Morgunblaðið - 13.12.1983, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1983
Sviptur
náttúrunni
San Antonio, Teiis. AP.
MAÐUR nokkur, sem dæmdur
hafði verið til að missa alla löng-
un til kvenna í refsingarskyni
fyrir að hafa nauðgað konu, er
hinn ánægðasti meö hlutskipti
sitt og segist aldrei hafa liðið bet-
ur.
„Löngun mín til kvenna er
horfin eins og dögg fyrir sólu
og það líkar mér vel. Það var
hún, sem kom mér á kaldan
klaka og ég var farinn að hata
sjálfan mig,“ sagði Joseph
Frank Smith, sem er þrítugur
að aldri og var í ágúst sl. fund-
inn sekur um innbrot í þeim
tilgangi að nauðga konu. Dóm-
urinn kom flestum á óvart og
olli mikilli óánægju, en hann
hljóðaði upp á tíu ára fangelsi,
skilorðsbundið, og að Joseph
skyldi gerður náttúrulaus með
sprautu.
Dómararnir höfðu raunar
ekki vald til að fyrirskipa nátt-
úruleysið en ríkisdómarinn í
Texas gerði það að skilyrði
fyrir því að fangelsisdómurinn
væri skilorðsbundinn og Jos-
eph féllst á það.
Joseph var tekinn fastur í
íbúð konu nokkurrar í San
Antonio og var þá ekki í öðru
en einum sokkum og með
skíðagleraugu. Hafði hann ætl-
að að nauoga konunni og viður-
kenndi við yfirheyrslur að hafa
nauðgað henni í tvígang áður.
Joseph býr nú hjá systur
sinni og mági en vikulega fer
hann í nærliggjandi sjúkrahús
og er sprautaður þar með efn-
inu depo-provera, sem losar
hann við alla kynferðislega óra
og langanir.
Eftir að Raul Alfonsin hafði svarið embættiseið sinn sem forseti Argentínu ók hann um götur Buenos Aires ásamt
konu sinni, Maria Lorenza Barreneche. Var þar saman kominn mikill mannfjöldi til að fagna honum.
Alfonsin lofar aö hækka
kaup og frysta verðlag
BuenoN Aires ojj London, 12. desember. AP.
RAUL Alfonsin, hinn nýi forseti
Argentínu, hitti erlenda leiðtoga að
máli í gær á sama tíma og heimild-
armenn innan flokks hans sögðu
að fyrsta verk hans yrði að frysta
allt verðlag og hækka kaup um 25
af hundraði að meðaltali til þess að
bjarga þjóðinni frá því að lenda í
gini kreppunnar.
Á meðal þeirra, sem Alfonsin
tók á móti, má nefna Bettino
Craxi og Felipe Gonzales, forsæt-
isráðherra ftalíu og Spánar, og
forseta Kólombíu, Perú og Ecu-
ador, Belisario Betancur, Fern-
ando Belaunde Terry og Osvaldo
Hurtado.
Mikil hátíðarhöld voru í
Argentínu á laugardag eftir að
Alfonsin hafði svarið embættis-
eið sinn. Létu íbúar Buenos Aires
Bush fordæmir dauða-
sveitir hægri manna
sér ekki nægja að fagna allan
laugardaginn heldur stóðu hátíð-
arhöldin langt fram á nótt. Tugir
þúsunda manns dönsuðu á götum
úti. Embættistaka Alfonsins
markar tímamót í Argentínu því
herinn hefur verið við völd þar í
landi frá því Isabellu Peron var
hrundið frá völdum í byltingunni
1976.
Ástandið í Argentínu er bág-
borið sem stendur. Verðbólgan
æðir áfram með ógnarhraða og
atvinnuleysið er mikið. Verð-
bólguhraðinn er nú um 400% og
nærri lætur, að áttundi hver
maður sé án vinnu, eða um 12,5%
vinnufærra manna. Laun eru lág,
um 7000 ísl. krónur, en með
hækkuninni vonast Alfonsin til
þess að rétta megi efnahag heim-
ilanna við að nokkru.
Klofningur f stærstu skæruliöahreyfingu E1 Salvador
Fylgisaukn-
ing hægri
öfgasinna í
Frakklandi
París, 12. desember. AP.
