Morgunblaðið - 28.01.1984, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JANÚAR 1984
Peninga-
markaðurinn
GENGISSKRÁNING
NR. 17 — 25. JANÚAR
1984
Kr. Kr. Toll-
Eio. Kl. 09.15 Kaup Sala gengi
1 Dollar 29360 29,640 28,810
1 SLpund 41,406 41,518 41,328
1 Kan. dollar 23,668 23,732 23,155
1 Dönsk kr. 23898 23976 23926
1 Norsk kr. 3,7478 3,7580 3,7133
1 Ssnsk kr. 3,6161 3,6259 3,5749
1 FL mark 4,9647 4,9782 4,9197
1 Fr. franki 3,4249 3,4341 3,4236
1 Belg. franki 0,5131 0,5145 03138
1 SY franki 13,1694 13,2050 13,1673
1 Holl. gyllini 9,3088 9,3340 93191
1 V-þ. mark 10,4721 10,5004 10,4754
1 ft líra 0,01724 0,01729 0,01725
1 Austurr. sch. 1,4858 1,4898 1,4862
1 Port. escudo 03172 0,2177 0,2172
1 Sp. peseti 0,1852 0,1857 0,1829
1 Jap. yen 0,12617 0,12651 0,12330
1 írskt pund 32,436 32,524 32,454
SDR. (SérsL
dráttarr.) 303290 30,6116
Samtala
gengis 181,20831 181,69870
J
Vextir: (ársvextir)
Frá og með 21. janúar 1984
INNLÁNSVEXTIR:
1. Sparisjóösbækur............... 15,0%
2. Sparisjóðsreikningar, 3 mán.1). 17,0%
3. Sparisjóösreikningar, 12. mán. 1)... 19,0%
4. Verðtryggðir 3 mán. reikningar. 0,0%
5. Verötryggöir 6 mán. reikningar. 1,5%
6. Ávísana- og hlaupareikningar... 5,0%
7. Innlendir gjaldeyrisreikningar:
a. innstæöur í dollurum......... 7,0%
b. innstæöur í sterlingspundum. 7,0%
c. innstæöur í v-þýzkum mörkum... 4,0%
d. innstæöur í dönskum krónum.... 7,0%
1) Vextir færöir tvisvar á ári.
ÚTLÁNSVEXTIR:
HÁMARKSVEXTIR
(Veröbótaþáttur i sviga)
1. Víxlar, forvextir..... (12,0%) 18,5%
2. Hlauþareikningar ..... (12,0%) 18,0%
3. Afuröalán, endurseljanleg (12,0%) 18,0%
4. Skuldabréf ........... (12,0%) 21,0%
5. Vísitölubundin skuldabréf:
a. Lánstimi minnst Vk ár 2,5%
b. Lánstími minnst 2'k ár 3,5%
c. Lánstími minnst 5 ár 4,0%
6. Vanskilavextir á mán...........2,5%
Lífeyrissjóðslán:
Líteyrissjóður startsmanna ríkisíns:
Lánsupphaeö er nú 260 þúsund krónur
og er lániö vísitölubundiö meö láns-
kjaravisitölu, en ársvextlr eru 2%.
Lánstími er allt aö 25 ár, en getur veriö
skemmri, óski lántakandi þess, og eins
ef eign sú, sem veö er í er lítilfjörleg, þá
getur sjóöurinn stytt lánstímann.
Lifeyritsjóöur verzlunarmanna:
Lánsupphæö er nú eftir 3ja ára aöild aö
lifeyrissjóönum 120.000 krónur, en fyrir
hvern ársfjóröung umfram 3 ár bætast
viö lániö 10.000 krónur, unz sjóösfélagi
hefur náó 5 ára aöild aö sjóðnum. Á
tímabilinu frá 5 til 10 ára sjóösaöild
bætast viö höfuöstól leyfilegrar láns-
upphæöar 5.000 krónur á hverjum árs-
fjóröungi, en eftir 10 ára sjóösaöild er
lánsupphæöin oröin 300.000 krónur.
Eftir 10 ára aöild bætast viö 2.500 krón-
ur fyrir hvern ársfjóröung sem liöur. Því
er í raun ekkert hámarkslán i sjóönum.
Höfuöstóll lánsins er tryggöur meö
byggingavísitölu, en lánsupphæöin ber
2% ársvexti. Lánstíminn er 10 til 32 ár
aö vali lántakanda.
Lántkjaravítitala fyrir janúar 1984 er
846 stig og fyrir febrúar 850 stig, er þá
miöaö viö vísitöluna 100 1. júní 1979.
Hækkunin milli mánaöa er 0,5%.
Byggingavisitala fyrir október-des-
ember er 149 stig og er þá miöaö viö
100 í desember 1982.
Handhafaakuldabréf í fasteigna-
viöskiptum. Algengustu ársvextir eru nú
18-20%.
^terkurog
k-/ hagkvæmur
auglýsingamióill!
