Morgunblaðið - 15.04.1984, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. APRlL 1984
41
ÞINGBRÉF
eftir STEFÁN FRIÐBJA RNA RSON
um, að hér verði sem fyrst mörkuð
sú almenna upplýsingastefna sem
þegar er farið að fylgja víða er-
lendis."
Hér er rétt og hyggilega mælt.
Lífskjör þjóðarinnar í næstu
framtíð velta á þrennu, öðru frem-
ur: 1) Að nýta möguleika, sem for-
sjónin leggur okkur upp í hendur:
í stóriðju, lífefnaiðnaði og fiskeldi,
svo dæmi séu nefnd, auk tækifæra
í hefðbundnum atvinnuvegum, 2)
Að þjóðfélagsgerðin efli hvata
framtaks í brjóstum þegnanna —
og skapi það svigrúm sem til þess
þarf að framtakið njóti sín. Þessi
liður spannar einnig rétt arðsem-
ismat í lánsfjárstýringu og fjár-
festingu. 3) Að sú menntun og
þekking, sem til staðar er á sviði
tækni og vísinda, verði nýtt, en á
það skortir verulega.
í greinargerð segir ennfremur:
„Húsbyggingar og húsnæðis-
kostnaður eru einn dýrasti liður-
inn- í útgjöldum yngri heimila í
dag og mun verða svo um langa
framtíð. Á undanförunm árum, og
raunar enn, hefur athyglin eink-
um beinzt að öflun lánsfjár til
húsbygginga. Minni áherzla hefur
verið lögð á að lækka byggingar-
kostnað sem að miklu leyti hefur
dulizt í verðbólgu og óverðtryggð-
um lánum. Hann verður hinsvegar
greinilegri þegar sífellt fleiri búa í
húsnæði sem eingöngu er reist
fyrir verðtryggt lánsfé.“
Hérlendis og erlendis er fjöl-
breytt framboð á þekkingu og
tækni, efni og þjónustu til hús-
bygginga og umfangsmiklar rann-
sóknir í gangi. Fjölmargar nýj-
ungar skjóta upp kolli á ári
hverju. Skipuleg, viðvarandi miðl-
un þekkingar og reynslu af þessu
tagi getur sparað mikla fjármuni.
Menntun, þekking og tækni.
Þessi eru kenniorð velmegunar í
fyrirsjáanlegri framtíð. En það
þarf framtak til þess að standa
ekki í stað; til að höndla hnossið.
Tvær hliðar á
sama fyrirbærinu
Lífskjör og þjóðartekjur eru
tvær hliðar á sama fyrirbærinu.
Ef tekjur þjóðarinnar standa ekki
undir lífsmáta hennar segja af-
leiðingar fljótlega til sín: við-
skiptahalli við útlönd, vöxtur er-
lendra skulda, gengissig innlends
gjaldmiðils (eða hrun) og verð-
bólga.
Þetta verður að hafa í huga þeg-
ar horft er — gegn um fjárlaga-
gatið — á helztu efnahagsstað-
reyndir í þjóðarbúskapnum:
• Aætluð útflutningsverðmæti
afurða úr helzta nytjafiski okkar,
þorskinum, á líðandi ári eru 4.700
m.kr., en vóru 9.844 m.kr. 1981, á
föstu verðlagi ársins í ár mælt.
Þetta er meir en helmingslækkun.
Markaðsverð sjávarafurða verður
að líkindum 2% lægra í dollurum
1984 en að meðaltali 1983.
• Þjóðhagsstofnun telur (Ágrip
úr þjóðarbúskapnum/janúar 1984)
að þjóðarframleiðsla í ár minnki
um 4,5% frá fyrra ári. Hún hefur
þá minnkað um nálægt 12% á
þremur árum.
• Þar að auki tekur greiðslubyrði
erlendra skulda hátt í fjórðung út-
flutningstekna okkar í ár og
næstu ár, eða 22—24%. Breytileg
vaxtakjör hafa áhrif á umfang
þessarar skerðingar þjóðartekna.
• Súlurit það, sem fylgir þing-
bréfi, sýnir, að þjóðartekjur á
mann 1984 verða aðeins 95% af
því sem þær vóru 1977 — og kaup-
máttur ráðstöfunartekna fer í
92% af því sem hann var 1977.
• Súluritið sýnir einnig að á síð-
asta heila ári fráfarinnar ríkis-
stjórnar vóru þjóðartekjur á
mann komnar niður í það sem þær
vóru 1977 og vel niður fyrir það
við stjórnarskiptin. Ekkert hafði
gerzt 1978—1983 í stóriðjumálum,
ekkert í undirbúningi lífefnaiðn-
aðar; engar nýjar stoðir — í það
heila tekið — verið settar undir
atvinnu og efnahag landsmanna.
