Morgunblaðið - 28.01.1984, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JANÚAR 1984
Verkalýðsfélögin í álverinu í Straumsvík:
Sennilega talið sig
geta náð Betri árangri
með mig fjarverandi
— segir Ragnar S. Halldórsson, forstjóri ÍSAL
„ÞAÐ VORU verkalýðsfélögin
sem lýstu þessu verkfalli yfir og
þeim var fullkunnugt um það að ég
ætlaði ekki að vera á landinu á
þessum tíma, svo þeir hafa ekki
óskað eftir því að ég stjórnaði
þessu, þó ég hafi samband við
mína menn daglega í gegnum
síma,“ sagði Ragnar S. Halldórs-
son, forstjóri ÍSAL, í samtali viö
Mbl., en Ragnar var spurður álits
á þeirri gagnrýni sem fram hefur
komið að hann væri erlendis á
meðan kjaradeila og síðan verkfall
væri í álverinu.
„Verkalýðsfélögin hafa senni-
lega talið sig getað náð betri ár-
angri með því að vita mig fjar-
verandi og við því er ekkert að
segja, það er þeirra ákvörðun,"
sagði Ragnar.
Varðandi verkfallið sem nú er
hafið, sagði Ragnar: „Það fer að
verða árlegur viðburður að verk-
Ragnar Halldórsson
fall er gert hjá fSAL, þar var
síðast verkfall í nóvember 1982
og nú rúmu ári seinna eru þeir
aftur komnir í verkfall. Þetta er
eitthvað sem er að verða kækur
hjá þeim, að því er virðist. Ég
hlýt að vona að úr deilunni leys-
ist fljótlega," sagði Ragnar.
Ragnar var spurður að því,
hvort til greina kæmi að leggja
verkbann á þá starfsmenn ÍSAL
sem ekki taka þátt í verkfallinu,
en það eru félagsmenn í Verzlun-
armannafélagi Hafnarfjarðar og
nokkrir matsveinar, og sagði
Ragnar að svo gæti farið. „Það
verður sjálfsagt óhjákvæmilegt
ef verksmiðjan verður að loka
fyrir fullt og fast, vegna aðgerða
þessara manna, en það þarf ekki
að gera það í fyrstu atrennu,"
sagði Ragnar, og bætti því við að
hann ætti ekki von á að slíkt
kæmi til fyrr en að því kæmi að
ekki væri hægt að reka verk-
smiðjuna lengur, vegna aðgerða
annarra starfsmanna.
Örn Friðriksson, aðaltrúnaðarmaður í Straumsvík:
Sérákvæði falla úr gndi
ef ÍSAL gengur í FÍI
„Við vorum í samningaviðræð-
um í alla nótt við stjórnendur ÍSAL
og við vissum ekki betur en þetta
væru menn sem hefðu fullt samn-
ingsumboð. Þeir vissu heldur ekki
annað, en að þeir væru með fullt
umboð til að semja, þannig að
þetta kom í sjálfu sér báðum
samningsaðilum jafn mikið á
óvart,“ sagði Örn Friðriksson,
aðaltrúnaðarmaöur starfsmanna
ÍSAL.
„Við óskuðum eftir því í upp-
hafi fundar i dag að fá skýra og
greinilega bókun um það, hverjir
það væru sem hefðu samnings-
umboð og myndu hafa samn-
ingatímabilið, ef samningar
næðust, og það kom í ljós að það
voru þeir menn sem við höfum
verið að ræða við,“ sagði Örn.
— Þið lítið þá svo á að ÍSAL
muni ekki æskja inngöngu í Fé-
lag íslenskra iðnrekenda?
„Um það getum við auðvitað
ekkert fullyrt, en ef af því verður
höfum við jafnframt tilkynnt
um það, að þá hljóti ÍSAL að
ganga undir sömu leikreglur
varðandi vinnustöðvanir og ann-
Örn Friðriksson
ar atvinnurekstur í landinu,
þ.e.a.s. þá munu falla í burtu að
okkar mati allar undanþágar
sem fyrirtækið hefur haft til
þess að koma í veg fyrir tjón á
framleiðslutækjum ogjafnframt
þeir fyrirvarar sem fjalla um
samúðarvinnustöðvanir, og þá
yrði farið með þessi mál á sama
hátt og gerist á almennum
vinnumarkaði.