Útvarp klukkan 14:
Hjalti Kögnvaldsson
Halldór Haraldsson píanóleikari.
Listalíf
LI8TALÍF verður að venju í dagskrá
útvarpsins í dag klukkan 14.00.
Eins og venjulega kemur hluti
þáttarins frá Akureyri og að þessu
sinni ræðir Örn Ingi við Hjalta
Rögnvaldsson sem nú er fluttur
norður þar sem hann leikstýrir
verkinu „Tóbaksvegurinn" eða
„Tobacco road“, sem nú er verið að
æfa hjá Leikfélagi Akureyrar.
„Ég ræði við Hjalta um hvernig
sé að vera leikstjóri úti á lands-
byggðinni," sagði Örn Ingi er Mbl.
ræddi við hann í gær. „Hann segir
einnig frá muninum á því að starfa
hér og fyrir sunnan. Þetta viðtal er
sérstaklega opið og skemmtilegt.
Það er um fimmtán mínútna langt
og veglegt.
Hjalti er mjög hreinskilinn mað-
ur og opinskár og því er þetta við-
tal við hann einstaklega skemmti-
legt.“
Gunnar Björnsson sellóleikari.
Útvarp kl, 17:
Síðdegistónleikar
Á síðdegistónleikum útvarpsins
í dag klukkan 17 leika þeir Gunnar
Björnsson sellóleikari og Haltdór
Haraldsson, píanóleikari, sellósón-
ötu nr. 5 og nr. 2 eftir Beethoven.
„Sellósónöturnar tvær sem
merktar eru opus 102 heyra til
þriðja tímabilsins í tónskáldskap
Beethovens," sagði Gunnar í
spjalli við Mbl. „Þá var höfundur-
inn orðinn heyrnarlaus en tónlist
hans einkenndist af miklum innra
krafti þess manns sem sóar ekki
kröftum í smáu tökin.
Fyrsti þátturinn er ástríðufull-
ur, en miðkaflinn nánast sálma-
lag, sem snýst upp í bæn. Síðasti
þátturinn virðist óaðgengilegur
við fyrstu sýn en nánari kynni
birta áheyrandanum heila hugsun
einhvers mesta stórmennis sem
uppi hefur verið."
Úr myndinni „Guli rollsinn“.
Bíómyndir kvöldsins:
Guli Rollsinn og Bananastuð
Bíómyndir sjónvarpsins i kvöld
eru tvær, önnur bandarísk og hin
bresk.
Klukkan 21.05 verður breska
myndin „Guli Rollsinn" sýnd. Rex
Harrison, Ingrid Bergman og
Omar Sharif eru meðal þeirra sem
leika aðalhlutverk.
Söguþráðurinn er á þá leið að
maður nokkur sem er vel efnaður,
(leikinn af Rex Harrison), fjár-
festir í gulum Rolls Royce. Eftir
að hafa átt bílinn um tíma selur
hann hann og upp frá því gengur
bíllinn kaupum og sölum. Hann
(bíllinn) kemur víða við og verður
að meira eða minna leyti örlaga-
valdur allra eigenda sinna.
Kvikmyndahandbókin okkar
gefur myndinni eina stjörnu af
þremur mögulegum og lætur þau
orð fylgja að hafi menn ekkert
þarfara við tímann að gera skuli
þeir setjast við „kassann" og sjá
myndina.
Bananastuð
Bandaríska gamanmyndin
„Bananastuð" verður sýnd klukk-
an 23.05 í kvöld. Leikstjórinn er
enginn annar er Woody Allen og
leikur hann einnig eitt aðalhlut-
verkið. Kvikmyndahandbókin seg-
ir hann fara á kostum í hlutverki
sínu, en gefur myndinni í heild
eina stjörnu af þremur möguleg-
um.
Woody Allen leikur Bandaríkja-
manninn Mellish sem lendir í
nokkrum ástarævintýrum um
ævina sem öll eru algerlega mis-
heppnuð. Hann þykir hinn furðu-
legasti náungi og er þekktur fyrir
ýmiskonar furðuleg uppátæki.
Hann fer að skipta sér af stjórn-
málum í Suður-Ameríku og kynn-
ist stúlku að nafni. Nancy. Hann
verður afskaplega ástfanginn af
stúlkunni, og á endanum verður
hann byltingarforingi í banana-
ríkinu San Marcos. Hann saknar
Nancyar og langar að hitta hana
en ekki þykir við hæfi að segja
nánar frá því.
Byltingarforinginn í San Marcos lendir í hinum ýmsu ævintýrum.
utvarp Reykjavík
L4UG4RD4GUR
28. janúar
MORGUNNINN_______________________
7.00 Veóurfregnir. Fréttir. Bæn.
Tónleikar. Þulur velur og kynn-
ir. 7.25 Leikfími. Tónleikar.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veð-
urfregnir. Morgunorð: — Gunn-
ar Kigurjónsson talar.
