Morgunblaðið - 15.04.1984, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. APRÍL 1984
Aðalpersónan í Brúðuheimili
Ibsens var norsk kona,
búsett í Danmörku,
skrifaði skáldsögur og hélt
fyrirlestra. Hjónaband
hennar var stormasamt
— og á rústum þess reisti
Ibsen Brúðuheimilið
EFTIR H.C. CLAUSEN
Laura Kieler
myndin var
um
aldamótin.
mánuði hjá Henrik Ibsen og Sús-
önnu konu hans í Dresden. Þar
kallaði Ibsen Lauru „lævirkjann
okkar", en það heiti notaði Ibsen í
leikritum sínum. í Dresden tókst
traust vinátta með Lauru og Sús-
önnu Ibsen.
Árið 1876 komst hjónaband
þeirra Lauru og Victors fram á
yztu nöf. Victor veiktist af berkl-
um og þurfti að fara til Suður-
landa til að ná heilsunni aftur.
Það tókst. Laura tók lán í norsk-
um banka til að standa straum af
kostnaðinum við ferðina og dvöl-
ina. Manni sínum skýrði hún svo
frá, að þetta væru tekjur sem hún
hefði haft af ritstörfum. Hún
hafði vonað að Henrik Ibsen
myndi hjálpa henni við að falsa
víxil með því að líkja eftir rithönd
mágs hennar. En upp komst um
málið. Victor Kieler missti alla
stjórn á sér og krafðist skilnaðar.
Sagt er að amtmaðurinn í Hilleröd
hafi látið eftirfarandi orð falla:
„Þarna var gengið fram af óþarfa
þjösnaskap." Við skilnaðinn var
Laura brennimerkt sem svika-
kvendi og lygari og varð að hverfa
burt frá eiginmanni og börnum.
Hún dvaldist í nokkra mánuði á
geðsjúkrahúsi til að koma taugun-
um í lag, en atburðarásin hafði að
sjálfsögðu haft djúpstæð áhrif á
hana andlega. Því næst fluttist
hún til Bandarfkjanna og var þar
fréttaritari fyrir danskt blað.
Nokkrum árum síðar sneri hún
heim aftur að ósk eiginmanns síns
óra kom aftur heim til
eiginmanns og bama
Fáir kannast við nafnið Laura Kieler. Sjálfsagt mun
3Ó marga fýsa þess að vita eitthvað um hana, þegar
comið er á daginn að hún var fyrirmyndin að Nóru í
Brúðuheimilinu eftir Henrik Ibsen. Hvert lá leið
hvarf að heiman? Þessi spurning er
Nóru eftir að hún
löngu orðin sígild.
Pil Dahlerup mag. art. og
lektor við Háskólann í
Kaupmannahöfn varði
nýlega doktorsritgerð
um nútímakonur, sem
hafa verið brautryðjendur á ýms-
um sviðum. í ritgerðinni kemur
fram að Laura Kieler hafi verið
fyrirmynd Henriks Ibsens að
Nóru í Brúðuheimilinu. Þessar
upplýsingar kveikja að sjálfsögðu
löngun hjá mörgum um að fá að
vita, hver Laura Kieler var. Hins
vegar segir ekkert frekar um hana
í doktorsritgerðinni, en í dönskum
og norskum ævisöguritum má
finna ýmsa fróðleiksmola um
þessa konu.
Laura Kieler fæddist árið 1849 í
Tromsö í Norður-Noregi. Faðir
hennar Morten Smith von Fiihren
Petersen var þar sýslumaður.
Tvítug að aldri skrifaði hún leik-
ritið Dætur Brands og tileinkaði
Henrik Ibsen, en það var e-s konar
samstæða við leikrit Ibsens,
Brandur. Fyrir bragðið hófst
kunningsskapur milli hennar og
Ibsens. Laura giftist árið 1873
Victor Kieler aðjúnkt við Ríkis-
skóla Frederiksborgar í Hilleröd.
