Morgunblaðið - 13.12.1983, Síða 40
Maybelline
Mest seldu snyrtivörur
í Ameríku.
Fleiri orö eru óþort.
Pétur Pétursson, heildvsrzlun,
Suðurgötu 14,
simar 21020 — 25101.
ttgtmÞlafrife
HOUJWOOD
Opiö
•II KVÖId
ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1983
VERÐ I LAUSASOLU 20 KR.
Fálkinn í öruggum höndum Ævars Petersen fuglafræðings.
Fótbrotinn leitaði skjóls
HANN var hrakinn og illa til reika, fálkinn sem fannst á svölum íbúðar-
húss við Kskihlíð á níunda tímanum í gærkvöldi. Hafði leitað skjóls undan
vetrarhörkunni og miskunnarlausum bylnum og bar sig aumlega. íbúarnir
hringdu á lögregluna, sem kom fálkanum í öruggar hendur Ævars Peter-
sen, fuglafræðings.
„Hann hefur greinilega flogið á eitthvað — línu eða jafnvel hús,“ sagði
Ævar í samtali við Mbl í gærkvöldi. „Pað blæðir úr gogginum og svo er
hann illa fótbrotinn. I>etta er fugl á besta aldri — vængirnir heilir, þannig
að vonandi tekst að græða sár hans,“ bætti Ævar Petersen við.
ísbjörninn segir
upp 230 manns
Staðan orðin glórulaus og því ekki haldið áfram
lengur, segir Jón Ingvarsson, framkvæmdastjóri
ISBJÖRNINN hf. í Reykjavík hefur
nú sagt upp nær öllu starfsfólki sínu,
alls um 230 manns. Er þar um að
ræða starfsfólk fiskvinnslu ísbjarn-
arins og áhafnir á togurum fyrirtæk-
isins. Taka uppsagnirnar gildi
næstkomandi föstudag, en þá lýkur
vinnu í frystihúsinu. Tveir togara
fyrirtækisins, Ásgeir og Ásþór, eru
þegar stopp og sá þriðji, Ásbjöm,
stöðvast í þessari viku, þegar hann
kemur inn. Að sögn Jóns Ingvars-
Breytingartillögur fjárveitinganefndar:
Fjárlagafrumvarpið
hækkar innan við 1%
SAMKV/EMT breytingatillögum frá
fjárveitinganefnd Alþingis, sem
lagðar voru fram í gær, hækkar
frumvarp til fjárlaga fyrir næsta ár
um 166 milljónir króna, en það er
innan við 1% hækkun á frumvarp-
inu.
Eru í breytingatillögunum, sem
eru frá fjárveitinganefnd allri,
nokkrir nýir liðir sem fé er veitta
til í fyrsta sinni. Má þar sem
dæmi nefna fjárveitingu til ís-
lensku hljómsveitarinnar, liðar
sem er til kominn vegna þátttöku í
framkvæmdastjórn UNESCO og
Ólympíunefndar fatlaðra.
Sjá nánar á bls. 31.
íslenskar getraunir:
Hæsti vinningur
sem greiddur
hefur verið út
í 16. leikviku Cetrauna kom
fram einn seðill með 12 réttum
og var vinningur fyrir röðina kr.
483.775,-, en 37 raðir reyndust
með 11 réttum og var vinningur
fyrir hverja röð kr. 5.603,-.
Seðillinn með 12 réttum er í
eigu tveggja bræðra í Reykja-
vík og voru þeir með 36 raða
kerfisseðil, sem þá verður einn-
ig með 11 rétta í 6 röðum og
heildarvinningur fyrir seðilinn
því kr. 513.393,-, sem er hæsti
vinningur, sem greiddur hefur
verið út hjá Getraunum.
Sjá nánar á íþróttasíðu.
sonar, framkvæmdastjóra ísbjarnar-
ins, stafar þetta fyrst og fremst af
aflaleysi og taprekstri útgerðarinnar
í kjölfarið.
Jón Ingvarsson sagði ennfrem-
ur, að vegna afla- og gæftaleysins
að undanförnu hefði lítill afli bor-
izt á land. Staðan væri orðin það
glórulaus, að ekki væri lengur
hægt að halda þessu áfram, en
vonandi væri hægt að fara af stað
aftur strax eftir áramótin. Rekst-
ur togaranna þriggja væri nánast
vonlaus undir þessum kringum-
stæðum og hefðu þeir að undan-
förnu varla fiskað fyrir olíu og þá
væri allur annar kostnaður eftir.
Útgerðin hefði því verið rekin með
bullandi tapi. Rekstrarskilyrði út-
gerðarinnar yrði að leiðrétta.
Þessari útgerð yrði alls ekki haid-
ið áfram við núverandi aðstæður,
það væri nánast útilokað. Fram-
tíóin væri því ekki glæsileg, sér-
staklega, þegar litlar horfur virt-
ust vera á aflaaukningu.
Jón sagði einnig, að uppsagnir
sem þessar væru átakanlegar í
jólamánuðinum, en þess bæri líka
að geta að talsverður hluti starfs-
fólksins, einkum konurnar, tækju
sér frí frá vinnu, þegar færi að
líða á desember vegna undirbún-
ings jólanna.
Samkvæmt upplýsingum ósk-
ars Hallgrímssonar hjá félags-
málaráðuneytinu hefur verið
venju fremur mikið um það, að
forráðamenn fyrirtækja, einkum í
sjávarútvegi, spyrðust fyrir um
það, hvernig bæri að haga sér
hvað varðaði fjöldauppsagnir.
