Morgunblaðið - 13.12.1983, Blaðsíða 48
28 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1983
Stærsta tap Liverpool
í deildinni í sjö ár!
- Coventry var betra liðið og hefði átt að vinna stærra
TERRY Gibson, einn minnsti leik-
maöurinn í ensku knattspyrnunni
(165 sentimetrar), skoraöi þrennu
á laugardag er Coventry sökkti
meisturum Liverpool á Highfield
Road. Coventry sigraöi 4:0 í leikn-
um og leikurinn heföi þess vegna
getað endað 6:0. Leikmenn Liver-
pool voru langt frá sínu besta og
heimamenn léku mjög vel. Bruce
Grobbelaar varöi tvívegis frá-
bærlega vel frá frá Gibson og
Daly og bjargaöi Liverpool frá
enn stærra tapi.
Áhorfendur á Highfield Road
voru 20.586, og sáu þeir Liverpool
bíöa sinn stærsta ósigur í deildinni
í sjö ár. Liöið haföi leikið 15 leiki i
röö án taps en nú átti þaö aldrei
möguleika. Liöiö sem öll Evrópa
hræöist var eins og utandeildaliö
gegn Coventry.
Bankastarfsmaðurinn
skoraði fyrst
Nicky Platnauer skoraöi fyrsta
mark leiksins eftir aöeins 45 sek-
úndur, eftir mikil mistök Grobbel-
aar. Platnauer þessi var banka-
starfsmaöur ekki alls fyrir löngu.
Bobby Gould, núverandi stjóri
Coventry, keypti Platnauer frá
Bedford Town, þar sem hann lék
sem áhugamaöur, til Bristol Rov-
ers meðan Gould var þar viö
stjórnvölinn. Platnauer var síöan
einn þeirra 14 leikmanna sem
Gould keypti á Highfield Road í
haust.
Terry Gibson skoraöi sín mörk á
19., 44. og 84. mín. Síöasta markiö
var gullfallegt þrumuskot utan af
velli. Gibson er fyrsti leikmaöurinn
sem skorar þrennu gegn Lilverpool
síöan keith Weller geröi þaö árið
1972 — en hann lék með Leicester
sem kunnugt er. Mótlætiö fór í
taugarnar á leikmönnum Liverpool
og þeir fóru aö leika gróft. Phil
Neal, Graeme Souness og Mark
Lawrenson voru allir bókaöir fyrir
grófar taklingar. „Ég er mjög
hreykinn í dag. Strákarnir lögöu
sig alla fram og veröskulduöu sig-
urinn,“ sagði Bobby Gould eftir
leikinn. Joe Fagan, stjóri Liver-
pool, var ekki eins ánægöur:
„Þetta var gífurlegt áfall. Mér leiö
eins og veriö væri aö skjóta á mig
úr byssu,“ sagöi hann. „En þaö er
ekki hægt aö afsaka þetta. Cov-
entry átti þetta sannarlega skiliö.
Þeir voru á undan okkur allan tím-
ann.“
Tveir útaf á Upton Park
Dave Swindlehurst, West Ham,
og John Kay, varnarmaöur Arsen-
al, voru reknir af velli á Upton Park
er heimaliöið vann Arsenal 3:1.
Þaö gerðist á 35. mín. Kay taklaöi
Swindlehursl mjög gróflega aftan
frá og Dave likaöi þaö ekki alls-
kostar. Hann sneri sér viö, spark-
aöi í Kay og síðan slógust þeir eins
og hundur og köttur. Dómarinn var
ekki par hrifinn af þeim félögum og
sendi þá báöa í baö. Rétt áöur en
þetta geröist haföi Trevor Brook-
ing skoraö fyrsta mark leiksins
meö skalla.
„Þú verður rekinn ... “
í seinni hálfleiknum skoraöi svo
Chris Whyte í bæöi mörkin. Fyrst í
eigið mark, og Geoff Pike skoraði
þriöja mark West Ham. Undir lokin
skoraöi Whyte svo réttum megin
og lagaöi stöðuna örlítiö fyrir Ars-
enal. Maöur þessa leiks var Alan
Devonshire, sem hefur leikiö frá-
bærlega aö undanförnu. Varnar-
menn Arsenal réöu lítiö viö hann
þegar hann brunaöi upp kantana
og byggöi upp fyrir félaga sína.