8.30 Forustugr. dagbl. (útdr.).
Tónleikar.
9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tón-
leikar.
9.30 Óskalög sjúklinga. Helga Þ.
Stephensen kynnir. (10.00
Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.)
Óskalög sjúklinga, frh.
11.20 Hrímgrund. Stjórnandi: Sól-
veig Halldórsdóttir.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
SÍODEGIO_________________________
13.40 íþróttaþáttur. Umsjón: Her-
mann Gunnarsson.
14.00 Listalíf. Umsjón: Sigmar B.
Hauksson.
15.10 Listapopp. — Gunnar Salv-
arsson. (Þátturinn endurtekinn
kl. 24.00.)
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veð-
urfregnir.
16.20 íslenskt mál. Guðrún Kvar-
an sér um þáttinn.
16.30 Nýjustu fréttir af Njálu. Um-
sjón: Einar Karl Haraldsson.
17.00 Síðdegistónleikar:
a. Samleikur í útvarpssal:
Gunnar Björnsson og Halldór
Haraldsson leika Sellósónötu
nr. 5 í D-dúr op. 102 nr. 2 eftir
Ludwig van Beethoven.
b. Frá tónlcikum Kammermús-
ikklúbbsins í Neskirkju 13.
nóvember í vetur: Einar G.
Sveinbjörnsson, Rut Ingólfs-
dóttir, Helga Þórarinsdóttir,
Guðrún Þórarinsdóttir, Inga
Rós Ingólfsdóttir og Arnþór
Jónsson leika Sextett nr. 2 í G-
dúr op. 36 eftir Johannes
Brahms.
18.00 Ungir pennar. Stjórnandi:
Dómhildur Sigurðardóttir
(RÚVAK).
18.10 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
KVÖLDIÐ
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.35 Lifað og skrifað: „Nítján
hundruð áttatíu og fjögur“.
Fjórði og síðasti þáttur: „Her-
bergi 101“. Samantekt og þýð-
ingar: Sverrir Hólmarsson.
Stjórnandi: Árni Ibsen. Lesarar:
Kristján Franklín Magnús og
Vilborg Halldórsdóttir. Aðrir
flytjendur: Sigurður Karlsson,
Lilja Þórisdóttir og Róbert
Arnfínnsson.
20.20 Útvarpssaga barnanna:
„Nikulás Nickleby" eftir Charl-
es Dickens. Þýðendur: Hannes
Jónsson og Haraldur Jóhanns-
son. Guðlaug María Bjarnadótt-
ir les (8).
20.40 Fyrir minnihlutann. Um-
sjóm Árni Björnsson.
21.15 Á sveitalínunni. Þáttur
Hildu Torfadóttur, Laugum í
Reykjadal (RÚVAK).
22.00 Krækiber á stangli. Fjórði
rabbþáttur Guðmundar L. Frið-
fínnssonar.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins. Orð
kvöldsins.
22.35 Harmonikuþáttur. Umsjón:
Sigurður Alfonsson.
23.05 Létt sígild tónlist.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
24.00 Næturútvarp frá RÁS 2 til
kl. 03.00.
LAUGARDAGUR
28. janúar
16.15 Fólk á förnum vegi
11. Knattspyrnuleikur. Ensku-
námskeið í 26 þáttum.
16.30 íþróttir
Umsjónarmaður Bjarni Felix-
son.
18.30 Engin hetja
Fimmti þáttur. Breskur fram-
haldsmyndaflokkur í sex þátt-
um fyrir börn og unglinga. Þýð-
andi Guðrún Jörundsdóttir.
18.55 Enska knattspyrnan
Umsjónarmaður Bjarni Felix-
son.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 í lífsins ólgusjó
Fjórði þáttur. Breskur garaan-
myndaflokkur í sex þáttum.
Þýðandi Jóhanna Þráinsdóttir.
21.05 Guli Rollsinn
(The Yellow Kolls Royce) Bresk
bíómynd frá 1964. Leikstjóri
Anthony Asquith. Aðalhlutverk:
Rex Harrison, Jeanne Moreau,
Shirley MacLaine, George C.
Scott, Alain Delon, Ingrid
Bergman og Omar Sharif. Gul-
ur Rolls Royce-glæsivagn geng-
ur kaupum og sölum og verður
örlagavaldur í lífí margra eig-
enda sinna. I»ýðandi Óskar
Ingimarsson.
23.05 Bananastuð
(Bananas). Bandarísk gaman-
mynd frá 1971. Leikstjóri
Woody Allen, sem einnig leikur
aðalhlutverkið ásamt Louise
Lasser, Carlos Montalban og
Howard Cosell. Eftir mislukkað
ástarævintýri og merkilegar
uppákomur verður New York-
búinn Fielding Mellish bylt-
ingarforingi í bananaríkinu San
Marcos. Þýðandi Jóhanna Þrá-
insdóttir.
00.30 Dagskrárlok