Morgunblaðið - 28.01.1984, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JANÚAR 1984
+ HEBA GEIRSDÓTTIR, Hringbraut 57, andaöist 27. janúar. Aöstandendur.
+ AXEL KONRÁDSSON Irá Bæ í Skagafiröi, lést aö heimili sínu í Borgarnesi 26. janúar. Vandamenn.
+ Móöir okkar, HALLDÓRA ÞÓRÐARDÓTTIR, Smiöjustíg ,1, Reykjavík, lézt í Borgarspitalanum 25. janúar sl. Guörún Gísladóttir, Guömundur Gíslason.
+ ; Móöir okkar, HALLDÓRA JÓHANNA SVEINSDÓTTIR, Seljavegi 5, andaöist 26. þ.m. Anna Bjarnadóttir, Sveinn B. Bjarnason, Aöalheiöur B. Rafnar, Dóra Bjarnadóttir, Bjarni J. Bjarnason.
+ WAYNE CLENDENING lést í San Diego, Kaliforníu, þann 22. janúar. Unnur Magnúsdóttir Clendening, Níls Wayne E. Clendening.
+ Elskuleg eiglnkona mín, móöir, tengdamóöir og amma, UNNUR JÓNSDÓTTIR, Grenimel 15, andaöist í Landspitalanum 27. janúar. Hólmgeir Jónsson, Eyvör Hólmgeirsdóttir, Steingrímur Helgason, Aöalbjörg Hólmgeirsdóttir, Lárus Guögeirsson og barnabörn.
+ BRAGI ÞÓR GÍSLASON veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 31. janúar kl. 15.00. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Minningarsjóö Bryndísar Gísladóttur á skrifstofu hjúkrunarforstjóra Landspítalans. Jóhanna Ólafsdóttir, Gísli Guömundsson, Björk Gísladóttir, Bryndís Hrönn Ragnarsdóttir.
+ Þakkir færum viö öllum er sýnt hafa hluttekningu viö fráfall og jaröarför JÓHÖNNU STEINDÓRSDÓTTUR, Heiöargeröi 122. Njáll Þórarinsson, Þórir Steindór Njálsson, Aöalbjörg Gunnarsdóttir og barnabörn.
t
Þökkum Innilega auösýnda samúö og vináttu viö andlát og jaröar-
för móöur okkar, ömmu og langömmu,
RAGHEIÐAR JÓNASDÓTTUR,
Ægisgötu 26.
Lilja Magnúsdóttir, Guömundur Áatráösson,
Svana Magnúsdóttir, Jón Karlsson,
Sigrún Magnúsdóttir, Siguröur Sigvaldason,
börn og barnabörn.
Kristín Þórðar-
dóttir - Minning
F«dd 4. júní 1933
Dáin 22. janúar 1984
Það dimmdi yfir sunnudaginn
22. janúar þegar okkur barst sú
harmafregn að systir okkar, Stína,
væri látin.
Hún hét fullu nafni Kristín
Karólína Þórðardóttir, fædd á
Kvíabryggju f Grundarfirði, sem
þá var lítið sjávarpláss. Móðir
hennar var Ingibjörg Sveinsdóttir
frá Króki, Grundarfirði, (f. 1909,
d. 1947), en faðir er Þórður Þor-
valdsson frá Skerðingsstöðum,
Grundarfirði, (f. 1905). Stína ólst
upp hjá ömmu sinni og afa. Þau
voru Þorvaldur Þórðarson frá
Skerðingsstöðum og Kristín Karó-
lína Jakobsdóttir. Stína byrjaði
snemma að vinna eins og algengt
var á þeim árum, og var hún sér-
staklega dugleg og ósérhlífin eins
og best kom í ljós þegar amma
hennar lagðist banaleguna. Tók
hún þá við heimilinu og hjúkraði
ömmu sinni af miklum hlýhug og
kærleika þau ár sem hún átti eftir
ólifuð. Stína var yfirveguð og ró-
leg, en þó var hún ávallt kát og
glöð og hafði næmt auga fyrir
hinu broslega í tilverunni.
Eftir dauða ömmu sinnar flutt-
ist hún tii Vestmannaeyja þar sem
hún kynntist eftirlifandi eigin-
manni sínum, Stefáni Jóhanns-
syni. Þau eignuðust sjö mannvæn-
leg börn, fimm drengi og tvær
stúlkur. Börn þeirra eru: Þorvald-
ur, Kristinn, Ragnar, Jóhann,
ómar, Snædís og Ingibjörg.
Árið 1973 urðu þau að flytja upp
á land eins og svo margir aðrir
þegar eldgosið hófst. Akranes
varð fyrir valinu sem griðastaður
meðan á gosinu stóð. Þau voru
með þeim fyrstu sem fluttu aftur
til Eyja, og gleymi ég ekki eftir-
væntingunni og gleðinni er skein
úr svip systur okkar er hún endur-
heimti sitt fyrra heimili.
Stína var fjórða elst í stórum
barnahópi, alls níu systkini. Við
andlát móður okkar og tveggja
bræðra bundust við systkinin
sterkum tilfinningaböndum, sem
aldrei hafa rofnað. Þungbært var
að flytja föður okkar lát hennar,
Jes Agúst Jóns-
son — Minning
Fæddur 13. febrúar 1915
Dáinn 12. janúar 1984
„Hann Ágúst Jónsson er dáinn.