Þau afskipti sem iðnaðarráð-
herra hefur haft af þessum máli
hafa komið báðum samningsað-
ilum mjög á óvart. Það er alveg
ljóst mál að hann hefur ekki
kynnt sér stöðuna í samninga-
viðræðum hjá hvorugri samn-
inganefndanna né hjá ríkissátta-
semjara. Mér sýnist því að þessi
afskipti hans af málinu séu fyrst
og fremst komin til vegna van-
þekkingar," sagði Örn.
Örn sagði að samninganefnd-
irnar ætluðu að hittast aftur á
sunnudag, en ekkert væri víst
um niðurstöðu. „Ég er ansi
hræddur um að öll þessi afskipti
leiði til þess að það verði erfið-
ara að finna lausn, og ég veit
fyrir víst að starfsmenn ÍSAL
verða ákveðnari í því að láta
ekki kúga sig eða buga vegna
þeirra hótana sem hafðar hafa
verið uppi. Það eiga að heita hér
frjálsir samningar, og ef menn
virða ekki þann rétt eru þeir að
stefna ýmsu í óefni," sagði örn
Friðriksson að lokum.
r ár
Miðstjórn ASI vegna samþykktar ríkisstjórnarinnar varðandi ISAL:
Fordæmir íhlutun í
löglega vinnudeilu
Á FUNDI miðstjórnar Alþýðu-
sambands íslands í gær var eftir-
farandi ályktun samþykkt ein-
róma, vegna samþykkta ríkis-
stjórnarinnar um að falla frá skil-
yrðum um að ÍSAL standi utan
samtaka atvinnurekenda.
„Ríkisstjórnin hefur nú tekið
frumkvæði til þess að færa Ál-
verið og verksmiðjur ríkisins yf-
ir í Vinnuveitendasamband ís-
lands.
ÍSAL yrði meðal stærstu og
áhrifamestu aðila Vinnu-
veitendasambandsins. Það hefur
hingað til verið almenn sam-
staða um að erlendir aðilar skuli
ekki fá lykilítök í íslenskum
samtökum. Miðstjórn Alþýðu-
sambands íslands mótmælir þvf
að ríkisstjórnin skuli nú brjóta
þá grundvallarreglu og fordæm-
ir harðlega þessa beinu íhlutun í
löglega vinnudeilu. Þessi
ákvörðun getur haft óheppilegar
og afdrifaríkar afleiðingar og
torveldar lausn í deilunni.
Þessi ákvörðun gengur í ber-
högg við þá margyfirlýstu stefnu
ríkisstjórnarinnar að hún muni
ekki hafa afskipti af samnings-
gerð á vinnumarkaði. Fyrsta
tækifæri er notað til þess að
þrengja stöðu verkalýðshreyf-
ingarinnar og ákveðið að efla
Vinnuveitendasamband íslands
ekki aðeins með aðild hinna er-
lendu eigenda ÍSALs heldur
vekja atfylgi allra verksmiðja
ríkisins. Með þessu er ríkis-
stjórnin að framselja samn-
ingsrétt sinn vegna eigin fyrir-
tækja í hendur VSf. Með þessum
vinnubrögðum hefur ríkisstjórn-
in afdráttarlaust haslað sér völl
atvinnurekendamegin f sam-
skiptum aðila vinnumarkaðar-
ins. Þannig bregst ríkisstjórnin
þeirri frumskyldu að stuðla að
lausn vinnudeilna.
Miðstjórn mótmælir þessari
háskalegu aðför að launafólki i
landinu."
Þorsteinn Pálsson
Friðrik Sophusson
Sjálfstæðisflokkurinn:
Fundir með for-
manni og vara-
formanni í öll-
um kjördæmum
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN efnir til níu almennra stjórnmálafunda i
öllum kjördæmum landsins á næstu vikum, en á fundum þessum munu
Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, og Friðrik Sophusson,
varaformaður flokksins flytja ávörp. Munu þeir gera grein fyrir
stjórnmálaviðhorfinu, störfum og stefnu Sjálfstæðisflokksins, samkvæmt
upplýsingum sem Mbl. fékk hjá Kjartani Gunnarssyni, framkvæmdastjóra
Sjálfstæðisflokksins.
