Morgunblaðið - 15.04.1984, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 15.04.1984, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. APRÍL 1984 5 Tískan, gömul hús, Gæjar og píur — meðal umfjöll- unarefnis í Glugg- anum kl. 21. í Glugganum, scm verdur á dagskrá sjónvarpsins í kvöld kl. 21 í umsjá Aslaugar Ragnars, verður meðal annars fjallað um endurbyggingu gamalla húsa á Akureyri. Þá leikur Þorsteinn Gauti Sigurðsson etýðu eftir Rach- maninoff og litið verður inn á tvær myndlistarsýningar á Kjarvalsstöðum, þar sem Balt- asar og Ragnhildur Stefáns- dóttir sýna verk sín um þessar mundir. Vor- og sumartískan verður tekin til umfjöllunar og sýndar svipmyndir af því sem við meg- um eiga von á í vor og sumar. Að lokum verður sagt frá söngleiknum „Gæjum og pí- um“, sem Þjóðleikhúsið hefur nýlega hafið sýningar á, og sýnd verða atriði úr leiknum. SÁÁ-blaðið: Nýtt blað um áfengisvarnir SAMTÖK áhugamanna um áfeng- isvandamálið hefur hafið útgáfu nýs málgagns sem nefnist SÁA-hlaðið. Blaðið tekur við af Tímariti SÁÁ, sem samtökin gáfu út frá 1977 og þar til í fyrra. SÁÁ-blaðið er í dagblaðsbroti, 32 síður að stærð, mun koma út fjórum sinnum á ári og er fyrsta tölublaðið gefið út í 40.000 eintök- um. Ritstjóri blaðsins er Þráinn Hallgrímsson. Blaðið flytur fréttir af því sem er að gerast í starfi samtakanna og á vettvangi bar- áttunnar gegn ofneyslu áfengis og fíkniefna. SÁÁ-blaðið er sent öllum fé- lagsmönnum samtakanna, sem eru um 8.000, en stór hluti upp- lagsins verður sendur til fyrir- tækja, á heimili og til einstakl- inga. Þú svalar lestrarþörf dagsins Sjónvarp kl. 18: Stundin okkar í Stundinni okkar í dag, sem er hin síðasta á þessum vetri, þar sem sumardagurinn fyrsti er á fimmtudaginn kemur, verður meðal annars farið í heimsókn til stráks í Garðabæ, sem á hvorki meira né minna en tuttugu og eina hvíta mús. Danél sullskór og Smjattpatt- arnir verða á sínum stað og við sjáum kínversku listamennina sýna listir á reiðhjóli. Birna Gísladóttir syngur tvö lög og sér til aðstoðar hefur hún þá Agúst og Stefán Friðrik. Ragnar og apinn Hnoðri koma fram í tengslum við æskulýðs-> starfið og einnig koma Þorvald- ur Halldórsson og nokkrir krakkar, sem syngja hreyfi- söngv’a. Eins og áður, verða þau Alli og Olla til aðstoðar við dagskrár- kynninguna, en umsjónarmenn Stundarinnar eru þau Ása Helga og Þorsteinn Marelsson. Vandlátustu sóldýrkendur velja Riminisólina sumar eftir sumar; aögrunna strönd, afþreyingaraðstööu af bestu gerð, frábæra veitingastaði og eldfjörugt næturlíf. Héreigaallirfjölskyldumeðlimir ánægjulega daga, ekki síst þeir yngstu, því íslenski barnafarar- stjórinnsértilþessaðsmáfólkið nýtur hverrar stundar ekki síður en hinir fullorðnu. Skoðunarferðir til ógleymanlegra staða, s.s. Rómar, Feneyja og Flórens eru síðan góð ábót á líflegt strandlífið og gera Riminiferðina að stórskemmtilegri blöndu, þar sem ríflegum skammti af fróðleiksmolum er stráð yfir ómælt magn af sólskini. Dæmi verð: Brattför 28. jún. 3i.fi4 2 1984 20.200 ___4 80.800 10,000 70.800 -----4_,800 66.000 bamaafsl. adiWarfé/.afs/. Verðpr.farþ. torðlækkiin /.?«/ Verð frá kr. 16.200 miðað við sex manns í 3ja herb. íbúð í 11 daga. Barnaafsláttur allt að kr. 5.700 Aðildarfélagsafsláttur kr. 1.600 fyrir hvern fullorðinn og kr. 800 fyrir börn. Verð fyrir hvern farþega í 6 manna fjölskyldu (miðað við hæsta barnaafslátt) kr. 11.332 11 og 21 dags ferðir Beint leiguflug til Rimini. Þtl lifir lengi ÁGÖÐU SUMARLEYFI vöoövj \ gvaesueg^ s á\\ og siðas^n fegéSSgS-r-*' Samvinnuferdir - Landsýn AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899 SÖLUSKRIFSTOFA AKUREYRI: SKIPAGÖTU 18 - SlMAR 21400 » 23727

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.