Morgunblaðið - 16.02.1984, Side 1
56 SÍÐUR MEÐ MYNDASÖGUBLAÐI
STOFNAÐ 1913
38. tbl. 71. árg.__________________________________FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1984________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Aukinn^ þungi
í sókn írana
Nikósíu. Kýpur, 15. febrúar. AP.
HERÞOTIIK írana gerðu í morgun loftárás á úthverfi Bagdad, höfuöborgar
íraks, skömmu eftir að þær höfðu gert árás á nærliggjandi borg, Baaqubah, og
nokkrar aðrar borgir landsins.
Seint í kvöld tilkynntu yfirvöld í
íran um manntjón og sögðu 25
óbreytta borgara hafa fallið og 67
hafa særst í árásunum. Jafnframt
var frá því skýrt að loftárásirnar
hefðu náð til nokkurra borga í
landinu, en ekki aðeins tveggja
eins og sagt var fyrr í dag.
Árásin á Bagdad í morgun
markar tímamót í 3% árs löngu
stríði þjóðanna, að því leyti að svo
langt inn í írak hafa íranskar her-
þotur aldrei komist fyrr til árása.
íranska fréttastofan, IRNA,
sagði árásirnar aðeins vera hefnd
fyrir árásir íraka á borgirnar Ilam
og Khorramshar í gær. Sagði
IRNA 27 hafa látið lífið og 300
særst í árásunum.
Varnarmálaráðherrar Kuwait
og Saudi-Arabíu vísuðu í dag
þeirri hótun írana að loka Horm-
uz-sundi alfarið á bug sem „gróf-
legri áreitni". Sögðu þeir jafn-
framt, að ekki yrði við það unað
tækju íranir af skarið og lokuðu
sundinu.
Chernenko búinn
að gefa tóninn
Gagnrýndi stefnu Bandaríkjanna í M-Ameríku
Moskvu, 15. febrúar. AP.
PIERRE Trudeau, forsætisráðherra
Kanada, átti í dag 35 mínútna fund
með Konstantin Chernenko, hinum
nýja leiðtoga sovéska kommúnista-
flokksins. Sagði Trudeau, að um-
mæli þau er Chernenko viðhafði
hefðu verið mjög „í anda Brezhn-
evs“.
Þó sagði Trudeau fréttamönnum
eftir fundinn, að sér hefði virst af-
staða Chernenkos til samskipta
austur- og vesturveldanna heldur
mildari, en vestrænir frammá-
menn, sem hittu hann að máli í
gær, hefðu látið i veðri vaka.
I viðræðum við leiðtoga ýmissa
þjóða heims í dag og gær hefur
Chernenko lagt á það áherslu, að
hann hyggist taka upp þráðinn þar
sem frá var horfið er Andropov
lést. Gaf hann strax til kynna það
sem koma skal, er hann gagnrýndi
stefnu Bandaríkjamanna í Mið-
Ameríku.
Sigurkoss
Breska skautadansparið Jayne Torvill og Christopher Dean brutu blað í
sögu skautadans á Ólympíuleikunum er þau fengu 12 sinnum hæstu
cinkunn dómaranna fyrir frammistöðu sína í fyrradag. Sjá nánar íþrótt-
ir á bls. 46 Og 47. Símaniynd AP.
Reagan, Bandarfkjaforseti, á fundi með fréttamönnum í gærkvöldi:
Yfirmaður
gæsluliðs
SÞ myrtur
Róm, 15. febrúar. AP.
TVEIR vopnaðir menn skutu í kvöld
Leamon Hunt, yfirmann gæsluliðs
Sameinuðu þjóðanna á Sinai-skaga,
til bana á götu úti í Róm. Hunt lést
skömmu eftir að komið var með
hann í sjúkrahús.
Hópur, sem nefnir sig „baráttu-
hóp kommúnista", hafði samband
við dagblað í Mílanó nú í kvöld og
lýsti morðinu á hendur sér. Þessi
hópur er talinn nátengdur Rauðu
herdeildunum svonefndu. Morðið
var framið aðeins nokkrum stund-
um eftir að George Bush, vara-
forseti Bandaríkjanna, hélt frá
Róm.
Að sögn sjónarvotta hófu menn-
irnir tveir skothríð á bifrið Hunt
er hún nam staðar. Bifreið hans er
búin skotheldum rúðum og endur-
vörpuðust fyrstu skotin. Þá hlupu
mennirnir tveir upp að bifreiðinni
og létu kúlnaregnið dynja á gler-
inu uns það brast. Talið er að
Hunt hafi fengið nokkur skot í sig
áður en bifreiðastjóri hans tók
loks við sér og ók honum í ofboði í
sjúkrahús.
