Morgunblaðið - 26.11.1983, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 1983
13
Allen Bryant Clark: Hnífur úr hertu stáli, messing og Marie Goldring: Saumað leður.
rósaviði.
göngu að hnífagerð. Möguleik-
arnir hvað varðar útlit, hönnun
og notagildi eru nær ótakmark-
aðir og ég nota ryðfrítt stál af
besta gæðaflokki, en nokkur eru
búin til úr höggmyndalist.
Hnífar minir eru bæði ný-
stárlegir og góð verkfæri. Eig-
endum sínum eru þeir því bæði
til gagns og augnayndis." (Mynd
II, Allen Bryant Clark, Hnífur
úr hertu stáli, messing og rósa-
viði).
Marc Goldring: „Leður heillar
mig með möguleikum sínum,
ekki síst hvernig unnt er að
móta það með vatni. Blautt er
leðrið mótanlegt en síðan helst
lögun þess er það þornar. Leðrið
býr yfir leyndardómum. Það
hefur lífræna þætti (það var
skinn á lifandi dýri) og tækni-
lega þætti (efnabreytingar sem
eiga sér stað þegar skinn er sút-
að). Ég reyni að höfða til beggja
þessara þátta leðursins og reyni
að gera tjáningarformið eins
magnþrungið og efnið sem í því
er... (Mynd III, Marc Goldring,
Saumað leður.)
Bryant Holsenbeck: „Þessi
verk hafa orðið til vegna þess
hve ég ann körfugerðarlist en í
henni er að finna bæði tónræna
endurtekningu og myndræna
eiginleika plöntutrefjanna
sjálfra. Úr samruna þessara eig-
inda sprettur fram hlutur sem
hefur til að bera bæði notagildi
og fegurð. í náttúrunni sjálfri
hefur hvert form sína fegurð og
einnig tilgang. (Mynd IV, Bry-
ant Holsenbeck, Hattur.)
Warren MacKenzie: „Sum
leirker eru góð og þeir sem eru
næmir skilja það strax. Ef sá
hinn sami gefur sér tíma til þess
að íhuga innra eðli verksins og
gefa gaum að þeim, sem það
vann, hefur hann öðlast þátt í
því að skapa listaverk. (Mynd
IV, Warren MacKenzie, Tepott-
ur úr steinleir.)
Ég valdi hér að ofan ekki þau
verk er mér leist best á heldur
þau ummæli listamannanna er
gefa góða innsýn inn í eðli hand-
íða, hve löng og ströng menntun
er t.d. að baki einföldu formi og
hve meðvitað listamennirnir tjá
sig yfirleitt ef því er að skipta
og þó er það hið skynræna er
ávallt skiptir mestu máli. Feg-
urð rökréttrar skynjunar.
Að lokum ber að þakka fram-
takið með miklum virktum og
minna á að sýningunni lýkur á
sunnudagskvöld.
Rómantískur eldmóður
Hljóm-
plotur
Atli Heimir Sveinsson
Nýlega fékk ég hljómplötu
Rögnvalds Sigurjónssonar, sem
Fálkinn gaf út fyrir skömmu, en
þar leikur hann verk eftir
Schumann, Chopin og Liszt, hina
rómantísku meistara.
Þetta eru gamlar hljóðritanir
frá árunum 1956—71. Á þessum
tíma var Rögnvaldur mikilvirkur
listamaður, sem réðst í stórbrot-
in og erfið viðfangsefni, hélt
fjölda tónleika hér og erlendis,
auk þess sem hann kenndi við
Tónlistarskólann í Reykjavík.
Þessi plata er gott sýnishorn af
list Rögnvalds. Hljóðritunin ber
merki síns tíma, en hún varðveit-
ir þá rafmögnuðu spennu, sem
oft ríkti á tónleikum hjá Rögn-
valdi. Og slíkar hljóðritanir eru
betri heldur en þær steindauðu,
steingeltu og yfirfáguðu, þar sem
hvergi er hnökra að finna. En
þær eru algengar nú á tímum
tæknidýrkunar, áferðafallegar
en segja lítið. Gott sánd kemur
aldrei í staðinn fyrir góða spila-
mennsku, lýtalaus tækni aldrei í
staðinn fyrir djúpa túlkun.
