Morgunblaðið - 26.11.1983, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 1983
Kjarvalsstaðir:
„CRAFTS USA“
sýningunni lýk-
ur um helgina
SÝNINGIN CRAFTS USA á nútíma
handverkslist í Bandaríkjunum, hef-
ur nú staðið yfir í rúmar þrjár vikur,
en henni lýkur á sunnudagskvöld,
þann 27. nóvember. Um fimm þús-
und manns hafa séð sýninguna og
tekið þátt í vinnunámskeiðum víðs
vegar um Reykjavík og á Kjarvais-
stöðum.
Sýning þessi er stærsta sýning á
Matvælasýning-
in í París
ALÞJÓÐLEGA matvælasýningin
SIAL, sem árlega er haldin í París,
mun á na sta ári haldin í júnímán-
uði.
Ástæðan breytts sýningartíma
sú að sýning þessi hefur sífellt
verið að stækka og færa út kví-
arnar og erfitt að koma henni
fyrir. En sýningarstaður verður
sem fyrr Porte de Versailles í suð-
urhluta Parísar. Þessi sýning hef-
ur verið árlegur viðburður i meira
en 20 ár og hafa íslendingar
nokkrum sinnum haft þar sýn-
ingarbás.
Stækkunin hefur verið jöfn og
þétt, úr 12 þús. ferm. á árinu 1964,
30 þús. ferm. 1974 og í 55 þúsund
ferm. sýningarsvæði 1982. En
nauðsynlegt sýningarrými fyrir
þátttakendur árið 1984 verður
65—70 þús. ferm. Verður sýn-
ingarrýminu skipt þannig að er-
lendir sýnendur hafa 24 þúsund
ferm. en franskir aðilar 46 þúsund
ferm.
bandarískri handverkslist sem
nokkurn tíma hefur verið haldin
utan Bandaríkjanna, en hún var
sérstaklega sett upp fyrir Island
og mun ekki verða sýnd annars
staðar. Aðgangseyrir er kr. 100 og
fylgir með myndskreytt 120 blað-
síðna sýningarskrá auk þess sem
veggspjald sýningarinnar verður á
boðstólum.
Þeir aðilar sem keypt hafa verk
á sýningunni ber að sækja þau
milli kl. 10.00 og 24.00 sunnudag-
inn 27. nóvember eða milli kl. 10
og 12 mánudaginn, 28. nóvember.
Verk sem ekki verða sótt né seld
verða endursend til listamann-
anna í Bandaríkjunum að sýningu
lokinni.
Skemmtun
í Garða-
skóla í kvöld
BEKKJARRÁÐ 9. bekkjar í
Garðaskóla stendur fyrir skemmt-
un í félagsmiðstöðinni „Garða-
lundi" á milli klukkan níu og eitt í
kvöld, laugardagskvöld. Margt
verður til skemmtunar, meðal
annars fara fram úrslit í fegurð-
arsamkeppni skólans, en síðar
meir er fyrirhuguð keppni vinn-
ingshafanna í Garðalundi og ann-
arra skóla og félagsmiðstöðva.
AKALL
Stund meö Gunnari Kx/aran œllóleikara
Æ
Gunnar Kvaran, sellóleikari, á plakati sem Hjálparstofnun kirkjunnar og
útgáfan Skálholt hafa látið gera.
Tónleikar á vegum Hjálparstofnunar kirkjunnar:
Gunnar Kvaran leikur á
selló í Keflavíkurkirkju
HJÁLPARSTOFNUN kirkjunnar
gengst nk. sunnudag fyrir tónleikum
með Gunnari Kvaran. sellóleikara, í
Keflavíkurkirkju kl. 20.30. Gunnar
mun leika nokkur einleiksverk eftir
Baeh og fleiri þekkt tónskáld.
Kirkjukór Keflavíkurkirkju syngur
einnig á tónleikunum undir stjórn
Siguróla Geirssonar, organista kirkj-
unnar.
Sl. sumar gaf útgáfan Skálholt
út hljómplötu með sellóleik Gunn-
ars. I tengslum við útgáfuna stóð
Hjálparstofnunin að tónleikahaldi
með Gunnari á 15 stöðum víða um
land. Öll vinna við hljómplötu-
gerðina var gefin í þágu hjálpar-
starfs kirkjunnar og rennur sölu-
andvirði hennar til hjálparsjóðs
kirkjunnar.
Með hljómplötuútgáfunni og
tónleikahaldinu vill Hjálparstofn-
unin kalla fólk til umhugsunar um
neyðina í heiminum og þörfina á
hjálp.
Sunnudaginn 4. des. leikur
Gunnar Kvaran í Selfosskirkju kl.
17. Á báðum tónleikunum mun sr.
Bragi Friðriksson, prófastur.
flytja stutt erindi um hjálparstarf
kirkjunnar. Ókeypis aðgangur er
að tónleikunum og allir eru hjart-
anlega velkomnir.
Skagaleikflokkurinn sýnir Eðlisfræðingana
Sagaleikflokkurinn sýnir leikrit-
ið Eðlisfræðingarnir eftir Friedrich
Durrenmatt í Þjóðleikhúsinu nk.
mánudag, þann 28. nóvember. Er
sýningu á vegum Friðarsamtaka
listamanna, en leikstjórn er í
höndum Kjartans Ragnarssonar.
f frétt frá Friðarsamtökum
listamanna segir m.a.:
Fá leikhúsverk eru tímabær-
ari einmitt nú en Eðlisfræð-
ingarnir þrátt fyrir það að liðin
eru 20 ár frá því að það var
frumflutt (í Zúrich 21. febrúar
1962). Enda fjallar það um víg-
búnaðarkapphlaupið, hugsanleg
endalok mannkynsins og ábyrgð
eðlisfræðinga í framleiðslu gjör-
eyðingatækja þeirra sem til þess
verða notuð.
