Morgunblaðið - 15.04.1984, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 15.04.1984, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. APRÍL 1984 Sanitas hygg- ur á söluher- ferð 7up- gosdrykkja í tilefni þess að Sanitas hf. hyggur nú á mikla söluherferð á gosdrykkn- um 7up voru ýmsir aðilar boðaðir til kynningarfundar á Hótel Sögu. Þar var markaðsstaða 7up kynnt og nýj- ar auglýsingar kynntar. Á máli Ragnars Birgissonar, forstjóra Sanitas hf. kom fram að 16,7 milljónir lítra af gosdrykkj- um voru seldir á síðasta ári, eða um það bil 80 lítrar á ári á hvert mannsbarn í landinu. Gosdrykkja- neysla hér á landi er með því mesta sem gerist í heiminum, en ef bjórneysla er tekin með í reikn- inginn fellur neysla íslendinga niður fyrir önnur lönd. Kóla- drykkirnir eru mest seldir hér á landi sem og í nágrannalöndunum. Eftir lækkun á álagningu gos- drykkja er búist við söluaukningu á gosdrykkjum í náinni framtíð. Ólafur Stephensen, sem stjórn- ar auglýsingagerð fyrir Sanitas hf., sagði að á næstunni yrði hafin mikil auglýsingaherferð í sjón- varpi, útvarpi og kvikmyndahús- um. Jafnframt yrði efnt til get- raunar meðal útvarpshlustenda til kynningar á 7up. Ragnar Birgisson, forstjóri Sanitas, til hægri við 7up-loftbelginn, sem á næstunni má sjá í ýmsum verslunum. KOMDU OG KÍKTU í KJÖTBORÐIÐ OKKAR Við leggjum áherslu á faglega og persónulega þjónustu um leið og við bjóðum alla velkomna í Kjötbúrið FYRIR PÁSKANA Vel hangið lambakjöt Villibráð Villigæsabringur Hreindýrakjöt Kjúpur Lax, reyktur og grafinn EKTA PEKING-ENDUR Munið eftir heita, Ijúffenga og ódgra hádegismatnum okkar. Aldrei betri en nú. Pétnr PétiMM kjötidnaðarmadur. „Bros úr djúpinu“ frumsýnt hjá LR: Gildra til að fanga nú- tímamanninn í - Rætt við Kjartan Ragnarsson leikstjóra um verkið, höfund þess og uppsetningu Bros úr djúpinu nefnist leikrit Svíans Lars Norén sem frumsýnt var hjá Leikfélagi Reykjavíkur á miðvikudagskvöld. Aðalpersónur leikritsins, hjónin Helenu og Eðvald leika Sigurður Skúlason og Hanna María Karls- dóttir. Eðvald er rithöfundur, sem ekkert hefur sent frá sér í fimm ár og Helena er ballettdansari. Þau eru nýbúin að eignast sitt fyrsta barn, hefur fæðing þess orðið Hel- enu um megn, hún fengið tauga- áfall og neitað að annast barnið. Leikritið hefst þegar hún kemur heim eftir þriggja mánaða dvöl á geðsjúkrahúsi. Eiginmaður hennnar hefur annast barnið ásamt móður Helenu og systur, en þær mæðgur leika Sigríður Haga- lín og Guðrún Gísladóttir. Val- gerður Dan fer með hlutverk vin- konu Helenu af sjúkrahúsinu. Leikfélagið tekur fram að sýning þessi sé stranglega bönnuð börn- um og hneykslunargjörnu fólki eindregið ráðið frá að sjá sýning- Blaðamaður Mbl. leit inn á æf- ingu verksins í síðustu viku og átti stutt spjall við Kjartan um verkið, höfund þess og uppsetningu leik- félagsins. „Sem grunn að sínum verkum notar Norén sjálfan sig og iíf sitt eins og flestir höfundar gera raun- ar meira og minna en vilja oft fara leynt með.