Morgunblaðið - 26.11.1983, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 1983
11
Gísli J. Ástþórsson
Einsog mer sýnist ....
Löggiltar
skoðanir
„Þeir hengja upp Ijósmynd-
ir af sjálfum sér við torg og
stræti...“
Smáfrétt í bresku blaöi,
sem var samt næstum
drukknuö í blóöbaöalýs-
ingum stundarinnar, eflir
mig enn í þeirri trú aö eng-
in þjóö í veröldinni eigi
aöra eins drumba og
íhaldsseggi fyrir leiötoga
einsog aumingja Sovét-
fólkiö. Fréttin birtist á inn-
síöu í The Guardian og er
svohljóöandi:
„Sovéskt dagblaö hefur
kvartaö undan því aö fjöl-
margir Sovétmenn séu
þeirrar skoöunar aö þaö
sé skiljanlegt aö stjórn-
völd í Washington óttist
atómvoþn Sovétmanna,
og krefst blaöiö aukinnar
hugmyndafræöilegrar
fræöslu til þess aö upp-
ræta þennan hugsunar-
hátt.
Sovietskaya Litva, sem
er málgagn kommúnista-
flokksins í Litháen, vitnar í
ungan verkamann sem
hafi komist svo aö oröi viö
fréttamann þess aö aug-
Ijóst sé aö Bandaríkja-
mönnum standi stuggur af
Sovétmönnum.
— Þetta eru líka mann-
eskjur, sjáöu til, og þær
eru hræddar. Þær óttast
atómsprengjurnar okkar
og þessvegna eru þær aö
efla vopnabúnaö sinn, er
haft eftir verkamanninum.
Blaöiö harmar ummæl-
in, kveöur þau sanna aö
enn vanti mikiö á aö æska
landsins sé nógu vel upp-
lýst á sviöi hugmynda-
fræöinnar og segir aö al-
menningur veröi aö skilja
aö allt aörar forsendur
liggi aö baki sovéskum at-
ómvopnum en þeim
bandarisku, þarsem hin
fyrrnefndu séu einungis
hugsuö til varnar.
Þá segir í greininni aö
afstaöa hins unga verka-
manns sé dæmigerð fyrir
marga Sovétborgara sem
látist ekki hafa áhuga á
pólitík og skjóti sér þannig
undan því aö tjá sig um
mikilvæg mál; og aö hér
sé um óþolandi tómlæti
aö ræða í sovésku þjóöfé-
lagi þarsem öllum beri aö
skilja og styöja stefnu
Flokksins."
Lýkur frétt.
f nær allri umfjöllun út-
lendinga fyrr og síðar um
risann í austri er þaö rauöi
þráöurinn í máli þeirra hve
þegnarnir séu mikiö af-
bragðsfólk en forystu-
sauöirnir aftur á móti for-
kastanlegir. Þetta er svo-
sem ekkert einsdæmi,
samanber hina boröa-
lögöu og óhugnanlegu
lénsherra Miö- og Suöur-
Ameríku í gegnum aldirn-
ar, en engir valdsmenn
noröan miöbaugs hafa allt
um þaö veriö jafnstaöfast-
ir og þeir sovésku í þeirri
villu aö þeir geti meö til-
skipunum og „hugmynda-
fræöilegri“ ítroöslu stjórn-
aö hugum manna.
Vitanlega gleypa sov-
éskir borgarar þaö ekki
hrátt þóaö þaö sé kirjaö
yfir þeim nótt sem dag aö
„þeirra menn“ í kalda
stríðinu séu hvítir sem
mjöllin en andstæöingarn-
ir svartari en skrattinn
sjálfur. Þeir vita af hyggju-
viti sínu rétt einsog viö
sem erum í birtunni aö
þaö eru líka gráir tónar i
myndinni. Munurinn á
Sovétmanninum og okkur
er einfaldlega sá aö viö
getum látiö þessa skoöun
okkar flakka í ræöu og riti
án þess aö hafa áhyggjur
af afleiöingunum, en
Sovétborgarinn veröur aö
bjarga því sem bjargaö
veröur af sjálfsviröingu
sinni meö því aö „tjá sig“
ekki einsog segir í Sovi-
etskaya Litva, meö því aö
„látast ekki hafa áhuga á
pólitík“ einsog segir enn-
fremur i hinu hneykslaöa
flokksblaöi.
