Morgunblaðið - 16.02.1984, Síða 27

Morgunblaðið - 16.02.1984, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1984 27 Umræðan og tillagan um íslandssögukennslu: „Kveikjan hjá Morgunblaðinuu — sagði Hjörleifur Guttormsson Fyrstu umræöu um tillögu til þingsályktunar um kcnnslu í íslandssögu, sem Eiður Guðnason o.fl. flytja, var fram haldið í Sameinuðu þingi í fyrradag en lauk ekki. í framhaldsum- ræðunni töluðu tveir þingmenn kvennalista og einn þingmað- ur Alþýöubandlags. Sigríður Dúna Hjörleifur Guórún SIGRÍÐUR DÚNA KRIST MUNDSDÓTTIR (Kvl.) andmælti staðhæfingum Eiðs Guðnasonar um íslandssögu sem samsögu kvenna og karla og að ekki væri til neitt sem héti kvennamenning eða kvennasaga. „Konur og karlar eru ekki eins,“ sagði þingmaðurinn, „ekki aðeins líkamlega, heldur einnig menningarlega. Frá alda öðli hafa konur haft með. höndum önnur störf en karlar og frá alda öðli hafa konur — en ekki karlar — gengið með börnin, fætt þau í þennan heim og annazt þau fyrstu æviárin. Þetta hvort tveggja gerir það að verkum að lífsreynsla kvenna og karla er ekki sú sama, þar er óhjákvæmilega um nokkurn mun að ræða.“ íslandssagan, eins og hún væri kennd, þegi um þær þúsundir kvenna, sem byggt hafi þetta land í 1100 ár. HJÖRLEIFUR GUTTORMSSON (Abl.) flutti langt mál og sagði m.a. augljóst að flutningur þessar- ar tillögu væri „sprottinn af þeirri umræðu, sem Morgunblaðið hleypti af stað fyrir tilverknað blaðamannsins Guðmundar Magnússonar þann 13. nóv. sl. og sem hefur orðið kveikja að meiri blaðaskrifum um þetta efni á þeim tíma sem síðan væri liðinn en ég man eftir að hafa séð um íslands- sögumálefni og raunar um mál- efni skólanna almennt." Hjörleifur dró í efa gildi þeirrar skoðanakönnunar um fslands- söguþekkingu, sem til væri vitnað. Hann vitnaði einnig í leiðaraskrif Þingmenn halda áfram að spyrja ráðherra spjörunum úr: • SALOME ÞORKELSDÓTTIR (S) spyr dómsmálaráðherra: 1) Hvernig er háttað rannsókn um- ferðarslysa hér á landi? 2) Er fyrirhugað að skipa sérstaka um- ferðarslysanefnd sem hafi það hlutverk að rannsaka afleiðingar Mbl., sem þingmaðurinn fann sitt hvað til forráttu, og ennfremur í grein Wolfgangs Edelstein í sama blaði, sem hann taldi hrekja leið- araskrifin. í lok ræðu sinnar sagði umferðarslysa, sbr. 84. gr. umferð- arlaga? • GUÐRÚN AGN ARSDÓTTIR (Kvl.) spyr heilbrigðisráðherra: Hverjar eru aðstæður hér á landi til að veita athvarf og heilbrigðis- þjónustu þeim börnum og ungling- um sem eru illa haldin andlega og líkamlega um styttri eða lengri tíma vegna fíkniefnaneyzlu? • FRIÐJÓN ÞÓRÐARSON (S) spyr menntamálaráðherra: Hvað hefur verið gert til að framfylgja þingsályktun frá 22. marz 1979 um verndun og könnun lífríkis Breiða- fjarðar? • KARL STEINAR GUÐNASON (A) spyr menntamálaráðherra: 1) Hvað líður athugun á því að Námsgagnastofnun fái til dreif- ingar í skóla myndefni sem sjón- varpið hefur framleitt á liðnum árum og telst gagnlegt til notkun- ar í skólum? 2) Hvað kemur í veg fyrir að Námsgagnastofnun geti fengið slíkt efni til birtingar? 3) Hver er stefna menntamálaráð- herra að því er varðar notkun þessara mikilvægu og sterku fjöl- miðla í skólakerfinu? 