Morgunblaðið - 28.01.1984, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JANÚAR 1984
Meira um þorskinn
— eftir dr. Jón Gunn-
nr Ottósson og
dr. Sigurð Snorrason
Jón Jónsson forstjóri Hafranns-
óknastofnunar birti gréinargerð
um grundvöll fiskveiðiráðgjafar
stofnunarinnar í dagblöðum um
síðustu helgi. Greinargerðin er
skrifuð til „að leiðrétta misskilning
varðandi rannsóknir og niðurstöður
Hafrannsóknastofnunar og þar með
fiskveiðistefnunnar", eins og fram
kemur í inngangi. Hér er meðal
annars átt við þær hugmyndir og
spurningar sem undirritaðir settu
fram á fundi Hafrannsóknastofn-
unar og Líffræðifélags íslands
13da janúar um fræðilegan grund-
völl þeirrar þorskveiðistefnu sem
nú er fylgt, enda urðu þær tilefni
blaðaskrifa. 1 greinargerð Jóns er
víða komið við. Þrátt fyrir það
höfum við enn ekki fengið full-
nægjandi svör við spurningum
okkar, aðeins fyllyrðingar um að
við misskiljum Hafrannsókna-
stofnun.
Um hvað er spurt?
Á fundinum 13da janúar spurð-
um við um líffræðilegar forsendur
fyrir þorskveiðistefnunni, mark-
miðið með henni, og líffræðilegar
forsendur fyrir þeim aðgerðuin
sem beitt er til að ná settum
markmiðum. Veiðistefna byggist
náttúrulega bæði á líffræðilegum
og hagfræðilegum grunni. Hag-
fræðilegu þættina og stjórnmál
ieiddum við að mestu hjá okkur,
enda er þar um annað mál að
ræða.
Við erum ennþá á þeirri skoðun
að ekki sé um líffræðilega ofveiði
á þorski að ræða, og að það sé
verulegum erfiðleikum bundið að
byggja þorskstofninn upp með
þeim aðferðum sem nú er beitt.
Einnig teljum við það markmið
óraunhæft að reyna að búa til
þorskstofn sem gefi af sér varan-
legan hámarksafrakstur, 450 þús-
und tonn á hverju ári.
Ofveiði
Forsendan fyrir þorskveiði-
stefnunni er ofveiði, ofnýting
stofnsins. Hugtakið ofveiði má
skiigreina á ýmsa vegu einsog við
sýndum í fyrirlestri okkar, og
kemur einnig skýrt fram í grein-
argerð Jóns Jónssonar. Ofveiði
getur hlotist af of mikilli sókn í
smáþorsk, og er þá nýtingarhug-
tak. Einnig er hægt að tala um
ofveiði sem afstætt hugtak sem
tekur við af flotastærð og sókn-
argetu, og er þá hagfræðilegt. í
þeim skilningi er íslenski þorsk-
stofninn líklega ofnýttur, og lýsir
sér í slæmri afkomu útgerðar um
þessar mundir. Flestir leggja þó
líffræðilegan skilning í hugtakið
þegar annað er ekki tekið fram, en
líffræðileg ofveiði þýðir, að með
veiðum hafi verið gengið svo á
stofninn að endurnýjunargeta
hans hafi verið skert — lýsir sér í
viðkomubresti og hruni þegar
verst lætur.
Það fer ekki á miili mála að
löggjafinn og framkvæmdavaldið
hafa lagt líffræðiiegan skilning í
hugtakið á undanförnum árum. í
lögum um veiðar í fiskveiðiland-
heígi íslands frá 31. maí 1976 er
vald ráðherra til þess að ákveða
heiidarkvóta bundið við það, að
rökstutt álit Hafrannsóknastofn-
unar sýni að fiskistofn sé hættu-
lega ofveiddur og viðkoma hans sé í
yfirvofandi hættu. Stjórnvöld hafa
takmarkað þorskafia á undan-
förnum árum, og byggt þær að-
gerðir á skýrslum Hafrannsókna-
stofnunar og fyrrnefndri laga-
grein.
Fiskifræðingar, þar á meðal að-
stoðarforstöðumaður Hafrann-
sóknastofnunar, hafa spurt í dag-
blöðum og útvarpi hversvegna við
leggjum áherslu á sambandsleysi
milli hrygningarstofns og niðja-
fjölda. Þetta séu ekki ný sannindi,
þeir viti vel að þetta samband hafi
ekki fundist ennþá. Hér er samt
kjarni málsins. Ef ekki er jákvætt
samband á milli hrygningarstofns
og niðjafjölda, og ef viðkomu-
brestur hefur ekki orðið í' stofni,
þá eru engar vísbendingar um
líffræðilega ofveiði. Á meðan
endurnýjunargeta stofnsins helst
söm er ekki hægt að tala um líf-
fræðilega ofveiði. Þetta viður-
kennir Jón Jónsson í greinargerð-
inni sem birtist í blaðinu 19da
janúar, og tekur undir með okkur
að ekki séu slík merki í islenska
þorskstofninum. Einnig er vert að
hafa í huga að ef jákvætt samband
væri milli hrygningarstofns og
niðjafjölda, hefði „ofnýtingar-
stefna" stjórnvalda á undanförn-
um árum orðið til þess að spádóm-
ar fiskifræðinga um hrun stofns-
ins hefðu ræst. Þær spár áttu ræt-
ur að rekja til hræðslu um að eins
væri að fara fyrir þorskinum og
síldinni forðum daga. Þessi
hræðsla er skiljanleg, en samt
verður að spyrja hvort rannsóknir
og tillögur Haf rannsóknastofnun-
ar hefðu ekki átt að taka mið af
því að þorskur er ekki uppsjávar-
fiskur með tiltölulega einhæft
fæðuval og sterka torfumyndun
eins og síld?
