Morgunblaðið - 15.04.1984, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 15.04.1984, Blaðsíða 38
Frá bílasýningunni K90r rtaaA ? r a rr’TTXTjr'To -r?rr* MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. APRÍL 1984 Nissan Prairie opinn upp á gátt. Enginn dyrastafur í miðju en undirgrind styrkt sérstaklega í staðinn. ferðabílunum nýju er hægt að leggja sæti niður á svipstundu og útbúa ágætis svefnpláss, eins og hér má sjá í Honda Civic Shuttle. Honda Civic Shuttle, bíll ársins frá Japan í fyrra. Mitsubishi Space Wagon með þrjár sætaraðir fyrir sjö manns. *%CS4*; Ný tegund bifreiða hér á landi: Ferðabílar með fjölbreytt notagildi Plymouth Voyager, átta sæti í þremur sætaröðum, viðarklæðning á hliðum. Ný tegund bifreiða er að ryðja sér til rúms, sem bílamenn nefna ferða- bíl framtíðarinnar. Fjórir slíkir eru sýndir á bílasýningunni Auto 84, frá Chrysler, Honda, Mitsubishi og Nissan, en fleiri framleiðendur eru að fara út í framleiðslu bíla af þess- ari tegund. Eru þeir frábrugðnir öðr- um í útliti og helztu kostirnir þeir að bílar þessir eru um allt rúmmeiri en aðrir fólksbílar, enda það fyrst og fremst haft í huga við hönnun þeirra. Eru þeir í senn fólksbflar, sendibflar og skutbflar. Lofthæð er óvenju mikil í þess- um bílum, svo enginn rekur sig upp undir, og pláss fyrir fætur mikið. Fulltrúi eins bifreiðaum- boðsins sagði að tölvur hefðu hannað þessa bíla. Þær hefðu ver- ið mataðar á ákveðnum staðhæf- ingum um innra rými, fóta- og höfuðrými, og síðan skilað útkom- unni. Annar sagði að hér væri um ferða- og fjölskyldubíl framtíðar- innar að ræða. Fólk hefði almennt meiri frítíma og vildi hentuga bíla til ferðalaga, en þó ekki það mikla ferðabíla að þeir væru óhentugir til borgaraskturs við dagleg störf. Notagildi þeirra væri því fjölþætt. Bílarnir fjórir á sýningunni eru Plymouth Voyager, Nissan Prair- ie, Honda Civic Shuttle og Mitsu- bishi Space Wagon. Plymouth Voyager er dýrastur, kostar 675 þúsund krónur. Er framhjóladrifinn, með fjögurra strokka 101 hestafls 2,2 lítra vél, sjálfskiptur og með aflstýri og afl- hemlum. Sæti eru fyrir sjö far- þega í þremur sætaröðum, litað gler í rúðum, viðarklæðning á hliðum, toppgrind áföst, bílstjóra- sæti rafdrifið og aftasta sæti fær- anlegt og hægt að leggja það fram. Afturhurð rennt aftur með hlið bílsins. Nissan Prairie er framleiddur sérstaklega í tilefni 50 ára afmæl- is Nissan í fyrra, framhjóladrif- inn, 5 gíra eða sjálfskiptur, með benzínvél. Verð óljóst, sýningar- bíllinn með 1,8 lítra 84 hestafla vél og mundi líkega kosta um 500 þús- und, en eins bíll með 1,5 lítra vél yrði líklega nær 400 þúsund krón- um og líklegri til innflutnings. Hægt er að fella öll sæti niður, rafmagnsdrifin sóllúga, sérstök áföst toppgrind, fimm sæta en Ljósm. Mbl. Kristján Einarsson. hægt að setja aukabekk aftast, svo sæti verði fyrir 7—8 manns. Veg- hæð 19 sm. Afturhurð rennt aftur með hliðinni. Honda Civic Shuttle var valinn bíll ársins í Japan í fyrra. Kostar 399 þúsund krónur, sjálfskiptur með 1,5 lítra 88 hestafla benzínvél, framhjóladrifinn. Hægt að fella öll sæti niður og því hægt að sofa í bílnum. Sæti eru fyrir fimm. Mitsubishi Space Wagon, eða geimvagninn, er framhjóladrifinn skutbíll, 5 gíra með 1,8 lítra fjög- urra strokka 90 hestafla vél, með aflstýri og aflhemlum. Kostar 419.500 krónur. Sæti fyrir sjö í þremur sætaröðum, sem er hægt að breyta í