Morgunblaðið - 25.03.1984, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. MARZ 1984
21
Morgunbladið/ Clfar.
Mikil húsnæðisekla er nú á ísafirði. Mest eftirspurn er eftir húsnæði á eyrinni, en ný einbýlishús eru þung í sölu.
ísafjörður:
Eftirspurn eftir íbúð-
arhúsnæði hefur aukizt
VAXANDI ÁHUGI fyrir fasteignakaupum á ísafirði er greinilegur, að sögn
þeirra tveggja fasteignasala sem starfa á ísafirði. Arnar Geir Hinriksson hdl.
og fasteignasali sagði í viðtali við fréttaritara Morgunblaðsins, að greinilegt
aðstreymi fólks væri nú til bæjarins og marka mætti vaxandi trú manna á að
mögulegt væri að eignast þak yfir höfuðið, eftir að vextir lækkuðu og meiri
festa er sjáanleg í fjármálalífínu.
Ein ástæðan fyrir vaxandi
áhuga á fasteignakaupum er sú,
að mjög erfitt er að fá leiguíbúðir
hér vestra og sjómenn leita í vax-
andi mæli vestur vegna góðra
tekjumöguleika, einkanlega á út-
hafsrækjuveiðunum.
Hjá Tryggva Guðmundssyni
hdl. og fasteignasala sagði Jónína
Guðmundsdóttir fulltrúi, að eftir-
spurn væri mikil, sérstaklega eftir
minni íbúðum, og talsverð sala frá
áramótum. íbúðaverð hefur að
mestu staðið í stað frá áramótum,
en nú má sjá þess merki að verð
fer hækkandi á sumum gerðum
eigna.
Svo virðist, að verð á íbúðum í
blokkum sé svipað og í Reykjavík,
gömul einbýlishús í miðbænum
jafnvel á hærra verði en í Reykja-
vík, en stór, nýleg einbýlishús á
áberandi lægra verði vestra.
Mest eftirspurn er eftir góðum
íbúðum á eyrinni, þó verð sé þar
sjáanlega hærra en annars staðar
í bænum.
Báðum aðilum bar saman um
það, að mest bæri á ungu fólki að
hefja búskap í íbúðarkaupum og
virtust margir hafa umtalsverða
fjármuni í höndum og voru spari-
merki nefnd sem ein ástæðan.
Að sögn Sigurðar Hafstein
Steinarssonar byggingarfulltrúa,
hefur fjórum lóðum undir einbýl-
ishús verið úthlutað á þessu ári,
en á síðasta ári hófst ekki smíði
neins íbúðarhúss á ísafirði. Lóð-
irnar sem úthlutað var eru í
Hnífsdal og á Stakkanesi. Auk
þess hefur verið gerð fyrirspurn
um lóð undir fjölbýlishús.
En leiguíbúðir eru það sem mest
er sóst eftir á ísafirði í dag og að
sögn manns, sem fréttaritari hitti
á götunni í dag, er það orðið svo,
að konur þora varla lengur að taka
gluggatjöld sín til þvotta vegna
mikilla símahringinga fólks sem
heldur að verið sé að losa íbúðina.
Úlftr.
Öxarfjörður:
Snjóléttur vetur til þessa
Skinn&staú, 18. marN.
VETURINN hefur verið mjög snjó-
léttur í byggöunum við Öxarfjörð og
mun svo yfirleitt hafa verið í Þing-
eyjarsýslum báðum. Nokkur hríð-
arskot gerði fyrir jól og svo enn upp
úr áramótum. Annað er varla nefn-
andi. Stórviðri sjaldgæf. Heita má
að vorveðrátta hafí ríkt síðan um
miðjan janúar og snjólítið á láglendi.
Vegagerðin hefur getað sparað
snjóruðning.
Almennt eru bændur heldur
heybirgir, en beita nokkuð til að
viðra sauðféð.
Félagslíf hefur verið með venju-
legum hætti, hefðbundnar sam-
komur og nokkur námskeið og
heilsufar heldur gott.
Eitt líflegasta námskeiðið var
þegar Halldór Matthíasson, skíða-
kennari, kenndi mönnum hér í öx-
arfirði að ganga á skíðum. Tróð
hann i unga sem aldna helstu
brellum við skíðagöngu af algeru
miskunnarleysi, hvað sem menn
steyptu stömpum í brekkunum.
Fara varð upp í heiðarsporð til að
leggja göngubraut vegna snjóleys-
is. Hafði Halldór slík námskeið á
tveimur eða þremur stöðum í
sýslunni.
Fólk er misjafnlega bjartsýnt á
tíðarfarið í vordögum. Þeir bjart-
sýnu halda að tekið sé fram úr.
