Morgunblaðið - 16.02.1984, Síða 43

Morgunblaðið - 16.02.1984, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1984 43 ■Ul Sími 78900 CUJO Splunkuný og jafnlramt stór- kostleg mynd gerö eftlr sögu Stephen Klng. Bókln um Cujo hefur veriö gefin út í milljónum eintaka viðs vegar um heim og er mest selda bók Kings. Cujo er kjörin mynd fyrir þá sem unna góöum og vel geröum spennumyndum. Aðalhlutverk: Oee Wallace. Chriatopher Stone, Daniel Hugh-Kelly, Danny Pintauro. Leikstjóri: | Lewis Teague. Bönnuó börnum innan 16 ira. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Hækkað verð. SALUR2 Daginn eftir (The Day After) Perhaps The Most Important Film Ever Made. j THE DAV AFTER ..When War Games Are Real. ; The Day After er mynd sem allir tala um. Aöalhlutverk: Jason Robards, Jobeth Williams, John Cull- um, John Lithgow. Leikstjóri: Nicholas Meyer. Bönnuð börnum innan 12 ára. Ath.: Ðreyttan sýningartíma: Sýnd kl. 5, 7.30 og 10. Hækkað verð. SALUR3 Segðu aldrei aftur aldrei (Never say never again) SEAN CONNERT is JAME5 BOND 00? Jj jStærsta James Bondj jopnun í Bandaríkjunum * fri upphafi. Aöalhlutverk: Sean Connery, I Klaus Maria Brandauer, Barbara Carrera, Max Von Sydow, Kim Basinger, | Edward Fox sem „M“. Myndin er tekin ( dolby- | stereo. Ath.: Breyttan sýningartfma: Sýnd kl. 5, 7.30 og 10. Hækkað verð. Skógarlíf og Jólasyrpa Mikka Mús Ath. aukamynd: Jólasyrpan I með Mikka Mús, András Önd | og Frænda Jóakim er 25 min. löng. Sýnd kl. 5. La Traviata Sýnd kl. 7. Hækkað verð. Njósnari leyniþjónustunnar Sýnd kl. 9 og 11. Frístundahópur á vegum Tómstundaráðs Kópavogs: Hlaut nafnið „Hana nú“ FRÍSTUNDAHÓPUR, sem starfrækt- ur hefur verið á vegum Tómstunda- ráðs Kópavogs frá síóastliðnu vori hefur nú hlotið nafnið „Hana nú“. í fréttatilkynningu tómstundaráðs segir að meðlimir hópsins, sem eru á aldrinum 50—70 ára, hafi fyrir skömmu valið honum þetta nafn. í sömu tilkynningu segir einnig að tilgangur þessarar starfsemi sé að gefa fólki á aldrinum 50—70 ára kost á að skemmta sér saman við frjó áhugamál, eins og komist er að orði. Þar segir ennfremur að hópur- inn hafi farið í ferðalög, náttúru- skoðunarferðir og heimsótt menn- ingarstofnanir. 1 tilkynningunni segir að lokum að allir Kópavogsbúar á áður- greindum aldri séu velkomnir í frí- stundahópinn „Hana nú“, en félags- gjöld eða kostnaður sé enginn, nema vægt gjald í áætlunarbíla, sem flytja fólk í ferðirnar. Þeim, sem hafa áhuga, er bent á að hafa samband við Stefán Guðmundsson, tómstundafulltrúa. Eldsvoði á Laugavegi ELDUR kom upp í risfbúð á Lauga- vegi 24 um þrjúleytið aðfaranótt sl. þriðjudags. Sex bílar slökkviliðsins í Reykjavík voru sendir á vettvang, því óttast var að fólk væri í íbúð- inni. Fjórir reykkafarar fóru inn, tveir fóru upp stiga og tveir voru hífðir upp í körfu og fóru inn í íbúðina af svölum. Enginn var í íbúðinni. Eldurinn var mestur í eldhúsi og lagði