Ég sat eitt sinn ásamt
meö einum tíu starfs-
bræörum mínum frá ein-
um fimm sex Evrópulönd-
um undir einskonar
fræösluerindi í herstöö í
Noröur-Karólínu þarsem
fremur taugaóstyrkur maj-
ór átti aö leiöa okkur í all-
an sannleikann um hiö al-
góða NATO og hinn al-
ræmda björn í austri. Maj-
órinn hafði myndvörpu og
himinhátt sýningartjald
sér til trausts og halds, og
þegar þar var komiö máli
hans sem björninn í austri
varð hvaö ófrýnilegastur,
þá þrýsti hann á hnapp á
myndvörpunni, og sjá!
froöufellandi bjarndýr,
grátt fyrir járnum og í
Disneystíl, birtist á tjald-
inu. Þetta átti aö vera
dramatískt og springa
einsog bomba framan í
viöstadda, en viö erlendu
blaöamennirnir, og þeir
bandarísku raunar líka,
skelltum auövitaö bara
uppúr.
Majórinn skaut yfir
markiö, og munurinn sem
þessi saga lýsir á sovéska
kerfinu og svo kerfinu
okkar er til dæmis sá aö
okkur er hvorki uppálagt
af vængstíföum fjölmiöl-
um „aö skilja og styöja
stefnu Flokksins“ né þurf-
um viö heldur aö skima
vandlega til allra átta áö-
uren viö dirfumst aö
hlæja.
Þaö er einmitt þessi yf-
irþyrmandi alvara, þetta
þrúgandi andrúmsloft
húmorleysis, tortryggni og
ímyndaös óskeikulleika,
sem gerir ásjónu sovét-
kerfisins svo ómanneskju-
lega. Mennirnir meö
hugmyndafræöafleipriö á
vörunum lifa í svo þröng-
um hugmyndaheimi aö fló
ætti í mesta basli meö aö
hreyfa sig í honum. Áróö-
urinn er þeirra ær og kýr
— aö minnstakosti er
gauragangurinn nógu mik-
ill — og þó líöur varla sá
dagur að „sérfræöingarn-
ir“ sem þar halda í taum-
ana álpist ekki oná tærnar
á sjálfum sér.
Breskur galgopi fær þá
flugu í höfuöiö aö halda á
hafiö í baökari meö utan-
borðsmótor, og menn
fylgjast meö honum í frétt-
unum og hafa öörum
þræöi gaman af þessu
uppátæki. Þaö er allavega
saklaust. Bretinn segist
ætla aö sigla fleyinu sínu
til Leningraö og hefur þaö
raunar alla leiö til Finn-
lands. En sovésku kerfis-
kallarnir snúa honum frá.
Baökarinu er ekki hleypt
inní sovéska landhelgi!
Ekkert snuður hér, hvorki
úr gervihnöttum né baö-
körum. Og hin níöþunga
ásjóna sovéska risans,
sem er yfir þaö hafinn aö
taka þátt í svona sumar-
glensi, blasir einn ganginn
enn viö heimsbyggöinni.
Þaö er næstum einsog
mönnunum sem drottna yfir
Austur-Evrópu sé þaö
feimnismál aö þeir séu
mennskir, gerðir af holdi
‘ og blóði, gæddir mannleg-
um kenndum og ástríðum:
jafnvel dyntóttir einsog
gengur. Krutchev var und-
antekningin, og þeir los-
uöu sig viö hann og lýstu
minningu hans og öll hans
verk auk þess í bann eins-
og er plagsiöur þeirra
eystra.