Alvarleg snurða kom á þráðinn í
hjónabandinu og leiddi til þess að
hjónin skildu að skiptum, en síðar
sneri Laura Kieler aftur heim til
eiginmanns og barna.
Heimildir eru fyrir því að Ibsen
hafi sótt Kieler-fjölskylduna heim
í Hilleröd, og þar á hann að hafa
haft á orði að heimili þeirra væri
brúðuheimili. Áður en Laura Kiel-
er giftist, dvaldist hún í nokkra
og hóf sambúð með honum á nýjan
leik.
Það var á rústum þessa hjóna-
bands, sem Henrik Ibsen skóp
Brúðuheimilið árið 1879 — eða
öllu heldur á skrumskældum lýs-
ingum, sem almannarómur gerði
sér mat úr. Það fyrirgaf Laura
Kieler honum aldrei. Hún leit á
það sem ósmekkleg afskipti af
friðhelgi einkalífsins. Árið 1891
fór Laura Kieler í síðasta sinn á
fund Henriks Ibsens og sakaði
hann um að hafa misnotað sig í
Brúðuheimilinu. Talið er að þessi
ásökun hafi verið mikilvæg
kveikja að síðasta leikriti Ibsens,
„Nár vi dode vágner", sem út kom
árið 1899. Sagt er aó ýmis tilsvör
þeirra beggja við uppgjörið komi
fram í leikritinu.
Laura Kieler varð kunn í Dan-
mörku einkum fyrir ritstörf sín og
fyrirlestra. Hún var meðal þeirra
10 kvenrithöfunda, sem fyrstar
komust á fjárlög árið 1883. Sem
rithöfundur var hún talsmaður
_ r
Rauði kross Is-
lands sendir föt til
Grænhöfðaeyja
FENGUR, skip Þróunarsamvinnu-
stofnunar íslands, heldur frá
Reykjavík á sunnudag til Græn-
höfðaeyja með fatasendingu Rauða
kross Islands til Rauða krossins á
Grænhöfðaeyjum. Siglingin tekur
um þrjár vikur.
Jttorgimtyfebtfe
\fct<<öiuhkk)á hvtrjum degi'
Nokkrum dögum eftir komu
skipsins til Grænhöfðaeyja verður
formlega tekin í notkun á einni
eyjanna, Porto Novo, þjónustu-
miðstöð sem Rauði kross íslands
hefur kostað. Þar verður aðstaða
fyrir Rauða krossinn til að kenna
skyndihjálp og veita ýmsa aðra
þjónustu á eyjunum. Kostnaður
RKÍ við þetta verkefni nemur um
450.000 krónum þannig að alls er
aðstoð RKÍ við Grænhöfðaeyjar
1.270.000 krónur að þessu sinni.
Þessi mynd var tekin á þriðjudag, þegar verið var að skipa fötunum um borð í
Feng. A myndinni eru (f.v.) Halldór Lárusson, skipstjóri, Stefán Pálsson, starfs-
maður RKÍ, Jón Ásgeirsson, framkvæmdastjóri RKÍ og Sigríður Guðmundsdóttir,
hjúkrunarfræðingur.
StykkLshólmur:
Mikið að gera í
fiskiðjuverum
Stykkishólmi 2. aprfl.
HÉR hefir verið mikið að gera í
fiskiðjuverunum undanfarið, enda
mikill afli sem borist hefir bæði af
bátunum hér og eins utan af Snæ-
fellsnesi. Hefir oft verið unnið lengi
frameftir og er ekki nema gott til
þess að vita. Hinsvegar er lítill
þorskkvóti á bátana hér, eins og oft
hefir komið fram í fréttum, og
skyggir það nokkuð á horfur um
vertíð.
Inflúensa hefir gengið hér og hefir
það bitnað mjög á skólunum og eru
margir nemendur fjarverandi á degi
hverjum.
Árni