Morgunblaðið - 25.03.1984, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. MARZ 1984
5
Talskólinn
Framsögn og taltækni:
5 vikna námskeiö hefjast 2. og 3. apríl.
Mánudaga og fimmtudaga kl. 16.15—18.00.
Þriöjudaga og föstudaga kl. 16.15—18.00.
Síðustu námskeiö vetrarins.
Innritun dagiega kl. 16.00—19.00, sími 17505.
Talskólinn,
Skúlagötu 61, Rvík.
Gunnar Eyjólfsson.
Gódon daginn!
Sjónvarp kl. 21.30:
Nikulás
Nickelby
Nýr framhalds-
myndaflokkur
eftir sögum
Charles Dickens
Nýr rramhaldsmyndaflokkur
hcfur göngu sína í sjónvarpinu í
kvöld. I»eUa er leikritið „Niku-
lás Nickelby“ sem er gert eftir
samncfndri sögu ('harles Dick-
ens.
Leikritið gerist upp úr 1830
og fjallar um Nikulás og ýms-
ar þrengingar sem hann ásamt
móður sinni og systur má þola.
Þegar faðir Nikulásar deyr
flyst móðir hans með þau
systkinin frá Devonshire til
Lundúna, þar sem þau eiga
von á hjálp Ralphs, föðurbróð-
ur barnanna.
Ralph er í góðum efnum og
kemur því til leiðar að Nikulás
fær inngöngu í skóla í York-
shire, sem hinn harðneskjulegi
Squeers stýrir. Nikulás á von á
að skólinn sé venjulegur,
svona eins og gengur og gerist,
og því verður það honum mikið
áfall er hann kemst að raun
um að „skólinn" er óþrifalegt
heimili fyrir munaðarlaus
börn og slæm meðferð á börn-
unum virðist vera einkenni
„skólans".
Útvarp kl. 22.40:
Allir þeir
sem við falli
er búið
Leikrit eftir
Samuel Beckett
„Allir þeir sem við falli er bú-
ið“ nefnist leikrit sem útvarpað
verður á morgun kl. 22.40. Þetta
er endurflutningur á þessu leik-
riti sem írska leikritaskáldið
Samucl Beckett skrifaði, en það
var frumflutt í Ríkisútvarpinu
árið 1978.
Leikritið fjallar um gamla
konu sem er á leið á járnbraut-
arstöð. Ferðalagið gengur
hægt því hún er þung á sér og
veikburða. Líf hennar virðist
ekki hafa verið dans á rósum,
en nú verða ýmsir til að lið-
sinna henni, af meðaumkun
eða öðrum ástæðum.
Gyða Ragnarsdóttir hjá
leiklistardeild Ríkisútvarpsins
tjáði okkur að höfundurinn
færi þannig með efnið að oft
væri örðugt að vita hvort hann
setti aivöru fram sem gaman
eða gamanið sem alvöru.
Leikstjóri er Árni Ibsen en
hann þýddi jafnframt leikrit-
ið.
Ein sú besta í víöri veröíd
Vandlátustu sóldýrkendur velja Riminisólina sumar eftir sumar;
aðgrunna strönd, afþreyingaraðstöðu af bestu gerð, frábæra
veitingastaði og eldfjörugt næturlíf. Héreigaallirfjölskyldumeðlimir
ánægjulega daga, ekki síst þeir yngstu, því íslenski barnafarar-
stjórinnsértilþessaðsmáfólkið nýtur hverrar stundar ekki síður
en hinir fullorðnu. Skoðunarferðir til ógleymanlegra staða,
s.s. Rómar, Feneyja og Flórens eru síðan góð ábót á líflegt
strandlífið og gera Riminiferðina að stórskemmtilegri blöndu,
þar sem ríflegum skammti af fróðleiksmolum er stráð yfir
ómælt magn af sólskini.
Verð frá kr. 16.200
miðað við sex manns í 3ja herb. íbúð í 11 daga.
Barnaafsláttur allt að kr. 5.700
Aðildarfélagsafsláttur kr. 1.600 fyrir hvern fullorðinn
og kr. 800 fyrir börn. Verð fyrir hvern farþega í 6 manna
fjölskyldu (miðað við hæsta barnaafslátt)
kr. 11.332
11 og 21 dags ferðir
Beint leiguflug til Rimini.
ÞU LIFIR LENGI
ÁGOÐU
SUMARLEYFI -
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899
SÖLUSKRIFSTOFA AKUREYRI: SKIPAGÖTU 18 - SiMAR 21400 A 23727