Morgunblaðið - 13.12.1983, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1983
39
bærar þjóðlífslýsingar og hann
komst svo nærri veruleikanum í
sagnagerð sinni að sveitungar
hans í suðrinu hafa ekki fyrirgefið
honum enn. Margar sögtupersónur
hans eru hugstæðar, en þó engin
meir en heimspekingurinn Ty Ty.
Frægð og auður hefur ekki sett
mark á Erskine Caldwell. Lífs-
venjur hans og skoðanir eru
sprottnar uppúr fátækt uppvaxt-
aráranna í Georgíu. Hann er
greindur maður, Caldwell, fullur
af heilbrigðri skynsemi, stilltur í
skapi og þesslegur að hann má
ekki vamm sitt vita. En hann get-
ur verið harður á meiningunni,
svo sem lífshlaup hans sýnir: það
fær honum ekkert haggað ef hann
bítur eitthvað í sig og þrjóska
hans við að gerast rithöfundur
jaðraði við sjálfspíslir.
Fjórða eiginkona Caldwells,
Virginia, býr manni sínum gott
heimili í Scottsdale, Arizona.
Þrátt fyrir nokkurn aldursmun er
mjög kært með þeim hjónum.
Virginía er, eins og maður hennar,
mjög yfirlætislaus og hlý í við-
móti. Hún er listhneigð og málar
myndir á meðan karl hennar
skrifar bækur.
Virginíu hugkvæmdist að gefa
manni sínum sérstæða afmælis-
gjöf. Hún tók sig til í sumar og
skrifaði öllum vinum og kunningj-
um Caldwells í gegnum tfðina og
bað þá senda sér nokkur persónu-
leg orð um vinskap þeirra við rit-
höfundinn. Þessu safnaði hún síð-
an í mikla bók sem hún skreytti
sjálf og þar með var komin merki-
leg afmælisgjöf. Hafði hún mikla
leynd á þessu sýsli: leigði sér m.a.
sérstakt pósthólf í pósthúsinu í
Scottsdale, svo sá gamli hefði ekki
pata af þessu.
Ég var svo lánsamur að fá að
kynnast Erskine dálítið og hans
góðu konu — og þessar fáu línur
eru aðeins til að sýna lit á þakk-
iæti mfnu fyrir öll elskulegheit
þeirra hjóna í minn garð.
Jakob F. Asgeirsson
Ný barna-
bók eftir
Guðrúnu
Helgadóttur
IÐUNN hefur gefið út nýja
sögu eftir Cuðrúnu Helga-
dóttur. Nefnist hún Sitji guðs
englar. Myndir gerði Sigrún
Eldjárn.
Saga þessi gerist í kaupstað.
Heiða er sjómannsdóttir og
systkini hennar mörg. Pabbi er
lengstum á sjónum, en heima
hjá mömmu og börnunum búa
afi og amma og setja sinn svip á
heimilisbraginn. Það gengur á
mörgu á stóru heimili, ýmis
skemmtileg atvik gerast en
sorgin gleymir ekki fólkinu í
þessum kaupstað enda umheim-
urinn allt annað en vinsamlegur
á þeirri tíð, segir í bókarkynn-
ingu.
Bækur Guðrúnar Helgadóttur
hafa notið óvenjulegra vinsælda
bæði barna og fullorðinna. Þar
er að telja þrjár bækur um Jón
Odd og Jón Bjarna, rúl Vil-
hjálmsson, í afahúsi og leikritið
Óvita. Þá hefur bók Guðrúnar
með myndum Brian Pilkingtons,
Ástarsaga úr fjöllunum, farið
víða og komið út á nokkrum er-
lendum málum.
Sitji guðs cnglar er 108 blaðsíð-
ur. Oddi prentaði.
Áttræður í dag:
Erskine Caldwell
Afmæliskveðja:
Arnbjörn Stefáns-
son, Dalvík
PEUGEOT 505 GR fyrir aðeins kr. 420.000
Innifalið í verði: Vökvastýri 5 gíra kassi Læst mismunadrif (sjálfvirkt)
6 ára ryðvarnarábyrgð
Tökum notaða bíla í góðu asigkomulagi upp í nýjan bíl.
® Það er engin tilviljun að Peugeoteigendur eru ánægðir eigendur!
i HAFRAFELL
? VAGNHÖFÐA 7 — SÍMI 85211
Bandaríski rithöfundurinn
Erskine Caldwell er áttræður í
dag. Hann er ern vel og lætur eng-
an bilbug á sér finna. í bréfi frá
17da nóvember kveðst hann ný-
kominn úr mikilli Frakklands-
reisu, þar sem hann sat rithöfun-
daþing og þáði margvíslegan heið-
ur úr hendi þarlendra. Menningar-
málaráðherrann hengdi á karlinn
orður í bak og fyrir og kona hans
segir að þetta hafi verið „dásam-
leg“ stund.