mikinn reyk um ibúðina. Slökkviliðinu gekk greiðlega að slökkva eldinn og urðu tiltölulega litlar skemmdir. Eldsupptök eru ókunn. Morgunblaðið/Júlíus. lelagarnir í Myndlistarklúbbi Seltjarnarness sem áttu verk á sýningunni í Herlev voru: Auður Sigurðardóttir, Árni Garðar Kristinsson, Ása Oddsdóttir, Ásgeir Valdimarsson, Björn Blöndal, Guðfinna Hjálmarsdóttir, Guðmundur Kristinsson, Lóa Guðjónsdóttir, Magnús Valdimarsson, Jensey Stefánsdóttir og Kristín Hreinsdóttir. Seltirningar sýndu í Herlev Jónshúsi, Kaupmannahofn, 28. janúar. í HERLEV, vinabæ Seltjarnarness, var allan desembermánuð sýning á verkum félaga í Myndlistarklúbbi Seltjarnarness í menningarmiðstöð bæjarins. Voru það alls 26 myndir eftir 11 listamenn og var sameigin- legt yrkisefni náttúrufar Seltjarnar- ness og umhverfis. Herlev er nágrannbær Kaup- mannahafnar í norðvestri og búa þar þó nokkuð margir Islendingar, einkum á Kagsár-stúdentagarðin- um, en þar eru um 20 íslenzkar fjölskyldur. Sýningarhús bæjarins er aðalbygging gamals stórbýlis, sem Gammelgaard heitir, og hefur húsinu verið breytt í hina ágæt- ustu sýningar- og hljómleikasali. Sagði listfræðilegur ráðunautur bæjarskrifstofunnar í Herlev að sýningin hafi bæði verið falleg og vel sótt, og séu íbúar Herlev áhugasamir um að kynnast vina- bænum á íslandi. Svo hefði líka reynzt, er fulltrúar hinna norrænu vinabæja voru saman komnir til menningarráðstefnu í Herlev 1979. G.L.Ásg. Flóð í Öldutúnsskóla „Þetta hefur gerst nokkrum sinnum í vetur. Viðbygging var byggð við skólahúsið síðastliðið haust, en eftir að skipt var um jarðveg fyrir þær framkvæmdir haustið 1982 hefur flætt svona hér inn við ákveðin veðurskilyrði," sagði Helgi Hauksson, kennari við Öldu- túnsskóla í Hafnarfirði, í viðtali við Mbl. á þriðjudaginn. Þar var þá um 20 sentimetra djúpt vatn á gólfi í smíðastofu, geymslum og kompum. Nemendur 6.-L og kennarar aðstoðuðu bæjarstarfsmenn við að bjarga munum úr smíðastofu og ausa vatninu út, en ekki hefur verið metið hversu mikið tjón hlaust af. Ljósmynd Heigi Hauksson. Sfaagadagar Á Skaganum hafa löngum búið kátir karlar og hláturmildar konur eins og við þekkjum öll úr kvæðinu um Kútter Harald. Nú eru Skagamenn komnir í bæinn og ætla að gefa okkur kost á að taka þátt í gamninu með sér í Blómasalnum föstudaginn 17. og laugardaginn 18. febrúar. ». Strákar úr meistaraflokki Akraness í knattspyrnu flytja skemmtidagskrá. Þeir nefna sig Tvöfalda kvartettinn. rv if Árni Sveinsson kemur með eitthvað óvænt. Bresaflokkurinn syngur og flytur gamanmál. Þá munu Módelsamtökin birtast með mjög skemmtilega og áhugaverða tískusýningu. •Á matseðlinum verður síldarævintýrið okkar margfræga á 450.- krónur og sérréttaseðill hússins ásamt salat- og brauðbar. Borðapantanir hjá veitingastjóra í símum 22321/22322 VERIÐ VELKOMIN' HÓTEL LOFTLEHDIR FLUCLEIDA HOTEL

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.