Morgunblaðið - 28.01.1984, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JANÚAR 1984
33
Janúar-nóvember 1983:
Ávísanaviðskipti
jukust um 71,5%
Hækkun meðalupphæða nokkru minni
Heildarávísanaviðskipti fyrstu
ellefu mánuði síðasta árs voru
að fjárhæð um 98.913 milljónir
króna, en voru til samanburðar
um 57.684 milljónir króna á
sama tíma árið 1982. Aukningin
milli ára er um 71,5%.
Mánaðameðaltal
ávísanaviðskipta var um 8.992
milljónir króna á umræddu
ellefu mánaða tímabili í fyrra,
en var til samanburðar um
5.422 milljónir á sama tíma
árið 1982. Aukningin milli ára
er um 66%.
Fjöldi tékka á umræddu
tímabili var um 10.799.000, en
voru til samanburðar um
10.069.000 á sama tíma árið
1982. Aukningin milli ára er
7,25%.
Meðalupphæðir tékka fyrstu
ellefu mánuði síðasta árs var
9.159 krónur, en til saman-
burðar var meðalupphæðin
um 5.729 krónur á sama tíma
árið 1982. Hækkun á meðal-
upphæð er því um 60%, en
nokkru minni en nemur aukn-
ingu á ávísanaviðskiptum í
heild.
Ef litið er á nóvember sér-
staklega voru heildarávísana-
viðskipti upp á 11.120 milljón-
ir króna, en til samanburðar
upp á um 6.439 milljónir króna
á sama tíma á árinu 1982.
Aukningin milli ára er um
72,7%.
Fjöldi tékka í nóvember sl.
var um 1.023.000, en var til
samanburðar um 1.002.000 á
sama tíma á árinu 1982. Fjöl-
gun tékka milli ára er um
2,1%.
Loks má geta þess, að með-
alupphæð tékka í nóvember sl.
var 10.870 krónur, en var til
samanburðar 6.426 krónur í
nóvember á árinu 1982. Hækk-
un meðalupphæðar milli ára
er um 69%.
Volvo F10 kos-
inn vörubifreið
ársins 1984
Nýja Volvo F10 Intercooler
vörubifreiðin hefur hlotið titil-
inn „Vörubifreið ársins 1984“,
en það er alþjóðlegur dómstóll
leiðandi blaðamanna frá 13
löndum, sem skrifa um vörubif-
reiðir, sem stóð að valinu.
Þetta er í annað sinn, sem
Volvo-vörubifreið hlýtur
þennan titil, en áður, eða árið
1979, hlaut Volvo F7 titilinn.
Þetta er í áttunda sinn, sem
valin er vörubifreið ársins.
Tímaritið Truck reið á vaðið,
en hóf fljótlega samvinnu við
blaðamenn frá öðrum löndum.
Dómstóllinn samanstendur í
dag af blaðamönnum frá
Belgíu, Frakklandi, Hollandi,
Ítalíu, Sviss, Spáni, Þýzka-
landi, Austurríki, Danmörku,
Finnlandi, Noregi og Svíþjóð.
í dóminum um Volvo F10
Intercooler er sérstaklega gef-
ið fyrir þægindi fyrir öku-
mann, litla endsneytiseyðslu
og endingu. Þá er bent á Inter-
cooler-útfærsluna, þ.e. er hina
nýju eftirkældu TD101 F-vél,
nýja útfærslu á grind og
endurhannað ökumannshús.
Þá var bent á bætta meðferð
á farmi, góða aksturseigin-
leika, sem m.a. eru þakkaðir
fjöðrum með gúmmímillilagi
og hreyfanlegum fjaðra-
hengslum. Fyrir ökumann gaf
síðan sjálfstýrða hitakerfið
mörg stig, en Volvo-verk-
smiðjurnar eru þær fyrstu í
heiminum í dag, sem bjóða
þetta í vörubifreiðum.
Bridgehátíð 1984
Undirbúningur Bridgehátíðar
er nú í fullum gangi og er skrán-
ing hafin bæði í sveitakeppnina
og tvímenninginn.
Þátttökutilkynningar í
tvímenningskeppnina þurfa að
berast fyrir 10. febrúar nk.
Þátttökugjald verður 1000 krón-
ur á mann. Eins og áður velur
framkvæmdanefnd mótsins úr
hópi umsækjenda ef of mikill
fjöldi sækir um þátttöku. Aftur
á móti verður sveitakeppnin öll-
um opin meðan húsrúm leyfir en
tilkynna þarf þátttöku fyrir 20.
febrúar. Þátttökugjald verður
2000 krónur á sveit.
