Morgunblaðið - 16.02.1984, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1984
39
fclk f
fréttum
Sjónvarps-
mynd um
Karen
Carpenter
+ Nú hefur verið ákveðið að gera sjónvarpskvikmynd í tveimur þáttum um líf og starf bandarísku
söngkonunnar Karen Carpenter.
Karen svalt í hel, lést af sjúkdómi, sem kalla má „fæðufælni“ og hefur stundum lagst á fólk, sem
hefur farið í ákafa megrunarkúra. Hún var margsinnis lögð inn á sjúkrahús til meðferðar en hún var
orðin svo líkamlega veikluð, að allt kom fyrir ekki.
„Ég hef gefið mitt leyfi fyrir þessari mynd og ég vona, að hún geti fengið konur, sem e.t.v. standa nú
í sporum Karenar, til að leita læknis áður en það er orðið um seinan," segir Richard Carpenter, bróðir
Karenar.
„Ég var ekki klók“
— segir leynilögreglusagnahöfundurinn Maj Sjöwall sem er orðin gjaldþrota
Per Wahlöö og Maj Sjöwall meðan allt lék í lyndi. Saman skrifuðu þau 10
sögur sem þýddar hafa verið á 25 tungumál og kvikmynd gerð eftir fjórum.
COSPER
— Fegurðarblettur? Hvar er hann, mætti ég spyrja?
+ „Strax og gjaldheimtan sleppir
mér og gjaldþrotamálið er um
garð gengið ætla ég að flytjast til
Kaupmannahafnar. Það er erfitt
að búa í Svíþjóð. Hér má ekkert og
það er ekkert menningarlíf hér
lengur. Það er þó í Kaupmanna-
höfn.“
Það er rithöfundurinn Maj
Sjöwall sem þetta segir, en eins og
margir vita er hún heimsfræg
fyrir leynilögreglusögurnar sem
hún samdi ásamt manni sínum,
Per Wahlöö, sem nú er dáinn.
Ætla mætti að Maj væri í góðum
efnum, ætti bæði hús og bíl og
sumarbústað, en sannleikurinn er
sá, að hún er á götunni og á ekki
grænan túskilding. Hún og maður
hennar sömdu 10 metsölubækur,
sem þýddar hafa verið á 25 tungu-
mál, og eftir fjórum þeirra hefur
verið gerð kvikmynd. Þrátt fyrir
það hafa sænsk skattayfirvöld lýst
hana gjaldþrota og skipað skipta-
ráðanda í búi hennar.
Maj Sjöwall fer ekki í neinar
grafgötur með það hvers vegna
svona er komið fyrir henni. Það
eru skattarnir í „Bann-Svíþjóð“,
eins og Danir hafa svo gaman af
að kalla landið, sem er hinum
megin við Eyrarsund. Maj segist
hafa borgað tugmilljónir króna í
skatt til sænska ríkisins, þangað
hafi obbinn af öllum tekjum
þeirra hjóna farið. I raun hafi þau
verið eins og hver önnur gullnáma
fyrir skattheimtuna því að drjúg-
ur hluti tekna þeirra hafi komið
erlendis frá. „Fólk, sem hefur ein-
hverjar tekjur, verður að vera
klókt,“ segir Maj, „og ég var ekki
klók.“
Maj Sjöwall
Maj ætlar sem fyrr segir að
setjast að í Kaupmannahöfn og
annar sonur hennar og Wahlöö,
Tetz, sem er tvítugur að aldri, en
Jens, sem er 17 ára gamall, hefur
von um að komast að sem mat-
sveinn á veitingastað í Málmey.
FULLKOMIÐ ÖRYCCI
í VETRARAKSTRI
Á GOODYEAR VETRARDEKKJ
Öruggart akstur
á isitógðum vegum
Cott grlp í brekkum cóðlr aksturselglnlelkar
með lausum snjó á ójöfnum vegum
Stöðugielki Góðlr hemlunareiginlelkar
í hálku vlö erflðar aðstæður
COODYEAR vetrardekk eru gerö úr sér-
stakri gúmmíbiöndu og meö mvnstri
sem gefur dekkinu mjög gott veggrip.
CODDYEAR vetrardekk eru hljóölát og
endingargóð.
Fullkomin hjólbaröaþjónusta
/aeglsstiiii
Tðlvustýrð jafnva
tilling
GOODgrEAH
HEKLAHF
Laug«wqi170-172 9lm. 21240
Gæðatréskór
með
sveigjanlegum sóla
2,4
1 Ekta leður (og þad af betra taginu) ásamt trébotnum.
tryggir heilbrigða fætur sem geta „AMDAÐ" rétt.
2 Tréð er varið gegn vætu, þar sem sólinn nær upp með
hliðunum.
3 Úr birki.
4 Sérlega léttir og hljóðlátir þegar gengið er.
5 Sveigjanlegur sóli tryggir öruggan
°3 þægilegan gang.
6 Mjúkur bólstraður kantur.
7 Með fóUagi sem tryggir nægjanlegt rými fyrir tærnar
og styður fótinn undir II.
Fást í fjölbreyttu úrvaii
vmffl
«ij»i—sKmnm
VELTUSUNOI 1
21212
Simi 1*519