Hér skal ekki rakinn sá árangur
sem náðst hefur í tíð núverandi
ríkisstjórnar í hjöðnun verðbólgu,
hjöðnun viðskiptahalla, vaxta-
lækkun o.s.frv. Á hitt er vert að
minna, sem ekki hefur verið eins
rækilega tíundað, að við fjárlaga-
gerð 1984 náðist fram nokkur
niðurskurður í ríkisútgjöldum.
Þau náðust þá niður í 28,7% (úr
30,7%) af þjóðarframleiðslu eða í
svipað hlutfall og þau vóru 1978.
Þegar af þeim sökum þykir það
vart framkvæmanlegt að „stoppa í
fjárlagagatið", sem telst vera um
1.900 m.kr. (þ.e. ríkissjóðsútgjöld
umfram tekjur 1984), með viðbót-
arniðurskurði einum saman.
Steingrímur Hermannsson, for-
sætisráðherra, og Þorsteinn
Pálsson, formaður Sjálfstæðis-
flokksins, lýstu því yfir í utan-
dagskrárumræðu á Alþingi sl.
miðvikudag, að ríkisstjórnin
myndi standa við öll sín efna-
hagsmarkmið. Ef meginpunktar í
máli þeirra eru dregnir saman
verða þeir efnislega þessir:
• Staðið verður við það að verð-
bólga verði ekki meiri en 10% í lok
líðandi árs.
• Staðið verður við það að geng-
isbreytingar verði ekki umfram
5% á árinu, í plú« eða mínus, enda
stöðugleiki í gengismálum for-
senda þess að hægt sé að ná settu
hjöðnunarmarki dýrtíðar, sem og
varðveita það kaupmáttarstig,
sem um hefur samizt.
• Til þess að ná settu marki mun
ríkisstjórnin og gera ráðstafanir
til að draga úr fyrirsjáanlegum
halla ríkissjóðs.
• í sama tilgangi mun hún, í sam-
ráði við bankana, gera ráðstafanir
til að draga úr þenslu í peninga-
málum.
Öllum, sem fylgzt hafa með
stjórnmálum, er ljóst, að einhugur
hefur ekki ríkt í ríkisstjórninni né
stjórnarflokkunum um viðbrögð
gegn fyrirsjáanlegum ríkissjóðs-
halla. Það er hinsvegar hyggilegra
verklag að leysa slíkan ágreining á
þingflokka- og ríkisstjórnar-
fundum en í fjölmiðlum. Mergur-
inn málsins er þó sá að stjórn-
málamenn, sem axlað hafa hina
stjórnarfarslegu ábyrgð, taki af
skarið um viðbrögð. Það er þeirra
verk. Allir velviljaðir menn vona
að þeim takist það farsællega.
Hver vill, þegar hann skoðar
hug sinn af einlægni, ganga með
Alþýðubandalaginu aftur á bak
inn í fortíð óðaverðbólgu, hávaxta,
viðskiptahalla og erlendrar
skuldasöfnunar?
Aðalfundur
Ferðafélags
íslands
t
Útför mannsins míns, fööur okkar og tengdaföður,
BJÖRNS LEVÍ ÞORSTEINSSONAR,
húsgagnasmíöameistara,
Höröalandi 6,
AÐALFUNDUR Ferðafélags ís-
lands var haldinn á Ilótel Hofi 13.
mars sl. Fundarstjóri var Eyþór
Einarsson, formaður Náttúru-
verndarráðs.
Davíð Ólafsson, forseti félags-
ins, setti fundinn og minntist
tveggja látinna félaga, Helgu
Teitsdóttur og Jóhannesar Ás-
geirssonar. Þau voru bæði kjör-
félagar í Ferðafélagi íslands.
Helga Teitsdóttir starfaði á
skrifstofu ferðafélagsins í 37 ár.
I skýrslu stjórnar kom fram
að ferðafélagið hafi reist sælu-
hús fram á síðustu ár, ekkert þó
á árinu 1983, og að enn kæmu
fram óskir um byggingu sælu-
húsa á nýjum stöðum. Sæluhús-
in eru nú orðin 16.
Félagið hóf útgáfu „Frétta-
bréfs" á síðasta ári og hafa þeg-
ar komið út tvö tölublöð.
Þórunn Lárusdóttir, fram-
kvæmdastjóri félagsins, las upp
endurskoðaða reikninga fyrir
árið 1983 og samþykktu fund-
armenn þá einum rómi.