4) Hver er Hjörleifur efnislega að skrif Mbl. hafi gengið fram með þeim hætti „að sízt er til þess fallið að tekið verði á þessum málum þannig að til heilla horfi". stefna menntamálaráðherra varð- andi þátttöku íslands í samvinnu skólasjónvarpsdeilda sjónvarpa á Norðurlöndum? • KRISTÍN HALLDÓRSDÓTTIR (Kvl.) spyr dómsmálaráðherra: 1) Hversu oft hefur verið kært fyrir nauðgun síðan Rannsóknarlög- regla ríkisins var sett á stofn árið 1977? 2) Hve margar kærur hafa leitt til ákæru? 3) Hve mörgum málum hefur lokið með sátt og hve háar upphæðir er um að ræða í hverju tilviki? 4) Hve margar kærur hafa verið felldar niður vegna skorts á sönnunum? 5) Hve margar ákærur hafa leitt til dóms og hver hefur refsing orðið í hverju tilviki? • EIÐUR GUÐNASON (A) spyr menntamálaráðherra: Hvað líður framkvæmd þingsályktunar frá 3. maí 1982 um aðgang almennings að íslenzku sjónvarpsefni á myndsnældum? • GUÐRÚN AGNARSDÓTTIR (Kvl.) spyr heilbrigðisráðherra: Hverjar eru aðstæður í heilbrigð- iskerfi til að sinna geðrænum vandamálum barna og unglinga? Ráðherrar spurðir spjörunum úr Stuttar þingfréttir: Fimm frumvörp til skattalagabreytinga Fjögur frumvörp til breytinga á lögum um tekju- og eignaskatt vóru á dagskrá þingdeilda í gær og eitt að auki um skattfrádrátt vegna fjárfestingar í atvinnuskyni, sem miðar að því að sparnaður sem settur er í áhætturekstur njóti hliðstæðra skattréttinda og annar sparnaður. Albert Guðmundsson, fjármálaráðherra, svaraði fyrir- spurnum frá Guðrúnu Helgadóttur (Abl.) um fyrirframgreiðslur ör- yrkja og ellilífeyrisþega og birt- ingu skattskrár efnislega á þessa leið: • Ekki er hægt að ákveða lækk- un fyrirframgreiðslna fyrr en framtöl liggja fyrir. Á grund- velli reglugerðar 798/1983 er heimilt að lækka slíkar greiðslur ef rauntekjur hafa lækkað milli ára um 25%, eða aðrar aðstæður breytzt sem réttlæti lækkunina. Umsóknareyðublöð um slíka lækkun liggja fyrir hjá skatt- stjórum og ber að skila umsókn- um með framtölum. • Samhliða mun ég láta kanna, hvort ástæður eru til að breyta reglugerð í þá veru að lækka fyrirframgreiðslur elli- og ör- orkulífeyrisþega. • Ráðherra sagðist og hlynntur þeim hugmyndum sem fram hefðu verið settar um birtingu álagðra skatta og síðar endan- legra skatta. Vörumerki — einkaleyfi — áfrýjunarnefnd Fram hefur verið lagt stjórn- arfrumvarp um breytingu á lög- um nr. 47/1968 um vörumerki. Lagt er til að felld verði niður heimild til að áfrýja til iðnaðar- ráðherra ágreiningsmálum er varða skráningu vörumerkja. Þess í stað verði lögfest máls- meðferð með skipun sérstakrar áfrýjunarnefndar til að úr- skurða í málum sem þessum. Frumvarpið er flutt samhliða frumvarpi til laga um breytingu á einkaleyfalögum um sama efni. Lagt er til að ein nefnd úr- skurði í ágreiningsmálum í báð- um þessum málaflokkum og að heiti nefndarinnar verði í sam- ræmi við það: áfrýjunarnefnd í vörumerkja- og einkaleyfamál- um. Vanræksla í bflbelta- notkun — sektarákvæði KARL STEINAR GUÐNASON (A) o.fl. þingmenn úr öllum þing- flokkum hafa lagt fram frum- varp til breytinga á umferðar- lögum, sem kveður svo á að 2. málsgein 6. greinar umferðar- laga falli niður. í greinargerð með frumvarpinu segir að 165 farþegar og ökumenn hafi látið lífið í