Morgunblaðið - 28.01.1984, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JANÚAR 1984
27
Kynning á Lada
Lux um
BIFREIÐAR- og landbúnaðarvél-
ar kynna um helgina nýjan Lada-
Kaffiboö fyr-
ir aldraða í
Háteigssókn
KAFFIBOÐ og samkoma fyrir aldr-
aða verdur haldin á vegum kvenfé-
lags Háteigssóknar í Domus Med-
ica, sunnudaginn 29. janúar kl. 3 síð-
degis.
Fólk úr kirkjukór Háteigskirkju
ásamt söngstjóra sínum mun
koma fram ásamt öðrum lista-
mönnum og flytja eitthvað til
skemmtunar í tali og tónlist með-
an setið er að borðum.
helgina
bfl, Lada LUX. Sýningin er opin
laugardag og sunnudag klukkan
13 til 17 að Suðurlandsbraut 14,
baklóð. Heitt kaffl verður á könn-
unni og glaðningur fyrir börnin,
segir í frétt frá fyrirtækinu.
í fréttinni segir ennfremur:
„Við hönnun á Lada LUX hef-
ur verið kappkostað að halda
styrkleika og aksturseiginleik-
um fyrri Lada-bíla, sem svo vel
hafa hentað íslenskum aðstæð-
um. Aukin áhersla er lögð á gott
rými fyrir farþega samfara ör-
yggi, og eru framsæti þægilegri
og öryggisbelti einnig í aftur-
sætum."
Fyrstu bílarnir, sem hingað
koma, verða seldir á sérstöku
kynningarverði.
Eiðfaxi
kominn út
JANÚARHEFTI tímaritsins Eið-
faxa, sem samnefnt hlutafélag gef-
ur út, er nú komið út og er í dreif-
ingu til áskrifenda. Eiðfaxi er 32
síður að stærð að þessu sinni, fjöl-
breyttur að efni og prýddur fjölda
mynda af hestum og hestamönn-
um. Litmynd er á forsíðu, tekin af
Hjalta Jóni Sveinssyni, ritstjóra
blaðsins.
Meðal efnis í Eiðfaxa eru stutt-
ar fréttir úr ýmsum áttum, svo
sem af ísienskum hestum erlend-
is, stóðhestum víða um land, frá
bændaskólunum og fjölmörgum
hestamannafélögum. Þá er sagt
frá ársþingi íþróttaráðs LH, og
rætt er við formann þess, Guð-
mund Jónsson. Eyjólfur ísólfsson
skrifar um „keppnishestinn“ og
viðtal er við Harald Sveinsson á
Hrafnkelsstöðum um starfsemi
hrossaræktarsambanda og fleira.
Margt annað efni er í blaðinu.
lEIÐFAXr
rnfám
KriCiift dyra hjá Haraw: a Hr*fn»n<öf*löðuin
F'* ‘P'CÍIoþiotfi i3f«í til litMjðr*
•»r 8o«$«*ffifd‘ Fyr»*» i«rr»»ft0 wi«'«r»n5
Þrítugasta norræna lög-
fræðiþingið haldið í Osló
ÞRÍTUGASTA norræna lögfræð-
ingaþingið verður haldið í Osló
15.—17. ágúst nk., en síðasta nor-
ræna lögfræðingaþingið fór fram í
Stokkhólmi í ágúst 1981.
Á þinginu verður fjallað um
margvísleg lögfræðileg viðfangs-
efni, sem eru ofarlega á baugi á
Norðurlöndum. Tvö umræðuefni
verða á allsherjarfundum, þ.e. um
tölvutækni í þágu lögfræði og
lagastofnana og um lögin og fjöl-
miðla. Þá verður fjallað um 18 efni
í deildum (skorum), þ.á m. haf-
réttarreglur og Norðurlöndin;
réttarreglur um tæknifrjóvgun;
rannsókn fíkniefnamála og sönn-
unarvanda í þeim; stöðu þess, sem
misgert er við skv. reglum opin-
bers réttarfars; sjálfstæði lög-
manna sérstaklega gagnvart
stjórnvöldum; ríkisborgararétt og
kosningarétt og tjón af völdum
olíu og önnur umhverfisspjöll.
Sum þessara efna kunn að verða
rædd í umræðuhópum. Tveir ís-
lenskir lögfræðingar eru meðal
framsögumanna, prófessor dr.
Gunnar Schram verður aðalfram-
sögumaður í hafréttarmálinu og
Garðar Gíslason borgardómari
verður annar framsögumaður í
viðfangsefninu um lagareglur í
sambandi við tæknifrjóvgun. Þá
verður Þór Vilhjálmsson, forseti
Hæstaréttar, þátttakandi í
hringborðsumræðum um efnið
Lögin og fjölmiðlarnir.
