Morgunblaðið - 16.02.1984, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1984
25
Matthías Á. Mathicsen
ar vörur settar undir verðgæslu og
hefur þetta fyrirkomulag gefist vel.
Þann 1. nóvember 1983 ritaði
viðskiptaráðherra Verðlagsstofnun
bréf þar sem stofnuninni var falið
að gera tillögur um framkvæmd
verðlagsmála í samræmi við stefnu-
yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá
26. maí 1983 og um framkvæmd
verðgæslu eftir 1. febrúar 1984.
Verðlagsstofnun svaraði þessu bréfi
10. janúar 1984 með ítarlegri grein-
argerð um málið.
Þann 12. janúar ritaði viðskipta-
ráðherra bréf til Verðlagsráðs þar
sem því var beint til ráðsins að ráð-
ið beiti heimildarákvæðum í 8. gr.
laga nr. 56/1978 (eins og henni var
breytt með lögum nr. 52/1982) á
þann veg, að stefna ríkisstjórnar-
innar í verðlagsmálum komi til
framkvæmda. Er hér átt við stefnu-
yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá
26. maí 1983 og ákvæði i bráða-
birgðalögum um verðlagsmál nr.
58/1983.
Undanfarnar vikur hefur verið
unnið ötullega að nánari útfærslu á
hugmyndum sem fram komu í
greinargerð Verðlagsstofnunar,
bæði að því er varðar aukið frjáls-
ræði í verðlagsákvæðum og fram-
kvæmd verðgæslu. Verðlagsráð hef-
ur fjallaö um málið og þá sérstak-
lega verslunarálagninguna.
Stefnt er að því að gefa verslun-
arálagninguna frjálsa í áföngum.
Verður álagning á hinum ýmsu
vöruflokkum gefin frjáls með
hliðsjón af þeim hraða sem fram-
kvæmd verðgæslu leyfir. Verður
byrjað á matvörum, hreinlætisvör-
um og öðrum vörum, sem nú eru
seldar í matvöruverslunum, að und-
anskildum mjólkurvörum, kjöti og
fiski.
Framkvæmd verðgæslu yrði sú,
að seljendur vöru og þjónustu til-
kynntu Verðlagsstofnun t.d. með
tveggja vikna fyrirvara um verð-
breytingar. Verðlagsstofnun tæki
síðan tilkynninguna til athugunar
og ef ekkert væri við hana að at-
huga tæki verðbreytingin gildi á til-
settum tíma. Ef um athugasemdir
er að ræða af hálfu Verðlagsstofn-
unar verða teknar upp viðræður við
viðkomandi aðila og kannað í hverju
mismunun er fólgin. Ef mál leysast
ekki í viðræðum er málinu skotið til
Verðlagsráðs. eR þetta svipað fyrir-
komulag og gildir t.d. á öðrum
Norðurlöndum.
Þá mun verðlagsstofnun gera
verðkannanir og birta þær reglu-
lega til að auka verðskyn neytenda,"
sagði Matthías Á. Mathiesen, við-
skiptaráðherra að lokum.
Morgunblaðið/KEE.
I)r. Jakob Magnússon, fiskifræðingur
og aðstoðarforstjóri Hafrannsókna-
stofnunar.
innar 1977 leggur hún til að ákveðn-
um svæðum sé lokað fyrir karfa-
veiðum við austurströnd Grænlands
og EBE féllst strax á það. Þetta,
ásamt útfærslu Grænlendinga á
lögsögu sinni, varð til þess að Rúss-
ar hrökkluðust burtu af miðunum."
Tillaga EBE allt of há
„Þjóðverjar hafa að jafnaði veitt
nokkuð meira en við af karfa á mið-
unum við Austur-Grænland, frá
1970 til 1976 voru þeir með á bilinu
4 til 17 þúsund tonn, á meðan við
veiddum 1 til 10 þúsund. Og þegar
við færum út okkar landhelgi, og
stuggum Þjóðverjum þannig burtu
af miðunum við ísland, efla Þjóð-
verjar sókn sína á Grænlandsmið og
komast upp í 44 þúsund tonn árið
1982. Tillögur EBE um karfaveiðar
á næsta ári eru því miðaðar við það
hámark sem Þjóðverjar hafa komist
upp í á undanförnum árum. En ég
er þeirrar skoðunar að þetta sé allt
of há tala eigi að síður og rökstyð
það á eftirfarandi hátt:
Vinnunefndin komst fljótlega að
þeirri niðurstöðu að karfastofnarnir
við Island, Grænland og Færeyjar
væru hinir sömu, og ekki væri stætt
á öðru en að meðhöndla þetta sem
eina heild. Veiðihlutfallið á milli
þessara svæða á meðan sóknin var
frjáls og eðlileg var 80% á ís-
landsmiðum, 17% við Austur-
Grænland og 3% við Færeyjar.