svefnsófa eða farang- ursrými eftir þörfum. Rúllubíl- belti í hverju sæti og farþegarým- ið byggt upp sem öryggisbúr ef til árekstrar kæmi. Suzuki Alto, einn minnsti smábfllinn. Úrval af smábflum Glöggt kemur fram á bflasýningunni Auto 84 að úrval af smábflum er mikið, en þeir eru að miklu leyti svar bflaframleiðenda við olíu- og orkukreppunni, sem skall á fyrir um áratug. Bflar kosta flestir frá rúmum 200 þúsund krónum upp í rúmar 300 þúsund. Bifreiðir þessar eru yfirleitt mjög eyðslugrannar, margar með vél sem hefur innan við eitt þúsund rúmsentimetra strokk- rúmtak, og er 40—60 hestöfl. í þessum flokki eru t.d. Suzuki, Daihatsu Charade, Nissan Micra, Ford Fiesta, Fiat Uno, Renault 11, Peugeot Samba, Skoda Rapid o.fl. Suzuki Alto, sem er fimm dyra, er í hópi minnstu smábíl- anna, með 0,8 lítra 40 hestafla vél. Benzíneyðslan er fimm lítr- ar á hundraðið. Verðið er 219 þúsund krónur. Ford Fiesta er með 45 hestafla vél, 1,0 lítra, en er framleiddur með fjórum mismunandi vélar- stærðum. Sex gírar og eyðsla innanbæjar innan við sjö lítrar. Kostar frá 246 þúsund. Daihatsu Charade CX Turbo er smábifreið, sem brátt verður fáanleg hér á markaði. Fimm dyra, með 80 hestafla 1,0 lítra þriggja strokka vél og eyðir milli sjö og átta lítrum í innanbæjar- akstri. Áætlað verð rúmlega 360 þúsund og því einna dýrastur í flokki smábíla, en innifalin er ryðvörn, skráning, bifreiðaskatt- ur, númeraspjöld og fullur tank- ur af benzíni. Peugeot Talbot Samba er einnig neyzlugrönn, eyðir 4,6 lítrum á 90 km hraða, en 5,8 inn- anbæjar. Vélin 1,1 lítra og 50 hestafla og 1,3 lítra og 72 hest- afla. Fimm áframgírar. Verð rétt innan við 300 þúsund. Ýmsa aðra bíla væri hægt að telja til þessa flokks. Daihat.su Charade Turbo er ný smábifreið, sem væntanleg er á markað á íslandi. Fornbílar skipa sérstakan sess Fornbílar skipa sérstakan sess á bílasýningu Bflgreinasambandsins, en þeir eru sýndir í Á.G.-húsinu, sem er við Bíldshöfða, gegnt sýningarhöllinni. Fornbflasýningin er í umsjá Fornbflaklúbbs íslands, sem hefur það m.a. að markmiði að vekja áhuga og skilning minjagildi. Á þessu ári eru liðin 80 ár Langflestir fornbílanna á sýn- ingunni eru gangfærir, en þar er að finna úrval þeirra bifreiða, sem félagar í Fornbílaklúbbnum eiga og gerðar hafa verið upp. Elzti sýningarbíllinn er Ford TT vörubifreið frá 1917. Bíllinn var alla tíð notaður í Hafnarfirði, m.a. hjá Lýsisbræðslu Bookless, og er talið að fyrsta skrásetningarnúm- er hans hafi verið HF-27. Áður en Þjóðminjasafnið eignaðist bílinn, var hann eign Bjarna Erlendsson- á gömlum bflum, varðveizlu þeirra og frá því bifreiðaakstur hófst á fslandi. ar á Víðistöðum í Hafnarfirði. Bif- reiðin var endursmíðuð á árunum 1978—79. Það gerði Pétur G. Jóns- son. Annar öldungur var Citroén- bifreið, gerð B 10, frá 1923—24, sem kom hingað til lands 1926 frá Danmörku eða írlandi. Bifreiðin var innflutt sem fimm manna blæjubíll, en var breytt á stríðsár- unum í pallbíl, og sæti aðeins fyrir bílstjóra og einn farþega. Uppúr 1963 var bifreiðinni enn breytt og Ford TT-vörubifreið frá 1917, elzti fornbfllinn á sýning- unni. „llagamúsin" frá Renault, sem flutt var á sínum tíma ásamt rúmlega eitt hundrað öðrum án tilskilinna leyfa. Citroen, sem kom hingað til lands 1926, og var um tíma pallbíll, en er nú með Caddy-lagi. Dodge Deluxe frá 1940.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.