Þá má minna á að starfsmað-
ur Bridgesambandsins, Jón
Baldursson, er ætíð við á skrif-
stofunni alla daga en hann tekur
á móti þátttökutilkynningum.
Frá keppni hjá Bridgefélagi Suðurnesja, en þar stendur nú yfír Baro-
meter-tvímenningur með þátttöku 24 para.
Bridgedeild Barð-
strendingafélagsins
Staðan eftir 6 umferðir í aðal-
sveitakeppni félagsins:
Þórarinn Árnason 109
Ingvaldur Gústafsson 107
Viðar Guðmundsson 89
Þorsteinn Þorsteinsson 72
Sigurður Kristjánsson 66
Hannes Ingibergsson 61
Næst verður spilað mánudag-
inn 30. janúar og hefst keppni
stundvíslega kl. 19:30. Spilað er í
Síðumúla 25.
Bridgefélag
Hafnarfjarðar
Síðastliðinn mánudag var spil-
uð önnur umferð í barómeter fé-
lagsins. AIls taka 28 pör þátt í
þessu móti, en telja má að baró-
meterinn sé annað aðalmót vetr-
arins, hitt er sveitakeppnin. Að
venju eru spilin tölvugefin, og
sér Jón Gíslason formaður um
þá hlið mála. Nú þegar þrjú
kvöld eru eftir er staða efstu
para þessi:
Árni Þorvaldsson —
Sævar Magnússon 146
Ásgeir Ásbjörnsson —
Guðbrandur Sigurbergsson 126
Björn Eysteinsson —
Kristófer Magnússon 114
Georg Sverrisson —
Kristján Blöndal 104
ólafur Valgeirsson —
Ragna Ólafsdóttir 103
Bridgedeild
Breiðfirðinga
Þann 5. jan. lauk sveitakeppni
félagsins með sigri sveitar Ingi-
bjargar Halldórsdóttur. í sveit-
inni auk hennar voru Sigvaldi
Þorsteinsson, Guðjón Kristjáns-
son, Þorvaldur Matthíasson, Jón
G. Jónsson og Magnús Oddsson.
Sveit Sigurðar Ámundasonar
sem var í efsta sæti fyrir síðasta
kvöldið mætti ekki til leiks
vegna misskilnings, og þar sem
önnur sveitin neitaði að spila
aukaleik, missti sveitin af mögu-
leika til að ná efsta sætinu.
Staða efstu sveita varð annars
þessi:
Sveit Ingibjargar Halldórsd. 276
Sveit Sigurðar Ámundas. 263
Sveit Helga Nielsen 250
Sveit Hans Nielsen 250
Sveit Guðlaugar Nielsen 227
Sveit Jóhanns Jóhannssonar 222
Sveit Rögnu Ólafsdóttur 222
Sveit Elísar R. Helgasonar 221
Bridgefélag
Suðurnesja
Sautján umferðum af 23 er
lokið í 24 para barómeter. Gísli
Torfason og Alfreð G. Alfreðs-
son hafa afgerandi forystu í
keppninni, hafa hlotið 193 stig
yfir meðalskor. Gífurleg keppni
er hins vegar um annað sætið og
eru margir kallaðir eins og sjá
má á röð paranna:
Gísli — Alfreð 193
Einar — Hjálmtýr 109
Sigurhans — Arnór 106
Högni — Gestur 96
Guðmundur — Jóhannes 90
Þórður — Gunnar 90
Haraldur — Gunnar 77
Sigurður — Einar 27
Síðasta spilakvöldið verður
nk. fimmtudag í Safnaðarheim-
ilinu í Njarðvíkum. Hefst keppn-
in kl. 20 og eru spilarar beðnir að
mæta betur og stundvíslegar en
á síðasta spilakvöldi.
Bridgedeild
Rangæingafélagsins
Eftir 3 umferðir í sveita-
keppninni er staðan þessi:
Sigurleifs Guðjónssonar 43
Hjartar Elíassonar 42
Péturs Einarssonar 39
Lilju Halldórsdóttur 39
Átta sveitir taka þátt í keppn-
inni. Næsta umferð verður á
miðvikudaginn kemur í Domus
Medica kl. 19.30.
Bridgefélag Breiðholts
Staðan í aðalsveitakeppninni
eftir 4 umferðir er þessi:
Gunnar Traustason 68
Rafn Kristjánsson 64
Anton Gunnarsson 57
Heimir Þór Tryggvason 52
Keppninni verður fram haldið
nk. þriðjudag í Gerðubergi.