bifreiðaslysum á árabilinu 1972—’83. í skyrslum um þessi slys hafi komið í ljós að líkur bendi til að notkun bílbeita hefði getað forðað 104 (af 165) þessara manna frá dauða. Fullreynt sé að ekki sé hægt með áróðri eða fræðslu að auka bílbeltanotkun frá því sem nú er (27% öku- manna). Reynsla annarra þjóða, s.s. Breta, sýni, að bílbeltanotk- un hafi aukizt verulega með sektarákvæðum. Banaslysum farþega í framsæti hafi fækkað í kjölfarið úr rúmlega 2.200 í 1.500 á einu ári, eða um þriðjung. Tímabært sé að færa sér þessa reynslu í nyt. Orkubú Suðurnesja SVERRIR HERMANNSSON, iðnaðarráðherra, kvaðst myndu leggja fyrir þetta þing frumvarp til laga um Orkubú Suðurnesja eða frumvarp til breytinga á lög- um til Hitaveitu Suðurnesja á þann veg að hún fái að breyttum lögum hlutverk orkuveitu. Frumvarp um kirkjusóknir Fram hefur verið lagt stjórn- arfrumvarp um kirkjusóknir, safnaðarfundi, sóknarnefndir, héraðsfundi o.fl., sem er að meg- instofni samið af kirkjulaga- nefnd. Frumvarpið er kaflaskipt: 1) Umdæmisskipting þjóðkirkju, 2) Kirkjusóknir og skipan þeirra, 3) Sóknarmenn og réttur þeirra til kirkjulegrar þjónustu, 4) Safnaðarfundir, 5) Sóknarnefnd- ir, skipun, störf og starfshættir, 6) Starfsmenn kirkjusókna, 7) Héraðsnefndir og héraðsfundir, 8) Stjórnvaldsreglur. Lausaskuldum bænda breytt í föst lán Fram hefur verið lagt frum- varp um nýjan flokk banka- vaxtabréfa hjá veðdeild Búnaðarbanka íslands, sem ein- göngu verði notuð til að breyta lausaskuldum bænda í föst lán. Athuganir hafa leitt í ljós að milli 200 og 300 bændur hafa ríkulega þörf fyrir slíka skulda- breytingu. Þegar hafa borizt um- sóknir um 150 m.kr. lán og víst er talið að ekki séu öll kurl kom- in til grafar. Bifreiðir - þinglýsingarreglur Fram hefur verið lagt stjórn- arfrumvarp um breytingu á þinglýsingarlögum. Frumvarpið kveður m.a. á um að skjal er varðar skráða bifreið og móttek- ið sé til þinglýsingar skuli kunngera bifreiðaeftirliti og verði þess getið í ökutækjaskrá. Þá felur frumvarpið í sér að þinglýsing skuli framvegis fara eftir reglum 7. kafla um þinglýs- ingu á almennu lausafé en ekki vera umdæmaskipt. GUÐRÚN AGNARSDÓTTIR (Kvl.) vék einnig að orðum Eiðs Guðnasonar, sem hún sagði þýða að ekki væri til nein sérstök kvennamenning, bara menning, ekki nein sérstök kvennasaga, bara mannkynssaga. Hún sagði konur ekki hafa verið gerendur eða skrifendur sögu sinnar en fyrst og fremst þolendur hennar. Þegar farið er segja frá athöfnum manna og rás sögunnar séu það ekki konur, heldur karlar, sem segi frá. Á sama hátt sé sagan metin út frá karlasjónarmiði. Guðrún vitnaði til könnunar á sænskum þingræðum. Þar hefðu orðin barn, konur, foreldrar og menntun komið oftar fyrir í ræð- um þingkvenna er þingkarla. Öðru máli hafi verið að gegna um fyrstupersónufornafnið ég, orðið framleiðsla, orðið fyrirtæki. Þar hefðu karlar haft vinninginn. Nú eru breyttir tíma, sagði þingmað- urinn, konur vilja ekki lengur verða meðsekar um áhrifaleysi sitt. Umræðunni lauk ekki. Meöum við eldd freista þínmeð leik- - Þú gætir svo sem litið inn á Broadway líka! FLUGLEIDIR Gott fólk hjá traustu télagi Við fljúgum þérsuður

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.