Morgunblaðið - 26.11.1983, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 1983
7
IJÍÍamatkadulinn
, 1»
syrötti 12-18
FORD BRONCO 1977
Gulur. 8 cyl. 302 cc s|élls., aftstýrl, útvarp og
segulband. Faitogur bfll i toppatandi. Verö
290 pús.
MITSUBISHI GALANT 1981
Statlon Ijósbels eklnn 45 þús.. útvarp og
segulband. Verö kr. 225 þús. Sklptl é ódýr-
arl.
FORD FERMUD 1978
Gulur. ekinn 76 þús.. snjó- og sumardekk á
felgum. 4 cyl, beinsk. Verö kr. 120 þús. Ýmis
sklptl.
MAZDA 626 2000 1981
Blésans. ekinn 37 þús. km. Ath.: Aflstýrl, 5
gira, rafmagn í rúöum o.fl. Gullfallegur bíll.
Verö kr. 260 þús. (Skipti é ódýrarl).
MAZDA 323 (1500) STATION
1982
Rauöur. ekinn 19 ús. km. Útvarp og segul-
band. Sem nýr bill. Verö kr. 260 þús. Skipti
é ódýrari.
BÍLL FYRIR VANDLÁTA
M. BENZ 280 SE 1978
Rauöur. sjélfsk.. aftstýri, útvarp, segulband,
snjó- og sumardekk, rafm.laslngar
Verö kr. 650 bús. Sklpti é ódýrari.
o.ft.
VW GOLF CL 1982
Blér, eklnn 27 þúa. km. Verð kr. 260 þús.
CITROÉN GSA PALLAS 1982
Ljósbrúnn, ekinn aöelns 12 þús. km. Sem
nýr. Verö kr. 265 þús.
DATSUN BLUEBIRD 1981
Brúnsanseraöur, ekinn 49 þús. 5 gira
beinsk , gott útHt. Verö kr. 255 þús. (Sklptl
ath. é ódýrarl).
Ný sending
í rúskinni
og leðri
Jakkar, buxur, pils og kápur
PWDVIUINN Sjá 6 MTo\embcM9S^ I fimmtudagur 1 1 26V. tölublað 1 ■ 48 argangur 1 1*
Reynast spádómar svörtu skýrslunnar réttir? / 7lestir j leppa 1 <eim úr m íinrœd- 1 i nni I
Tvö stór EF í
Eff, ef, ef...
í Staksteinum í dag er sagt frá mismunandi mati Þjóðviljans á
skoðanakönnunum eftir því hvort þær eru framkvæmdar hér á
landi eða í útlöndum. En myndin hér að ofan sýnir aðalfyrirsögnina
á forsíðu Þjóðviljans í fyrradag í tilefni af tillögum fiskifræðinga um
200 þús. lesta þorskafla 1984. Er ástæöa til að menn velti því fyrir
sér hvað málgagn Alþýðubandalagsins er að fara með þessari
„frétt“.
Engu er líkara en Þjóðviljinn vilji byggja þjóðhagsáætlun fyrir næsta
ár á tveimur stórum EF-UM, það er að segja „ef — 1976 árgangur-
inn af þorski, sem er einhver stærsti árgangur sem mælst hefur hér
við land í áraraöir, kemur aftur á miðin, þá breytist dæmið. Og —
ef — þorskganga kemur frá Grænlandi, breytist það einnig,“ eins
og segir í þessari dæmalausu „frétt“.
Þjóðviljinn
og skodana-
kannanir
Ekki fer fram hjá nein-
um sem Þjóðviljann les að
hann telur flest það sem
nu gerist sér öndverL
Endurspeglar þessi afstaða
blaðsins vel andrúmsloftið
innan Alþýðubandalagsins
að hinum misheppnaða
landsfundi loknum. Þjóð-
viljinn er til dæmLs mjög
súr yfír þeim skoðunum al-
mennings sem koma fram
í skoðanakönnun Hag-
vangs hf. og í ritstjórnar-
grein í gær er ráðist á svör
fólks við þremur spurning-
um: um stóriðju, áfengt öl
og verðbólguslaginn.
