- jónsson, Kristján Davíðsson, Sigurður Sigurðsson, Steinþór Sýningin á Vesturgötu 17 Sigurðsson, Valtýr Pétursson og verður einungis opin á virkum Vilhjálmur Bergsson. dögum frá kl. 09.00—17.00 „Reykjanesið einna lakast sett“ — rætt við Jón Sævar Alfonsson um stofnun Þroskahjálparfélags „llndirbúningur að stofnun þroskahjálparfélagsins á Reykja- nesi hófst fyrir rúmum mánuði, en hugmyndin hefur verið í gangi allt frá því aö lög um málefni fatlaðra voru sett 1979 , sem fólu í sér ákvæði um svæðisskiptingu,“ sagði Jón Sævar Alfonsson í sam- tali við blm. Morgunblaðsins. Jón Sævar er einn úr hópi þeirra sem í dag halda stofnfund þroskahjálp- arfélags á Reykjanesi. Verður fundurinn haldinn í húsi JC, Dalsshrauni 5 í Ilafnarfirði, og hefst hann kl. 14.00. „Frá því árið 1977 hefur starf- að þroskahjálparfélag á Suður- nesjum, en þetta þroskahjálpar- félag kemur til með að ná yfir Kjósar-, Kjalarness-, Mosfells-, og Bessastaðahrepp, Hafnar- fjörð, Garðabæ, Kópavog og Sel- tjarnarnes. Á þessu svæði hafa starfað ýmis foreldra- og vina- félög, en nú viljum við koma á fót einu félagi fyrir svæðið í heild. Félagi til að efla tengls þeirra sem vilja sameinast um að fatlaðir fái jafnrétti á við aðra í þjóðfélaginu og til að veita Jón Sævar Alfonsson. Ljósm. Mbl. KÖE svæðisstjórninni stuðning til að framkvæma lög um málefni fatl- aðra. Ég tel mikla þörf fyrir þetta félag nú, því að svæðið sem hér um ræðir er einna lakast sett af svæðunum átta. Þó að upphæðin sem veitt er til þessara mála hér sé mikil í krónum ber að gæta þess að hér eru stórar „sólar- hringsstofnanir" sem fá mikinn hluta fjármagnsins þrátt fyrir að íbúar svæðisins hafi engan forgang þar að, þetta eru lands- stofnanir. Einnig að auka fræðslu fyrir foreldra og að- standendur um rétt fatlaðra og það er eitt af þeim málum sem við ætlum að vinna að. Þroskahjálparfélagið sem stofnað verður í dag mun síðan sækja um aðild að Landssamtök- unum Þroskahjálp, enda mark- mið félaganna þau sömu. Ég held að hugur allra sem starfa að málefnum fatlaðra stefni í sömu átt hvað varðar félagslega uppbyggingu og þjónustu; litil, persónuleg heimili þar sem þörf- um hvers og eins er fyllilega sinnt. Þótt vaxandi skilnings hafi gætt á þessum málaflokki á und- anförnum árum ber að varast að skilja það þannig að málefni fatlaðra séu í höfn. Það hefur mikið verið gert, en ennþá er langt í land," sagði Jón Sævar Alfonsson að lokum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.