Morgunblaðið - 16.02.1984, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1984
35
Minning:
Einar Sig-
urðsson
skipasmíða-
meistari
Þegar ég kom ungur maður á
Fáskrúðsfjörð fór ekki hjá því, að
athygli mín beindist að þeim, sem
mér þótti bera af öðrum mönnum
þar.
Einn man ég þar, sem nú er til
foldar hniginn, er mér varð minn-
isstæðari og hugþekkari en aðrir.
Við þekktumst þó aldrei náið, en
ég átti oftlega tal við hann. Ég
vissi um völundinn Einar, vissi
hvers hann var metinn af sam-
ferðafólki, fann hversu handtakið
var hlýtt og traust, sá milda
glettnina merla í augunum, en
mest þótti mér þó til um þann eld,
er inni fyrir bjó og áhugi hans
beindist að, víðar og hærra en
verksvið og umhverfi skáru stakk.
í örfáum línum nú á kveðju-
stund vildi ég minnast bindind-
ismannsins Einars Sigurðssonar
og brennandi áhuga hans á þeim
málum alla tíð. Síðasta samtal
okkar hneig að þessu máli og hann
sagði þá: Við berjumst aldrei nógu
vel, okkar hlutur liggur alltaf eft-
ir, og þó er sá hlutur svo góður.
Aðrir munu minnast margra
verka hans á vinnustaðnum marg-
rómaða í Odda og hins mikla fé-
lagsmálastarfs hans m.a. og alveg
sérstaklega varðandi byggingu
Skrúðs, félagsheimilisins á Fá-
skrúðsfirði. Aðrir munu einnig
minnast hins pólitíska samherja,
drenglyndis hans og sanngirni i
þeim efnum, því öfgar voru þar
aldrei á ferð og aldrei urðu hin
ólíku sjónarmið okkar að árekstr-
arefni.
Það mætti því á margt minnast
þegar slíkur merkisberi er kvadd-
ur hinztu kveðju, því merkisberi
var hann og lét merkið aldrei
falla. Bindindishugsjón hans var
eins og einn eðlisþátta hans, sam-
ofin því lífsviðhorfi, að hamingja
einstaklinga sem þjóðar væri hvað
helzt I heilhrigðu líferni og heil-
brigðu lffsmati falin. Okkur bind-
indismönnum ber því að minnast
ogþakka nú við leiðarlok.
Eg er þakklátur fyrir kynni mín
af Einari, fyrir mörg góð orð og
ráð gefin mér á mótunarskeiði.
Þar fór hinn vammlausi halur,
virtur af öllum sem til þekktu,
svipmikill samtíðarmaður í allri
hógværð sinni og hljóðri kurteisi.
Blessuð sé minning Einars Sig-
urðssonar.
Ilelgi Seljan
t
STEINUNN JÓHANNESDÓTTIR,
Hátúni 10 A,
áöur til heimilis á Vindheimum við Vatnsveituveg,
andaðist i Vifilsstaöaspítala aöfaranótt 14. þ.m.
Fyrir hönd bræöra og braeðrabarna,
Guömundur Jóhannesson frá Reynikeldu.
t
Sonur okkar og bróöir,
DANÍEL VALGEIR STEFÁNSSON,
Litlageröi, Mosfellssveit,
veröur jarösunginn frá Lágafellskirkju laugardaginn 18. febrúar kl.
14.00.
Þeir sem vildu minnast hans láti Björgunarsveitina Kyndil njóta
þess og minningarspjöld Slysavarnafélags islands fást um land
allt.
Hulda Jakobsdóttir, Stefán Valdimarsson
og systkini.
t
Systir okkar og mágkona,
GRÓA HALLDÓRSDÓTTIR,
Kaplaskjólsvegi 1,
veröur jarösungin frá nýju kapellunni í Fossvogi föstudaginn 17.
febrúar kl. 10.30.
Magnea Halldórsdóttir, Frímann Guöjónsson,
Eyjólfur Halldórsson, Gunnar Árnason,
Sigríöur Halldórsdóttir.
t
Móöir okkar, tengdamóöir og amma,
INGIRÍÐUR ÁRNADÓTTIR,
Skólavöllum 4,
Selfossi,
lést í Sjúkrahúsi Suöurlands aö morgni þriöjudags 14. febrúar.
Árni Einarsson, Guórún Lillý Ásgeirsdóttir,
Unnur Einarsdóttir, Gunnar Á. Jónsson,
Jóna Einarsdóttir, Jón Helgi Hálfdanarson
og barnabörn.
NU SAUMUM VIÐ
SAMAN LOFT OG VEGGI
MEÐTRE-X
ÞILJUM
Þeir sem hafa kynnt sér klæðningar innanhúss,
þekkja vel þiljur með nót og lausri fjöður.
Þessi hugmynd hefur nú verið einfölduð, þannig að
þiljurnar eru með áfastri fjöður, auk nótar að sjálfsögðu.
Uppsetning verður því bæði fljótleg og þægileg.Þú límir
og neglir með smáum saum og sníður af endum þar
sem við á, - einfaldara getur það varla verið.
■ Áuk þess er verðið stærsti vinningur húsbyggjenda.
Þessar þiljur eru framleiddar tilbúnar undir málningu,
Stærðir: Veggplötur 38x253 cm 58x253 cm
— ii — Loftplötur 58x120 cm 28x120 cm 28x250 cm
HEILDSALA - SMASALA
TRÉSMIÐJA ÞORVALDAR ÓLAFSSONAR löavöllum 6 Keflavík SÍMI: 92-3320