Morgunblaðið - 16.02.1984, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1984
E3
TRAUST hf
BOX4413— 124 R6YKJAVtK — StMI 91 43455
FÆBIBÖND
RYÐFRÍAR REIMAR
sem framleiddar eru nú í
lyrsta slnn hérlendis.
PVC-PLAST REIMAR
sértega hentugar lyrlr
allan matvæla iðnafl.
________ ^
TRAUST hf
Sími 91-83655
—
Skelfisk-
vinnsluvélar
0 Motunarsiló
• Opnarar
• Úrhristarar
• Skelbrota og bitaskiljarar
• Hreinsarar
• Fínhreinsibönd
• Lausfrystar
• Ishúðunartæki
íslensk framleiðsla
_FRÍSKk_
/m
SKRIFSTOFU
STJÓRNUN
Námskeiðið er ætlað skrifstofustjórum og öðrum sem annast
skipulagningu og stjóm á skrifstofum.
Tilgangur námskeiðsins er að kynna stöðu skrifstofu innan fyrirtækja
og hvaða þýðingu siarfsemi þar hefur fyrir fyrirtækið í heild. Gera grein
fyrir hvernig skipuleggja á starfsemi á skrifstofu í heild, hvernig verka-
skiptingu er eðlilegt að koma á og hvemig nýta má ritvinnslu til að auka
hagræðingu verkefna.
Fjallað er um hlutverk skrifstofunnar og gerð grein fyrir þeim verkefnum
sem þar eru unnin. Kynnt verður hvemig stjómskipulag má hafa á skrif-
stofum, verkaskiptingu og annað varðandi starfsmannahald. Að lokum
verður fjallað um mögulegar hagræðingaraðgerðir og kynnt nýjustu
skrifstofutæki sem notuð verða á skrifstofu framtiðarinnar.
Leiðbeinendur: Sveinn Hjörtur Hjartarson rekstrarhagfræðingur.
Lauk prófi i rekstrarhagfræði frá rekstrarhagfræðideild Gautaborgar-
háskóla 1979. Starfar nú sem rekstrarráðgjafi hjá Hagvangi h/f.
Tími: 1984. 20.—23. febrúar kl. 14—18, eamt. 16 klst.
TILKYNNIÐ PÁTTTÖKU
í SÍMA 82930
Starfsmenntunarsjóóur Starfsmannafélags Ríkisstofnana styrkir félagsmenn sina til
þátttöku á þessu námskeiöi. Upplysingar gefa viökomandi skrifstofur.
STXDRNUNARFÉLAG
ISLANDS
SÍOUMÚLA 23
SIMI 82930
Minning:
Sigurður Kristjáns-
son frá Kollabúðum
Fæddur 13. tnars 1908
Dáinn 9. febrúar 1984
í dag er kvaddur hinstu kveðju
síðasti bóndinn á Kollabúðum í
Reykhólasveit, Sigurður Jóhann
Kristjánsson er fæddist á Kolla-
búðum 13. mars 19808.
Foreldrar hans voru sæmdar-
hjónin Kristján Sigurðsson frá
Múla og Sesselja Einarsdóttir frá
Kollabúðum, er lengi bjuggu þar
góðu búi.
Snemma fór Siggi að taka þátt í
störfum heimilisins. 6 ára gamall
fór hann að sitja hjá kvíaánum,
fyrst með fósturbróður sínum,
Jónasi Andréssyni og seinna í
mörg sumur einn. Þetta þótti
Sigga skemmtilegt starf, enda
hafði hann gaman af kindum alla
tíð.
Þegar hann var 14 ára fluttist
hann með foreldrum sínum að
Skógum í sömu sveit, þar bjuggu
þau í fimm ár, en þá fluttu þau
aftur að Kollabúðum og þar bjó
hann fyrst með föður sínum og
síðan einn til ársins 1969.
Siggi bætti jörðina mikið bæði
húsakost hennar, stækkaði túnið
og ræktaði ný fram um allan dal.
Einnig girti hann öll túnin og
tengdi þær girðingar saman með
stórri fjárgirðingu, sem auðveld-
aði mjög gæslu fjárins haust og
vor, því Kollabúðir er landstór
jörð og fé sótti mikið á Heiðina og
fram í dalina, ef tíð var góð.
Það var gaman að koma að vest-
an og sjá heim í dalinn hans á
björtu sumarkvöldi eða þegar
kjarrið og lyngið stóð í sinni
margþættu litadýrð á kyrrum
haustdegi.
Ég kynntist Sigga fyrst þegar
ég kom að Kollabúðum sem snún-
ingastrákur 1928 og hafa góð
kynni haldist ætíð síðan.
Það er margs að minnast frá
fyrstu kynnum okkar. Það var
gaman að fara í kaupstaðarferðir
með Sigga haust og vor með
marga hesta undir reiðingi. Hann
átti marga fallega og góða hesta,
enda mikill hestavinur og starfaði
mikið með þeim, því fyrstu árin
varð að heyja mikið á engjum og
reiða heyið heim á mörgum hest-
um, oft um erfiðan veg.
Eins var gaman að fara með
honum í eftirleitir á haustin norð-
ur á Þorskafjarðarheiði og í
Staðardali, hann var glöggur að
þekkja sitt fé í öðru og vísa því
suður yfir heiðina og heim í Kolla-
búðadalinn.
Árið 1969 flyst hann suður og
vann ýmsa vinnu bæði til sjós og
lands, vann meðal annars á skip-
um Eimskipafélagsins í milli-
landasiglingum. En aftur lá leiðin
í sveitina. 1972 keypti hann jörð-
ina Staðarhús í Borgarfirði og hóf
þar búskap, með dugnaði og hag-
sýni kom hann þar upp góðu búi
þó margt væri þar annað en á
æskustöðvunum fyrir vestan.
Það var ánægjulegt að fara upp-
eftir og heimsækja hann á Stað og
vera með honum í helgarfríum,
setjast niður og tala um löngu
liðna tíma.
Núna síðustu 4 árin þegar heils-
an fór aö bila átti Siggi heima á
Akranesi og gat þar haft nokkrar
kindur og hesta til að hugsa um
sér til ánægju.
Hann andaðist í Landakotsspít-
alanum 9. febrúar síðastliðinn.
Blessuð sé minning hans.
Bæring Jóhannsson
DANSKUR
LINGAPHONE
Á
*■— Danrt Kursus
■
■
Áður: 3.160 Nú: Kr. 1.960
Viö léttum undir með nemum á öllum aldri og
bjóöum hin árangursríku Lingaphone-námskeið í
dönsku á stórlækkuðu kynningarverði.
Lingaphone er fullkominn málakennari fyrir fólk á
öllum aldri og ómetanlegur stuðningur við þá
fjölmörgu grunnskólanemendur sem þreyta sam-
ræmt próf í vor einmitt með aðstoð segulbands.
Kr. 1.960
fyrir danskt/íslenskt námskeið með íslenskum
skýringartexta, dansk/íslenska orðabók, 4
snældur og aðra nauðsynlega fylgihluti.
LINGAPHONE ER LEIÐIN
TIL LÉTTARA NÁMS
Hljóöfærahús Reykjavíkur
Laugavegi 96 - Sími 13656