“ sagði Kjartan. „Það gerir Norén hinsvegar ekki, hann gengur mjög nálægt sjálfum sér og dregur ekkert undan, svo ef maður þekkir sögu hans sér maður hana ganga eins og rauðan þráð í gegnum leikrit hans. Norén ólst upp ásamt bróður sínum í grennd við Malmö í Sví- þjóð þar sem foreldrar hans ráku hótel. Faðir hans var drykkju- sjúklingur og bar móðir hans því alla ábyrgð á rekstrinum og upp- eldi drengjanna. Á ýmsu gekk í heimilislífinu og þegar Norén var 15 ára strauk hann að heiman og komst með skipi til New York. Hann frétti þangað lát móður sinnar, sem hann bæði elskaði og hataði, hún hafði þá gengið með krabbamein í mörg ár án þeirra vitundar. Þetta gekk Norén mjög Happdrætti DAS 30 ára Pétur Sigurðsson, formaður sjómannadagsráðs, (t.v.) og Baldvin Jónsson, framkvæmdastjóri Happadrættis DAS (t.h.), á bókasafni Hrafnistu í Hafnar- firdi. Ljósm. Mbl. Júlíus Hús aðalvinning- ur á nýjan leik HAPPDRÆTTI DAS er nú 30 ára og nýtt happdrættisár, það 31., að hefjast. Ilappdrættið er í 12 Dokkum og verður dregið í fyrsta flokki 3. maí, en útdráttar- dagur í 12. flokki er 3. apríl 1985. Samtals eru 2.700 vinningar í boði að hcildar- verðmæti kr. 57.620.000. Baldvin Jónsson, framkvæmda- stjóri happdrættis DAS, sagði á blaðamannafundi þriðjudaginn 10. apríl, að nú væri aftur hús í aðal- vinning, en verðbólga hefði bundið enda á húsavinninga fyrir nokkrum árum. Þetta væri eitt af þeim vernd- uðu þjónustuhúsum, sem verið er að hefja framkvæmdir við, endahús á einni hæð, ásamt garðhýsi, að verð- mæti 2,5 milljónir króna. 11 vinningar væru til íbúðar- kaupa, hver að upphæð 500 þúsund krónur. Þá hefði ferðavinningum verið fjölgað mikið, en þeir yrðu samtals 480 á 35 þúsund krónur hver, eða 40 utanferðir á mánuði. Bílavinningar yrðu 100 á 100 þús- und krónur hver og húsbúnaðarvinn- ingar yrðu á 10 þúsund og 2.500 krónur. Baldvin sagði að Auðunn Her- mannsson hefði komið með hug- myndina að Happdrætti DAS á fundi 1953. Lög fyrir Happdrætti Dvalarheimils aldraðra sjómanna, nr. 71, voru síðan afgreidd samdæg- urs af báðum deildum Alþingis í apr- íl 1954. Þá voru tvö önnur flokka- happdrætti þegar orðin rótgróin og því óvíst með byr Happdrættis DAS, en frábrugðinni vinningaskrá og annarri tímasetningu á happdrætt- isári var ætlað að vinna bug á því. Þá tók Pétur Sigurðsson, formað- ur sjómannadagsráðs, til máls og sagði að 40% tekna happdrættisins hefðu gengið í Byggingarsjóð aldr- aðs fólks, sem styrkti byggingar dvalarheimila víðsvegar um landið. 60% tekna happdrættisins renna til Hrafnistu og um 98% þess fjár hefur runnið til Hrafnistu í Hafnar- firði síðustu ár. Þá heimila lög að nýta 90% skemtanaskatts af miða- verði Laugarásbíós til nýbygginga. Fjárveiting hefur komið frá Alþingi til 5 ára, sem nemur 25% af heild- arkostnaði við Hrafnistu í Hafnar- firði. Einnig kæmi til ágóði af merkjasölu, blaða- og bókaútgáfu og J

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.