Það á að jarða hann á morgun"
var það fyrsta, sem barst að eyr-
um mér, er ég kom heim sl. mið-
vikudag. { önnum dagsins hafði
fregnin um andlát hans farið fram
hjá mér. Þegar mér barst þessi
sorgarfrétt, varð mér hugsað til
þess, hve hratt við berumst með
lífsins straumi að leiðarlokum
þessa lífs. I huga mínum hrönnuð-
ust upp minningarnar, sem ég átti
um þennan ágæta kunningja, sem
var hvort tveggja í senn, dugnað-
arforkur og ljúfmenni.
Kynni okkar hófust er ég átti
viðskipti við hann fyrir um 20 ár-
um vegna byggingar húss míns.
Það var mannkostum Gústa að
þakka, en það var hann ávallt
kallaður meðal vina, að upp úr
viðskiptum okkar þróaðist gott
kunningjasamband enda þótt
samverustundir okkar hefðu mátt
vera fleiri. Það var ávallt einstakl-
ega notalegt að koma með vanda-
mál sín til hans. Það stóð aldrei á
því að leysa þau og alltaf mætti
maður sama létta hugarfarinu og
hinni miklu velvild, sem svo mjög
einkenndi framkomu hans. Ég
minnist þess ekki að hafa nokkru
sinni heyrt Gústa bregða skapi
+
Einlægar þakkir flytjum viö öllum er heiöruöu minnlngu eiginkonu
minnar, móöur okkar og tengdamóöur,
HÖNNU ARNLAUGSDÓTTUR,
röntgentæknis,
og sýndu okkur vináttu og samúö viö fráfall hennar.
Bjarni Ólafsson,
Gunnar Bjarnason, Kristín Sverrisdóttir,
Ólafur Bjarnason, Uirica Linder,
Hallfríóur Bjarnadóttir, Frode Lástad.
t
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og
útför
HRAFNKELS STEFÁNSSONAR,
lyfsala.
Guöbjörg Jónsdóttir,
Ragnheiöur Hrafnkelsdóttir, Sigríöur Hrafnkelsdóttir,
Hannes Hrafnkelsson, Guörún Hrafnkelsdóttir,
Jón Hrafnkelsson, Margrét Björnsdóttir,
Stefán Hrafnkelsson, Anna Ólafía Siguröardóttir,
Guörún Guðjónsdóttir,
Hreggviöur Stefánsson, Stefán Már Stefánsson.
+
Hjartanlegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vináttu viö andlát og
jaröarför
ODDNÝJAR SIGURRÓSAR SIGURÐARDÓTTUR,
Akureyri,
fyrrum húsmóöur ( Bakkakoti í Skagafjaröarsýslu.
Guö blessi ykkur öll.
Stefán Jóhannesson,
börn og tengdabörn,
barnabörn, barnabarnabörn
og aðrir vandamenn.
en megi góður guð styrkja hann er
ástkær dóttir er kvödd. Við sem
eftir stöndum biðjum guð að
blessa minningu hennar og fylgja
henni í faðm ástvina hennar, sem
á undan eru farnir.
Kæri Stefán og börn, við vottum
ykkur okkar dýpstu samúð í sorg
ykkar við fráfall elskulegrar eig-
inkonu og móður.
Systkini
þótt oft hafi verið erilsamt í
kringum hann.
Sjaldan fór svo, að umræðurnar
snérust eingöngu um biikksmíði.
Yfirleitt var einnig rætt um ein-
hver þau atriði, sem varða mann-
leg samskipti og það var einmitt
við slíkar umræður, sem mann-
kostir Gústa komu svo vel fram og
urðu til þess, að tengsl okkar urðu
meiri en viðskiptalegs eðlis. Það
kom fljótt i ljós, að bak við dugn-
aðinn og harðfylgnina í starfi bjó
blíðlynd og góð sál. Nú þegar minn
ágæti kunningi er allur, geri ég
mér betur grein fyrir því en áður,
hvers virði það er í lífinu að kynn-
ast góðu fólki.
Hann Gústi var einstaklega
hjálpsamur. Það var eins og hann
hafi haft að leiðarljósi orðatiltæki
skáta, „Ávallt viðbúinn". Ánægð-
astur var hann, þegar hann gat
samstundis leyst minni háttar
verkefni, sem komið var með til
hans og lét hann sig þá oft ekki
miklu varða, þótt utan vinnutíma
væri. Fyrir nokkrum árum var ég
að föndra á svið blikksmíðinnar og
leitaði til Gústa. Máiin þróuðust
fljótlega á þann veg, að ég reynd-
ist velkominn á verkstæði hans,
þar sem mér stóð til boða að nýta
mér aðstöðuna undir leiðsögn
hans. Á verkstæðinu átti ég marg-
ar mjög ánægjulegar samveru-
stundir með Gústa og ekki var al-
veg einskis virði sú kynning, sem
ég fékk á blikksmíði. Fyrir þetta
stend ég í þakkarskuld.
Góður drengur hefur lokið dags-
verki sínu og lagst til hinstu hvílu,
lúinn eftir árangursríkt ævistarf.
Á morgun vaknar hann, hress og
glaður í nýju og björtu umhverfi.
Bestu þakkir fyrir samfylgdina.
Börnum, tengdabörnum og
barnabörnum votta ég dýpstu
samúð mína. Megi Guð gefa ykkur
styrk og gæfu um ókomna fram-
tíð.
Gísli Jónsson