Hefst keppnin kl. 19.30 stund-
víslega og eru spilarar beðnir að
vera stundvísir.
Guðrún Brynjólfsdóttir
skáldkona — Áttræð
Guðrún Brynjúlfsdóttir, skáld-
kona, er áttræð í dag. Hún fæddist
þ. 28. janúar 1904 á Kvígstöðum í
Andakílshreppi. Foreldrar hennar
voru Brynjúlfur Jónsson og kona
hans, Þórný Þórðardóttir. Guðrún
hefur alið mikinn hluta ævi sinnar
í sveitum Borgarfjarðar og í Borg-
arnesi, eða allt að 30 ár. Síðan
flutti hún til Reykjavíkur og hefur
búið þar með hléum síðan. Mörg
hafa störf hennar verið um ævina,
en þó lengst af saumastörf, bæði í
Borgarnesi og í Reykjavík. Guð-
rún hefur einnig verið búsett á
Suðurnesjum og Vestfjörðum um
tíma, í fylgd með móður minni.
Leiðir okkar Guðrúnar lágu fyrst
saman, er ég var enn barn í vöggu.
Þá kom hún á heimili foreldra
minna í Hlíðunum til að gæta mín.
Guðrún þekkti föður minn og fjöl-
skyldu hans frá Borgarnesi frá
fyrri tíð. Allt frá þessum fyrsta
degi hefur Guðrún fóstra mín ver-
ið ómissandi þáttur í lífi mínu.
Hún tengist öllum mínum
bernskuminningum, var alltaf
nálæg, bæði á léttum og erfiðum
stundum, með þeirri hlýju og
blíðu, sem henni var lagið. Eg veit,
að þetta mæli ég fyrir munn okkar
systranna þriggja, Rannveigar,
Hjördísar og mín. Ég minnist
margra kvöldstunda við ævintýri
og ljóðalestur. Sú innsýn, sem
frásögn hennar af liðnum tíma
veitti okkur í líf fólksins þá, er
ómetanleg og nauðsynleg hverjum
Islendingi. Frásögnin varð svo lif-
andi og ætíð sú sama orðrétt, hve
löng og hve oft sem hún var sögð.
Guðrún saumaði á okkur margar
flíkurnar, sem komu sér vel. Hún
kenndi mér fyrstu gripin á gítar
og að koma saman vísu. Stuðlar og
höfuðstafir voru mér kunnug
fyrirbæri áður en ég las fyrstu
bækurnar. Hún söng fyrir okkur
og las bænirnar með okkur á
kvöldin. í herbergi fóstru okkar
var m.a. stór brún trékista. í
henni leyndust ýmsir hlutir og þar
á meðal margir þéttskrifaðir
pappírssneplar. Guðrún skrifaði
mér eitt sinn: „Mig hefur dreymt
um að gefa út bók síðan ég lá 5 ára
gömul undir kálgarðsvegg og
horfði upp í stjörnubjartan himin-
inn.“ Sjötíu og tveimur árum síð-
ar, í nóvember 1981, vann hún það
þrekvirki að gera þennan bernsku-
draum sin að veruleika, og gaf út
bók sína „Ýlustrá". Þar má nú
finna öll gullkornin úr trékistunni
forðum.
Ævi Guðrúnar hefur ekki verið
neinn dans á rósum. Baráttan við
að afla sér menntunar þrátt fyrir
mikið heilsuleysi og peningaleysi,
setur þar sinn svip á. En allt þetta
hefur einnig veitt henni óvenju
mikinn andlegan styrk og þroska,
og af þeim brunni höfum við „fóst-
urbörnin" hennar notið mikils
góðs.
Það er erfitt að segja frá þeirri
fórnfýsi og ósérhlífni, sem við höf-
um reynt hjá Guðrúnu okkar í öll
þessi ár. Því síður get ég með orð-
um lýst gildi þess sálarlega örygg-
is og athvarfs, sem hún veitti
okkur þennan tíma. En þeir, sem
til þekkja, vita hvað býr að baki
þessum fátæklegu orðum, sem hér
eru sett á blað. Guðrún mín, minn-
ingar bernskuáranna gleymast
aldrei og þakklæti mitt er mikið.
Lífsreglunum, sem ég fékk oft frá
þér í veganesti þegar mest reið á,
fylgi ég enn. Þér sé heill á þessum
merkisdegi. Ég óska þér heilshug-
ar góðrar heilsu og bjartra daga á
nýbyrjuðu ári. Megir þú uppskera,
eins og þú sáðir.
Með djúpri þökk.
Gunna