Áður en lengra er haldið er rétt
að taka fram að við höfum aldrei
sagt að fiskifræðingar hafi
gert ráð fyrir beinu sambandi á
milli hrygningarstofns og niðja-
fjölda eins og Jón Jónsson segir
okkur gera, beint samband er allt
annað en jákvætt samband. Eins er
rétt að taka fram að það sem Jón
segir um breytilegt samband eftir
umhverfisaðstæðum á hverjum
tíma, er það sama og við sögðum á
fundinum 13da janúar.
Meiri afli?
Það er fróðlegt að velta því fyrir
sér, hvort stórir stofnar gefi betri
afrakstur af sér en litlir stofnar.
Hér er nefnilega mjög útbreiddur
misskilningur á ferðinni, og kem-
ur ævinlega fram í fjölmiðlum.
Fólk heldur að stór þorskstofn
hljóti að gefa meiri heildarafla á
ári en lítill. Þessi skoðun er skilj-
anleg ef menn gera ráð fyrir já-
kvæðu sambandi á milli hrygn-
ingarstofns og niðjafjölda, annars
ekki. Af hverju hafa fiskifræð-
ingar ekki tekið af skarið og leið-
rétt þetta í eitt skipti fyrir öll?
Þegar greinar um þorsk eru lesnar
skýtur forsendan um jákvætt
samband alltaf upp kollinum öðru
hvoru. Og sama er að segja um
loforðið um 450 þúsund tonna afla
á hverju ári eftir að stofninn er
kominn upp í 2 milljónir tonna.
Hefði þá þorskafli á Islandsmið-
um orðið meiri 1973—1983 en raun
ber vitni ef stofninn hefði verið
stór í upphafi tímabilsins, og við
hefðum miðað veiðar við endur-
nýjunargetu eins og ætlunin er að
gera? Svarið er nei. Heildarafli
hefði ekki orðið meiri, jafnvel
minni. Afrakstur á hvern nýliða
er að líkindum verri í stórum
stofni en litlum. Af hverju er þá
verið að reyna að byggja stofninn
upp?
Stór þorskstofn
Af hverju er reynt að búa til
stóran þorskstofn ef hann kemur
ekki til með að gefa meiri heildar-
afla en lítill stofn? Stórir stofnar
hafa ýmsa kosti eins og fram hef-
ur komið hjá fiskifræðingum. Það
er ódýrara að ná í aflann, fiskur-
inn verður aðgengilegri og fljót-
legra að ná í hann, eins og dr.
Sigfús Schopka skýrði vel út á
fundinum 13da janúar. Veiðiferðir
verða styttri og afli kemur fersk-
ari að landi. Einnig er auðveldara
að ráða við 1—2 ára sveiflur í ný-
liðun þannig að ekki verði miklar
sveiflur í afla milli ára, eins og dr.
Jakob Jakobsson benti réttilega á.
Sveiflur sem taka lengri tíma eru
erfiðari viðureignar, en að því
verður komið síðar — enda valda
þær öðrum og meiri vandamálum,
t.d. því að erfitt er að halda stofni
stórum án þess að draga verulega
úr veiðum.
Stórir stofnar hafa líka galla.
Skipin eru tiltölulega fljót að ná í
leyfilegan afla, og leiðir til fjölg-
unar á skrapdögum. Ef skipin og
áhafnir hafa ekki aðra fiska að
sækja í verður verkefnaskortur og
atvinnuleysi. Einnig er hætta á að
vaxtarhraði einstaklinga verði
minni vegna aukinnar samkeppni
um fæðu, og leiðir til minnkandi
afla í tonnum talið. Þetta gæti
einnig komið niður á öðrum nytja-
stofnum, t.d. fiskum sem þorskur
nærist á, svo sem loðnu sem er
kjörfæða hans núna. Og fiskum
sem nýta sömu fæðulindir og
þorskurinn. Getur verið að síld-
veiðarnar forðum daga hafi átt
þátt í að minnka afrakstrargetu
þorskstofnsins?
Hér verður að vega og meta
kosti og galla. Fljótt á litið virðist
hagkvæmara að nýta stóran stofn
en lítinn, og vegur þar þungt að
verð á þorski er hátt miðað við
aðrar fisktegundir. Þetta er þó
flókið mál og krefst betri gagna.