Þeir svartsýnu að veturinn komi
með vorinu.
Sigurvin.
Vestmannaeyjar:
Leikfélagið sýnir Húrra krakki
Ye.stmannaeyjum, 23. mars.
LEIKFÉLAG Vestmannaeyja frumsýndi í gærkvöldi gamanleikinn Húrra
krakki eftir Arnold og Bach við fádæma góðar undirtektir frumsýningar-
gesta. Leikstjóri er Unnur Guðjónsdóttir, prímus mótor leikfélagsins til
margra ára. Þetta er 113. verkefni LV eu félagið hefur starfað af miklum
krafti og nú mörg undanfarin ár verið með a.m.k. þrjú verk á sviði hvern
vetur.
Húrra krakki er ómengaður
gamanfarsi og náðu leikarar LV
sér vel upp á frumsýningunni og
skemmtu sér sýnilega engu síður
en áhorfendurnir úti í sal. Þeir
kitluðu svo hláturtaugar leikhús-
gesta að undan verkjaði á stund-
um. Var leikurum, leikstjóra og
öðrum aðstandendum sýningar-
innar þakkað í leikslok með lang-
varandi lófaklappi og blómvönd-
um.
Leikendur í þessari sýningu
LV eru: Runólfur Dagbjartsson,
sem fór á kostum í hlutverki
„krakkans", Björn Ingi Hilm-
arsson, Elva Ósk Ólafsdóttir,
Sveinn Tómasson, Kolbrún Hálf-
dánardóttir, Jónas Þór Hreins-
son, Hanna Birna Jóhannsdóttir,
Elín Helga Magnúsdóttir og Rol-
and Buchholz. Leikstjóri er sem
fyrr segir Unnur Guðjónsdóttir.
Leikmynd gerði Magnús Magn-
ússon, lýsingu annast Hjálmar
Brynjólfsson og sviðsstjóri er
Auðberg Óli Valtýsson.
Það verður mikið hlegið í Bæj-
arleikhúsinu næstu vikurnar og
enginn verður fyrir vonbrigðum
sem þangað lítur inn og fylgist
með hlátursframleiðslu Leikfé-
lags Vestmannaeyja. ...
Fasteign til sölu
Til sölu er einbýlishús viö Fálkaklett, Borgarnesi.
Húsiö er 150 fm auk 33 fm bílskúrs. Lítiö áhvílandi.
Verö 2,7 millj.
Til greina koma skipti á fasteign á Stór-Reykjavík-
ursvæöinu.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Sigurður I. Halldórsson hdl.
Borgartúni 33, Reykjavík
sími: (91) 29888.
Einbýli — Klapparberg
Til sölu 170 fm einbýlishús, hæö og ris ásamt 30
fm bílskúr. Ekki fullbúið hús. Neöri hæö: 2 saml.
stofur, eldhús, hol, þvottaherb., búr, gesta wc.,
forstofuherb. Efri hæö: 3 svefnherb., baö, sjón-
varpsherb. meö arni.
Lögmenn Borgartúni 33,
sími 29888.
Kynnið ykkur nýjustu
ávöxtunarleiðina
Verötryggö spariskírteini ríkissjóðs
Gengi 26.03/84
Ár Fl. Sg./100 kr. Ár Fl. Sg./100 kr.
1971 1 15.801 1977 2 1.776
1972 1 14.396 1978 1 1.442
1972 2 11.677 1978 2 1.135
1973 1 8.820 1979 1 982
1973 2 8.462 1979 2 736
1974 1 5.501 1980 1 627
1975 1 4.350 1980 2 473
1975 2 3.226 1981 1 404
1976 1 2.929 1981 2 298
1976 2 2.427 1982 1 284
1977 1 2.126 1982 2 210
1983 1 161
1983 2 103
Óverðtryggð -
veðskuldahréf
20%
86.3
80.3
74,9
70.2
66,0
62.2
21%
87,0
81.3
76,1
71,5
67.4
63,7
Verðtryggð —
veðskuldabréf
Sölug.
Ár 2 afb/ári.
1 95,2 6 81,6
2 91,9 7 78,8
3 89,4 8 76,1
4 86,4 9 73,4
5 84,5 10 70.8
Óskum eftir spariskírteinum ríkissjóðs til
sölu. Verðtrygg- veðskuldabréf óskast í sölu.
Óverðtryggð veðskuldabréf óskast í sölu.
*
Avöxtun ávaxtar fé þitt betur
ÁVOXTUNSf^
LAUGAVEGUR 97 - SÍMI 28815 OPIÐ FRÁ 10 - 17
/ r i
AVOXTUNSf^y
VERÐBRÉFAMARKAÐUR
jii i n