Þetta hlutfall hefur breyst eftir út-
færslu íslensku fiskveiðilögsög-
unnar vegna hertrar sóknar Þjóð-
verja á miðin við Grænland, og nú
eru um 30% af karfa á þessum
svæðum veidd við Austur-Græn-
land. Ég tel hins vegar eðlilegt að
halda því hlutfalli sem var á meðan
sóknin var frjáls, það er að segja, að
leyft yrði að veiða um 17% af heild-
arveiðinni við Grænland, en 44 þús-
und tonn eru gott betur en 17% af
105 þúsund tonnum."
En er við því að búast að Þjóð-
verjar fari eftir ráðleggingum Al-
þjóðahafrannsóknaráðsins þegar Is-
lendingar, sem mest veiða af karfa,
hafa hundsað þær hingað til?
„íslensk stjórnvöld sýndu á sínum
tíma vilja til að ná samkomulagi um
heildarveiði á karfa á svæðinu við
ísland og Austur-Grænland, en það
tókst ekki að ná samkomulagi við
EBE og því hefur hvorugur aðilinn
talið sig bundinn af veiðitakmörk-
unum. En þetta er mál stjórnmála-
manna en ekki fiskifræðinga. Fiski-
fræðingar gera ekki annað en að
setja dæmið upp. Við segjum hvað
óhætt sé að veiða mikið án þess að
ganga á stofnstærðina, en síðan er
það stjórnmálamanna að taka
ákvarðanir um hvað gert verður.
Þeir geta allt eins valið að leyfa
ótakmarkaðar veiðar í nokkur ár,
vitandi vel að það mundi kosta
margra ára fiskleysi á eftir.“
Um næstu helgi fer Jakob til
Kaupmannahafnar á tvo fundi í
vinnunefndum Alþjóðahafrann-
sóknaráðsins, annars vegar hjá
ofangreindri vinnunefnd um karfa-
og grálúðuveiðar í Norður-Atl-
antshafi, sem hann hefur setið í frá
upphafi, og hins vegar í nýstofnaðri
nefnd, sem hefur það hlutverk að
rannsaka samhengi á milli karfa-
stofna í Grænlandshafi og við
Vestur-Grænland, en Jakob er
formaður þeirrar nefndar.
Gamla kempan, Benóný Benediktsson, mætir til leiks á farkosti sínum 15 mínútum of seint.
Ljósm. Mbl. KC
Jóhann vann Lobron og
Helgi sigraði Friðrik
Skák
Margeir Pétursson
ÖNNUR umferð Reykjavíkurskák-
mótsins var tefld í gærkveldi. Mesta
athygli vöktu skákir þeirra Jóhanns
Hjartarsonar og Lobron frá Þýska-
landi og Friðriks Ólafssonar og
Helga Olafssonar. í skák þeirra Jó-
hanns og Lobron var tefld Ben-oni
byrjun og vann Jóhann eftir spenn-
andi skák. Friðrik eyddi miklum
tíma á móti Helga, en féll á tíma
skömmu áður en skákin átti að fara
í bið, en þá var Friðrik með verri
stöðu.
Efstir á mótinu með 2 vinninga
eru þessir: L. Alburt, T. Wedberg,
S. Reshevsky, P. Ostermeyer,
Helgi Ólafsson, H. Schussler, Jó-
hann Hjartarson og A. Ornstein.
Úrslit skákanna í gærkveldi voru
þessi:
H. Schússler — R. Byrne 1—0
Jóhann Hjartarson — E. Lobron 1—0
Páimi Pétursson — L. Alburt 0—1
DeFirmian — Knezevíé Bið
Friðrik Ólafsson — Helgi Ólafsson 0—1
T. Wedberg — L. Schneider 1—0
L. Gutman — King Bið
Guðmundur Sigurjónsson — C. Höi Vt — Vi
Margeir Pétursson — Zaltsman Bið
S. Reshevsky — Róbert Harðarson 1—0
P. Ostermayer — Ágúst Karlsson 1—0
E. Geller — Burger 1—0
Benóný Benediktsson — L. Christiansen 0—1
Karl Þorsteins — Y. Balashov V4 —'A
Benedikt Jónasson — M. Chandler x/i — Vt
Elvar Guðmunds. — Þröstur Bergmann 'A — Vi
Jón L. Árnason — Sævar Bjarnason Bið
L. Shamkovich — Gylfi Þórhallsson 1—0
Pia Cramling — Bragi Halldórsson 1—0
Taylor — A. Ornstein 0—1
Ree — Ásgeir P. Árnason 1—0
Mc Cambridge — K. Tielemann 1—0
Guðm. Halldórss. — Haukur Angantýsson 0—1
J. Hector — Haraldur Haraldsson 1—0
Arnór Björnsson — Dan Hansson 0—1
Mayer — Hilmar Karlsson Biö
Lárus Jóhannesson — J. Nykopp Biö
Halldór G. Einarss. — Bragi Kristjánss. 'A —V4
Björgvin Jónsson — Leifur Jósteinsson Bið
Magnús Sólm.s. — Andri Áss Grétarss. 1—0
Þá voru í gær tefldar biðskákir úr
1. umferð mótsins:
Úrslit urðu þessi:
Sævar Bjarnason — E. Geller Bið
Chandler — Teylor Bið
M. Nykopp — T. Wedberg 0—1
Ásg. Þ. Árnas. — P. Ostermeyer 0—1
Bragi Halldórsson — L. Schamkovich 'A — xh
L. Schneider — Arnór Bjömsson 1—0
King — Hilmar Karlsson 1-0
A. Ornstein — Benedikt Jónasson 1—0
C. Höi — Björgvin Jónsson 1—0
Gutman — Andri Áss Grétarsson 1—0
Róbert Harðarson vann stór-
glæsilega sóknarskák gegn holl-
enska stórmeistaranum Hans Ree
í fyrstu umferð Reykjavíkurskák-
mótsins í fyrrakvöld. Ree tefldi
byrjunina glæfralega og Róbert
fórnaði peði fyrir sóknarfæri. Síð-
an hellti hann olíu á eldinn með
skiptamunfórn og kórónaði að lok-
um meistaraverkið með hróksfórn
sem Ree mátti ekki þiggja.