Auk þeirra Þorsteins og Frið-
riks munu átta sjálfstæðiskonur
taka þátt i fundum þessum og
mun ein flytja ávarp á hverjum
fundi. Konurnar eru: Katrín
Fjeldsted læknir, Halldóra Rafnar
kennari, Sólrún Jensdóttir aðstoð-
armaður menntamálaráðherra,
Erna Hauksdóttir viðskiptafræði-
nemi, Sigríður Þórðardóttir kenn-
ari, Bessí Jóhannsdóttir sagn-
fræðingur, Esther Guðmundsdótt-
ir þjóðfélagsfræðingur og Salóme
Þorkelsdóttir alþingismaður.
Fundur sem haldinn verður á
Akureyri 11. febrúar verður með
öðrum hætti, en þar verður for-
maður flokksins einn framsögu-
maður, en auk hans munu á fund-
inum ráðherrar Sjálfstæðisflokks-
ins sitja fyrir svörum. Ástæða
þess er sú að þá helgi heldur þing-
flokkur Sjálfstæðisflokksins fund
á Akureyri.
Samhliða almennum stjórn-
málafundum munu formaður og
varaformaður Sjálfstæðisflokks-
ins hitta trúnaðarmenn flokksins
og halda sérstaka fundi með þeim.
Fundirnir verða á tímabilinu frá
29. janúar til 11. mars.
Þorsteinn Pálsson um Treholt-njósnamálið:
Sósíalistar á ís-
landi blygðast sín
fyrir afhjúpunina
„Ég HEFÐI nú hlíft Svavari við þessari spurningu," sagði Þorsteinn Pálsson
á kappræðufundi í Hafnarfjarðarbíói er hann svaraði hver væri afstaða hans
til athæfis Norðmannsins Árne Treholt, sem uppvís hefur orðið að stórfelld-
um njósnum fyrir Rússa. Áður hafði Svavar Gestsson svarað því hvort honum
væri kunnugt um að einhverjir íslendingar hefðu átt samstarf við Treholt.
„Það hefur verið upplýst að
þessi maður hafði samstarf við ís-
lenzka aðila. Hann reyndi að hafa
áhrif á íslenzk stjórnmál þegar
vinstri stjórnin á sínum tíma
reyndi að koma varnarliðinu úr
landi og rjúfa varnarsamstarf
okkar við Bandaríkin. Og við ger-
um okkur alveg grein fyrir því að
margt af því sem er að gerast í
alþjóðamálum um þessar mundir
á einmitt rætur að rekja til út-
sendara af þessu tagi, sem koma
inn hugmyndum Andropovs og
KGB hjá aðilum í stjórnmálum á
Vesturlöndum, og reyna með þeim
hætti að grafa undan lýðræðis-
skipulaginu. Ég skil ósköp vel að
íslenzkir sósíalistar blygðist sín
þegar þessi afhjúpun á sér stað,“
sagði Þorsteinn.
„Ég veit ekki til þess að menn
hafi átt samstarf við Arne Tre-
holt, ég þekki það alla vega ekki.
Það var viðtal við krata í Moggan-
um í dag. Það eru kannski til krat-
ar ennþá í Hafnarfirði og mætti
kannski spyrja þá, en ég veit ekki
um rnálið," sagði Svavar Gestsson
I sínu svari.
„Athæfið sem slíkt er auðvitað
fordæmanlegt og hvers konar
þjónkun við aðrar þjóðir og stór-
veldi er auðvitað hneyksli og ber
að meðhöndla sem slíkt. Á undan-
förnum árum höfum við bent á að
þjónustusemi við bandaríska
hernámsliðið hafi gengið ákaflega
langt hjá ýmsum aðilum, svo ekki
sé fastar að orði kveðið. Og við
verðum að gjalda sérstakan var-
hug við útsendurum af því tagi
sem Arne Treholt er, en við skul-
um ekki breyta íslenzka þjóðfélag-
inu í McCharthy-isma þjóðfélag,
eins og mér sýnist sum blöð vera
að ýta undir þessa dagana með
næsta óhugnanlegum hætti, þar
sem reynt er að gera hvern ein-
asta mann tortryggilegan fyrir
það eitt að hafa aðrar skoðanir á
þjóðfélagsmálum heldur en Morg-
unblaðið hefur. En þeir eru sem
betur fer margir sem hafa aðrar
skoðanir en Mogginn á ýmsum
málum," sagði Svavar.