Þrír úr hópi helstu eðlisfræð-
inga heims eru samankomnir á
„lúxus" geðveikrahæli í Sviss af
mjög svo sérstæðum ástæðum og
framtíð mannkynsins alls tvinn-
ast saman við einkahagi þ eirra.
Nýlega birtu 14.000 helstu eðl-
isfræðingar heims áskorun til
stjórnmálamanna um að láta af
framleiðslu gjöreyðingavopna.
Einn af íslenskum fulltrúum
þessa hóps mun ávarpa leikhús-
gesti á undan sýningu.
Fiskiþing hefst
á mánudaginn
42. FISKIÞING hefst mánudaginn
28. nóvember 1983, kl. 14.00 í húsi
Fiskifélagsins, Höfn við Ingólfs-
stræti, og verður sett af Þorsteini
Gíslasyni fiskimálastjóra. Áætlað er
að þingið standi til föstudagsins 2.
desember.
Frá fjórðungssamböndum og
deildum Fiskifélagsins munu 24
fulltrúar sitja þingið og frá sér-
samböndum sjávarútvegsins 11
fuLltrúar, en auk þess á fiskimála-
stjóri sæti á þinginu. Fulltrúar
þessir eru alls staðar af landinu og
úr. öllum greinum sjávarútvegsins.
Sjávarútvegsráðherra, Halldór
LIONSKLÚBBURINN Freyr í
Reykjavík og fleiri Lionsklúbbar í
nágrannabæjunum og víðast hvar
um landið hafa þegar hafið hina
árlcgu sölu á jóladagatölum. Hér
um að ræða dagatöl með súkku-
laðimola fyrir hvern dag desem-
bermánaðar til jóla. Þetta er ellefta
árið, sem klúbbarnir bjóða svona
dagatal, og er það orðið fastur þátt-
ur í jólahaldi margra heimila.
Auk þess að gleðja börnin eru
kaupendur að styrkja klúbbana
Ásgrímsson, mun ávarpa þingið.
Mörg mál verða lögð fyrir þing-
ið og má þar helzt nefna: Stjórnun
fiskveiða, gæði á ferskum fiski og
sjávarafurðum, nýir möguleikar á
veiðum og vinnslu, gengis- og
verðtryggingamál, öryggismál,
fræðslumál og skýrslur hinna
ýmsu starfsdeilda Fiskifélags ís:
lands.
Fyrsta Fiskiþing var haldið
1913 og hafa þau verið haldin
reglulega síðan. í byrjun voru þau
haldin annað hvert ár, stóðu í
tvær vikur, en seinni ár hafa þau
verið haldin árlega og standa eina
viku.
ríflega til að sinna fjölþættu og
viðamiklu hjálparstarfi. Stærst-
um hluta ágóða af sölunni fyrir
síðustu jöl ráðstafaði Lions-
klúbburinn Freyr til eins vist-
rýmis á hjúkrunardeild Hrafn-
istu í Hafnarfirði, en auk þess
lagði klúbburinn mörgum öðrum
aðilum lið, svo sem Styrktarfé-
lagi vangefinna vegna nýs fjöl-
skylduheimilis að Háteigsvegi 6,
íþróttafélagi fatlaðra, Skála-
túnsheimilinu og ýmsu einstakl-
ingum og félögum.
Úr kvikmyndinni „Val Sophie".
Meryl Streep, (fyrir miðju) hlaut
Óskarsverðlaun fyrir leik sinn í
myndinni.
Laugarásbíó
sýnir
„Val Sophie“
LAUGARÁSBÍÓ hefur nú tekið til
sýninga bandarísku myndina
„Sophies Choice“, eða „Val Sophie“,
eins og hún nefnist á íslensku.
I tilkynningu frá kvikmynda-
húsinu segir að myndin hafi verið
tilnefnd til sex Oskarsverðlauna
og hafi Meryl Streep hlotið verð-
launin sem besta leikkonan. I
sömu tilkynningu segir ennfremur
að myndin fjalli um mann, Natan,
sem segist vera líffræðingur, en
síðar komist kunningi hans að því
að hann sé geðveikur. Natan býr
með konu, Sophie, sem er af pólsk-
um ættum og lenti í útrýmingar-
búðum nasista í Auswitz. Upp úr
sambúð þeirra slitnar og þá von-
ast kunningi þeirra, Stingo, til að
geta fengið hana til að giftast sér.
Fjögur
skip selja
erlendis
ÞRJÚ skip seldu erlendis sl. mið-
vikudag. Erlingur GK seldi í 106
tonn í Grimsby. Söluverð 3.171,2
þúsund, meðalverð 29,93 krónur.
Breki seldi í Cuxhaven 191,4
tonn fyrir 4.748,6 þúsund, meðal-
verð 24,81 króna. Vestmanney
seldi í Bremerhaven 142,6 tonn
fyrir 3.734,1 þúsund, meðalverð
26,18.
f fyrradag seldi Ýmir afla sinn í
Hull 84,3 tonn fyrir 1.935,4 þús-
und, meðalverð 22,95 krónur.
Tvö skip selja erlendis í dag.
Sólberg ÓF í Grimsby og Viðey í
Cuxhaven.
Börn Freysfélaga aðstoða feður sína við pökkun og merkingu á dagatölun-
um.
Sala hafin á jóladagatöl-
um Lionsklúbbsins Freys