Nú er stofninn lítill, getum við náð
honum upp? Og ef það tekst, get-
um við þá haldið honum stórum til
lengdar?
Stóri stofninn og
450 þúsund tonnin
Er hægt að byggja upp stofn
sem gefur af sér 450 þúsund tonna
afla á ári hverju? Hér erum við
aftur komin að sambandinu á
milli hrygningarstofns og niðja-
fjölda. Það væri einfalt mál að
byggja stofninn upp ef jákvætt
samband væri þarna á milli, þá
myndi nýliðum fjölga eftir því
sem hrygningarstofninn stækkaði
— og ef veiði er minni en endur-
nýjunargeta stofnsins er hægt að
koma heildarstofni upp í „kjör-
hæð“ á tiltölulega fáum árum. Er
það þetta sem fiskifræðingar eiga
við þegar þeir segja: „... tillögur
Hafrannsóknastofnunarinnar mið-
ast við að byggja upp hrygningar-
stofninn á 4—5 árum í 500 þúsund
lestir. Til þess að þorskstofninn gefi
af sér varanlegan hámarksafrakstur,
þ.e. 450 þúsund lestir á ári þarf að
byggja upp heildarstofninn úr 1500
þúsund lestum sem hann er í dag í
a.m.k. 2 milljónir lesta og hrygn-
ingarstofninn í 500—600 þúsund
lestir.“? Þetta er skrifað árið 1980
og birtist í tímaritinu Sjávarfrétt-
ir.
Ef ekki er skýru sambandi á
milli hrygningarstofns og niðja-
fjölda til að dreifa, eins og raunin
virðist vera, þá verður málið
flóknara. Hvaða aðferðum er beitt
til að leysa það núna? í þeim lík-
önum sem nú eru notuð er yfirleitt
reiknað með meðalnýliðun: um 220
milljónir 3 ára þorska bætast við
stofninn að meðaltali á hverju ári.
Við efumst um að þessi aðferð sé
nothæf. Einnig teljum við vafa-
samt að nota slembitölur með
lognormal dreifingu til þess að
líkja eftir sveiflum í nýliðun, eins
og reynt hefur verið, þó svo sú að-
ferð virðist í fljótu bragði raun-
hæfari en sú fyrri. Við fáum ekki
séð að sú vitneskja sem nú er til
um nýiiðun í þorskstofninn, og
sýnd er á mynd 1, réttlæti notkun
slíkra aðferða. Það er ekki að sjá
að um lognormal dreifingu sé að
ræða í nýliðunartölum. Algengast
er að nýliðunin sé annaðhvort vel
undir meðallagi eða vel yfir með-
allagi. Rétt er þó að leggja áherslu
á, að gögnin eru takmörkuð. Það
sem mælir mest á móti notkun
beggja þessara aðferða er það, að
allmiklar líkur virðast á því að
vond og góð ár komi í kippum, oft
tvö eða þrjú í röð, og stundum
fjögur (sjá töflu). Vert er að minn-
ast tímabilsins þegar stóri heild-
arstofninn frá 1955 minnkaði, og
allri sökinni skellt á „ofveiði". Þá
komu 7 ár af 9 í röð með nýliðun
undir meðallagi (1955—1963).
Þegar sveiflurnar í nýliðun eru
orðnar þetta langar, og farnar að
nálgast að vera af sömu stærð-
argráðu og sá tími sem mest er
veitt úr hverjum árgangi (um 4 ár;
5—8 ára þorskur), þá skapast
verulegir erfiðleikar og óvissa um
farsæla uppbyggingu stofnsins.
Tökum dæmi:
Hvað gerist ef við drögum úr
sókn núna og næstu 6 árin, í þeim
tilgangi að byggja stofninn upp
svo hann fari að gefa af sér var-
anlega hámarksafraksturinn, 450
þúsund tonna afla á ári? Hættum
alveg að veiða 3 ára þorsk og
minnkum veiði úr öðrum aldurs-
hópum sem hér segir (tölur sýna
fiskveiðistuðla): 4 ára úr 0,15 í 0,12
— 5 ára úr 0,33 í 0,30 — 6 ára úr
0,45 í 0,40 — 7 ára óbreytt 0,55 — 8
ára og eldri: 0,55 fyrir alla ár-
ganga, sem er veruleg minnkun.
Gerum ráð fyrir að fyrstu 2 árin
(1984 og 1985) verði nýliðun yfir
meðallagi, t.d. 250 milljónir 3 ára
þorska hvort ár, en síðan komi 4
ár í röð með lélegri nýliðun, t.d.
150 milljón 3 ára þorska ár hvert.
Þetta er ósköp eðlilegt dæmi eins
og reynslan sýnir.
Heildarstofninn mun stækka
næstu tvö ár og verða um 595
milljónir fiska 3 ára og eldri í upp-
hafi árs 1985. Eftir það fer stofn-
1 ér t senn 2 ár í tenn 3 ár í senn 4 ár í senn
Nýliöun undir
meöallagí 3 0 3 1
Nýliöun yfir
meöallagi 2 3 0 1
Tíðni góðra og slæmra nýliðunarárganga í röð.