Morgunblaðinu er ekki
kunnugt um afstöðu Þjóð-
viljans til áfengs öls en
bæði í stóriðjumálinu og
verðbólguslagnum kemur
fram meirihlutaskoðun í
könnun Hagvangs hf. sem
gengur þvert á stefnu Þjóð-
viljans og Alþýðubanda-
lagsins. Fyrir fíokk sem
leggur jafn mikið upp úr að
vera „með í umræðunni"
og í „takt við grasrótina"
og Alþýðubandalagið er
það áfall í hvert sinn sem
sannast að flokkurinn fylg-
ir í raun sérvitrings-stefnu.
Niðurstaðan í stóriðjumáF
um og um afstöðu almenn-
ings til þess hve mikið
menn eru tilbúnir til að
leggja á sig til að sigrast á
verðbólgunni er andstæð
því sem Þjóðviljinn básún-
ar á degi hverjum.
Ritstjórnargrein blaðsins
fjallar sem sé um það í gær
að ekkert sé að marka
skoðanakannanir en í for-
ystugrein þess þennan
sama dag er hins vegar
sagt um Evrópueldfíaug-
arnar: „nýjar skoðana-
kannanir sýna að ekki er
meirihluti fyrir þeim meðal
kjósenda" í lýðfrjálsu
löndunum, þar sem leyfí-
legt er að framkvæma slík-
ar skoðanakannanir. Telur
Þjóðviljinn í forystugrein-
inni að þessar kannanir í
Vestur-Evrópu eigi að ráða
meiru en ákvarðanir
stjórnvalda þessara landa.
En í ritstjórnargreininni
telur Þjóðviljinn þær skoð-
anakannanir hér á fslandi
marklausar þar sem stefnu
Alþýðubandalagsins er
hafnað.
Spurt um ölið
Til marks um fýlu Þjóð-
viljans yfír könnun Hag-
vangs hf. má vitna til þess
sem í ritstjórnargrein hans
segir um áfenga ölið:
„Ekki hefði þetta verið is-
lensk könnun hefði ekki
verið spurt um bjórinn.
Einsog fram hefur komið
kosta hinir ýmsu aðiljar
spurningar sem þeir telja
sig hafa hag af að vita svör
við. En hver borgar spurn-
inguna um bjórinn? Máske
eitthvert heildsöluumboð
fyrir þekkta bjórtegund? í
Morgunblaðinu hefur ekki
komið fram hvernig spurn-
ingin um afstöðu tÚ bjórs-
ins var orðuð. Þannig veit
maður ekki hvort þeir sem
gjalda jákvæði sitt eiga við
að heimila svokallaðan
„frjálsan markað", bjór-
sölu í einkasölu ríkis eða i
vershinum. Þannig að erf-
itt er að ráða í raunveru-
lega afstöðu fólks."
Ef Þjóðviljamenn vita
jafn lítið um skoðanakann-
anir vegna Evrópueldflaug-
anna í útlöndum og vegna
bjórsins hér á landi er eng-
in furða að þeir slái um sig
með því að meirihluti
manna í Vestur-Evrópu sé
andvígur því að sovéska
herveldinu sé veitt mót-
spyrna.
Morgunblaðið kynnti
niðurstöðuna um afstöðu
fólks til áfengs öls á bak-
síðu sinni sl. sunnudag.
Þar segir meðal annars
....voru þátttakendur
spurðir um það, hvort þeir
vildu leyfa sölu áfengs öls í
verslunum ÁTVR." Varla
getur það skýrara verið. f
spurningunni kemur allt
fram sem Þjóðviljinn telur
brýnast að athugað sé þeg-
ar leitað er álits fólks á
þessu máli. Niðurstaðan
um áfenga ölið var sú, að
63,5% vilja leyfa söhi þess í
verslunum ÁTV’R
Spurningin um áfenga
ölið var ein af þremur
spurningum sem Hagvang-
ur hf. lagði fyrir fólk á veg-
um Morgunblaðsins.
Þannig að Þjóðviljinn þarf
ekki að vera í neinum vafa
um það hver stóð að þess-
ari spurningu.
VICT
ihÁiAÍTJf-'
Bí I.D
KONUNGUR
FORTRAN 77
PASCAL
COBOL
BASIC
UNIX
UCSD
DEC tengifforrit
Þessi tölva hefur:
Stærsta minniö, mesta diskarýmiö, hrööustu vinnsluna og bestu
grafíkina og fæst fyrir besta veröið.
TÚLVUEl IT1IN HF
Skipholti 1 Sími 25410