Terry Neill er heldur betur oröinn
valtur í sessi hjá Arsenal og á
leiknum á laugardag sungu áhang-
endur beggja liöa: „Þú veröur rek-
inn, þú verður rekinn," en áhorf-
endur á leiknum voru 25.118.
Fyrsta mark Crooks
fyrir Man. Utd.
Garth Crooks skoraöi sitt fyrsta
mark fyrir Manchester United síö-
an hann var lánaöur til félagsins
frá Trottenham. Markiö geröi hann
á 55. mín. eftir mikil mistök í vörn
góöa sigur á Bayern Múnchen í
miöri viku og náöu sér ekki eins vel
á strik og undanfarið. „Við fórum
illa meö nokkur góö marktækif-eri,
en þegar upp var staöiö vorum viö
ánægöir meö jafntefliö, vegna
þess að Southampton fékk líka
góö færi,“ sagöi Keith Burkinshaw,
framkvæmdastjóri Tottenham, eft-
ir 0:0 jafnteflið. Steve Archibald fór
af velli í leiknum, meiddur. Alan
Brazil fékk bestu færin. Hann
skaut tvívegis beint á Peter Shilton
úr góöum færum. Áhorfendur voru
29.711.
Fáir áhorfendur
en nóg af mörkum
Leikmenn Notts County voru
markheppnir um helgina. Þeir
skoruöu sex sinnum hjá Sunder-
land en fengu aöeins á sig eitt
mark. Trevor Christie geröi fyrsta
markið en Paul Bracewell jafnaöi.
Nigel Worthington, lan McParland,
John Chiedozie (2) og Pedro Ric-
hards skoruöu svo fyrir Notts
County. Staðan var 3:1 í hálfleik.
Áhorfendur hafa ekki veriö færri á
1. deildarleik i vetur: 7.123.
ir undirbúning Nigel Callaghan.
Callaghan skoraöi svo þriöja
markið sjálfur á 36. mín. Staöan í
hálfleik var 3:1. Gary Birtles gerði
fyrra mark Forest á 16. mín og
skoraöi aftur eftir hlé. Harka færö-
ist í leikinn í seinni hálfleik og var
Reilly rekinn af velli. Áhorfendur:
14.047.
Paul Walsh, enski undir 21 árs
landsliðsmaðurinn snjalli, skoraði
þrjú mörk er Luton sigraði Stoke
4:2 á útivelli, og Ray Daniel geröi
fjóröa markiö. Robbie James skor-
aði bæöi mörk Stoke, annaö úr
• Trevor Brooking, enski landsliðsmaöurinn fyrrverandi, liggur á marklínunni hjá Arsenal eftir að hafa skorað fyrsta mark West
Ham gegn hinu Lundúnaliöinu á Upton Park á laugardaginn. Bakvörðurinn Hill, fyrir aftan Brooking, fékk engum vörnum viö
komið. Morgunblaöiö/Símamynd AP
Ipswich. Paul Cooper markvöröur
Ipswich haföi gert hræöileg mistök
á 11. mín. er leiddu til þess aö
Arthur Graham skoraði fyrra
markiö. Hann missti knöttinn eftir
aö hafa gripið hornspymu og Gra-
ham átti auövelt meö aö skalla i
netiö.
Áhorfendur á Portmand Road
voru 19.779. Bobby Ferguson,
stjóri Ipswich, var ekki ánægöur
með sína menn, og hann tók Paul
Mariner sérstaklega fyrir. „Hann
lagði sig ekki nógu vel fram. Þaö
er greinilega fariö aö hafa slæm
áhrif á hann aö hann skuli vera á
sölulista, en ég hef ekki fengiö nein
tilboö í Mariner," sagöi Ferguson,
sem sagöi aö svo gæti fariö aö
Ipswich lækkaöi upphæöina sem
þaö vildi fá fyrir hann. Félagiö hef-
ur sett upp 500.000 pund en ef
upphæöin veröur lækkuö gæti ver-
iö aö Manchester United heföi
áhuga á honum. Þaö kom fram í
einu ensku blaöanna á sunnudag.
