Morgunblaðið - 13.12.1983, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1983
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir HENRY GOTTLIEB
Efnahagsbandalag Evrópu:
Leiðtogafundurinn í Aþenu
leysti engin vandamál
ÞRÁTT fvrir langar og stundum harðorftar umræður tókst leiðtogum
aðildarríkja Efnahagsbandalags Evrópu (EBE) ekki að leysa fjárhags-
vandamál bandalagsins á nýafstöðnum þriggja daga fundi sínum í Aþenu.
Er nú svo komiö, að EBE stendur frammi fyrir fjárhagslegu hruni, ef
ekkert verður að gert. Ekki er þó unnt að varpa sökinni á leiðtoga neins
eins ríkis innan EBE umfram önnur. Vandamálið á miklu fremur rót sína
aö rekja til hinnar langvinnu efnahagskreppu, sem gert hefur aðildarríkj-
unum miklu erfiðara um vik við aö leysa vandamál sín innbyrðis en oftast
áður í 25 ára sögu bandalagsins.
Leiðtogar Bretlands, Frakk-
lands, Vestur-Þýzkalands,
Ítalíu og þeirra sex minni ríkja,
sem a'ðild eiga að EBE, viður-
kenndu það í sameiginlegri yfir-
lýsingu sinni í síðustu viku, að
mistekizt hefði að leysa fjár-
hagsvandamál bandalagsins,
sem svo mjög hafa staðið því
fyrir þrifum árum saman. Og
eftir fundinn sagði frú Margaret
Thatcher, forsætisráðherra
Bretlands: „Við erum komin
býsna langt fram á brúnina.
Kannski verðum við komin fram
af henni eftir þrjá til fjóra mán-
uði.“
Helmut Kohl, kanslari Vest-
ur-Þýzkalands, lýsti fundinum
sem „árangurslausum" og
Francois Mitterrand, forseti
Frakklands, komst svo að orði,
að nú mættu menn vita það alls
staðar í Vestur-Evrópu, að EBE
ætti í stórfelldum erfiðleikum.
Niðurgreiðslur erf-
iðasti bagginn
Einstakir þættir vandamáls-
ins eru margir og hafa heilu
bækurnar verið ritaðar um þá. Á
meðal þeirra má nefna niður-
greiðslur landbúnaðarvara, há-
mark það, sem sett hefur verið á
útgjöld bandalagsins sem og
aðra flókna þætti i fjárlögum
þess, auk alþjóðafjármála yfir-
leitt.
í stuttu máli sagt þá mistókst
leiðtogum EBE á fundinum í
Aþenu að binda enda á fjögurra
ára deilu um, hvernig skipta beri
fjárhagsbyrðum bandalagsins á
milli aðildarríkjanna. Það er lík-
ast því sem félagar í klúbbi færu
að deila um, hverjir ættu að
safna félagsgjöldunum og hverj-
ir ættu að eyða þeim. í þessu
tilfelli hér er hins vegar um fjár-
hæðir að ræða, sem nema millj-
örðum dollara.
Embættismenn EBE hafa
spáð því, að verði ekkert aðhafzt,
þá muni tekjur bandalagsins,
sem á næsta ári eru áætlaðar 21
milljarður dollara, ekki nægja
til þess að standa straum af
áformum bandalagsins í land-
búnaði, málum gamla fólksins,
málefnum vanþróaðra héraða né
til þess að greiða kostnaðinn við
stjórn bandalagsins.
Þá verður áformunum um að
taka Spán og Portúgal inn í
Efnahagsbandalagið frestað og
hægt verður á tilraunum til þess
að draga úr viðskiptahömlum
milli þjóða, sem er hið raunveru-
lega verkefni bandalagsins.
Grigoris Varfis, starfsmaður
gríska utanríkisráðuneytisins,
sagði fyrir fundinn í Aþenu, að
tækist svo illa til, að hann færi
út um þúfur, þá „væri það svo
alvarlegt mál, að það kynni að
þýða upphaf þess, að bandalagið
leystist upp“.
Byrjaði sem tollabandalag
Efnahagsbandalag Evrópu var"
stofnað eftir heimsstyrjöldina
síðari af hugsjónamönnum, sem
töldu, að bezta leiðin til þess að
koma í veg fyrir styrjaldir í Evr-
ópu á borð við þær, sem hrjáð
hafa heimsálfuna öldum saman,
væri að samtengja efnahagslífið
í löndum álfunnar svo náið, að
þau yrðu að lifa í sátt og sam-
lyndi hvert við annað. Byrjað
var á að samræma stefnuna
varðandi kola- og stálfram-
leiðslu og árið 1958 stofnuðu
Vestur-Þýzkaland, Frakkland,
Ítalía, Holland, Belgía og Lúx-
emborg tollabandalag, sem síðan
varð að Efnahagsbandalagi Evr-
ópu.