Hvítt: Róbert Harðarson
Svart: Hans Ree
Frönsk vörn
1. e4 — e6, 2. d4 — d5, 3. Rd2 —
Rf6, 4. e5 — Rfd7, 5. Bd3 — c5, 6.
c3 — Rc6, 7. Rgf3 — Be7
Jóhann Hjartarson lék 7. — Db6
gegn Piu Cramling á Búnaðar-
bankamótinu, en lenti í erfiðleik-
um.
8. <W) — g5, 9. dxc5 — Rxc5, 10. Bc2
— g4, 11. Rd4 — Re5, 12. f4!
Opnar línur að kóngi svarts.
12. — gxf3 (framhjáhlaup) 13.
R2xf3 - Rg6, 14. De2 — b6
15. Bh6! — Ba6, 16. De3 — Bxfl, 17.
Hxfl — Dc7
Hvítur hótaði 18. Re5.
18. b4 — Rd7, 19. Rb5 — Dc6
Tapar þvingað en 19. — Db7
mátti svara með 20. Rg5!
20. Rfd4 — Db7
21. Hxf7! — e5, 22. Hxe7+! — Kxe7,
23. Dg5+ — Rf6, 24. Bxg6
Hér átti Róbert aðeins fimm
mínútur eftir, en lét það ekki fipa
sig.
24. — exd4, 25. De5+ — Kd8, 26.
Dxf6+ — De7, 27. Dxh8+ og svart-
ur gafst upp.
Skák Jóhanns Hjartarsonar og
Lobrons tefldist þannig í gær:
Hvítt: Jóhann Hjartarson
Svart: Eric Lobron
Ben-Oni-byrjun
1. d4 — Rf6, 2. c4 — e6, 3. Rf3 —
c5, 4. d5 — exd5, 5. cxd5 — d6, 6.
Rc3 — g6, 7. Bf4 — a6, 8. a4 - Bg7,
9. e4 — 04), 10. Be2 — Bg4, 11. 0-0
— Bxf3, 12. Bxf3 — Re8, 13. Be2 —
Rd7, 14. Bg3 — 15!?
Dæmigert fyrir hvassan stíl
Þjóðverjans. Hann hikar ekki við
að veikja eigin stöðu til að ná
sóknarfærum.
15. exf5 — gxf5, 16. Bf4 — Re5, 17.
a5 — Rg6, 18. Bcl — Bd4, 19. Bd3
— Rg7, 20. Re2 — Be5, 21. Ha4!
Þessi hrókur valdar nú marga
mikilvæga reiti á kóngsvængnum.
21. — Dd7, 22. b3 — Hae8, 23. Bh6
— Hf7, 24. Dc2 — Kh8, 25. Rf4!
Hvítur hótar nú 26. Bxg7+ og
síðan 27. Re6. Svartur stofnar því
til uppskipta en við það koma
veikleikarnir í stöðu hans enn
berlegar í ljós.
25. — Rxf4, 26. Bxf4 — Dd8, 27.
Bxe5 — Hxe5, 28. b4 — Hc7, 29.
Db3 — Dc8, 30. b5 — axb5, 31.
Bxb5 — Hce7, 32. a6! — bxa6, 33.
Hxa6
Með einfaldri og rökréttri tafl-
mennsku hefur Jóhann uppskorið
gífurlega stöðuyfirburði. Auk
peðaveikleikanna er svartur mjög
veikur fyrir á 8. línunni. 33. —
Db8 gengur nú t.d. ekki vegna 34.
Da4! — Re8, 35. Ha8 og vinnur lið.
Lobron var nú kominn í tímahrak
og reynir peðsfórn sem flýtir fyrir
úrslitunum.
33. — I)b7?, 34. Hxd6 — Db8, 35.
Ha6 — He4, 36. d6 — Hb7, 37. Da2
— Df8, 38. Bc6 og l.obron gafst upp.