Brazil loks meö
Alan Brazil lék sinn fyrsta leik
með Tottenham i tvo mánuöi á
laugardag, en hann náöi ekki aö
lífga upp á liðið. Leikmenn voru
greinlega þreyttir eftir hinn stór-
Staðan í
1. deild
Btrmingham — Norwich 0—1
Coventry — Liverpool 4—0
Everton — Aeton Villa 1—1
Ipewich — Man. Utd. 0—2
Leiceeter — Wolvee S—1
Nolte County — Sunderland 6—1
stoke City — Luton 2—4
Tottenham — Southampton 0—0
Wattord — Nott. Foreet 3—2
Weet Brom. — QPR 1—2
Weet Ham Utd. — Areenal 3—1
Liverpool 17 10 4 3 26:13 34
Wetl Ham 17 10 3 4 30:14 33
Man. Utd. 17 10 3 4 30:17 33
Coventry City 17 9 4 4 28:20 31
QPR 17 9 2 8 27:16 29
Tottenham 17 8 5 4 28:23 29
Norwich City 18 8 5 5 26:21 29
Luton Town 17 9 2 6 31:27 29
Southampton 17 8 4 5 18:13 28
Aaton Villa 17 8 4 5 25:26 28
Nott. Foreat 17 8 3 6 30:25 27
Weat Bromwich 17 7 2 8 21:25 23
Ipawich Town 17 6 4 7 27:22 22
Everton 17 6 4 7 11:18 22
Sunderland 17 6 4 7 18:26 22
Araenal 17 7 0 10 27:25 21
Birmingham 17 5 3 9 14:20 18
Notta County 17 5 2 10 24:28 17
Watford 17 4 4 9 28:32 16
Leiceater City 18 4 4 10 25:35 16
Stoke City 17 2 6 9 18:33 12
Wolvea 17 1 4 12 12:45 7
Smith meö þrennu
Alan Smith 21 árs framherji hjá
Leicester skoraði þrjú mörk gegn
Wolves. Leicester sigraði 5:1 og
Ulfarnir viröast alls ekkl eiga sér
viöreisnar von. Smith skoraði á
24., 35. og 43. mín. en Gary Linek-
er (21. mín.) og Steve Lynex (80.
mín.) gerðu hin mörkin. Wayne
Clarke skoraöi fyrir Úlfana á 32.
mín., sex mín. eftir að hafa brennt
af vítaspyrnu.
Gary Owen brenndi einnig af
vítaspyrnu í leik WBA og QPR.
Rangers sigraöi 2:1 á The Haw-
thorns eftir aö hafa haft 1:0 yfir í
hléinu. Terry Fenwick skoraöi meö
glæsilegu skoti beint úr auka-
spyrnu af 30 metra færi skömmu
eftir aö Owen haföi brennt af vítinu
og Simon Stainrod skoraöi annaö
markiö á 60. min. Tony Morley
skoraöi mark Albion en hann kom
til félagsins í síöustu viku frá Aston
Villa. Áhorfendur voru 11.717.
Enn skorar Johnston
Skotinn Maurice Johnston skor-
ar enn fyrir Watford. Hann geröi
fyrsta mark liðsins í heimasigrinum
á Forest, og George Reilly geröi
annaö markiö. Bæöi komu þau eft-
vítaspyrnu. Áhorfendur voru
10.329.
Everton sótti mun meira gegn Ast-
on Villa en Paul Rideout náöi engu
aö síöur forystunni fyrir gestina á
60 mín. er hann skoraði meö
skalla. Kevin Sheedy brenndi af
vítaspyrnu fyrir Everton á 80. mín.
en á síðustu mín. bjargaöi Andy
Gray stigi fyrir Everton er hann
skoraöi sitt fyrsta mark fyrir liöiö
síöan hann kom frá Wolves. Áhorf-
endur voru 15.810. Nigel Spink
markvörður Villa forfallaöist á síö-
ustu stundu fyrir leikinn og i marki
liðsins stóö Mervin Day, sá hinn
sami og geröi garöinn frægan hjá
West Ham fyrir nokkrum árum.
Vinstri bakvöröurinn Greg
Downs skoraöi eina mark leiks
Birmingham og Norwich á 16. mín-
útu og tryggöi Norwich bæöi stig-
in. Liöiö hefur leikiö mjög vel und-
anfarið og er í sjöunda sæti. Áhorf-
endur hafa ekki veröi færri í Birm-
ingham í vetur: 9.971.
í 2. deild sigraöi Sheffield Man.
City í toppuppgjörinu á Maine
Road í Manchester og stendur
mjög vel aö vígi. Newcastle sigraöi
Huddersfield örugglega 5:2 og
skoraöi Kevin Keegan eitt mark-
anna. — SH