Á meðan efnahagslífið blómg-
aðist innan bandalagsins, var
þeim vandamálum, sem mörk-
uðu upphaf hinna stórfelldu
niðurgreiðslna, ýtt til hliðar og
sömuleiðis andstöðu þeirri, sem
fylgt hafði de Gaulle Frakk-
landsforseta, gegn inngöngu
Bretlands. Það fékk aðild að
bandalaginu 1973 ásamt írlandi
og Danmörku. Efnahagsupp-
gangur EBE átti líka sinn þátt í
því, að stjórnir aðildarríkjanna
féllust á að láta ýms fátæk lönd
utan þess njóta þess hagræðis,
sem fólst í bandalaginu. Síðan
var Grikklandi veitt aðild 1981
og fyrirhugað var að veita Spáni
og Portúgal inngöngu í banda-
lagið eftir fáein ár.
Efnahagskreppan orsök
erfiöleikanna
Erfiðleikarnir innan EBE við
að leysa vandamál bandalagsins
hófust á síðasta áratug og
stjórnmálasérfræðingar segja,
að það hafi ekki verið nein til-
viljun, að þeir hafi byrjað sam-
tímis því, sem efnahagskreppan
reið yfir heiminn. Frammi fyrir
10,5 % atvinnuleysi, engum hag-
vexti, stórfelldum greiðsluhalla,
minni möguleikum á framlögum
til félagsmála og markaðsmissi í
Bandaríkjunum og Japan, virtist
sem ríki Vestur-Evrópu hefðu
samtímis glatað möguleikum
sínum til þess að leysa deilumál
sín og þenja viðskiptabandalagið
út.
Michael Albert, fyrrverandi
ráðgjafi frönsku stjórnarinnar í
efnahagsmálum, lét svo um
mælt fyrir skemmstu: „Að und-
anskilinni stofnun sameiginlegs
peningakerfis 1979, þá hefur
ekkert frumkvæði komið fram í
neina raunhæfa átt innan EBE í
meira en 10 ár.“
í efnahagsspám sínum fyrir
árið 1984 harmar Framkvæmda-
ráð Efnahagsbandalagsins, að
ástandið skuli vera svo slæmt, að
„stefna aðildarríkjanna í efna-
hagsmálum leyfi aðeins tak-
markað svigrúm til aðgerða" í
samskiptum þeirra innbyrðis.
Á leiðtogafundinum í Aþenu
bar Bretland fram afdráttar-
lausa kröfu um að fá að draga úr
útgjöldum sínum til bandalags-
ins, sem nema nú yfir einum
milljarði dollara umfram þá
fjárhæð, sem Bretar fá úr sjóð-
um bandalagsins. Leiðtogar
hinna ríkjanna neituðu að fall-
ast á lausn, sem hefði í för með
sér minni framlög til landa
þeirra. Allir voru þeir sammála
um, að gerðar yrðu endurbætur
á landbúnaðarstefnu bandalags-
ins, sem sópar til sín % af öllu
því fé, sem bandalagið hefur til
umráða. En enginn þeirra gat
komið fram með málamiðlun,
sem hinir öflugu þrýstihópar
bænda í öllum aðildarlöndum
bandalagsins gátu sætt sig við.
Nokkrir embættismenn EBE
hafa þó látið hafa eftir sér, að
hversu miklum vonbrigðum sem
leiðtogafundurinn í Aþenu kunni
að hafa valdið, þá geti vel farið
svo, að hann eigi eftir að bæta úr
hlutunum þegar allt kemur til
alls. Þegar fjárskorturinn fari að
segja til sín á næsta ári, þá verði
aðildarríki EBE tilneydd til þess
að leysa innbyrðisvandamál sín,
ef þau vilji, að bandalagið lifi
áfram.
Henry Gottlieb er stjórnmála-
fréttaritari við fréttastofuna
Associated Press.
Jólaböll
og hverskonar^
jólafagnaðir
‘
VEISLUSALUR
Viö bjóöum ykkur upp á stor-
glæsileg salakynni fyrir hvers-
konar veislur og fundarhöld.
SJÁUM UM ALLAR VEITINGAR
PANTIÐ TÍMANLEGA^^/
Bastmottur frá Kína
Kínversku bastmotturnar sem fást í Teppalandi,
Grensásvegi 13, eru alltaf jafnvinsælar. Þær fást í
mörgum stæröum og gerðum.
Kínversku bastmotturnar eru mjög fallegar
skrautmottur sem hægt er aö nota í eldhús og
parketgólf sem á aöra staöi í íbúðinni. Þaö fást
kringlóttar, ferkantaöar og ýmsar aðrar gerðir í
Teppalandi.
Tilvaldar jólagjafir.
TÉPPfíLRND
Grensásvegi 13, Reykjavík,
síma 83577 og 83430.
BJÖRNINN HF
Skulatuni 4 - Shni 2SI50-Reykiavík
bevki
Loft- og veggklæðningar, límtré, smíðaplötur,
parket. - Allt úr Beyki,
því það er óskaviðurinn í dag!
Allar upplýsingar veittar í síma 25150.