Erskine var ekki fyrr kominn
heim úr þessari reisu en hann
lagðist sjálfviljugur undir skurð-
arhnífinn: hann hefur frá barn-
æsku verið blindur á hægra auga
og þar eð læknavísindunum hefur
fleygt fram, fannst honum upp-
lagt að ganga úr skugga um hvort
læknar nútímans gætu ekki fært
honum sjónina aftur í afmælis-
gjöf. Eftir þrjá daga skynjaði
hann birtu og uppúr miðjum nóv-
ember las karl eins og ekkert væri
þrjár efstu línurnar á spjaldi
augnlæknisins!
Erskine Caldwell er einn af
metsöluhöfundum heimsins: bæk-
ur hans hafa selst í meir en 80
milljónum eintaka í 40 þjóðlönd-
um. Frægustu bækur hans eru vel-
þekktar hérlendis: Dagslátta
Drottins hefur komið út í tveimur
útgáfum og leikgerðin af Tobacco
Road var sýnd fyrir fullu húsi í
Iðnó á sínum tíma. Caldwell er
umfram allt sögumaður í bóka-
gerð sinni. Hann segir liðlega frá,
texti hans er mjög einfaldur og
hann hefur næmt auga fyrir hinu
skoplega í dapurlegri veröld amer-
iska suðursins: fátæktarbasli
hvíta bændafólksins og örbirgð
blakkra. Gagnrýnendur bera Cald-
well stundum saman við Faulkner,
en það er ekki réttlátur saman-
burður; þeir eru svo ólíkir höfund-
ar og skiptir ekki máli þó báðir
segi sögur úr fátækt suðursins.
Raunar er ekki réttlátt að bera
neinn 20stu aldar höfund saman
við Faulkner, en það er nú önnur
saga. Caldwell verður jafnan tal-
inn einn merkilegasti höfundur
Bandaríkjanna á 4ða og 5ta tug
aldarinnar. Bækur hans eru frá-
Sunnudaginn 4. des. varð Arn-
björn Stefánsson verkamaður átt-
ræður. Hann býr nú í Dalbæ, dval-
arheimili aldraðra á Dalvík.
Arnbjörn er fæddur að Jarðbrú
í Svarfaðardal árið 1903, sonur
hjónanna Jónínu Arnbjörnsdóttur
og Stefáns Tryggva Jónssonar
bónda þar. Hann ólst upp með for-
eldrum sínum en árið 1932 flutti
hann til Dalvíkur þar sem hann
hefur búið síðan. Eins og títt var
um fólk á þeim árum var skóla-
ganga stutt og byrjaði Arnbjörn
snemma að vinna og vann hann
ýmis störf, sérstaklega er lutu að
landbúnaði. Sjómennska var hon-
um ekki hugstæð þrátt fyrir það
að faðir hans hafi um tíma verið
vélbátaformaður á Dalvík.
Um allnokkurt skeið var Arn-
björn vinnumaður á Sauðanesi hjá
Jóni Jóhannessyni og hafði þá
gjarnan búsforráð er Jón gekk til
sjóróðra. Á þessum árum kynntist
hann ólafsfjarðarmúla allnáið því
Sauðanes var ysta byggða býlið á
Upsaströnd á þessum árum. Má
segja að hann sé manna kunnug-
astur örnefnum í Ólafsfjarðar-
múla Dalvíkurmegin. Á þessu
svæði var Arnbjörn gangnaforingi
um áratuga skeið. Aður en vegur
var lagður fyrir Múlann var ekki
heiglum hent að smala þar og léku
það fáir eftir Arnbirni að hlaupa
Flagið, smala stykkið að Ófærugjá
og þræða bjargbrúnina til baka
ofan Hálfdánarhurðar. Hann var
alla tíð með sauðfé og átti að jafn-
aði úrvals kindur enda mikill fjár-
ræktarmaður.
Auk þessa á Arnbjörn Stefáns-
son langan starfsferil við að þjón-
usta bæjarbúa. Þegar holræsa- og
vatnsveitukerfi var lagt á Dalvík
vann Arnbjörn við það undir
stjórn bróður síns, Jóns E. Stef-
ánssonar byggingameistara, og sá
hann um tíma um eftirlit og við-
hald sem oft var erfitt og kalsamt
starf, einkum á vetrum og í kulda-
tíð. Þá höfðu hvorki lög um holl-
ustuhætti á vinnustöðum né
ákvæði um 4 tíma fyrir hvert út-
kall tekið gildi, hvað þá 10 tíma
lágmarkshvíld.
Þann 22. mars 1932 kvæntist
Arnbjörn Emilíu Laufeyju Jóns-
dóttur. Þeim varð fjögurra barna
auðið en auk þess átti hvort um
sig barn fyrir hjónaband.
Arnbjörn hefur alla tíð verið
heilsuhraustur og á þessum tíma-
mótum er hann vel ern og sem
ávallt fyrr einkar viðræðugóður.
Fréttaritarar.