Þá hófust umræður um laga-
breytingar, sem var vísað til
nefndar, sem á að undirbúa
lagabreytingar fyrir næsta aðal-
fund.
veröur gerð frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 17. apríl kl. 10.30.
Blóm og kransar afþakkaöir en þeim sem vildu minnast hins látna
er bent á líknarstofnanir.
Anna Jónsdóttir.
Örlygur Björnsson,
Hreinn Björnsson,
Þorsteinn Björnsson,
Sveinbjörn Björnsson,
Sturla Björnsson.
Ásta Gunnarsdóttir,
Sigríöur Sigtryggsdóttir,
Guörún Halldórsdóttir,
Kristín Pálsdóttir,
t
Útför bróöur okkar,
FRIÐJÓNS STEFÁNSSONAR
Irá Noröfiröi,
sem lést á Hrafnistu 9. apríl fer fram frá Áskirkju 16. apríl kl. 13.30 e.h.
Fyrir hönd vandamanna.
Ásta Stefánsdóttir,
Bjarney Stefánsdóttir.
t
Jaröarför föður míns og stjúpfööur okkar,
GESTS GUNNLAUGSSONAR,
bónda í Meltungu,
veröur gerö frá Fossvogskapellu þriðjudaginn 17. april kl. 15.00.
Blóm vinsamlegast afbeöin en þeim sem vildu minnast hans er
vinsamlegast bent á hjúkrunarheimiliö Sunnuhlíð i Kópavogi.
Jóhann Gestsson og stjúpdætur.
t
Þökkúm innilega auösýnda samúð og hlýhug viö andlát og útför
móöur okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
ÖNNU KRISTÍNAR JÓNSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á sjúkradeild kvenna á Hjúkrunar-
og elliheimilinu Grund.
María Eyþórsdóttir,
Hulda Ágústsdóttir, Rögnvaldur Gunnlaugsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúö viö andlát og útför,
JÓNU E. JÓHANNESDÓTTUR
frá Horni,
Hlíöarvegi 32, ísafiröi.
Haraldur Stígsson,
Bergmundur Stígsson,
Sigrún Stígsdóttir,
Arnór Stígsson,
Rebekka Stígsdóttir,
Anna Stígsdóttir,
Helga Stígsdóttir,
Stígur Stígsson,
börn og
Bjarnveig Jakobsdóttir,
Jóna B. Guómundsdóttir,
Hörður Davíösson,
Málfríöur Halldórsdóttir,
Sturla Halldórsson,
Ragúel Hagalínsson,
Halldóra Daníelsdóttír,
barnabörn.
Þökkum innilega samúö og hlýhug viö fráfall og útför
AÐALHEIÐAR JÓHANNESDÓTTUR,
Stigahlíð 12.
Arnór Sigurösson,
Guðmundur Arnórsson,
Jón Arnórsson,
Sigmar Arnórsson,
Sigurður Arnórsson,
Málfríöur Arnórsdóttir
Björn Ástmundsson,
Berghildur Gísladóttir,
Heiörún Aðalsteinsdóttír,
Sigrún Baldvinsdóttir,
og barnabörn.
t
Þökkum innilega auösýnda samúö og vináttu viö andlát og útför
bróður okkar, tengdafööur og afa,
SIGURÐAR SIGFINNSSONAR
frá Norðfiröi.
Sérstakar þakkir til hjúkrunar- og starfsfólks Hrafnistu, Hafnar-
firði, fyrir góöa umönnun.
Jóhanna Sigfinnsdóttir,
Sigurbjörg Sigfinnsdóttir,
Guöný Valtýsdóttir, Paul R. Smith,
Valgerður Eiriksdóttir,
Þór Eiríksson.
+
Þökkum auðsýnda samúö viö andlát og útför eiginkonu minnar,
móöur, dóttur og systur,
INGIBJARGAR GUNNARSDÓTTUR,
Sandholti 28,
Ólafsvík.
Siguróur Haraldsson,
Margrét Gylfadóttir, Jóna Sigurgeirsdóttir.
Rannveig Gylfadóttir, Gunnar Klængsson,
Jón Gunnar Gylfason, Gunnar K. Gunnarsson.
Legsteinar Framleíðum allar stærðir og gerðir af legsteinum. Veitum túslega upplýsingar og ráðgjöf um gerð og val legsteina.
| S.HELGASON HF STEINSHHIÐJA SK0JMKÆGI 48 Sávtt 70677
LEG MO: Hamarshö STEIN AR I.F. li 81960
SAIK fða 4 — H Sirr