Kafbátaleitin:
Enginn
árangur
Verðum áfram í Líbanon
á meðan friðar er von
Washington, Vínarborg, Beirút, Jerúsalem, 15. i
REAGAN Bandaríkjaforseti til-
kynnti í kvöld, að svo gæti farið að
bandarísku gæsluliðarnir yrðu
hafðir í allt að 13 mánuði á hcrskip-
unum undan strönd Líbanon ef
þörf krefði. „Allt byggist á fram-
vindu mála og hvernig okkur tekst
upp,“ sagði Keagan á fundi með
fréttamönnum. „A meðan einhver
von er á friði verða menn okkar
áfram í Líbanon."
Meirihluti ítalska gæsluliðsins
í Líbanon verður kallaður heim
innan tveggja vikna, að því er
talsmaður Bettino Craxi, forsæt-
isráðherra Italíu, sagði í Vínar-
borg í dag.
Öryggisráð Sameinuðu þjóð-
febrúar.
anna kom saman í dag til að ræða
þá tillögu Frakka, að gæslulið frá
SÞ taki við af gæsluliði Frakka,
Bandaríkjamanna, Breta og ítala
í Líbanon. Engin niðurstaða varð
á fundinum, en annar fundur hef-
ur verið boðaður í fyrramálið.
Gemayel, forseti Líbanon, hef-
Dollar
veikist
New York, 15. febrúar. AP.
STAÐA Bandaríkjadollars veikt-
ist mjög á gjaldeyrismörkuðum í
Japan og Evrópu í dag.
Hefur gengi dollarans nú
lækkað um 3,5% á nokkrum
vikum gegn helstu gjaldmiðl-
um Evrópu. Breytingin gegn
v-þýska markinu í dag nam t.d.
1,8%, dollar í óhag.
ur að sögn stærstu blaðanna í
Beirút lýst yfir áhuga sínum á að
rifta samkomulaginu, sem gert
var við Israela þann 17. maí sl.
um brottflutning erlendra herja
frá landinu, í þeirri viðleitni að
bjarga lífi stjórnar sinnar.
Walid Jumblatt, leiðtogi drúsa,
sagði í dag, að hann væri staðráð-
i inn í að beita öllum brögðum til
i að bola Amin Gemayel, Líbanon-
forseta, frá völdum. Jumblatt
sagði engu breyta þótt Líbanir
ákvæðu að rifta samningnum við
Israela. Sagði hann Gemayel
grípa allt of seint í taumana.
Stokkhólmi, 15. febrúar. AP.
SÆNSKI sjóherinn hélt í kvöld
áfram leit sinni að óþekktum kaf-
báti, sem vart varð við undan
ströndinni við Karlskrona um sl.
helgi. Enginn árangur hefur enn
orðið af leitinni.
Á sama tíma og tilkynnt var
um árangurslausa leit var frá þvi
skýrt, að vart hefði orðið við er-
lenda froskkafara innan skerja-
garðsins við Karlskrona.
Tíu djúpsprengjum var varpað
síðdegis á staði, þar sem sjóher-
inn taldi sig hafa orðið varan við
kafbátinn. Átta djúpsprengjum
var varpað í morgun, en allar
virðast hafa misst marks.
á lofti, sem gefa til-
aukinnar bjartsýni
Frá fundi George Bush með Konstantin Chernenko í Moskvu.
Símamynd AP.
Róm, 15. febrúar. AP.
GEORGE BIISH, varaforseti Bandaríkjanna, sagði í dag eftir ferð sína til
Moskvu vegna útfarar Yuri V. Andropov, að ákveðin teikn væru á lofti, sem
gæfu tilefni til aukinnar bjartsýni um framvindu samskipta stórveldanna.
Bush ræddi við fréttamenn á
flugvellinum í Róm rétt áður en
hann hélt til Parísar síðdegis. Á
Ítalíu hitti hann ráðamenn að máli
og ræddi einnig við Jóhannes Pál
páfa II.
„Ég gat ekki betur séð en Chern-
enko væri vel á sig kominn og vel
með á nótunum," sagði Bush og var
að sögn ánægður með viðræður
sínar við Sovétleiðtogann. Sagðist
Bush hafa gert Chernenko það
fyllilega ljóst, að Bandaríkjamenn
væri reiðubúnir til viðræðna um
alla hluti, þ.m.t. gagnkvæma fækk-
un herja.
Þá sagði Bush það hafa vakið
athygli sína, að Chernenko hefði
stýrt fundinum með sér af rögg-
semi og aldrei leitað ráða hjá að-
stoðarmönnum sínum á meðan á
honum stóð. „Fundurinn með hon-
um minnti mjög á fund, sem ég
átti með Andropov fyrir 15 mánuð-
um,“ sagði Bush að endingu.