Stjórnarandstaðan í Frakk-
landi bætti enn einni skrautfjöð-
ur í hatt sinn í gær er frambjóð-
endur hennar báru sigurorð af
fulltrúum stjórnarflokkanna í
tvennum aukakosningum.
Gengið var til kosninga í
Morbihan í vesturhluta lands-
ins og Cahors í suðurhlutanum
og undirstrikuðu úrslitin enn
frekar óánægju kjósenda með
stjórn landsins. Hefur óánægj-
an farið mjög vaxandi á undan-
förnum mánuðum. I Morbihan
margfaldaði flokkur hægri
öfgamanna, sem m.a. berst
gegn erlendu vinnuafli í land-
inu, fylgi sitt.
Jean-Marie le Pen, leiðtogi
flokksins hlaut 12% atkvæð-
anna í Morbihan. Til þessa hef-
ur flokkurinn fengið um 1% at-
kvæða í þingkosningum. Þessi
fylgisaukning flokksins fylgir í
kjölfar 17% fylgis hans í bæj-
arstjórnarkosningum í sept-
ember og 9,3% fylgis í öðrum
slíkum kosningum í suðurhluta
Parísar í síðasta mánuði. Hefur
fylgisaukningin valdið for-
mönnum stóru flokkanna veru-
legum áhyggjum.
Frambjóðandi lýðræðis-
bandalagsins varð ótvíræður
sigurvegari kosninganna í Mor-
bihan. Hlaut 28,2% atkvæða. í
Cahors fékk frambjóðandi
hægrimanna rúm 43% atkvæða
en frambjóðandi róttækra
vinstrimanna aðeins 22,8%.
ERLENT
Su Salvador, Kl Salvador, 12. desember. AP.
GEORGE BUSH, varaforseti Bandaríkjanna, sagði í ræðu í
gær, að framferðið hjá dauðasveitum hægri manna í El Salva-
dor væri svo alvarlegt að ef morðunum linnti ekki, væri
vináttu bandarísku þjóðarinnar fórnað á altari. „Hvert ein-
asta hryðjuverk sem sveitir þessar fremja, eitra æ meira þann
djúpa brunn vináttu sem bandaríska þjóðinn ber í garð El
Salvador.
Bush mælti umrædd orð í
veislu á heimili Alvaro Magana,
forseta E1 Salvador, og gaf hann
jafnframt í skyn, að yrði ekkert
lát á pólitískum morðum dauða-
sveitanna, myndu Bandaríkin
láta af stuðningi sínum við
stjórnina. „Það væri sorglegt, en
veltur á E1 Salvadormönnum
sjálfum," sagði Bush.
Bush kom til E1 Salvador að-
eins fáeinum klukkustundum
eftir að leynileg útvarpsstöð
vinstri sinnaðra skæruliða hafði
staðfest þann orðróm að djúp-
stæður klofningur væri kominn í
raðir FPL-skæruliða, sem verið
hefur stærsti skæruliðaflokkur-
inn sem barist hefur gegn
stjórninni. Klofningurinn stafar
að sögn skæruliðanna af per-
sónufylgi Cayetanos Carpios,
sem fyrirfór sér síðastliðið vor
eftir að hafa látið myrða nán-
asta aðstoðarmann sinn. Segja
andstæðingar Carpios í röðum
skæruliða að hann hafi verið
uppfullur af sjálfum sér, stund-
að ótrúlegt sjálfsdekur og haft
furðulegar hugmyndir um eigið
mikilvægi. Á hinn bóginn var
mikill fjöldi skæruliða hliðhollir
Carpio og þeir hafa klofið sig frá
FPL-flokknum og stofnað eigin
hreyfingu undir nafni Carpios.
Öfriðleg mótmæli við
Greenham Common
(■reenham ('ommon, Knjjlandi,
12. desember. AP.
ALLT AÐ 30.000 manns söfnuð-
ust saman við Greenham Com-
mon-herstöðina á mánudaginn
og í gær, eftir að kvikmyndin
„The Day After“ var sýnd í
breska sjónvarpinu á laugardag-
inn. Ekki voru mótmælin frið-
samleg og fjöldi mótmælenda
reyndi að komast inn í herstöð-
Bandarísk skólabörn á eftir jafnöldrum sínum í öðrum helstu iðnríkjum heims:
Fimmtungur gat ekki bent
á heimalandið á hnattlíkani
Dallis, Texu, 12. desember. AP.