Hins vegar hefðu ráðuneytinu
ekki borizt frekari tilkynningar
um uppsagnir, en þegar hefur ver-
ið sagt frá.
Nýir aðilar taka við rekstri Þyrils:
Skipið áfram í
lýsisflutningum
FLUTNINGASKIPIÐ Þyrill,
sem kyrrsett var í höfninni í
Kristiansund í Noregi í tæpan
Verðlækkun refaskinna
á norrænu uppboðunum
VERÐLÆKKUN hefur orðið á refa-
skinnum á fyrstu uppboðum á fram-
leiðslu þessa árs sem verið hafa í
norrænu uppboðshúsunum síðustu
daga. Verðlækkunin er allt að 18% á
blárefaskinnum miðað við desem-
beruppboð í fyrra, en verðið er þó
lítið lægra en meðalverð síðasta
sölutímabils. Salan á uppboðunum
hefur verið ailgóð.
Á uppboði í danska uppboðshús-
inu í Giostrup í gær, þar sem ís-
lensku refaskinnin voru boðin til
sölu, seldust blárefaskinn fyrir um
900 krónur íslenskar að meðaltali
sem er rúm 18% verðlækkun frá
desemberuppboði í fyrra. Á nýleg-
um uppboðum í Helsingfors og
Ósló seldust finnsk og norsk blá-
refaskinn fyrir 1.068 til 1.156 ís-
lenskar krónur að meðaltali og er
það yfirleitt um 6—7% verðlækk-
un frá desemberuppboðum í fyrra.
f Danmörku seldust um 89%
þeirra 30 þúsund blárefaskinna
sem boðin voru upp, í Noregi seld-
ust 66% þeirra 32 þúsund norsku
blárefaskinna sem boðin voru upp
og 76% þeirra finnsku blárefa-
skinna sem þar voru boðin upp og
á uppboðinu í Finnlandi seldust
Þessi blárefsyrðlingur er sá þyngsti sem vitað er um í heiminum, en hann vó
fyrir skömmu 14,3 kg. Fyrra þyngdarmetið var 13,2 kg. Blárefurinn er í
refabúi llalldórs Guðnasonar á Efra-Seli í Hrunamannahreppi. Refurinn
fæddist 24. maí og verður að sjálfsögðu notaður til undaneldis. Við hlið
Halldórs er Daníel sonur hans.
73% blárefaskinnanna sem boðin
voru upp þar. Þessi verð eru held-
ur lægri en meðalverðin á öllu síð-
asta sölutímabili, en hafa ber í
huga að yfirleitt eru það betri
skinnin sem seld eru. nú vegna
þess að undirsortirnar svokölluðu
eru yfirleitt seldar síðast. Einnig
Ljósm. Sig.Sigm.
ber að hafa í huga að þau skinn
sem á þessi uppboð fóru eru ekki
nema hluti þeirra skinna sem seld
verða í vetur og getur meðalverðið
breyst mikið á aðaluppboðunum
sem verða í byrjun næsta árs.
Svipaðar verðbreytingar urðu á
shadow-refaskinnunum á uppboð-
unum og á blárefaskinnunum. I
Glostrup seldust þau að meðaltali
á 1.243 krónur íslenskar sem er
um 15% verðlækkun frá fyrra ári,
en 99% framboðinna skinna seld-
ust. Á uppboðinu í Ósló seldust
norsku shadow-skinnin á 1.500
krónur íslenskar sem er um 8%
lægra verð en var á desember-
uppboðunum í fyrra. Athyglisverð
verðbreyting varð á silfurrefa-
skinnunum á Ósló-uppboðinu.
Seldust öll þau silfurrefaskinn
sem á uppboðið fóru fyrir um 35%
hærra verð en fékkst að meðaltali
í fyrra, eða 5.700 krónur íslenskar.
Sú verðþróun ætti því að hvetja
íslenska loðdýraræktendur til að
huga meira að þeirri tegund, en
eins og sagt hefur verið frá hér í
blaðinu verða fyrstu silfurrefirnir
fluttir hingað til lands síðar í
mánuðinum.
Sú verðþróun sem fram kemur í
þessum uppboðum kemur frekar á
óvart því fram til þessa hefur ver-
ið talið líklegt að skinnaverðið
hækkaði frekar er. lækkaði, en þó
er ekki útséð um að það verði þeg-
ar upp verður staðið eftir
sölutímabilið.
mánuð, var leyst út á Tóstudag-
inn og var væntaniegt til Aust-
fjarða í gærkvöldi. Nýir aðilar
munu taka að sér rekstur skips-
ins, Gunnar Guðjónsson sf.,
skipamiðlarar. Til stendur að
ganga frá samningum í dag.
Að sögn Magnúsar Ármann
hjá Gunnari Guðjónssyni sf.
er hugmyndin sú að fyrirtækið
annist útgerð Þyrils næstu sex
mánuðina a.m.k. „Við sjáum
svo til um framhaldið," sagði
Magnús, „en það er ætlun eig-
andans, Sigurðar Markússon-
ar hjá Olíuskip hf., að selja
skipið.
Þyrill verður áfram í lýsis-
flutningum, en fyrsta ferð
þess hefur ekki verið ákveðin
enn. „Það verður þó sett á
fulla ferð eftir áramótin,"
sagði Magnús.