Tilkynning um þátttöku þarf að
hafa borist Birni Helgasyni,
hæstaréttarritara, eigi síðar en 26.
mars nk. I stjórn íslandsdeildar
norrænu lögfræðingaþinganna
eiga nú sæti: Ármann Snævarr
hæstaréttardómari, formaður,
Árni Kolbeinsson deildarstjóri,
Baldur Möller ráðuneytisstjóri,
Benedikt Blöndal hæstaréttarlög-
maður, Björn Sveinbjörnsson
hæstaréttardómari, Guðmundur
Ingvi Sigurðsson hæstaréttarlög-
maður, Guðrún Erlendsdóttir dós-
ent, Hrafn Bragason borgardóm-
ari og Þór Vilhjálmsson hæsta-
réttardómari.
Formaður Noregsdeildar nor-
rænu lögfræðingaþinganna er dr.
Carsten Smith, prófessor.
(FrétUtiIkynning).
Félag járniðnaðarmanna:
Fordæmir
harðlega
ummæli iðnað-
arráðherra
FÉLAGSFUNDUR í Félagi járniðn-
aðarmanna hefur fordæmt harðlega
ummæli iðnaðarráðherra, þau er
hann lét falla í ríkisútvarpinu um
kjaradeilu verkalýðsfélaganna og
ÍSALs um að gripið yrði til aðgerða,
sem dygðu til að hindra framgang
krafna verkalýðsfélaganna og að í
því efni væri lagasetning ekki und-
anskilin.
Félagsfundurinn telur að um-
mæli sem þessi séu ekki þess eðlis
að þau auðveldi lausn deilunnar.
Félag járniðnaðarmanna lýsir
stuðningi við kjarabaráttu verka-
fólks hjá ÍSAL og væntir þess að
hún beri árangur, segir í ályktun,
sem Morgunblaðinu hefur borizt.
si*h. cy'"!
'v flnJk ! wt jJ 1 W Mwl
fk MJ
Sýnir í Nýlistasafninu
KJARTAN Ólason opnar í dag, laug-
ardag, sýningu í Nýlistasafninu við
Vatnsstíg 3b.
Kjartan sýnir málverk unnin í
olíu og akrýl. Hann hefur áður
haldið eina einkasýningu og tekið
þátt í mörgum samsýningum.
Sýningin verður opin til 5.
febrúar. Opnunartími er kl. 16—20
virka daga og 16—22 um helgar.
Myndin er af einu verka Kjart-
ans.
Málverk Rutar R. Sigurjóns-
dóttur til Bandaríkjanna
RUT Rebekka Sigurjónsdóttir
myndlistarkona, sem dvalið hefur
í Bandaríkjunum að undanfornu
hefur gert samning við gallerí í
San Diego og Los Angeles í Kali-
forníu.
Galleríið hyggst sýna og selja
myndir eftir Rut.
Hún hefur stundað nám í
Myndlistarskóla Reykajvíkur og
Myndlistar- og handíðaskóla Is-
lands.
Rut hefur tekið þátt í tveim
samsýningum, síðast á haust-
sýningu FÍM að Kjarvalsstöð-
um.
Markaðshúsið held-
ur bókamarkað
MARKAÐSHÚSIÐ hefur ákveðið
að halda bókamarkað t húsnæði
sínu við Laugaveg. Þetta upplýsti
Eyjólfur Sigurðsson hjá Bókhlöð-
unni í gær. Eyjólfur kvað markað-
inn haldinn í fullu samráði við Fé-
lag íslenzkra bókaútgefenda, en
að þessu sinni verður markaður-
inn ekki haldinn í nafni félagsins.
Markaðurinn hefst hinn 29.
febrúar og lýkur 11. marz og
kvaðst Eyjólfur gera ráð fyrir
að þar yrðu á bóðstólum um
5.500 titlar. Verður önnur hæð í
húsi Markaðshússins tekin und-
ir markaðinn á meðan á honum
stendur.
Við stofnun fyrirtækis eroftast
gengið frá nauðsynlegum
vátryggingum. Fyrirtækið stækk-
ar, en tryggingafjárhæðin fylgir
ekki sjálfkrafa stækkuninni. Látið
ekki blekkjast. Fáið trygginga-
manninn í heimsókn, og ráðfærið
ykkur við hann.
k i
m HAGTRYGGEVG HF
m Suóurlandsbraut 10,105 Reykjavik, simi 85588.
V