Rögnvaldur var ákaflega eftir-
minnilegur píanisti. Hann var
hrífandi tæknisnillingur og
stórhuga eldsál. Stundum var
hann nokkuð brokkgengur, en
alltaf spennandi og aldrei leiðin-
legur: sjálfstæður og sterkur
persónuleiki, sem oft fór eigin
leiðir. Honum lét því vel að túlka
rómantíska músik svo og tónlist
frá 20. öld, t.d. verk eftir Pró-
koffívéff.
Rómantíska listin (þ.e.a.s. góð
list — vond list er ekki list) er
gneistandi af lífi, mikil í gleði og
sorg, raunsæ og draumkennd í
senn, frjáls og um leið öguð.
Hinn rússneski skóli í píanó-
leik mótaði Rögnvald öðru frem-
ur. Mig grunar að kennari hans
Gorsdnitzki — leiksnilld hinna
rússnesku snillinga Hóróvíts og
Rakkmaninoffs og annarra —
hafi haft afgerandi áhrif á við-
NÆSTI fyrirlestur Landfræðifé-
lagsins verður haldinn nk. mánu-
dag, þann 28. nóvember, kl. 20.30, í
stofu 103 í Lögbergi, Háskóla Is-
lands. Fyrirlesarar eru Sigríður
Hauksdóttir og Emil Bóasson.
Fjallað verður um þá helstu
þætti sem ráða staðarvali fyrir
horf hans og list. Það er tæknileg
fullkomnun, ólgandi lífskraftur
og glæsibragur, sem einkennir
þennan skóla.
Þetta birtist greinilega á
hljómplötunni, t.d. í g-moll són-
ötu Schumanns. Þrátt fyrir ítar-
lega undirbúningsvinnu virðist
Rögnvaldur vera stemmnings-
maður, þegar á hólminn er komið
lætur hann gamminn geisa.
Sama er að segja um Mefistó-
valsinn eftir Liszt, þann fyrsta.
Þar heyrum við glitrandi tækni-
snilld og innblásna hrifningu.
Rögnvaldur mótaði ljóðrænar
tónamyndir oft mjög sannfær-
andi, sem heyra má af túlkun
hans á smálögunum úr Fantasie-
stúcke Schumanns, etýðum
Chopins og valsinum í a-moll.
Þar birtist önnur hlið róman-
tískrar tónlistar — hin fjarræna,
<lreymandi og dálítið þunglynd-
islega lífskennd.
Það er mikill fengur að þessari
plötu. Hún er vitnisburður um
leitandi listamann, sem umfram
allt er stór i sniðum.
stóriðnað og reynt að gera grein
fyrir mismunandi viðhorfum
þeirra aðila sem þar eiga hags-
muna að gæta. Sett verðar á
oddinn tvö megin viðhorf: Ann-
arsvegar þau sem stjórnast af
hagsmunum fyrirtækis og hins
vegar samfélagsleg viðhorf.
Fyrirlestur Landfræðifélagsins:
Staðarval fyrir stór-
iðnað á fslandi
Philips PH-102
3.500.- krónur út
Verð kr. 29.950,- I
sem greiðist með 8 jöfnum greiðslum,
eða 5% staðgreiðsluafsláttur.
Útvarpsmagnari 2x25W sin/ |
LW, N/IW, FM; kassettutæki, plötuspilari,
skápur og hátalarar. V|l§
o’© • ■■■^#
Philips PH-104
5.000.- krónur út
Verð kr. 39.950.-
sem greiðist með 8 jöfnum greiðslum
eða 5% staðgreiðsluafsláttur.
Magnari 2x30W sin,
útvarp LW, MW, FM; kassettutæki,
plötuspilari, skápur og hátalarar.
Philips PH-106
6.000.- krónur út
Verð kr. 48.200.- |
sem greiðist með 8 jöfnum gretðslum,
eða 5% staðgreiðsluafsláttur.
Magnari 2x40W sm, útvarp
LW, MW, FM; kassettutæki, plötuspilari,
skápur og hátalarar.
Heimilistækl
SÆTUNI 8-15655 "á
OOTT FOLK