KÖNNUN, sem gerð var á 600
börnum í sjötta bekk grunnskóla í
átta löndum, hefur leitt í Ijós, aö
bandarísk börn standa nokkuð aö
baki jafnaldra sinna. Þau eru til að
mvnda talsvert lakari í reikningi
en jafnaldrar þeirra í öörum helstu
iðnríkjum heims. Reyndar tekur
þetta ekki einungis til reikningsins
því útkoman í eðlis- og landafræði
var síst skárri. Þegar heildarnið-
urstöður lágu fyrir kom í Ijós sú
staðreynd, aö bandarísk börn
höfnuðu í neðsta sæti.
Könnun þessi var gerð af fjór-
um þekktum frammámönnum
bandaríska skólakerfisins fvrir
dagblaðið Dallas Times Herald
og náði til barna í Kanada, Ástr-
alíu, Englandi, Frakklandi, Jap-
an, Svíþjóð og Sviss, auk Banda-
ríkjanna. Tveir skólar í Dallas
voru teknir með í reikninginn
sem fuiltrúar Bandaríkjanna.
Við könnun kom í ljós að ein-
kunnir barna þar voru mjög
nærri meðaltali yfir bandaríska
grunnskóla.
Að sögn eins fjórmenn-
inganna, sem framkvæmdu
könnunina, staðfesti útkoma
hennar verstu grunsemdir for-
ráðamanna bandaríska grunn-
skólakerfisins. í prófinu, sem
lagt var fyrir nemendurna, kom
t.d. í ljós, að japanskir jafnaldr-
ar þeirra bandarísku stóðu þeim
langtum framar í reikningslist-
inni. Einkunnirnar að meðaltali
helmingi hærri. Sænsku krakk-
arnir stóðu hins vegar öllum
framar í eðlisfræði. Þau banda-
rísku höfnuðu í 6. sæti. í landa-
fræði varð auðmýkingin alger:
fimmtungur bandarísku barn-
anna í öðrum skólanna í Dallas
gat ekki bent á heimaland sitt á
hnattlíkani.
„Þessar niðurstöður leiða
okkur í allan sannleika um að
ástandið í skólamálum hjá okkur
er engan veginn viðunandi,"
sagði T.H. Bell, menntamála-
ráðherra Bandaríkjanna, í við-
tali við AP-fréttastofuna. „Við
verðum að gera róttækar breyt-
ingar til þess að bæta námsár-
angur bandarískra barna."
ina. Rifu þeir girðinguna um-
hverfis hana niður á mörgum
stöðum og kom þá til átaka rnilli
mótmælenda og lögreglumanna.
Talsverð áflog voru í Green-
ham Common og tveir lögreglu-
menn hlutu talsverð sár, annar
á höfði en hinn rifbeinsbrotn-
aði, auk þess sem mótmælendur
börðu hesta lögreglumanna með
gaddavír. 66 voru handteknir.
Allt að 10.000 manns tóku þátt í
aðgerðum við bandarískar her-
stöðvar í Vestur-Þýskalandi og
á annað hundrað manns voru
handtekin þar eftir að til óláta
kom. Þá var einnig mótmælt í
Hollandi og þar brutu 100 mót-
mælendur sér leið inn í herstöð
þar sem meðaldrægum eld-
flaugum verður komið fyrir á
næstunni. Var þeir varpað út
aftur.
Sjónvarpskvikmyndin „The
Day After" var sýnd í Bretlandi
á laugardaginn, eins og áður
sagði. Talið er að 15 milljónir
hafi horft á myndina. Talsmað-
ur einn hjá Yorkshire-sjón-
varpsstöðinni sagði að svo virt-
ist sem myndin hafi ekki valdið
umtalsverðu fjaðrafoki og um
móðursýki væri ekki að ræða.
Kona ein í Skotlandi hringdi þó
í næstu sjónvarpsstöð og sagði
eiginmann sinn hafa verið kom-
inn á fremsta hlunn með að
svipta sig lífi meðan á sýningu
myndarinnar stóð.