Þeir hengja upp Ijós-
myndir af sjálfum sér viö
torg og stræti, firnabreiö-
ar og himinháar einsog
sýningartjaldiö majórsins;
og á þessum uppstign-
ingarmyndum flokks-
maskínunnar eru jafnvel
áttræöir gamlingjar meö
glóandi feguröardísaroða í
vöngum, eöa sminkaöir
einsog vændiskonur
mætti líka segja, allavega
með eggslétt og nánast
ilmandi hvítvoöungahör-
und einsog litlu sætu krílin
sem nota einungis John-
sons ungbarnapúöur í
sætu sjónvarpsauglýsing-
um; og með þessum
poppstjarnaspjöldum sín-
um ætla þeir aö þeir séu
aö vinna hugi og hjörtu
fólksins!
Þaö fór lítiö fyrir frá-
sögninni í The Guardian af
kveinstöfum sovéska
blaösins, enda frétta-
streymið sem fyrr er sagt
af morðum og vígaferlum
meö almesta móti um
þessar mundir. Þaö þarf
vitanlega ekki aö koma
neinum á óvart þóaö fólk
þarna eystra geri sér Ijóst
aö vígbúnaöarkapphlaup-
iö byggist ekki síst á
gagnkvæmum ótta. Svoað
orð verkamannsins séu
heimfærö uppá hann sjálf-
an og landa hans: „Þetta
eru líka manneskjur.“ Á
hinn bóginn eru viöbrögö
flokksmálgagnsins rétt eitt
dæmiö um þann forn-
eskjulega hugsunarhátt
sem stjórnar oröum og at-
höfnum valdsmannanna á
þessum slóöum. Innræt-
ingarapparatiö hefur
brugöist og þaö þarf aö
brýna hugmyndafræöilegu
kutana. Fólkiö þar eystra
á ekki aö hafa aörar skoö-
anir um stríö og friö en
þær sem ríkinu þóknast
aö skammta því.
Ef útaf er brugöiö og í
rökréttu framhaldi af
þessu (ef hægt er aö nota
oröið „rökrétt“ í þessu
sambandi) koma síöan
áminningarnar, yfirheyrsl-
urnar, atvinnumissirinn,
frelsissviptingin. Þetta
hafa enda oröiö örlög má
ég segja hvers eins og ein-
asta þeirra karla og
kvenna sem sýndi þá fífl-
dirfsku fyrir fáeinum miss-
erum aö stofna til friðar-
hreyfingar í höfuöborg
Sovétríkjanna.
Hópurinn varö aö vísu
aldrei stór, enda vita
menn hvaö þeir kalla yfir
sig austur þar ef þeir bind-
ast samtökum í trássi viö
flokkslínuna. En mér hefur
löngum þótt langtum of
hljótt um Moskvuhópinn
og örlög hans bæöi í fjöl-
miölum vestrænu ríkjanna
og svo ekki síöur meöal
fólksins hér vestan járn-
tjalds sem kennir sig viö
friö og afvopnun.
Ég efast ekki um ein-
lægni þessa fólks upp til
hópa, og ég hef takmark-
aöa samúð meö þeim
mönnum sem sjá bókstaf-
lega rautt þegar tilvist
þess ber á góma. Ber
þetta ekki keim af þeim
hugsunarhætti sem hér
hefur veriö lýst, nefnilega
aö þegnarnir eigi einungis
aö hafa þær skoöanir sem
eru háu herrunum þókn-
anlegar?
En á hversdagsmáli
finnst mér samt ástæöa til
aö spyrja hvort Andropov
og hinir glansmyndapost-
ularnir sleppi ekki langtum
of billega.
Helgartill
Bílaleigu Flugleiða til helgarreisufarþega
Dæmi: VW Golf í 2 daga með 100 km innif. kr. 1.360
VW Golf í 3 daga með 150 km innif. kr. 2.040
VW Golf í 2 daga ótakmarkaöur akstur kr. 2.200
VW Golf í 3 daga ótakmarkaöur akstur kr. 3.300
Við afhendum bflana á hótel
eða flugvöll
Urvals bííar. Reyniö viöskiptin.
BILALEIGA FLUGLEIDA SIMI27800